Morgunblaðið - 19.03.2006, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 19.03.2006, Qupperneq 14
14 SUNNUDAGUR 19. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ áfram viðræðum. Þá er þessi hótun inn- antóm.‘Valur Ingimundarson, dósent í sagnfræði við Háskóla Íslands, um viðbrögð stjórnvalda við ákvörðun Bandaríkjamanna um að hverfa burt með herþoturnar og þyrlurnar. ’ Það er einfaldega óhóf ef einhverjirungir menn sem eru rétt skroppnir úr skóla og varla það, ætla að telja manni trú um að þeir þurfi á einu ári að taka í sinn hlut ævilaun duglegra hjóna, 200-250 milljónir.‘Guðni Ágústsson gagnrýndi á opnum stjórnmálafundi á Narfastöðum í Reykjadal á þriðjudagskvöld, það sem hann kallaði óhóf og græðgi stjórnenda íslenskra banka. ’ Það er auðvitað nokkuð kaldhæðn-islegt að fórna eigi Íbúðalánasjóði og að hann eigi að bjarga bönkunum úr þeirri stöðu sem þeir eru sjálfir búnir að koma sér í með óábyrgri útlánastarfsemi.‘Jóhanna Sigurðardóttir , fyrrverandi félagsmálaráð- herra, sagði á Alþingi á þriðjudag að hverjar sem ’ Hins vegar er það þannig að varn-arsamningur án nokkurra varna er ekki mikils virði.‘Geir H. Haarde , utanríkisráðherra um ákvörðun bandarískra stjórnvalda að flytja allar herþotur og þyrlur af landi brott í haust. ’ Þeir lögðu af stað í leiðangur, komustaldrei þangað sem þeir ætluðu sér og eru nú aftur á byrjunarreit. Ástæðan fyrir því er augljós. Þeir lögðu upp með úrelta heimsmynd í farteskinu, röng samnings- markmið og ranghugmyndir um eigin stöðu gagnvart bandaríska stjórnkerf- inu.‘Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á Alþingi um ráðamenn þjóðarinnar og varnarsamninginn við Bandaríkin. ’ Það er margbúið að hóta því í dipló-matískum samskiptum þjóðanna að varn- arsamningnum verði sagt upp ef þetta gerist. Það var sagt margoft árið 2003. Svo þegar þetta gerist á bara að halda breytingarnar yrðu á Íbúðalánasjóði þá þyrfti að tryggja íbúðalánaþjónustu við alla landsmenn. ’ Við viljum að menn fari aftur að um-gangast vatn með vinsemd og við skulum því hafa hraðar hendur vegna þess að ástandið er mjög hættulegt.‘Loic Fauchon , leiðtogi Heimsráðs um vatn. Heims- ráðstefna um vatnsbúskap á jörðinni hófst í Mexíkó á fimmtudag, en um 1.100 milljónir manna hafa ekki að- gang að öruggu drykkjarvatni. ’Við vitum að sumir keppinauta okkarstóðu á bak við þessi harkalegu viðbrögð við fréttum sem eru gamlar.‘Sigurður Einarsson , stjórnarformaður Kaupþings banka, sagði á aðalfundi hans á föstudag að sumir keppnauta bankans hefðu reynt að draga úr trúverð- ugleika hans með þrálátum rangfærslum eða mis- skilningi. ’Síðustu dagar Tonys Blairs‘Fyrirsögn á bresku útgáfu tímaritsins The Economist á fimmtudag. Lán Verkamannaflokksins frá stuðn- ingsmönnum þykja álitshnekkir fyrir Blair og flokk- inn. Ummæli vikunnar Reuters MEXÍKANSKIR drengir hella vatni í ílát sem þeir hyggjast síðan bera fimm kílómetra leið í þorpið Xaxamayo þar sem ekkert rennandi vatn er að hafa. Vatnsskortur í heiminum var til umræðu á þingi í Mexíkó í liðinni viku. Skortur á drykkjarvatni Á skrifstofu Kristínar Ástgeirsdótt-ur hangir plakat með mynd afdigrum og búralegum hópi karl-manna. Þegar nánar er að gáðsjást kunnugleg andlit. Þetta eru leiðtogar þjóðanna og ein kona á myndinni. Til- efni plakatsins ráðstefna um konur, völd og lögin. Veggspjöldin eru fleiri af sama toga, s.s. af 200 ljósklæddum meyjum fremst í fylkingu kvenna þegar þær fengu kosningarétt 19. júní árið 1915. Þetta eru fótboltaplakötin á Rannsóknar- stofu í kvenna- og kynjafræði í aðalbyggingu Háskóla Íslands. Þau eru vitnisburður um markverðustu og eftirminnilegustu sigrana. En ekki vinnst alltaf sigur. Þrjú póstkort á veggnum af landinu sem sekkur við Kára- hnjúka. – Ég er gráti næst vegna Kárahnjúka, segir Kristín. Mér finnst þessi stefna stjórnvalda ömurleg og áherslurnar rangar. Í því hagræðir hún bollanum við kaffivélina. Ekki er hægt að hefja viðtalið án þess að uppi- stöðulón sé komið í kaffibollann. – Hér er extra fínt kaffi, segir hún. Við fáum það í sekkjum frá Kaffitári. Í fundarherberginu er abstrakt mynd eftir Guðmundu Andrésdóttur, blað með orðunum „Þessar stelpur eru ofurmenni“ og hilla með lykilbókmenntum í kvenna- og kynjafræðum. Meginhlutverk Rannsóknarstofunnar er að ýta undir og halda utan um rannsóknir á því sviði. – Við gerum það með rannsóknarverkefn- um, bókaútgáfu, ráðstefnum, málþingum og sérfræðilegri aðstoð, segir Kristín. – Snúast flest verkefnin um konur? – Verkefnin snúast að miklu leyti um konur, enda hallar á þær í þjóðfélaginu. En áherslan fer vaxandi á karla og hinsegin fræði, þ.e. sam- kynhneigða, og hin ýmsu kyngervi. Mikill áhugi er fyrir karlarannsóknum á Norðurlönd- um, s.s. karlar í foreldrahlutverki, karlar sem gerendur í kynbundnu ofbeldi, karlar sem kaupa vændi, kynmótun karla og skólaganga drengja. – Margt neikvætt tengist karlímyndinni. – Já, mér finnst ástæða til að hafa áhyggjur af karlmönnum. Sjálfsmorð eru tíðari meðal þeirra, þeir beita meira ofbeldi og ekki bara sín á milli, þeim gengur verr í skóla og heilsan er ekki eins góð. Að mörgu er að huga. Kristín er fædd í maí árið 1951, dóttir Frið- meyjar Eyjólfsdóttur hjúkrunarfræðings og hins þjóðkunna Ása í Bæ. – Móðir mín ólst upp í Laxnesi, en afi og amma keyptu jörðina af Guðnýju, móður Hall- dórs Laxness. Afi minn fórst í seinna stríði. Hann var á línuveiðum á Jarlinum, sem hvarf með manni og mús. Ekkert er vitað um örlög bátsins. Móðir mín kynntist föður mínum, þau settust að í Eyjum og ólu þar upp fjögur börn. Nú er hún sest í helgan stein. Pabbi var fæddur og uppalinn í Eyjum og fór snemma að yrkja. Hann gekk í Samvinnu- skólann, var mikill sósíalisti og ekkert sérlega vel við Jónas frá Hriflu, sem var skólastjóri, segir Kristín glettin. Einn hans besti vinur var Oddgeir Kristjánsson tónskáld og samstarf þeirra skilaði dýrmætum arfi, meðal annars laginu „Ég veit þú kemur“. Við fluttum til Reykjavíkur árið 1968 og ég fór í MH. Ég vildi auðvitað fara í nýjasta og róttækasta skólann, segir hún og hlær. Þá var skemmtileg bylgja að ganga yfir. Það gekk á með mótmælum og fjöri. Ég tók meðal annars þátt í að ryðjast inn í Kvennaskólann til að mótmæla því að honum væri breytt í kvenna- menntaskóla. Ég varð reyndar hlynnt því síð- ar. Sumir af minni kynslóð fóru því miður illa á hassi og LSD. Ég var aldrei fyrir slíkt. Ég skildi ekki hvernig mætti breyta heiminum með eiturlyfjum. Kristín nam sagnfræði einn vetur í Svíþjóð og lauk náminu hér heima ásamt almennri bók- menntafræði. Síðar lauk hún meistaragráðu í sagnfræði. En fyrst fór hún í pólitík. – Árið eftir kvennaárið gekk ég til liðs við rauðsokkuhreyfinguna. Hún var einn af frumkvöðlunum á bak við kvennaframboðið árið 1982 og sat á þingi frá 1991 til 1999. Eftir þingmennsku fór Kristín á vegum frið- argæslunnar til Kosovo að starfa fyrir UNI- FEM. Það var þegar níu mánuðir voru liðnir frá því átökunum lauk og vann hún þar í sam- tals 15 mánuði. – Það var lærdómsrík reynsla að koma til svæðis sem hafði orðið fyrir svo mikilli eyði- leggingu, t.d. hafði sígaunahverfið í Pristina verið brennt til að koma í veg fyrir að þeir sneru aftur. Sorgin var yfirþyrmandi. Þó að mannfallið hafi víða verið meira, þá létust margir og nokkur þúsund Albanar voru enn í fangelsi í Serbíu. Ekki var vitað um örlög fjöl- margra. Enda yfirgaf nánast hver einasti Alb- ani Kosovo og flúði til Albaníu eða Makedóníu. Kristín segir merkilegt að upplifa slæma stöðu kvenna í múslímsku samfélagi. – Hjá Sameinuðu þjóðunum reyndum við að ráða sem jafnasta tölu karla og kvenna, en margir karlar áttu erfitt með að skilja að konur fengju vinnu á meðan karlar væru atvinnulaus- ir. Við byggðum upp kvennasamtök og stóðum fyrir umræðum, þar sem við drógum t.d. fram staðalmyndir til þess að skýra stöðu kynjanna. Og það var sláandi hversu margar konur töl- uðu um að framkoma karla einkenndist af virð- ingarleysi. Mikið var um heimilisofbeldi og við reyndum að vekja umræðu um ofbeldi gegn börnum, en það mátti ekki ræða. Þetta var lærdómsríkur tími og ég myndi ráðleggja öllum að taka að sér svona starf. Áhættan var í raun lítil og sér- stakt að vera innan um alla þessa hermenn, en maður fann öryggið. – Þannig að þú ert þegar farin að sakna varnarliðsins? – Ég segi það nú ekki, svarar hún og brosir. Kristín segir ákaflega mikla áherslu lagða á móðurhlutverkið meðal múslíma og það séu talin skelfileg örlög að giftast ekki. – Framið var heiðursmorð þegar ég var í Kosovo. Þá hafði stúlka varpað skugga á heið- ur fjölskyldunnar með því að vera með karl- manni fyrir hjónaband, sem varð til þess að henni var skilað daginn eftir brúðkaupið. Bræður hennar drápu hana. Þetta sýnir vel hversu einangraðir Albanir hafa verið; það lifir með þeim gömul hugmyndafræði. Viðhorf þeirra til hefndarinnar minntu mig oft á Sturl- ungu. Sjálf er Kristín ógift og barnlaus... – ... og hef alltaf verið, segir hún. Íslensk kvennabarátta hefur einkennst af viðhorfum og aðstæðum útivinnandi giftra mæðra. En ég hef lagt áherslu á að það sem við eigum sam- eiginlegt sé að vera aldar upp sem konur – í þjóðfélagi þar sem körlum og konum er mis- munað. – Það verður æ algengara að fólk giftist ekki og eignist ekki börn. – Heimilum með einum íbúa hefur fjölgað mikið á Vesturlöndum og er sú þróun mikið áhyggjuefni í Evrópusambandinu, enda kallar það á að borgir verði skipulagðar öðruvísi, t.d. þjónusta í hverfum. Einnig eru vaxandi áhyggjur af einangrun þessa hóps. Hér á landi eru karlmenn stærsti einstaki hópur sem fær félagslega aðstoð frá Reykjavíkurborg. En fólk velur í æ ríkara mæli að vera eitt. En auð- vitað getur það átt í samböndum og verið í fjar- búð. Kristín er í bleikum femínistabol með áletr- uninni: „Cogito Ergo Feminist Sum“, sem út- leggja má þannig: Ég hugsa, þess vegna er ég feministi. Þegar hún var að ganga til liðs við kvennahreyfinguna var bleikt bannlitur. Hún segir að umræðan hafi m.a. snúist um einka- lífið, atvinnulífið, menntun, mismunun, tungu- málið, kennslubækur og barnabækur. – Enid Blyton féll ekki í kramið! – Stundum var hlutunum ofgert, segir Krist- ín og brosir góðlátlega. Ég hef sagt að ekki megi gleyma góðum sögum. Ég las til dæmis fimm-bækurnar og var ofboðslega hrifin af þeim. En það hefur sorglega lítið breyst á síð- ustu 30 árum. Það er helst að bæst hafi við stórir og viðamiklir málaflokkar, sem ekki voru á dagskrá, t.d. kynbundið ofbeldi. Og ég verð að segja að kvennaframboðið er það merkilegasta sem ég hef tekið þátt í um ævina, enda hafði Kvennalistinn mikil áhrif og er sárt saknað. Ung stúlka í kynjafræðinni spyr við öll tækifæri eins og Kató gamli: Er ekki kominn tími á nýjan Kvennalista? Þess vegna er ég femínisti Morgunblaðið/Ásdís VIÐMANNINNMÆLT Pétur Blöndal ræðir við Kristínu Ástgeirsdóttur KRISTÍN ÁSTGEIRSDÓTTIR „Mér finnst ástæða til að hafa áhyggjur af karlmönnum.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.