Morgunblaðið - 22.01.2006, Síða 64
64 SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Til frænkunnar(Bäsle-Häsle íAugsburg), en litla
frænkan hét Maria Anna
Thekla Mozart (1758-
1851). Þau, Wolfgang og
hún, voru bræðrabörn.
Mannheim, 5. nóvember 1777
Elskulega kúsína rús-
ína! Fegins hendi hefi ég
móttekið bréf yðar trévið-
ar og af því séð téð, að
frændi minn, endeminn,
frú mín frænka rænka sem
og þér sjálfar hálfar séuð
öll hress fress. Einnig okk-
ur líður vel hel, sé Guði
þökk klökk. Ég fékk í dag
bréf frá pabba ha! ha!, sem
ég hef milli klónna flónna.
Vona að þér hafið líka píka
fengið bréf þref frá mér,
sem ég póstaði hóstaði í
Mannheim. Því fer betur
betur fer því. Nú kem ég
að öðru gáfulegra. Það
fékk mjög á mig að herra
Síra minn gíraffinn skuli
enn hafa fengið snert stert
af slagi, æi! Vona samt að
hann með Guðs hjáp hjálp
ní sér fái smér. Þér segist
regist munu halda loforð
oforð yðar, sem þér gáfuð
mér áður en ég fór frá
Augsburg og það bráðlega
háðlega. Jæja! Það myndi
vissu-pissu-lega gleðja,
seðja mig. Þá segið þér enn
fremur, já þér kveðið skýrt
á, þér gefið greinilega til
kynna, þér tjáið mér, æsk-
ið þess, bjóðið, biðjið að ég
sendi yður mynd, ó!mynd
af mér sér. Eh bien, ég
mun senda yður hana
vana. […]
Ég lýk mínu máli, það
veldur mér brjáli. Yðar
náð! eigum við ekki að
skreppa snöggvast að
krossinum helga og gá
hvort nokkur sé þar uppi –
Við verðum fljót, horfum
bara, – annað ekki. En nú
má ég til með að segja yður
raunasögu sem gerðist rétt
í þessu meðan ég sat í
bezta gengi við að skrifa
þetta bréf: Ég heyri eitt-
hvert hljóð koma utan frá
götunni, hætti að skrifa og
geng að glugganum – og –
heyri ekkert! – sezt á ný
niður við skriftirnar – festi
varla 10 orð á blað áður en
aftur heyrist hljóð – stend
upp, en þá dofnar hljóðið –
þá er eins og ég finni keim
af viðbrunnu – og hvert
sem ég sný mér fylgir mér
versti fnykur. Líti ég út um
gluggann, hverfur daunn-
inn; snúi ég mér við, vex
ólyktin – loks segir
mamma við mig: Ég þykist
vita að þú hafir leyst vind –
Það held ég ekki, mamma.
Og þó, kannske svo sé. Ég
rannsaka málið, sting vísi-
fingri í rassinn og færi
hann síðan upp að nefinu, –
og – Ecce Probatum est;
mamma hafði rétt fyrir
sér. Lifið nú heilar og sæl-
ar, ég kyssi yður 1000
kossa og er, sem ætíð, yðar
gamli síungi montinrass
Wolfgang Amadé
Rosenkranz
Þúsundfaldar kveðjur
frá okkur báðum ferða-
löngunum til herra frænda
og frú frænku. Bið einnig
að heilsa vinum hrinum vel
hel. Addio, mitt kæra flón-
grjón. ♥ 333 til æviloka, ef
ég þartil doka.
Þinn einlægur
Amadé
Wolfgang
Amadeus Mozart
27. janúar 1756–
5. desember 1791
MOZART-MOLAR
Sjálfsögð
kurteisi
ÞEGAR ég var
lítil kunnu börn
að leika sér án
þess að fyrir þau
væri allt skipu-
lagt, leiktæki og
íþróttir alls stað-
ar eins og nú. Við
vorum ekki möt-
uð og lærðum að
skapa leiki sjálf
úti í náttúrunni.
Lækur og mold
voru okkar tæki-
færi til enda-
lausrar frjórrar
starfsemi.
Ég átti bú í sveitinni og
drullumallaði mikið handa strákn-
um á bænum, jafnaldra mínum,
því hann var bóndinn og eltist við
rollur um brekkuna fyrir ofan bú-
ið. Ég átti svosem líka reiðskjóta,
frúargæðing, sem var lærleggur
úr stórgrip með löngu bandi fyrir
beizli. Þegar ég fann hrúgu af
lambaspörðum gat ég notað þau
fyrir rúsínur.
Drullukökurnar, skreyttar
brennisóleyjarblöðum og snarrót-
arpunti, þornuðu í sólinni, á dósa-
lokum og flötum steinum.
Þegar „bóndinn“ svo kom heim í
búið, þreyttur og svangur eftir
smalamennsku, bar ég á borð ný-
bakaðar kökurnar. Hann var mjög
kurteis og át þær í alvöru! Ég
starði á hann orðlaus: – Borðarðu
þær í alvöru? Hann saup á kaffinu
úr skörðóttum hankalausum boll-
anum, kaffinu sem var dökk mó-
mold hrærð út í vatni úr læknum.
Maður á að kunna að meta það
sem gert er fyrir mann, ekki satt?
Guðrún Kristín Magnúsdóttir,
rithöfundur og myndlistarmaður.
Hjálpsemi
HVERNIG stendur á því að
Reykvíkingar hugsa svona mikið
um sjálfa sig? Sjaldan hef ég séð
fólk í Reykjavík hjálpa öðrum í
neyð s.s. ef viðkomandi er fastur
eða á í einhverjum örðugleikum í
umferðinni eða annars staðar. Ef
maður fer t.d. á Selfoss berst fólk
næstum við að fá að hjálpa manni
og er það aðdáunarvert.
Er fólk í Reykjavík komið með
sama hugsunarhátt og fólk í stór-
borgum úti? Hugsar bara um
sjálft sig og lokar augunum fyrir
öðrum? Ef svo er bið ég ykkur
lesendur um að gera fólki greiða
og hjálpa því, jafnvel þótt það sé
ókunnugt. Ég held að allir þekki
það að vera fastir einhvers staðar
og komast ekkert.
Komið fram við aðra eins og þér
viljið að aðrir komi fram við yður.
Hanna Benediktsdóttir.
Þýski fótboltinn
MIG langar að spyrja íþróttadeild
RÚV að því hvort eða hvenær þeir
ætli að sýna frá þýska fótbolt-
anum.
Kveðja,
Óli.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
ÖSKUBUSKA - La Cenerentola eftir ROSSINI
Frumsýning sun.5. feb. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
2. sýn. fös. 10. feb. kl. 20 – 3. sýn. sun. 12. feb. kl. 20
4. sýn. sun. 19. feb. kl. 20 – 5. sýn. fös. 24. feb. kl. 20
AÐEINS SÝND Í FEBRÚAR OGMARS
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
Stóra svið
SALKA VALKA
Í kvöld kl. 20 Fi 26/1 kl. 20
SÍÐUSTU SÝNINGAR!
WOYZECK
Su 29/1 kl. 20 UPPSELT SÍÐASTA SÝNING!
KALLI Á ÞAKINU
Í dag kl. 14 UPPSELT
Lau 4/2 kl. 14 AUKAS Su 5/2 kl. 14 AUKAS.
CARMEN
Fö 27/1 kl. 20 Græn Kort
Lau 28/1 kl. 20 Blá kort
Fö 3/2 kl. 20 Lau 4/2 kl. 20
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
Lau 11/2 kl. 14 FORSÝNING UPPSELT
Su 12/2 kl. 14 FRUMSÝNING UPPSELT
Lau 18/2 kl. 14 Su 19/2 kl. 14
Nýja svið/Litla svið
MANNTAFL
Í kvöld kl. 20 Fö 3/2 kl. 20 AUKASÝNING
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Fi 16/2 kl. 20 Fö 17/2 kl. 20 UPPSELT
Lau 25/2 kl. 20 Su 26/2 kl. 20
BELGÍSKA KONGÓ
Lau 28/1 kl. 20 UPPSELT Su 29/1 kl. 20
Mi 1/2 kl 20 UPPS. Lau 4/2 kl. 20 UPPS.
Su 5/2 kl. 20 Fi 9/2 kl. 20
Fö 10/2 kl. 20 Lau 11/2 kl. 20
GLÆPUR GEGN DISKÓINU
Fi 26/1 kl. 20 Fö 27/1 kl. 20
Fi 2/2 kl. 20 Su 12/2 kl. 20
Naglinn
Í kvöld kl. 20 UPPSELT
Fö 27/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20
Fö 3/2 kl. 20 Lau 4/2 kl. 20
Miðasala í síma 4 600 200 / www.leikfelag.is
Fullkomið brúðkaup - heldur áfram!
Fös. 20. jan. kl. 20 UPPSELT
Lau. 21. jan. kl. 19 UPPSELT
Fös. 27. jan. kl. 20 Örfá sæti laus
Lau. 28. jan. kl. 19 Örfá sæti laus
Lau. 28. jan. kl. 22 AUKASÝNING
Fös. 3. feb. kl. 20 Nokkur sæti laus
Lau. 4. feb. kl. 19 Laus sæti
Lau. 4. feb. kl. 22 AUKASÝNING
10/2, 11/2, 18/2. - Síðustu sýningar
Miðasala opin
allan sólarhringinn
á netinu.
Snjór í
fjallinu!
Miðasalan opin virka daga kl. 13-17 og frá kl. 15 á laugardögum.
Sýnt á NASA við Austurvöll
Fimmtudagur 26 . janúar - Laus sæti
Föstudagur 27 . janúar - Laus sæti
Laugardagur 28 . janúar - Laus sæti
Fimmtudagur 2 . febrúar - Laus sæti
Föstudagur 3 . febrúar - Laus sæti
Laugardagur 4 . febrúar - Laus sæti
Fimmtudagur 9 . febrúar - Laus sæti
Húsið opnar kl. 20:00 - Sýningar hefjast kl. 20:30
Miðasala í verslunum Skífunnar,
www.midi.is og í síma: 575 1550
Ódauðlegi Mozart!
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Einsöngvarar ::: Sarah Fox, Gunnar Guðbjörnsson, Guðrún Jóhanna
Ólafsdóttir, Rannveig Fríða Bragadóttir og Hallveig Rúnarsdóttir
Kór ::: Hljómeyki
W.A. Mozart ::: Mildi Títusar
FIMMTUDAGINN 26. JANÚAR KL. 19.30
rauð tónleikaröð í háskólabíói
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Landsbankinn er stoltur bakhjarl sýningarinnar.
SÝNT Í IÐNÓ KL. 20
MIÐASALA: WWW.MIDI.IS OG Í IÐNÓ S. 562 9700
UPPSELT
UPPSELT
örfá sæti laus
örfá sæti laus
laus sæti
UPPSELT
örfá sæti laus
sunnudagur
laugardagur
sunnudagur
laugardagur
sunnudagur
föstudagur
laugardagur
22.01
28.01
29.01
04.02
05.02
10.02
11.02
mbl.isFRÉTTIR