Morgunblaðið - 22.01.2006, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 51
UMRÆÐAN
málum. Ég hef vitað af allri um-
ræðu um þessi mál, í vinnuhópum,
meðal presta og prófasta o.s.frv.
Ég vissi vel að málið var þar í far-
vegi og að það myndi ekki liggja
fyrir alveg strax hver afstaða
þjóðkirkjunnar yrði í þessum efn-
um á endanum. En af hverju á
ekki að veita þessa heimild til
þeirra sem að svo kjósa? Af
hverju eiga aðrir söfnuðir að bíða
eftir stóra skipinu, meðan hægt er
að byrja á því að gera út á trillu
eða árabát? Að mínu mati er eng-
inn skaði af því, slíkt er fjarri lagi,
heldur frekar hitt að kannski
verður komin ágætis reynsla á
blessunina, vígsluna, þegar að því
kemur að þjóðkirkjan hefur mótað
sína afstöðu. Þetta hjálpar henni
kannski á sinni vegferð. Ég bið til
guðs um að svo verði.
Allir eru jafnir fyrir guði og
engan skal útskúfa frá kirkjunni
og ekki verður hjónaband mitt
minna virði fyrir vikið þó aðrir en
gagnkynhneigðir játi ást sína fyrir
guði. Umburðarlyndi, mannskiln-
ingur og kærleikur er það sem er
mikilvægast til þess að gera okkur
öll að betri manneskjum. Útskúf-
un og dómharka leiðir til glötunar
segir einhvers staðar – undir það
tek ég ásamt svo mörgum öðrum.
Við skulum ekki vera þar.
Lokaorð
Réttindi samkynhneigðra eru
sjálfsögð mannréttindi og þetta
brýna stóra frumvarp sem nú ligg-
ur fyrir með öllum þeim rétt-
arbótum sem þar eru á stuðning
fólksins í landinu og þingið end-
urspeglar þann stuðning.
Það hefur verið einstakt tæki-
færi að fá að vinna að þessu máli
og koma því í höfn. Og við skulum
vona að vel fari og að málinu öllu
ljúki sem fyrst með þeim laga-
breytingum sem eru svo sann-
arlega til þess að jafna stöðu sam-
kynhneigðra og gagnkynhneigðra í
þessu landi.
Mannréttindi eru fyrir okkur
öll, en ekki bara suma.
Höfundur er alþingismaður.
HB FASTEIGNIR
Sími 534 4400 • Hús verslunarinnar, Kringlan 7, 103 Reykjavík
Hrafnhildur Bridde, löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS MILLI KL. 17 OG 18
TJARNARBÓL 15 - SELTJARNARNES
VERÐ 48,5 MILLJ. - LEIGUTEKJUR AF AUKAÍBÚÐ 45 ÞÚS. Á MÁNUÐI
Falleg efri sérhæð í tvíbýlishúsi m. /aukaíbúð í
kjallara. Nýr bílskúr, ca. 50 fm. Samtals um 222
fm. Á hæðinni sjálfri, sem er mikið endurnýjuð,
eru 4 svefnherb., stofa, eldhús, baðherbergi og
þvottahús. Íbúðin í kjallara skiptist í
stofu m. eldhúskrók, herbergi m.
sturtu og snyrtingu. Eignarlóð. Stutt
í alla þjónustu og skóla.
Hrafnhildur Bridde, löggiltur fasteignasali, sími 821 4400.
HB FASTEIGNIR
Sími 534 4400 • Hús verslunarinnar, Kringlan 7, 103 Reykjavík
Hrafnhildur Bridde, löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS
AUSTURSTRÖND - SELTJARNARNES
Til sölu mjög góð 2ja herbergja íbúð, 61,2 fm að
stærð í lyftuhúsi auk 23,9 fm stæðis í bílageymslu.
Íbúðin er í góðu ásigkomulagi og á hæðinni er sam-
eiginlegt þvotta- og þurrkherbergi. Íbúðin er með
útsýni til vesturs og er sameign til mikillar fyrir-
myndar. Verð kr. 16,7 m.
Allar nánari upplýsingar gefur Kristinn
í síma 534 4405 og 820 0762.
kristinn@hbfasteignir.is
Glæsileg, björt og vel skipulögð 61 fm íbúð á 1. hæð, jarðhæð íbúð 0102, auk 5,2
fm sérgeymslu í kjallara. Eldhús með fallegum innréttingum úr mahóní, rúmgóð
stofa með útgangi á sérhellulagða verönd til suðurs, herbergi með góðu skápa-
plássi og flísalagt baðherbergi. Parket og náttúrugrjót á gólfum. Sameiginlegt
þvottaherb. við hlið íbúðar. Húsið er álklætt að utan og því viðhaldslítið. Verð 17,9
millj. Íbúðin er með góðu aðgengi fyrir fatlaða og hentar einnig vel fyrir eldri borg-
ara.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 13-16
Verið velkomin.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Klapparstígur 7
Glæsileg 2ja herb. íbúð.
OPIÐ HÚS Í DAG frá kl. 13 - 16
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Vorum að fá í einkasölu fallega 4ra herb.
íbúð á 2. hæð í glæsilegu fjölbýli með
lyftu. Húsið er byggt árið 2004. Þrjú stór
herbergi. Stór og björt stofa með útg. á
suðursvalir með glæsilegu útsýni. Fallegar
ljósar innréttingar. Parket og flísar á
gólfum. Þvottahús innan íbúðar. Glæsileg
fullbúin sameign með tveimur lyftum.
Verð 24,8 millj. Jón Bjarki og Unnur sýna
eignina í dag, sunnudag, frá kl. 14:00 -
16:00.
RJÚPNASALIR 12 - Falleg 4ra herb. íbúð á 2. hæð
í nýlegu lyftuhúsi
OPIN HÚS HJÁ GIMLI
Falleg og björt 2ja herb. 64 fm íbúð í
kjallara (lítið niðurgrafin) í þríbýli. Stórt
svefnherbergi og stór og björt stofa.
Eldhús með fallegri, nýlega uppgerðri
innréttingu. Eignin hefur fengið gott
viðhald og endurnýjun í gegnum árin.
Verð 12,9 millj.
Arndís og Helgi Páll sýna eignina í
dag, sunnudag. frá kl: 14:00-15:00.
LANGHOLTSVEGUR
Góð 2ja herb. íbúð í kjallara
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Unnarbraut - Glæsilegt útsýni
Falleg og vel skipulögð 5 herbergja 153 fm
neðri sérhæð í tvíbýlishúsi ásamt 34 fm bíl-
skúr í húsi teiknuðu af Guðmundi Kr. Guð-
mundssyni. Frá húsinu er óheft glæsilegt
sjávarútsýni. Hæðin skiptist þannig: stofa,
borðstofa, eldhús, þvottahús, þrjú her-
bergi, baðherbergi, snyrting og hol. Innaf
bílskúr er geymsla. V. 43,0 m. 5564
Heiðvangur - á einni hæð
Um er að ræða 161,2 fm einbýli á einni
hæð ásamt 63,6 fm bílskúr, sem er á
tveimur hæðum. Húsið er byggt árið 1973
og er steinsteypt. Eignin skiptist í forstofu,
snyrtingu, eldhús, borðstofu, stofu, fjögur
herbergi, þvottahús og baðherbergi. Húsið
er nánast allt upprunalegt og kominn tími til
að endurnýja það í takt við nýja tíma. Hús-
ið er laust við kaupsamning. V. 45,0 m.
5483
Frostafold - með bílskúr
Mjög falleg og björt 4ra herbergja 119 fm
íbúð í litlu og vönduðu fjölbýli. Á hæðinni
eru aðeins tvær íbúðir og í húsinu eru að-
eins fjórar íbúðir. Ásamt góðum 23 fm bíl-
skúr. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni. Húsið
lítur vel út og sameign er nýlega endurnýj-
uð. V. 31,0 m. 5568
Smárarimi - Landsímareitur
Byggingarlóð á frábærum stað í Grafar-
vogi. Er lóðin á svokölluðum Landsímareit
og er nánast neðst. Mikið útsýni er af lóð-
inni. Fyrir liggur spennandi teikning sem
mikið hefur verið lagt í. Stærð þess húss
sem búið er að teikna er að brúttóstærð
252,5 fm. Teikningar fylgja með í kaupun-
um. Óskað er eftir tilboðum í eignina. 5423
Einimelur - Einstök staðsetning
Höfum fengið í sölu 320 fm einbýlishús í
einni virðulegustu og eftirsóttustu götu í
vesturbæ Reykjavíkur. Húsið stendur fyrir
neðan götu og er með garð til suðurs.
Lóðin er gróin, þar eru grasflöt og trjágróð-
ur. Vandaðar innréttingar. 5576
Opið hús - MÍMISVEGUR 2A
Falleg og mikið endurnýjuð 2ja herbergja
íbúð í kjallara í virðulegu steinhúsi á eftir-
sóttum stað í Þingholtunum. Sér inngang-
ur. Íbúðin skiptist í hol, eldhús, baðher-
bergi, snyrtingu, stofu og herbergi. Henni
fylgir sérgeymsla og sameiginlegt þvotta-
hús. Íbúðin er mikið endurnýjuð m.a. gólf-
efni, innréttingar, baðherbergi, klóaklagnir,
dren og rafmagn að hluta. Eignin verður til
sýnis og sölu í dag (sunnudag) á milli kl.
14-15. Sérinngangur frá Mímisvegi. V. 14,2
m. 5427
Ystasel - Vel staðsett einb.
Sérlega fallegt og vandað 227 fm einbh. á
tveimur hæðum, ásamt tvöföldum 42,2 fm
bílskúr og fallegum og grónum garði. Eignin
sem er á tveimur hæðum skiptist þannig:
Efri hæð: Anddyri, hol, borðs., eldhús, rúm-
góð stofa, fjögur herb. og baðh. Neðri hæð:
Baðh., sauna, þvottah., tómstundah. og
hjónah. með fatah. Lóðin er stór, fullfrá-
gengin og falleg. Húsið var nýl. einangrað
og múrað að utan og lítur mjög vel út. Ör-
stutt er í Ölduselssk. og leiksk. V. 53 m.
5434
Mávahlíð - Sérinngangur
Mjög góð kjallaraíbúð sem ekki er mikið
niðurgrafin. Íbúðin stendur innarlega í
Mávahlíðinni og er sérinngangur í íbúðina.
Íbúðin skiptist í eldhús, baðherbergi, tvö
svefnherbergi, stofu og geymslu. Sameig-
inlegt þvottahús er í kjallara. V. 16,6 m.
5569
Smyrilsvegur - Vesturbær
Vönduð 120 fm 4ra-5 herb. björt jarðhæð
með sérinngangi í 15 ára gömlu húsi. Íbúð-
in skiptist m.a. í forstofu, þvh., hol, tvær
stofur, eldhús, bað, 3 herbergi og tvær
geymslur. Sérverönd og sérbílastæði á lóð.
V. 29,8 m. 5209
Sigríður Halldórsdóttir skrif-
ar um bækur Lizu Marklund
sem lýsa heimilisofbeldi.
Hulda Guðmundsdóttir: „Ég
tel að það liggi ekki nægilega
ljóst fyrir hvernig eða hvort
hinn evangelísk-lútherski
vígsluskilningur fari í bága við
það að gefa saman fólk af sama
kyni …“
Birgir Ásgeirsson: Opið bréf
til vígslubiskups Skálholtsstift-
is, biskups Íslands, kirkjuráðs
og kirkjuþings.
Jakob Björnsson skrifar um
álvinnslu á Íslandi .
Prófkjörsgreinar á mbl.is
www.mbl.is/profkjor
Ólafur Örn Haraldsson mælir
með Gesti Kr. Gestssyni í 2.
sæti í prófkjöri Framsóknar-
flokksins í Reykjavík.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
mbl.is
smáauglýsingar