Morgunblaðið - 22.01.2006, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 57
MINNINGAR
Íslands- og Hafnarfjarðarvinurinn
Rolf Peters, formaður vinabæjar-
félagsins Cuxhaven-Hafnarfjörður í
Þýskalandi, er látinn. Rolf lést á
heimili dóttur sinnar í Berlín sl. föstu-
dagskvöld, 13. janúar, en þar hafði
hann dvalið í góðu yfirlæti yfir hátíð-
irnar. Hann hafði átt við veikindi að
stríða sl. tvö ár, en virtist á góðum
batavegi þegar hann lést úr hjarta-
áfalli.
Rolf var fæddur í Braunschweig
hinn 27. janúar árið 1929 og hefði því
orðið 77 ára nk. föstudag. Eftir nám í
heimabænum hóf hann störf hjá fyr-
irtækinu Schmalbach-Lubeca, sem
framleiðir dósir og tæknibúnað fyrir
niðursuðuiðnaðinn, en fyrirtækið var
með starfsemi víða í Þýskalandi. Síð-
ar var honum boðin staða hjá fyrir-
tækinu í Cuxhaven, sem hann þáði,
en þar bjó hann síðan ásamt fjöl-
skyldu sinni til dauðadags.
Í starfi sínu sá Rolf m.a. um sölu-
málin til Íslands og það urðu hans
fyrstu kynni af landi og þjóð. Hann
kom í fyrsta skipti til Íslands árið
1957 og upp frá því urðu ferðir hans
til landsins að meðaltali tvær á ári.
Hann þurfti að koma víða við vegna
vinnu sinnar og heimsótti niðursuðu-
verksmiðjur víða um land. Hann
kynntist því mörgum og sá mikið af
landinu.
Sjálfur sagði hann í blaðaviðtali,
sem tekið var við hann þegar hann
var hér í sinni síðustu heimsókn fyrir
síðustu jól, að hann hefði strax orðið
fyrir miklum áhrifum af náttúrufeg-
urð landsins og hreinlega fallið fyrir
landi og þjóð. „Þið eigið dásamlegt
land, fólkið er vingjarnlegt og hingað
vil ég koma sem oftast,“ sagði Rolf í
viðtalinu.
Árið 1988 var formlega stofnað til
vinabæjarsamstarfs milli Cuxhaven
og Hafnarfjarðar og var þá leitað til
Rolfs um að taka að sér stjórn þeirra
mála í Cuxhaven, en þá hafði hann
lokið farsælu ævistarfi sínu hjá
Schmalbach-Lubeca. Vinabæjarfélag
var stofnað og var hann formaður
þess og aðaldriffjöður allt til dánar-
dags.
Rolf lagði mikla alúð við vinabæj-
arsamstarfið, enda dafnaði það hratt
undir hans stjórn og fljótlega voru
komin á föst samskipti á ýmsum svið-
ROLF
PETERS
✝ Rolf Petersfæddist í
Braunschweig í
Þýskalandi hinn 27.
janúar 1929. Hann
lést á heimili dóttur
sinnar í Berlín
föstudagskvöldið
13. janúar síðastlið-
inn.
Eiginkona Rolfs
var Inge Charlotte
Peters, en hún lést
9. ágúst 2003. Þau
eignuðust þrjú börn,
sem öll lifa foreldra
sína.
Rolf fékk riddarakross hinnar
íslensku fálkaorðu 5. júlí 1999.
Hann var fyrsti heiðursfélagi
vinabæjarfélagsins Cuxhaven-
Hafnarfjörður í Hafnarfirði.
Útför Rolfs fór fram í Cuxhav-
en, föstudaginn 20. janúar.
um eins og á lista- og
menningarsviðinu og
einnig milli íþrótta-,
æskulýðs- og skóla-
hópa. Sjálfur lagði Rolf
mesta áherslu á ung-
mennasamskiptin, en
það er einmitt unga
fólkið sem mest hefur
notið vinabæjarsam-
starfsins. „Æskan er
framtíðin. Þess vegna
eigum við að leggja
áherslu á þau sam-
skipti,“ sagði Rolf í áð-
urnefndu viðtali.
Hann sagði einnig: „Fyrir mig er
vináttan það mikilvægasta. Ef þú átt
góða vini þá er allt hægt og það er
einmitt það sem einkennt hefur vina-
bæjarsamstarfið frá upphafi.“ Rolf
var mikill náttúruunnandi og eitt
hans helsta áhugamál, þegar hann
kom í heimsókn, var að fylgjst með
gróskunni í Vinalundi, trjáræktarreit
vinabæjarsamstarfsins við Hvaleyr-
arvatn. Það gladdi hann mjög að sjá
þann vaxtarkipp sem trén höfðu tekið
síðustu árin, en það hefur frá upphafi
verið fastur liður að planta trjám í
lundinn þegar hópar koma í heim-
sókn.
Þessi öflugu og nánu vinabæjar-
tengsl milli Cuxhaven og Hafnar-
fjarðar þykja mjög einstök og af
mörgum talin einsdæmi í heiminum.
Þau hafa líka vakið mikla athygli og
þann 5. júlí 1999 hlaut Rolf Riddara-
kross hinnar íslensku fálkaorðu fyrir
dugandi og einlæg störf sín að vina-
bæjartengslunum. Áður hafði hann
hlotið sambærilega orðu frá þýska
ríkinu fyrir störf sín að félagsmálum,
en hann var einnig formaður tenn-
isklúbbsins í Cuxhaven í 30 ár og síð-
ar heiðursformaður. Hann var líka
fyrsti heiðursfélagi vinabæjarfélags-
ins í Hafnarfirði.
Eiginkona Rolfs var Inge Charl-
otte Peters, en hún lést 9. ágúst árið
2003. Þau eignuðust þrjú börn, sem
öll lifa foreldra sína.
Eins og áður segir kom Rolf í sína
síðustu heimsókn til Íslands fyrir síð-
ustu jól, í byrjun aðventu, þegar ljós-
in voru tendruð á sautjánda jólatrénu
sem vinabærinn Cuxhaven sendir
okkur Hafnfirðingum árlega fyrir jól-
in. Það mátti greinilega sjá að veik-
indin höfðu tekið sinn toll, en Rolf lét
það ekki aftra sér frá því að heim-
sækja vini sína í Hafnarfirði og landið
sem hann hafði bundist svo tryggum
böndum. Það mátti heyra á honum að
ef til vill yrði þetta hans síðasta heim-
sókn, en þrátt fyrir þrekleysið naut
hann sín til fulls og lék við hvern sinn
fingur eins og honum var einum lagið,
hress og kátur.
Við kveðjum vin okkar, Rolf Pet-
ers, hinstu kveðju með miklum sökn-
uði og sendum fjölskyldu hans og vin-
um nær og fjær, hjartanlegar
samúðarkveðjur. Fyrir hönd stjórnar
vinabæjarfélagsins í Hafnarfirði,
Erlingur Kristensson.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi.
Minningar-
greinar
Vönduð og persónuleg þjónusta
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Sími 551 7080
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
Ólafur Örn
útfararstjóri,
s. 896 6544
Inger Rós
útfararþj.,
s. 691 0919
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
GESTS INGVA KRISTINSSONAR,
Torfnesi, Hlíf 1,
Ísafirði,
áður Hlíðarvegi 4,
Suðureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði og
heimahjúkrun á Hlíf, Torfnesi.
Guð blessi ykkur öll.
Sólveig Hulda Kristjánsdóttir,
Þuríður Kristín Heiðarsdóttir, Páll Ólafsson,
Kristinn Gestsson, Jóhanna Sigurbjörg Vilhjálmsdóttir,
Óðinn Gestsson, Pálína Pálsdóttir,
Gunnhildur Gestsdóttir, Albert Högnason,
Jón Arnar Gestsson,
Sveinbjörn Yngvi Gestsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna fráfalls elskulegrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐMUNDU ÞORBJARGAR JÓNSDÓTTUR
frá Kjörvogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 2B á hjúkr-
unarheimilinu Eir.
Alda Guðjónsdóttir, Ásgeir Gunnarsson,
Laufey Kristinsdóttir,
Elísabet Guðjónsdóttir, Bragi Eggertsson,
Sólveig Guðjónsdóttir,
Guðmundur H. Guðjónsson, Dagný Pétursdóttir,
Guðrún M. Guðjónsdóttir, Óskar Pétursson,
Haukur Guðjónsson, Vilborg G. Guðnadóttir,
Fríða Guðjónsdóttir, Karl Ómar Karlsson,
Rannúa Leonsdóttir,
Kristín Guðjónsdóttir, Þórir Stefánsson,
Daníel Guðjónsson, María Ingadóttir,
Þuríður H. Guðjónsdóttir, Garðar Karlsson,
ömmubörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar elskulegs eiginmanns míns,
föður, tengdaföður og afa,
HELGA INGVARS VALDIMARSSONAR,
Brekkubyggð 93,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á göngudeild 10E á
Landspítalanum.
Bryndís Stefánsdóttir,
Jónína Helga Helgadóttir, Kristinn Gunnarsson,
Þorsteinn Baldur Helgason, Ásta Sveinsdóttir,
Valdimar Helgason, María Sif Númadóttir
og barnabörn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför okkar ástkæru
BRYNJU SIGURÐARDÓTTUR,
Reynimel 72.
Sérstakar þakkir til Sigurðar Böðvarssonar læknis,
starfsfólks krabbameinslækningadeildar Land-
spítalans, hjúkrunarþjónustunnar Karitasar og vin-
kvenna Brynju.
Erla Ingadóttir, Húnbogi Þorsteinsson,
Erla Inga Hilmarsdóttir, Dagbjartur Eiður Ólafsson,
Brynja Rán Eiðsdóttir,
Þorfinnur Hilmarsson,
Sigurður Sigurðsson,
Guðný Björk Hauksdóttir,
Þorsteinn Húnbogason, Siv Friðleifsdóttir,
Védís Húnbogadóttir, Snorri Bergmann.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
DAGMARAR INGÓLFSDÓTTUR,
Álftamýri 58,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til hjúkrunar- og starfsfólks á
hjúkrunarheimilinu Eir fyrir góða umönnun.
Anna Bára Pétursdóttir, Davíð B. Guðbjartsson,
Ingólfur G. Pétursson,
Dagmar L. Jónasdóttir, Kjartan Sigurðsson,
Svanhildur F. Jónasdóttir, Ásmundur Vilhjálmsson,
Pétur Már, Maríanna Björk, Rebekka Sól,
Kristófer Máni og Aþena Mist.
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur
vináttu og samúð við fráfall bróður okkar og
mágs,
EINARS GUÐNASONAR
viðskiptafræðings.
Gerður Guðnadóttir, Sigrún Guðmundsdóttir,
Bjarni Guðnason, Anna Guðrún Tryggvadóttir,
Þóra Guðnadóttir, Baldur H. Aspar,
Bergur Guðnason, Hjördís Böðvarsdóttir,
Jónína Margrét Guðnadóttir, Sveinn Snæland,
Elín Guðnadóttir.
Alúðarþakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við fráfall ástkærs föður
okkar og tengdaföður,
PÉTURS SIGURÐSSONAR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á deild 4B
Hrafnistu fyrir hlýju og góða umönnun.
Fyrir hönd afkomenda,
Ingibjörg Pétursdóttir, Magnús Karl Pétursson,
Halldóra Karlsdóttir,
Kristján Pétursson, Erla Magnúsdóttir,
Sigrún Pétursdóttir, Björn Ólafsson,
Sigurður Kr. Pétursson, Helga Magnúsdóttir,
Sigþór Pétursson, Collen Mary Pétursson.