Morgunblaðið - 22.01.2006, Síða 4
4 SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
„Þétt og hröð saga sem heldur lesandanum í
heljargreipum.“
Publishers Weekly
„Afar sannfærandi ... lesandanum rennur kalt
vatn milli skinns og hörunds ... og
blóðþrýstingurinn hækkar áreiðanlega svo um
munar.“
People
Spenna og hrollur
Michael Connelly er metsöluhöfundur í USA og
einn vinsælasti glæpasagnahöfundur heims um
þessar mundir. Á
íslensku hefur áður
komið út eftir hann
spennusagan Skáldið.
edda.is
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
11. – 17. jan.
1.
Skáldverk - kiljur
Kilja á góðu verði
1.799 kr.
ATLANTSSKIP í Kópavogi er að
sprengja aðstöðuna við höfnina utan
af sér. Forráðamenn fyrirtækisins
hafa sóst eftir því hjá bæjaryfirvöld-
um að fá stærra athafnasvæði á
staðnum og lengingu viðlegukants
hafnarinnar sem fyrst, enda fyrirséð
að vöxtur félagsins verði 60–70% á
þessu ári, en lítið orðið ágengt um
úrlausnir.
Að sögn Gunnars Bachmann,
framkvæmdastjóra Atlantsskipa,
hafa samningaviðræður staðið yfir
milli aðila undanfarna 8 mánuði um
að leysa þessi mál félagsins. „Brýn-
asta verkefnið er stækkun gáma-
vallarins. Það er í dag 12.000 fer-
metrar og er of lítið miðað við okkar
þarfir. Auk stærra svæðis, langs
samningstíma og lengingu viðlegu-
kantsins vildum við einnig fá gáma-
svæðið frágengið með bundnu slit-
lagi,“ sagði Gunnar. Hann bætti við
að 30 milljóna króna gámalyftari
með 120 tonna öxulþunga eyðilegð-
ist mjög hratt við núverandi aðstæð-
ur. Hann er búinn að brjóta upp ol-
íumöl sem er á hluta svæðisins
vegna þess að olíumölin ræður ekki
við þunga tækisins þegar hann er að
flytja til gáma. Hluti gámavallarins
er einnig malarsvæði og það fer illa
með tæki sem þessi.
Stirðleiki í viðræðum
„Stirðleiki í samningaviðræðum
og að við höfnuðum fyrir jólin að
skrifa undir drög að samkomulagi
sem okkur fannst óviðunandi leiddi
til þess að bæjaryfirvöld sögðu
samningnum við okkur upp en þeg-
ar hann var gerður á sínum tíma var
hann ótímabundinn,“ sagði Gunnar.
Hann bætti við að nú væru for-
ráðamenn félagsins að skoða ýmsa
kosti í stöðunni og ef þeir mögu-
leikar rætast gætu Atlantsskip verið
á leiðinni úr Kópavogi. „Við höfum
skipt út skipum reglulega tvisvar á
ári fyrir stærri. Á síðasta ári óx
flutningsgetan um 130% og er í lok
árs 674 teu (20 feta gámur eða 1
gámaeining) með tveimur skipum
sem eru jafnlöng og lengri en við-
legukantur hafnarinnar. Næsta
sumar skiptum við inn tveimur skip-
um, 500 teu og 400 teu, þannig að
flutningsgetan fer í 900 teu.
Bæjaryfirvöld í Kópavogi vilja
byrja lengingu á hafnarkantinum og
stækkun svæðisins um rúmlega
4.000 rúmmetra. Aðstaðan verður
þó ekki tilbúin til notkunar fyrr en
árið 2008 en þá verðum við löngu
búnir að sprengja allt utan af okkur
nema við grípum til róttækra að-
gerða,“ sagði Gunnar og vildi ekki
gefa upp frekari stöðu mála sem
hann sagði á viðkvæmu stigi í
augnablikinu.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Þröngt er orðið um Atlantsskip í Kópavogshöfn og fyrirséð er að vöxtur fyrirtækisins verði 60–70% á þessu ári.
Atlantsskip flytjast
frá Kópavogi
Eftir Kristin Benediktsson
BYGGINGAFULLTRÚINN í
Reykjavík samþykkti eignaskiptayf-
irlýsingu fjöleignarhúss án þess að
fyrir lægi samþykki eigenda, en
ágreiningur var um stærð og skipt-
ingu eignarinnar meðal þeirra. Eig-
endurnir sendu kvörtun til umboðs-
manns Alþingis vegna þessa.
Í áliti umboðsmanns segir að
byggingarfulltrúa hafi verið ritað
bréf vegna málsins, en þar var óskað
eftir upplýsingum og afstöðu hans til
álitaefnisins. Í svarbréfi byggingar-
fulltrúans staðfesti hann að hann
hefði áritað yfirlýsinguna og sagði að
það væri almennt svo að hann gengi
ekki eftir því að samþykki eigenda
eignar á eignaskiptayfirlýsingu lægi
fyrir þegar hann samþykkti hana.
Eftir að svar byggingarfulltrúa
barst ritaði umboðsmaður félags-
málaráðuneytinu bréf vegna máls-
ins. Þar óskaði hann eftir því að
ráðuneytið lýsti afstöðu sinni til þess
hvort það teldi byggingarfulltrúa
heimilt að staðfesta eignaskiptayfir-
lýsingu án þess að hún hefði hlotið
samþykki eigenda viðkomandi eign-
ar í samræmi við ákvæði laga.
Í svarbréfi til umboðsmanns kom
fram að ráðuneytið teldi að færa
mætti rök fyrir því að ákveðið hag-
ræði fælist í því að leita samþykkis
byggingarfulltrúa áður en aflað væri
undirskriftar eigenda. Hins vegar
vægju þyngra þau rök að yfirlýsing
inbæri með sér vilja eigenda fjöl-
eignarhúss og réttaröryggis vegna
hvíldi á byggingarfulltrúa sú rann-
sóknarskylda að kanna hvort undir-
ritun væri í samræmi við innihald og
efni yfirlýsingar. Með samþykki sínu
á óundirritaða eignaskiptayfirlýs-
ingu hefði byggingarfulltrúi staðfest
skjal sem samkvæmt fjöleignarhúsa-
lögum og reglugerð uppfyllti ekki
skilyrði eignaskiptayfirlýsingar.
Taldi ráðuneytið að beina yrði til-
mælum til byggingarfulltrúa um að
þeir staðreyndu hvort eignaskipta-
yfirlýsing uppfyllti formskilyrði fjöl-
eignarhúsalaga áður en skipting inn-
an fjöleignarhúss væri færð í skrár.
Ekki tilefni til umfjöllunar
Einnig var kvartað yfir því við um-
boðsmann af hálfu eigenda fjölbýlis-
hússins að sýslumaður hefði neitað
að þinglýsa eignaskiptayfirlýsing-
unni þrátt fyrir að byggingarfulltrú-
inn hefði samþykkt hana. Umboðs-
maður taldi ekki tilefni til þess að
hann fjallaði sérstaklega um atvik í
þessu máli. Það leiddi af lögum að án
samþykkis eigenda eða að undan-
genginni þeirri meðferð sem lög um
fjöleignarhús kvæðu um yrði skipta-
yfirlýsingu ekki þinglýst.
Eignaskiptayfirlýs-
ing samþykkt án
samþykkis eigenda
STEFÁN Karl Stefánsson leik-
ari sem þekktastur er fyrir
hlutverk sitt sem Glanni glæp-
ur í Latabæ heimsótti sl.
fimmtudag nemendur í
fimmta bekk í barnaskóla
Bunceton í Missouri í Banda-
ríkjunum. Ræddi Stefán Karl
þar um reynslu sína af einelti
og hugsjónina að baki Regn-
bogabörnum, fjöldasamtökum
um einelti, bæði nemendum og
kennurum til ánægju og fróð-
leiks. Greint er frá þessu í The
Boonville Daily News sl. föstu-
dag.
„Það besta við Regbogabörn
er hugmyndafræðin að baki
samtökunum, þ.e. að hver ein-
asti einstaklingur sé sér-
stakur,“ er þar haft eftir Stef-
áni Karli, sem heimsótti
barnaskólanemendurna í fullu
gervi Glanna glæps, börn-
unum til ómældrar ánægju,
enda öll aðdáendur þáttanna
um Latabæ. Fram kemur að
nemendurnir hafi nýlega stað-
ið fyrir fjáröflun annars vegar
til handa fórnarlömbum felli-
byljarins Katrínar og hins
vegar Regnbogabörnum. Stef-
án Karl hrósaði nemendunum
fyrir dugnað þeirra og lofaði
þeim að þegar Regnbogabörn
hæfu útrás sína til Bandaríkj-
anna mætti svo sannarlega bú-
ast við miklu. „Þið munuð
verða fyrirmynd annarra
barna og skóla,“ er haft eftir
Stefáni Karli.
Glanni glæpur
ræðir einelti
við skóla-
krakka
HVERFISRÁÐ Árbæjar og Grafar-
holts hefur lýst yfir þungum áhyggj-
um yfir þeim drætti sem orðið hefur
á stækkun heilsugæslu Árbæjar og
telur mikla þörf á skýrum svörum,
enda séu hverfin í brýnni þörf fyrir
aukna heilsugæslu.
Formaður hverfisráðsins, Dagur
B. Eggertsson, segir stækkun
heilsugæslunnar hafa verið í „for-
gangi“ í meira en 10 ár en lítið sem
ekkert hafi þokast í málinu, þrátt
fyrir að svæðið sé mesta vaxtarsvæði
landsins í íbúum talið.
Í bókun sem gerð var á fundi
hverfisráðsins sl. þriðjudag kemur
fram að í tvígang hafi fengist þau
svör frá Heilsugæslunni í Reykjavík
að auglýsingu, um stærra húsnæði,
væri að vænta á næstu vikum og tvö
ár séu síðan þau svör fengust fyrst.
„Við óbreytt ástand verður ekki
unað og brýnt er að skýr svör fáist
um að gengið verði til verks við
stækkun heilsugæslu fyrir Árbæjar-
og Grafarholtshverfi,“ segir Dagur.
Í „forgangi“
í yfir 10 ár
Bíða eftir stækkun
heilsugæslunnar