Morgunblaðið - 22.01.2006, Side 2
2 SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
RUGOVA FALLINN FRÁ
Ibrahim Rugova, forseti Kosovo,
lést í gærmorgun 61 árs að aldri.
Hann var greindur með lungna-
krabbamein í september á síðasta
ári en Rugova var fram að þeim
tíma stórreykingamaður. Rugova
var í miklum metum hafður meðal
Kosovo-Albana en hann hafði verið
leiðtogi sjálfstæðishreyfingar þeirra
frá því á níunda áratugnum.
Hann heitir Kristján
Friðrik krónprins Danmerkur og
kona hans, Mary Donaldson, létu í
gær skíra frumburð sinn, hlaut
hann nafnið Kristján Valdemar
Henri John. Kristján Valdemar er
þriggja mánaða gamall en hann
kann einn góðan veðurdag að verða
konungur Danaveldis.
Hagstætt að fá nýtt kúakyn
Hægt er að auka afurðir í mjólk-
urframleiðslu um 60–70% með því
að flytja inn danskt kúakyn, að mati
Péturs Diðrikssonar, bónda á
Helgavatni í Borgarfirði. Við-
skiptaháskólinn á Bifröst vann í vet-
ur skýrslu um áhrif þess á rekstur
búsins á Helgavatni ef þar yrði not-
ast við danskar kýr. Niðurstaðan er
að hagnaður búsins ykist um tæp-
lega 20% ef skipt yrði um kúakyn.
Kollvarpar vísindakenningu
Niðurstöður nýlegrar greinar í
vísindatímaritinu Nature kollvarpa
áður viðteknum hugmyndum í
taugavísindum. Fyrsti höfundur
greinarinnar er ungur, íslenskur
vísindamaður, Ragnhildur Kára-
dóttir. Hún stundar doktorsnám í
taugavísindum við University
College London undir handleiðslu
David Attwell.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Dagbók 60/64
Hugsað upphátt 33 Myndasögur 60
Forystugrein 38 Víkverji 60
Reykjavíkurbréf 38 Staður og stund 62
Sjónspegill 40/41 Velvakandi 64
Auðlesið efni 44 Leikhús 64
Umræðan 46/53 Bíó 70/73
Bréf 53 Sjónvarp 74
Hugvekja 54 Staksteinar 75
Minningar 54/57 Veður 75
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir kynningarblaðið Sérferðir frá
Ferðaþjónustu bænda.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is
Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is
Inga Rún Sigurðardóttir, ingarun@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson
Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
GEIR Haarde formaður Sjálf-
stæðisflokksins og utanríkisráð-
herra hélt fund á Akureyri í gær-
morgun með trúnaðarmönnum
flokksins í Eyjafirði. Fundurinn
var liður í fundaferð formannsins
um landið um þessar mundir. Í
gær hitti hann stjórnarmenn
flokksfélaga við Eyjafjörð, full-
trúaráð og kjördæmisráð, sveit-
arstjórnarmenn, þingmenn og
nokkra frambjóðendur flokksins
til sveitarstjórnarkosninganna í
vor.
Að baki Geir er Björn Magnús-
son, formaður fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna á Akureyri, með
ljósmynd af formanninum, sem
Björn kom með á fundinn. Hún
verður hengd upp við hlið mynda
af fyrrverandi formönnum flokks-
ins á skrifstofunni. Í baksýn má
sjá myndir af Geir Hallgrímssyni
og Þorsteini Pálssyni.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Geir í góðum félagsskap
NIELS Jacobsen, stjórnarfor-
maður danska fjárfestingar-
félagsins William Demant Invest
A/S, segir fyrirtækið ekki stefna
að yfirtöku á Össuri og ekki hafa í
hyggju að kaupa fleiri hlutabréf í
fyrirtækinu. Fjárfestingarfélagið
á um 37% hlut í Össuri, en yfir-
tökuskylda myndast við 40% eign-
arhlut.
Haft var eftir Jafet Ólafssyni,
framkvæmdastjóra Verðbréfa-
stofu, í Morgunblaðinu á föstudag,
að ekki væri útilokað að William
Demant, sem er skráð í Kauphöll-
inni í Kaupmannahöfn, myndi yf-
irtaka Össur. Jacobsen leggur
áherslu á að hér sé um getgátur að
ræða og engar aðgerðir af hálfu
fjárfestingafélagsins gefi tilefni til
þeirra. William Demant Invest
hafi fyrst fjár-
fest í Össuri
sumarið 2004
og þá hafi fé-
lagið aukið hlut
sinn í fyrirtæk-
inu í fyrrasum-
ar. Við það til-
efni sagði
Jacobsen að yf-
irtaka á Össuri
væri ekki á döfinni.
„Afstaða okkar hefur ekki
breyst frá því við jukum hlutafé
okkar í fyrirtækinu í fyrra.“ „Þá
gerðum við skýra grein fyrir því
að við teldum þetta góða lang-
tímafjárfestingu og að við vildum
styðja vöxt Össurar sem skráðs
fyrirtækis á hlutabréfamarkaði,“
segir Niels Jacobsen.
Stefna ekki að
yfirtöku á Össuri
Niels Jacobsen
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur
samþykkti á fundi sínum í liðinni
viku að vísa til umfjöllunar á aðal-
fundi Samtaka sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu tillögu Ólafs F.
Magnússonar, borgarfulltrúa
F-lista, um niðurfellingu strætis-
vagnafargjalda barna og unglinga
að 18 ára aldri ásamt fargjöldum
aldraðra og öryrkja.
Í tillögu Ólafs, sem hann lagði
fram á fundinum, er lagt til að
kostnaði vegna niðurfellingar far-
gjalda hjá þessum hópum verði
mætt með auknu framlagi sveitarfé-
laganna á höfuðborgarsvæðinu til
fyrirtækisins. Samhliða niðurfell-
ingu fargjaldanna verði lögð mikil
áhersla á að sem flestir íbúar höf-
uðborgarsvæðisins nýti almennings-
samgöngur, með því að gera sér-
stakt átak í þeim efnum.
Í greinargerð vegna tillögunnar
bendir Ólafur á að kostnaður vegna
niðurfellingar fargjaldanna verði
um 220 milljónir króna á ári. Þetta
sé lág upphæð miðað við þann
ávinning sem af gæti hlotist. „Hug-
arfarsbreyting og stóraukin nýting
strætisvagna er eins og áður segir
markmið tillögunnar. Ef það næst
fram myndi draga úr yfirgengilegri
notkun einkabíla og mikilli mengun
í borginni. Heilsuspillandi útblástur
frá bifreiðum og svifryk á götum
borgarinnar fer æ oftar yfir hættu-
mörk og við því verður að bregð-
ast.“
Miklar fargjaldahækkanir
Í málsmeðferðartillögu Reykja-
víkurlistans segir að í ljósi þess að
gjaldskrármál Strætó bs. séu til
umfjöllunar í umhverfisráði Reykja-
víkurborgar og þess að stjórn
Strætó bs., sem er í eigu sjö sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu, fari
með ákvörðunarvald í gjaldskrár-
málum, sé tillögunni vísað til um-
fjöllunar á aðalfundi Samtaka sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Í bókun borgarstjórnarflokks
sjálfstæðismanna vegna málsins
segir að einhverjar mestu fargjalda-
hækkanir í sögu almenningssam-
gangna í Reykjavík hafi orðið að
veruleika fyrir nokkrum dögum.
Sjálfstæðismenn harmi þau vinnu-
brögð stjórnar Strætó bs. að hækka
gjaldskrá án samráðs við umhverf-
isráð Reykjavíkurborgar.
Málsmeðferðartillaga meirihlut-
ans var samþykkt með 14 sam-
hljóða atkvæðum, en Ólafur F.
Magnússon sat hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Börn fái
ókeypis í
strætó
ÞEIR sem búa í atvinnuhúsnæði sem
breytt hefur verið í íbúðarhúsnæði
þurfa ekki að borga hærra þrep fast-
eignaskatts sem lagt er á atvinnuhús-
næði, samkvæmt dómi sem gengið
hefur í Héraðsdómi Reykjaness.
Þetta getur haft mikla þýðingu fyrir
þá sem búa í atvinnuhúsnæði og inn-
rétta í því íbúð.
Fasteignaskattur á atvinnuhús-
næði er allt að 1,32% af fasteigna-
mati, en fasteignaskattur á íbúðar-
húsnæði allt að 0,5%.
Fjöldi fólks í sömu aðstöðu
Málavextir voru þeir að Kópavogs-
bær stefndi íbúum í húsnæði við
Hafnarbraut í Kópavogi og krafðist
þess að húsnæði þeirra yrði skattlagt
sem atvinnuhúsnæði og þannig
hnekkt úrskurði yfirfasteignamats-
nefndar ríkisins að húsnæðið yrði
skattlagt sem íbúðarhúsnæði.
Stefndu keyptu umrætt húsnæði árið
2000 og innréttuðu það sem íbúð.
Hafa þau haft þar lögheimili og
vinnustofu frá þeim tíma. Kröfðust
stefndu sýknu af kröfum Kópavogs-
bæjar og auk þess að staðfestur yrði
úrskurður yfirfasteignamatsnefndar.
Þá gagnstefndu stefndu og kröfðust
endurgreiðslu oftekinna fasteigna-
skatta með dráttarvöxtum.
Niðurstaða dómsins var sú að engu
skipti hvort fólk hefði tilskilið leyfi til
að íbúð væri í atvinnuhúsnæði. Ef
fólk býr sannarlega í húsnæðinu skal
skattleggja það sem íbúð. Féll dómur
því stefndu í vil og var Kópavogsbær
ennfremur dæmdur til að endur-
greiða íbúunum 710.994 krónur með
vöxtum auk málskostnaðar.
Grímur Sigurðsson, hdl. hjá
Landslögum lögfræðistofu, flutti mál-
ið fyrir hönd kærðu. Segir hann ljóst
að umtalsverðir fjármunir séu hér í
húfi fyrir fjölda fjölskyldna, en gera
megi ráð fyrir að tugir ef ekki hundr-
uð fjölskyldna séu í sömu aðstöðu og í
þessu máli.
Þórður Clausen Þórðarson hdl.
flutti málið fyrir hönd Kópavogsbæj-
ar. Dómari var Finnbogi H. Alexand-
ersson.
Atvinnuhúsnæði sem búið er í skattleggist sem íbúðir
Getur haft verulega
þýðingu fyrir fólk