Morgunblaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
EINHVERN tímann var sagt
að góðir hlutir gerðust hægt. Það
eru kannski orð að sönnu og þó?
Nú á dögunum mælti
forsætisráðherra fyrir
frumvarpi um réttindi
samkynhneigðra. Hér
er um stóran lagabálk
að ræða, enda betr-
umbætur mikilvægar
á mörgum sviðum og
margt sem laga
þurfti. Með frumvarpi
þessu er afnumið
aldagamalt misrétti
sem hommar og lesbí-
ur hafa mátt búa við
og allir skulu nú vera
jafnir fyrir lögum,
óháð trúarbrögðum, kynhneigð,
litarhætti o.s.frv. eins og segir í
Stjórnarskrá Íslands.
Þetta eru auðvitað stórmerkileg
tíðindi þó svo að flestir í samfélag-
inu séu þeirrar skoðunar að hér sé
um að ræða sjálfsögð mannrétt-
indi sem löngu hefðu átt að vera
komin til framkvæmda. Það frum-
varp sem nú liggur fyrir þinginu á
sér auðvitað sögu, eins og flest
mikilvæg réttindamál. Með lög-
unum um staðfesta samvist 1996
náðist fram mikil viðurkenning á
réttindum samkyn-
hneigðra, mikil á
þeim tíma, en ljóst
var þá að margt var
enn óunnið. Það var
áfangasigur og hann
má ekki vanmeta,
heldur ber okkur að
líta á hann sem mik-
ilvægasta hlekkinn í
baráttunni fyrir full-
um mannréttum
homma og lesbía.
Misréttið afhjúpað
Til að komast að
raun um hvort og þá hvaða munur
væri á réttarstöðu gagnkyn-
hneigðra og samkynhneigðra í
sambúð óskaði ég eftir skýrslu á
Alþingi um þau mál. Þegar skýrsl-
an lá fyrir árið 2000 kom berlega í
ljós hversu veik staða samkyn-
hneigðra í rauninni var. Staðan
var miklu veikari en við héldum.
Því háttar nefnilega svo hér á
landi, ólíkt mörgum öðrum lönd-
um, að óvígð sambúð færir fólki
ýmis réttindi. Þegar þetta allt var
skoðað í samhengi kom í ljós að
samkynhneigðir gátu í engu notið
þeirra réttinda sem öðrum voru
færð í slíkri sambúð. Samkyn-
hneigðir gátu einfaldlega ekki
skráð sig í sambúð!
Í kjölfar niðurstaðna úr þessari
skýrslu lagði ég fram þingsálykt-
unartillögu á Alþingi ásamt flutn-
ingsmönnum frá öllum stjórn-
málaflokkum þess efnis að skipa
nefnd til að kanna réttarstöðu
samkynhneigðra og gera tillögur
til úrbóta þar sem nefndin taldi
þörf á. Í þessum vinnuhópi áttu
sæti fulltrúar fjögurra ráðuneyta
og Samtakanna ’78 auk formanns
sem forsætisráðuneytið skipaði.
Það er skemmst frá því að segja
að þegar skýrsla nefndarinnar
birtist, stóð þar svart á hvítu
hvað þyrfti að laga og betr-
umbæta í hinum ýmsu lögum til
þess að jafna stöðu samkyn-
hneigðra og gagnkynhneigðra.
Niðurstaðan var afar skýr og
ótvíræð og það frumvarp sem nú
liggur fyrir og er nú í meðförum
allsherjarnefndar er afrakstur
þessarar vinnu.
Þverpólitík samstaða er um
málið á hinu háa Alþingi og hefur
verið afar ánægjulegt að koma að
vinnslu þessa máls á öllum stigum
þess.
Trúin, efinn
og heimildin…
Þegar forsætisráðherra mælti
fyrir málinu kynnti ég „litla“
breytingartillögu þess efnis að
trúfélögum og vígslumönnum
þeirra yrði veitt heimild til þess
að gefa saman (blessa, staðfesta,
gifta o.s.frv.) samkynhneigð pör
sem óskuðu eftir slíku. Breyting-
artillagan er við lög um staðfesta
samvist, en þar í lagatexta segir
að hjúskaparlög eigi ekki við um
þessa þætti vegna staðfestrar
samvistar. Breytingartillagan
fékk afar góðan hljómgrunn, því
ef slíkt yrði heimilt þá gætu t.d.
ásatrúarmenn, Fríkirkjan, búdd-
istar og aðrir söfnuðir fram-
kvæmt slíkar athafnir ef þeir ósk-
uðu, en nú er þeim slíkt ekki
heimilt samkvæmt lögum!!!
Aðalatriðið er að þessi heimild
verði inni í lögunum og því mik-
ilvægt að tillagan komi fram við
vinnslu málsins og einnig það að
hún fái þinglega meðferð þegar
allt málið kemur úr háttvirtri alls-
herjarnefnd, hvernig svo sem at-
kvæðagreiðsla um þessa tillögu
mun svo fara, það kemur bara í
ljós.
Á ekki við um
þjóðkirkjuna… að sinni
Þessi breytingartillaga hefur
valdið miklum stormi, svo miklum
að ég var hrædd um að rafmagnið
færi af þjóðkirkjunni og að þar
myndi ekki loga á nokkurri peru
á næstu árum.
En málið snýst ekki um þjóð-
kirkjuna, heldur um „önnur trú-
félög“ og það auðvitað ekki að
ástæðulausu. Ég hef verið í góði
samráði við þjóðkirkjuna og al-
mennt kirkjunnar menn í þessum
Sjálfsögð mannréttindi
verði tryggð með lögum
Guðrún Ögmundsdóttir fjallar
um breytingartillögu við lög
um staðfesta samvist ’Þverpólitík samstaðaer um málið á hinu háa
Alþingi og hefur verið
afar ánægjulegt að
koma að vinnslu þessa
máls á öllum stigum
þess.‘
Guðrún Ögmundsdóttir
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
,,u
Einstaklega falleg og glæsileg, mikið end-
urnýjuð 4ra herbergja endaíbúð á efstu
hæð í litlu fjölbýli á fallegum og rólegum
stað í Fossvoginum. Mikið og fallegt út-
sýni. Stórar suðursvalir. Íbúðin skiptist í:
anddyri, hol, stofu, þrjú svefnherbergi, eld-
hús og baðherbergi. Gólfefni íbúðarinnar
eru fallegar FLÍSAR á holi, eldhúsi og bað-
herbergi, IRACO parket á öðrum gólfum.
V. 22,5 m. 7146
HÖRÐALAND - FOSSVOGUR
,,u
Glæsilegt 269 fm raðhús á tveimur hæð-
um, gott útsýni. Í húsinu eru 4 góð her-
bergi og mjög stórt herbergi með eldhúsi,
stór stofa og tvö baðherbergi, tvöfaldur
bílskúr o.fl. Mjög góð staðsetning. V. 46
m. 7140
GRÆNIHJALLI
,,u
Einbýlishús timbur á einni hæð 159 fm
staðsett innst í botnlangagötu. Góður
garður með skjólveggjum og verönd o.fl. Í
húsinu eru 5 svefnherbergi, stór stofa o.fl.
Áhugaverð eign. V. 36 m. 7145
BARÐAVOGUR
,,u
Fallegt og vel staðsett raðhús á einni hæð
með innbyggðum bílskúr. Í húsinu eru 3
góð svefnherbergi, rúmgóð stofa o.fl.
Skjólsæll garður með stórri timburverönd.
V. 39 m. 7138
FJALLALIND - Á EINNI HÆÐ
,,u
Mjög fallegt og mikið endurnýjað um 200
fm einbýli við Bollagarða - gott útsýni.
Húsið er hæð og ris með innbyggðum bíl-
skúr. Niðri eru stofur, eldhús og þvottahús
og uppi 4 stór svefnherbergi og sjónvarps-
hol o.fl. Vandaðar nýlegar innréttingar og
gólfefni. Mikið útsýni til norðurs yfir Flóann.
6921
SELTJARNARNES - GLÆSILEGT
,,u
Mjög vel staðsett 195,1 fm raðhús á einni
hæð með innbyggðum bílskúr. Í húsinu
eru m.a. 4 svefnherbergi, stórar stofur og
garðskáli. Glæsilegt útsýni. Til afhending-
ar fljótlega. V. 42,5 m. 7076
ÞRASTARLUNDUR - GARÐABÆR
,,u
Mjög falleg 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í
fjórbýlishúsi. Íbúðin er 79,2 fm auk þess
góð sérgeymsla. Íbúðin er mjög rúmgóð
og þvottahús í íbúðinni. Sérinngangur.
V. 16,9 m. 7067
STIGAHLIÐ - SÉRINNGANGUR
,,u
Falleg og vel staðsett 98 fm, 3ja herb. íbúð
í tveggja hæða húsi auk 28 fm bílskúrs.
Sérinngangur. Gott útsýni og stutt í þjón-
ustu. Stutt í afhendingu ef óskað er.
V. 28 m. 7006
GARÐATORG - 60 ÁRA OG ELDRI
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
,,
Glæsilegt 320 fm einbýlishús staðsett innst í lítilli botnlangagötu. Húsið er tveggja
hæða og allt hið glæsilegasta, nýlegar innréttingar og gólfefni. Falleg lóð með stórri
hellulagðri verönd. 7016
BAUGATANGI - SKERJAFIRÐI
Til sölu ein best staðsetta lóðin í
Akralandi í Garðabæ ásamt teikningum
af um 360 fm sérlega glæsilegu
einbýlishúsi teiknuðu af Loga Má
Einarssyni.
JAFNAKUR 7 - AKRALANDI
Sjá nánar á www. gardatorg.is og skipulag á www.akraland.is
Sölumaður : Þórhallur síma 896-8232.
EIÐISTORG
Gott u.þ.b. 175 fm atvinnuhús-
næði með sérinngangi við verslun-
armiðstöðina í Eiðistorgi. Eignin
skiptist m.a. í gang, snyrtingu, va-
skahús, tvö herbergi og alrými /
sal. Eignin er laus strax. Eignin
hentar vel fyrir ýmiss konar rekstur
sem þarf að hafa séraðkomu, s.s.
jóga, leikfimi, snyrtistofur o.fl.
V. 25,0 m. 5549
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
HEIÐVANGUR - Á EINNI HÆÐ
Um er að ræða 161,2 fm einbýli á
einni hæð ásamt 63,6 fm bílskúr
sem er á tveimur hæðum. Húsið er
byggt árið 1973 og er steinsteypt.
Eignin skiptist í forstofu, snyrtingu,
eldhús, borðstofu, stofu, fjögur
herbergi, þvottahús og baðher-
bergi. Húsið er nánast allt upp-
runalegt og komin tími til að endurnýja það í takt við nýja tíma. Húsið
er laust við kaupsamning.
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali