Morgunblaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
firði þegar við giftum okkur. Okkur
fannst þetta tilvalið vegna þess að
giftir nemendur fengu frjálst útileyfi
í hjúkrunarskólanum. Síðasta árið
mitt í skólanum leigðum við Elli okk-
ur þó íbúð í Garðastræti.
Búskapurinn var skrítinn til að
byrja með. Ég hafði aldrei dyfið
hendi í kalt vatn á Seyðisfirði en það
þurfti ég nú að gera í skólanum, mat-
seld kunni ég ekkert í en lærði hana
fljótt og fannst því skemmtilegra að
elda sem ég lærði meira, – því fleiri
sem borða því meira gaman.
Eftir að ég lauk hjúkrunarprófi
1959, 24 ára gömul, tók ég við spít-
alanum á Seyðisfirði. Þá kom
ábyrgðin í fangið á mér. Ég var eina
hjúkrunarkonan og sjúklingarnir
voru 25 á ýmsum aldri og með ýmis
mein. Gamla fólkið uppi var setulið
en niðri voru sjúklingar af ýmsu tagi
sem komu og fóru – og þar var tekið
á móti börnum. Ég hafði gott fólk
með mér, fólk sem kunni til verka og
hafði starfað á spítalanum lengi. Eg-
ill Jónsson var læknir þarna og hafði
verið lengi. Hann var einstök per-
sóna sem alltof lítið hefur verið
fjallað um, mjög góður læknir. Hann
var frá Egilsstöðum af merku fólki
kominn. Hann gerði mörg læknis-
verk stórvel. Ég man t.d. eftir þýskri
konu sem kom gangandi upp á spít-
ala til að fæða sitt annað barn. Ég sá
við skoðun að naflastrengurinn lá
úti. Konan var hörð af sér og dugleg
og það kom sér nú. Egill kom nánast
fljúgandi á staðinn og bað mig um
hanska. Svo fór hann inn og sótti
barnið, það var ekki blátt – það var
orðið hvítt. Ég skil ekki enn í dag
hvernig þetta barn lifði af og varð
dugnaðarstrákur. Það er mikil gleði
því samfara þegar svo vel tekst til og
þannig gleði fylgir líka kennslunni
þegar vel gengur. Þá kemur fyrir-
höfnin tíföld sem gleði til baka. Þetta
skilja illa þeir sem ekki hafa starfað
á slíkum vettvangi heldur bara starf-
að innan fjögurra veggja.
Elli vann í kaupfélaginu og við
vorum eitt og hálft ár fyrir austan,
en fórum þá suður aftur. Þá stofnaði
Elli verslanir og ég vann hjá honum.
En árið 1962 fórum við út til Afríku.“
Regína er alltaf brosandi
á myndunum frá sjúkrahúsinu í Alsír
þar sem hún vann á vegum CARE
sem hafði kjörorðið:
Give a dollar, save a life
umkringd karlmönnum í matsalnum
eða í miðjum barnahópi.
„Systir Ella giftist Alsírbúa og átti
með honum tvö börn, við höfðum því
mikinn áhuga á málefnum tengdum
Alsír. Einn daginn lásum við grein í
National Geographic um Alsír. Okk-
ur fannst þetta mjög spennandi og
búðirnar gengu illa. Það var mikil
bjartsýni hjá okkur að við gætum
rekið matvöruverslanir hér í bæn-
um. Til þess að það gæti gengið hefð-
um við þurft að eiga ríka foreldra,
góðan aðgang að lánum og vera á
réttum stað í pólitík. Ekkert af
þessu var fyrir hendi og ég var raun-
ar gift inn í mikla vinstri fjölskyldu.“
Elías er ævintýramaður,
segir Regína.
Hann hefur alltaf verið að flytja
allt sitt líf,
það er honum eins
og að skipta um skyrtu
og ef honum dettur í hug
að fara eitthvað á morgun
fer ég með honum.
„Við ákváðum að venda okkar
kvæði í kross og fara til starfa í Als-
ír.
Við vorum í París í einn mánuð og
þar reyndi fólk í sendiráðinu að fá
okkur ofan af því að fara til Alsír,
þar geisaði þá frelsisstyrjöld, Als-
írbúar vildu frá frjálsræði en Frakk-
ar vildu innlima Alsír í Frakkland
enda mikil samskipti milli landanna.
Franskir Alsírbúar fóru þúsundum
saman frá Alsír um þetta leyti vegna
stríðsins.
En Ella óx þetta ekki í augum og
þá ekki mér, sem jafnan fylgdi hon-
um að málum. Ég fékk ekki vinnu
hjá Rauða krossinum en við
komumst í samband við Save the
Children, bandarísk samtök, fyrir
milligöngu þeirra fengum við vinnu á
amerískum spítala í Beni Messous.
ég sem hjúkrunarkona og Elli sem
bílstjóri lækna og síðar sá hann um
lyfjabúrið á spítalanum.
Á því eina ári sem við bjuggum og
störfuðum í Alsír tók ég stærra
þroskastökk en öll árin á undan.
Þessi dvöl breytti öllu mínu verð-
mætamati. Ýmislegt sem mér hafði
áður þótt eftirsóknarvert fannst mér
nú sókn eftir vindi. Allt varð öðruvísi
en áður var.
Þáttur í þessu þroskastökki var sú
reynsla að við Elli tókum að okkur
um tíma tvær litlar telpur sem voru
úr hópi 23 munaðarleysingja sem
komu á spítalann til okkar eftir að
Frakkar höfðu sprengt í loft upp
skurðstofur og fæðingarstofur á
Mustafa, háskólasjúkrahúsi í Al-
geirsborg.
Ástandið í landinu versnaði stöð-
ugt og ljóst var að við gátum ekki
verið þar áfram. Það var sársauka-
full ákvörðun sem við stóðum á
frammi fyrir, – að fara án litlu telpn-
anna eða vera áfram í landinu, skot-
mörk í stríði. Við gátum ekki fengið
leyfi til að fara úr landi með börnin.
Við ákváðum að fara og ég sé ekki
eftir því, ástandið var að breytast úr
einu helvíti í annað, við hefðum verið
skotin á færi hefðum við verið þarna
áfram. En valið var svo erfitt að það
markaði mig. Mamma hans Ella dó
um vorið og þegar Elli kom aftur frá
jarðaförinni kom hann með næst-
yngsta bróður minn með sér, hann
fór svo með okkur heim.
Sumir eru veikburða,
það veit Regína
sem alltaf er að sprauta,
nú síðast gamalt fólk
með svínaflensu.
Eftir heimkomuna fór ég að vinna
á Landspítalanum og fór þaðan aust-
ur á Seyðisfjörð í nokkra mánuði. En
eftir komuna þaðan suður aftur fór
ég að vinna á slysavarðstofunni. Það
var feikilega góður staður að starfa
á. Þegar ég lít til baka að þeim stað
segi ég eins og Churchill um flug-
menn sína: „Aldrei hafa eins fáir
gert eins mikið við eins lélegar að-
stæður!“
Það er gott að vera á góðum aldri í
störfum á slysadeild, vera fljótur að
bregðast við og hafa góða sjón. Ég
var orðin þannig þá að mér fannst ég
eiga gott með að sjá fyrir afleiðingar
af því sem ég var að gera. Þegar ég
lít til baka eftir 50 ár finnst mér al-
mættið hafa verið mér gott, ég vona
að þótt ég hafi auðvitað gert einhver
mistök þá hafi þau ekki verið afdrifa-
rík fyrir þá sem hlut áttu að máli.
Mér finnst inntakið í kennslu heil-
brigðisstétta eiga að vera það að
gera sér grein fyrir að verið er að
meðhöndla fólk. Sumir halda að völd
séu það sem sækjast beri eftir en ég
tel að ábyrgð sé eftirsóknarverð. Nú
vill fólk vera stjórnendur þótt það
hafi aldrei nokkurn tíma þurft að
taka afdrifaríkar ákvarðanir né haft
mannaforráð. Enda er oft eins og
bylji í tómri tunnu. Sá sem stjórnar
verki á að setja sér að vera í góðu
skapi og gera sér góða grein fyrir
eiginleikunum sem samstarfsfólkið
býr yfir, hvetja það til dáða og leyfa
því að njóta sín. Fyrirskipanir, leyni-
makk, lygar og það að reyna að troða
sér áfram á annarra kostnað getur
aldrei skilað neinu góðu. Ef fólk ger-
ir eitthvað á hlut annarra kemur það
í bakið á því síðar, það er svo skrítið
hvernig alheimsorkan vinnur.
Í mínu starfi finnst mér eins og
mér hafi verið stjórnað, ég hef oft
lent í þeirri aðstöðu að taka erfiðar
ákvarðanir og tekið réttar ákvarð-
anir, ég er þakklát fyrir að hafa
fengið hjálp á þeim stundum. Sumir
hafa innbyggða eiginleika í þessa átt
en aðrir geta þróað þetta með sér.
Ég hef lagt áherslu á við nemend-
ur mína að það sé ekki nóg að horfa,
þeir verði að sjá.
Við hjúkrun þarf að fara saman
góð bókleg þekking og verkleg
kunnátta. Hið síðarnefnda hefur
mætt afgangi, það er ríkt í Íslend-
ingum frá nýlendutímanum að það
sé dónalegt að vinna með höndunum.
Þessi er öfugt farið t.d. í Finnlandi,
þar eru menn stoltir af handverki
sínu.
Á slysadeildinni vann ég vakta-
vinnu en skipti svo og var þrjú ár við
ungbarnaeftirlit. Elli vann í Útvegs-
bankanum og oft var ég að vinna
þegar hann átti frí. Meðal annars
þess vegna ákváðum við að breyta til
og árið 1969 fluttum við til Ástralíu.
Það var eitt í sjónvarpinu í Ástralíu
sem mér þótti athyglisvert,
sagði Regína.
Það var auglýsing:
Lady Scott toilet paper.
Strong as a lion,
soft as a kitten.
Farið var borgað fyrir fólk til
Ástralíu aðra leiðina og hér á Íslandi
var óttalegt kreppuástand. Við vor-
um þá nýlega búin að kaupa okkur
þetta hús hér við Sogaveginn og
leigðum það út þessi fjögur ár sem
við vorum í burtu.
Í Ástralíu fór ég mjög fljótlega að
vinna á endurhæfingardeild háskóla-
spítalans í Perth. Ég var svo heppin
að vera orðin nokkuð góð í ensku, ég
var oft betri í stafsetningu en þeir
sem störfuðu með mér. En stundum
var orðaval mitt sérkennilegt, ættað
frá konu símstöðvarstjórans á Seyð-
isfirði sem kenndi mér ensku í auka-
tímum og hafði nokkuð gamaldags
orðaforða. Mér fannst strax gott að
vinna þarna og það var heilmikið lát-
ið með mig, þeir sem koma frá
Skandinavíu hafa víða gott orð á sér
sem starfsmenn.
Ég þurfti að taka próf í Ástralíu til
þess að staðfesta kunnáttu mína í
hjúkrun og það gekk vel, Elli fékk
vinnu á humarbát hjá finnskum
manni, það var allt nokkuð ævintýra-
legt. Elli ætti að skrifa ævisögu sína,
svo margt sérkennilegt hefur hann
upplifað.
Eftir tvö ár fluttum við til Sydney,
þar bjuggum við í kommúnu, það
hafði ég ekki upplifað áður, það var
mjög skemmtilegt. Í kommúnunni
var gott fólk og við höfðum ágætt
herbergi með aðgangi að eldhúsi og
sameiginlegu rými.“
Þegar Elli og Regína voru í Texas
bjuggu þau í gömlum hrörlegum bæ.
Eigandinn fékk þeim riffil
til að hafa við rúmið.
dragðu þá inn fyrir þröskuldinn
þótt þú skjótir þá fyrir utan,
sagði hann við Ella,
það er betra laganna vegna
og ekkert verið að fárast yfir því,
síst ef það er negri.
„Frá Ástralíu fórum við til Texas.
Það var auglýst eftir hjúkrunar-
fræðingum í Texas og af því ég hafði
svo góð meðmæli fékk ég starf og
leyfi til að starfa í eitt ár. Að því
loknu þurfti að fara t.d. til Mexíkó og
sækja um árs starfsleyfi á ný. Í Tex-
as var hjúkrunin mjög nýtískuleg og
spítalinn mjög vel hannaður.
Við vorum ekki nema eitt ár í Tex-
as, – við fórum heim.
Mig hefði langað til
að eiga heima í kastala,
segir Regína,
þar sem fáir kæmu.
Ég sé hana fyrir mér
í síðum kjól
og með skrautlega nælu
í barminum,
linda úr tunglskini
Ég veit ekki af hverju, mér fannst
fremur ömurlegt að koma heim, and-
litin súr á samferðafólkinu og margt
bannað sem leyft var úti. Það var
óyndi í okkur fyrst, þá hefðum við
kannski átt að fara til Danmerkur.
En við áttum húsið og við settumst
hér að og nú til langframa. Ég komst
yfir óyndið, vinir og fjölskyldan sáu
til þess, auk þess hef ég alltaf haft
góða aðlögunarhæfileika.
Eftir að við komum heim frá Tex-
as fór ég að vinna í Blóðbankanum
en hætti því þegar við ákváðum að
flytja til Kópaskers. Elli hafði ráðið
sig þar á bát og ég réð mig sem
hjúkrunarfræðing á staðinn. Ég
fylgdi Ella alltaf eftir, hann var svo
spennandi og skemmtilegur.
Mér fannst gaman að fara út á
land en óx dálítið í augum hvað um-
dæmið væri stórt. En ég tók það til
bragðs að læra um alla bæi á svæð-
inu af korti og um íbúa þeirra af
íbúaskrá. Fólkið sagði hvað við ann-
að: „hún er eitthvað skrítin þessi
hjúkrunarkona, hún þekkir okkur
öll.“ Mér fannst ég vera á vakt allan
sólarhringinn en fólkið var óskap-
lega gott við okkur bæði og það var
mikill styrkur.
En ekki ílentumst við á Kópa-
skeri. Ég vildi læra meira og fór í
Kennaraháskólann. Þegar ég var að
verða búin með námið þar bauðst
mér starf við Fjölbrautaskólann í
Breiðholti og þar vann ég í 20 ár. Á
því tímabili fékk ég orlof til þess að
kenna í tvö ár við Háskólann á Ak-
ureyri og einnig var ég um tíma í
framhaldsnámi við Kennaraháskóla
Íslands við verkefnisstörf. Ég lauk
BSc námi við Háskóla Íslands 1987
frá hjúkrunardeildinni.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
hafði starfað í fjögur ár þegar ég
kom þangað. Þá var búið að stofna
sjúkraliðabraut, Solveig Jóhanns-
dóttir var með þá braut, feikilega
góður kennari. Ég byrjaði á að
kenna heilbrigðisfræði og hjúkrun
að hluta.
Ég hafði aldrei kennt áður og svaf
varla á nóttunni fyrir áhyggjum
fyrst en svo lagaðist það nú. Þegar
Solveig hætti tók ég við deildinni.
Ég fór að kenna við þennan skóla
vegna þess að þar var lögð áhersla á
að leggja bóknám og verknám að
jöfnu. Guðmundur Sveinsson, sá
mikli skólamaður, hafði lengi haft þá
skoðun að verknámið sæti á hakan-
um í skólum landsins. Guðmundur
var prestur og hafði líka verið rit-
stjóri Samvinnunnar og skólastjóri
Samvinnuskólans. Hann var fram-
sóknarmaður, mikill Jónasarmaður í
skólamálum. Hann átti aðgang að
stjórnmálamönnum, sem hjálpaði
skólanum mikið. En fyrst og fremst
er hann í mínum huga hugsjónamað-
ur og góðmenni, tilfinningaheitur og
hreinskiptinn sem treysti sínu
starfsfólki og bar virðingu fyrir fag-
fólki, hann jók með viðhorfi sínu
ábyrgðartilfinningu þess.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti olli
þáttaskilum í menntun Íslendinga.
Ég fékk strax á tilfinninguna að
þarna væri kominn skóli sem þjálf-
aði fólk í verki en gerði því jafnframt
leiðina greiða ef það vildi einnig taka
stúdentspróf. Ég var dálítið sár þeg-
ar niðurstöður rannsókna sýndu
fremur slakan árangur nemenda FB
í Háskóla Íslands í upphafi. Satt að
segja var Háskóli Íslands þá einkum
sniðinn að þörfum menntaskólanna
og Verslunarskóla Íslands og var
ekki tilbúinn til að taka við stúdent-
um með próf úr FB. En strax og þeir
nemendur höfðu aðlagast HÍ fór
þeim að ganga betur.
Margt áberandi fólk í þjóðlífinu
hefur fengið sína menntun í FB. Það
var mikil gróska í listalífinu í skól-
anum þegar ég kom, þar fór
Medúsuhópurinn svokallaði fremst-
ur í flokki. Þetta fólk voru brjósta-
börnin hans Guðmundar Sveins-
sonar sem mikið lagði upp úr
listabraut skólans.
Þegar ég fór í mastersnám 1996
var mikið verið að tala um greind-
irnar sjö. Guðmundur Sveinsson
skipulagði skólastarfið samkvæmt
þessari kenningu tuttugu árum fyrr,
deildirnar sjö í FB voru grundvall-
aðar á þessari hugmyndafræði.
Mér nýttist vel sú margþætta
reynsla sem ég hafði öðlast í störfum
á fjölbreyttum vettvangi. Strax þeg-
ar ég leit yfir hópinn minn á haustin
þóttist ég skynja hverjir myndu
bjarga sér og hverjir ekki. Síðan var
að koma þeim til hjálpar sem hægt
var. Ég hafði oft samviskubit yfir því
að sinna ekki nægilega afburðanem-
endum. Ég sagði stundum við
krakkana: „Ég er aldrei vond við
krakka sem eru að reyna að læra en
ég er stundum vond við þá sem geta
lært en gera það ekki.“
Ýmsar breytingar urðu á skóla-
starfinu í FB þegar Guðmundur
Sveinsson fór. Ég segi stundum að
ég hefði átt að hætta þá. Ég átti
minni samleið með því fólki sem tók
við, ég er svona gamaldags eins og
Guðmundur var. Ég lít á skólann
sem óbyggt hús þar sem grindin
stendur, góð, – og síðan flæðir allt
hitt í gegn.
Ég endaði þó ekki starfsferil minn
í FB. Eftir samstarfsverkefni um
jaðarhópa sem ég vann í tengslum
við Kennaraháskóla Íslands var mér
boðið starf á Kleppi í veikindafor-
föllum og líkaði svo vel þar að ég
ákvað að fara ekki aftur í kennslu í
FB. Nú er ég hætt að vinna og fólk
spyr mig hvort mér þyki það ekki
undarlegt. Ég segi sem satt er: „Ég
er alsæl.“
Regína og samstarfskona hennar
með litlu telpurnar sem um tíma áttu
heimili hjá Regínu og Ella en þau
fengu ekki að fara með þær frá Alsír.
Regína hlynnir að litlum sjúklingi í Alsír.
Regína og Elías nýtrúlofuð í Æðey.
gudrung@mbl.is