Morgunblaðið - 22.01.2006, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 45
FRÉTTIR
Pöntunarsími: 540 2130
„Það er kunnara en frá þurfi að segja að piparsvein í góðum efnum hlýtur að vanta eiginkonu.“
(Fræg upphafsorð sögunnar)
Fyrstu 100 sem kaupa bókina fá miða á myndina í bíó!*
Lestu bókina - sjáðu myndina!
*Gildir aðeins í Pennanum/Eymundsson Austurstræti og Kringlunni
25% afsláttur
í janúar og febrúar
1.349 kr.
Fullt verð 1.799 kr.
Kilja á góðu
verði
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
BARNAHEILL – Save the
Children á Íslandi halda ráðstefnu
fimmtudaginn 26. janúar, undir
heitinu „Stöðvum barnaklám á
netinu – Lög og tækni“. Ráð-
stefnan verður haldin í Salnum í
Kópavogi kl. 8.30–16.05. Áhersla
verður annars vegar lögð á laga-
lega hlið Netsins og hins vegar á
tæknilega hlið þess. Til ráðstefn-
unnar verða boðaðir löglærðir að-
ilar, lögreglumenn, netþjónustuað-
ilar, tölvunar- og kerfisfræðingar,
barnaverndaryfirvöld og aðrir
sem málið varðar.
Markmiðið með ráðstefnunni er
að varpa ljósi á þau lagaákvæði
sem nú þegar eru í gildi um ólög-
legt efni á netinu og koma með
hugmyndir um hvernig færa megi
löggjöfina til betri vegar. Jafn-
framt er ætlunin að upplýsa um
þau vandamál sem upp geta komið
vegna tæknilegra möguleika tölv-
unnar og ræða hvernig brúa megi
bilið milli laga og tækni, segir í
fréttatilkynningu.
Ráðstefna gegn
barnaklámi
LÖGREGLAN á Egilsstöðum hand-
tók tvær stúlkur og einn karlmann
á Egilsstaðaflugvelli á fimmtudags-
kvöld þar sem þau voru að sækja
fíkniefnasendingu með flugi frá
Reykjavík. Á þeim fundust 6,5
grömm af hassi.
Húsleit var gerð heima hjá fólk-
inu og fundust þar tæki til fíkni-
efnaneyslu. Samkvæmt upplýsing-
um lögreglu telst málið upplýst.
Tekin með hass
á Egilsstöðum
Fréttir
í tölvupósti
Hve margar gráður snýst litli vísirinn á venjulegri
klukku frá kl. 12.00 til kl. 14.30?
Síðasti skiladagur fyrir réttar lausnir er kl. 12 mánudaginn 30. janúar
nk. Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranesskoli.kopa-
vogur.is, en athugið að þessi Pera verður ekki virk þar fyrr en kl. 16
hinn 23. janúar. Þann sama dag birtist lausn síðustu þrautar og nöfn
vinningshafanna.
Stærðfræðiþraut
Digranesskóla og
Morgunblaðsins
Pera vikunnar
Egilsstaðir | Í
apríl næstkom-
andi verður
haldin kvik-
myndahátíð á
Egilsstöðum
sem byggist á
tilraunakvik-
myndum og víd-
eómyndum.
„Hátíðin nefn-
ist 700.is, sem stafar af því að
hún er ekki haldin í Reykjavík
eins og flestar aðrar kvik-
myndahátíðir hér á landi, heldur
á Egilsstöðum,“ segir Kristín
Scheving, starfsmaður Menning-
armiðstöðvar Fljótsdalshéraðs og
menningar- og kaffihúss ungs
fólks á vefnum egilsstadir.is. Há-
tíðin er opin kvikmyndagerðar-
fólki frá öllum heimshornum, en
vonast er til að sem flestir Íslend-
ingar taki þátt.
„Fréttir af þessu hafa verið að
breiðast út um netheiminn. Við
höfum verið að fá myndir alls
staðar að úr heiminum og erum
nú þegar komin með 110 verk.
Þau eru frá flestum Evrópu-
löndum, Bandaríkjunum og Bras-
ilíu,“ segir Kristín sem sjálf er
myndlistarkona og hefur fengist
töluvert við gerð vídeóverka.
Nánari upplýsingar um hátíðina
má fá á www.700.is , en 700 er
póstnúmerið á Egilsstöðum.
Alþjóðleg
kvikmynda-
hátíð í póst-
númeri 700
Kristín Scheving
♦♦♦