Morgunblaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 66
66 SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Bandaríski söngvarinn Tom Waits hefur unnið mál sem
hann höfðaði gegn bílaframleiðand-
anum Wolkswagen-Audi í Barcelona
á Spáni, en bílaframleiðandinn not-
aði eftirhermu til að líkja eftir söng-
rödd hans í auglýsingu fyrirtæk-
isins. Eftirherman söng lagið
„Innocent When You Dream“ en
Tom Waits hefur aldrei gefið leyfi
fyrir því að nota lög eftir sig í aug-
lýsingum.
Þykir bílafram-
leiðandinn hafa
brotið höfund-
arrétt söngv-
arans með því að
láta leikara
syngja lagið án
tilskilinna leyfa.
Lagið sem um
ræðir er á plötu Tom Waits, Frank’s
Wild Years, frá árinu 1987.
Talsmaður söngvarans sagði þeg-
ar dómsniðurstaða lá fyrir að skjól-
stæðingur sinn fengi „nokkur þús-
und evrur“ í skaðabætur frá
bílaframleiðandanum og auglýs-
ingastofunni. Þá sagði hann jafn-
framt að þetta væri í fyrsta sinn sem
dómstóll á Spáni hefði dæmt höfundi
í vil í höfundaréttarmáli.
Framleiðandi auglýsingarinnar
hafði sótt um leyfi til að fá að nota
lag Waits í auglýsingunni en ekki
fengið. Waits og útgefandi hans
unnu málið á lægra dómsstigi árið
2004 áður en því var áfrýjað til
hærra dómsstigs.
Fólk folk@mbl.is
Frásagnir herma að Tom Cruisehafi komið í veg fyrir að South
Park þáttur, þar sem verið er að
gera grín að honum, verði sýndur í
Bretlandi. Þátturinn, þar sem Nic-
ole Kidman og John Travolta, sem
er meðlimur Vísindasafnaðarins líkt
og Cruise, reyna að lokka teikni-
myndaútgáfu af Cruise út úr skápn-
um olli miklu
fjaðrafoki þegar
hann var sýndur í
Bandaríkjunum.
Í þættinum
segir teikni-
myndaútgáfa af
Kidman við
Cruise: „Hefur
þetta ekki staðið
nógu lengi? Það er kominn tími til að
þú komir út úr skápnum. Þú blekkir
engan,“ – en þarna er verið að vísa
til kynhneigðar leikarans.
Samkvæmt vefsíðunni TheRegist-
er.co.uk hefur Paramount kvik-
myndafyrirtækið samþykkt að sýna
þáttinn aldrei aftur eftir að Cruise
kvartaði undan honum.
„Það er löngu orðið þekkt hve
þrætugjarn Tom er og hann mun
gera allt sem í hans valdi stendur til
þess að verja mannorð sitt. Tom á
ekki að hafa líkað þátturinn og
Paramount einfaldlega tók ekki
áhættuna á því að sýna hann aftur.
Það er skömm að breskir áhorf-
endur fái ekki að sjá þáttinn því
hann er afar fyndinn,“ sagði heimild-
armaður TheRegister.co.uk.
Blúsarinn aldraði B.B. King, semer áttræður að aldri, er sagður
vera að íhuga að láta næstu tón-
leikaferð sína um heiminn verða þá
síðustu. Tón-
leikaferð hans
hefst í mars
næstkomandi.
Þótt frekari
heimsreisur séu
ekki á dagskrá
hefur hann ekki í
hyggju að leggja
skóna alfarið á
hilluna því hann ætlar að halda
áfram að koma fram á tónleikum í
Bandaríkjunum.
„Ég man varla eftir því að ég sé
áttræður nema þegar ég þarf að
hlaupa upp hæðir og brekkur,“
sagði King. „Svo lengi sem fólk
kaupir plöturnar mínar og kemur á
tónleikana þá langar mig ekki til að
gera neitt annað,“ sagði hann.
Að sögn Jerry Digneys, fjöl-
miðlafulltrúa B.B. King, hefur hann
farið á tónleikaferðir á hverju ári í
60 ár.