Morgunblaðið - 22.01.2006, Page 67

Morgunblaðið - 22.01.2006, Page 67
„Dregin er upp forvitnileg og háðsk mynd af franskri yfirstétt á hverf- ulum tímum millistríðsáranna,“ segir m.a. í dómi. ALLTAF jafn notalegt ef manni er komið á óvart í jákvæðri merk- ingu. Svanasöngurinn hans de Broca, sem gladdi áhorfendur hjartanlega á sínum tíma með bráðskemmtilegum kassa- stykkjum á borð við L’ Homme de Rio og Cartouche, er býsna lunk- inn og óvenjulegur. Naðran er byggð á samnefndum æviminn- ingum/ skáldsögu Hervé Bazin, sem hefst árið 1922. Þegar amma þeirra deyr, eru Jean litli (Struk), og bróðir hans, Freddie (William Touil), settir í umsjón foreldra sinna sem eru nýkomnir eftir langdvalir í Indókína. Gleðin yfir endurfundunum við móðurina, Paule (Frot), reynist skammvinn því hún er sannkallaður djöfull í mannsmynd. Samansaumaður nirfill, haldin kvalalosta, svo eitt- hvað sé nefnt. Með foreldrunum í för frá Asíu er yngsti sonurinn Marcel (Pierre Stevenin), sem er greinilega rangt feðraður. Það eina sem Paule sýnir áhuga er frímerkjasafnið, en Jacques (Villeret), faðir drengjanna er værukær og gerir allt til að halda heimilisfriðinn og dundar sér við flugnasöfnun. Heimilislífið breyt- ist í martröð og Jean litli grípur til sinna ráða til að losna úr þessu víti. Frot er óborganleg sem hús- móðirin forherta, það er með ólík- indum hvernig hún umturnast í sannkallaða ófreskju sem hefur allt á hornum sér og getur engum unnt neins góðs. Reyndar á hún sér málsbætur sem Jean grefur uppi í heimsókn til móðurforeldra sinna. Frot er ekki ein um að sýna leiktilþrif, það má segja að allir sem koma fram í hrollkaldri grínmyndinni, standi sig með mik- illi prýði og manngerðirnar smella í hlutverkin. Dregin er upp for- vitnileg og háðsk mynd af franskri yfirstétt á hverfulum tím- um millistríðsáranna. Á meðan að- allinn gortaði af því að þurfa ekki að dýfa höndunum í kalt vatn til að lifa í munaði. Það verður ekki annað sagt en að heiðursmaðurinn de Broca hafi endað ferilinn á nótum sem hæfa glæstum leikstjórnarferli. Mamma frá víti KVIKMYNDIR Leikstjóri: Philippe de Broca. Leikarar: Catherine Frot, Jules Sitruk, Jacques Vill- eret. 100 mín. Frakkland 2004. Naðran (Vipère au poing )  Sæbjörn Valdimarsson Háskólabíó: Frönsk kvikmyndahátíð MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JANÚAR 2006 67 TÖKUR eru hafnar á kvikmynd- inni Dreamgirls, sem byggð er á samnefndum söngleik eftir Tom Eyen. Myndin gerist í kringum 1960 og segir frá söngtríóinu The Dreamettes, sem skipaður er þrem- ur ungum konum. Metnaðarfullur umboðsmaður uppgötvar stúlk- urnar og býður þeim að gerast bakraddasöngkonur fyrir einn frægasta söngvara í Bandaríkj- unum. Stúlkurnar taka boðinu fagnandi en komast síðar að því að frægðinni fylgir ekki eintóm ham- ingja. Með aðalhlutverk fara Beyoncé Knowles, Jamie Foxx, Eddie Murphy, Danny Glover, Anika Noni Rose og Jennifer Hudson. Leik- stjóri myndarinnar er Bill Condon, sem hefur leikstýrt myndum á borð við Kinsey og Gods and Monsters. Dreamgirls verður frumsýnd 22. desember í Bandaríkjunum. Reuters Anika Noni Rose, Beyoncé Knowles og Jennifer Hudson sem söngtríóið The Dreamettes. Kvikmyndir | Tökur hafnar á kvikmynd byggðri á söngleik Beyoncé Knowles leikur Draumastúlku mbl.is STJÖRNUSPÁ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.