Morgunblaðið - 19.03.2006, Qupperneq 22
22 SUNNUDAGUR 19. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Ástandið í útgáfu námsefnisá framhaldsskólastigiþykir slæmt. HeiðaBjörk Sturludóttir, verk-stjóri sögudeildar Fjöl-
brautaskólans við Ármúla – fjölmenn-
asta framhaldsskóla landsins – segir
að allt of litlu fjármagni sé varið til
námsefnisgerðar. „Það má túlka það
sem svo að menntamálaráðuráðu-
neytið leggi ekki mikla áherslu á
vandað og fjölbreytt námsefni fyrir
íslenska nemendur. Af þessum sökum
er ekki um auðugan garð að gresja
fyrir framhaldsskólakennara í sögu.
Sem dæmi má nefna að hér við skól-
ann eru kenndir sex söguáfangar, en
kennslubækur eru til fyrir eingöngu
þrjá þeirra.“
Aðalheiður Steingrímsdóttir, for-
maður Félags framhaldsskólakenn-
ara, er sama sinnis. Hún segir að
sumar bækur sem kenndar eru í
framhaldsskólum landsins séu „ekki
alls kostar góðar“. Ennfremur full-
yrðir hún að mikill skortur sé á
kennsluefni. „Ef maður skoðar t.d.
upplýsingatæknina og áhrif hennar á
skólastarfið er mikill skortur á góðu
vefkennsluefni á íslensku. Síðan ríkir
almennur skortur á kennsluefni og
útgáfa á nýju kennsluefni í samræmi
við nýja þekkingu. Framboð kennslu-
bóka helst engan veginn í hendur við
aðalnámskrá framhaldsskólans. Út-
gáfan er ekki í neinu samræmi við
þær þarfir og kröfur sem aðalnám-
skrá gerir til þess sem á að kenna.
Það er einfaldlega ekki til mikið af því
efni, sem á að kenna samkvæmt nú-
verandi aðalnámskrá,“ segir Aðal-
heiður.
Alvarlegar villur
Eftir stutta eftirgrennslan fann
greinarhöfundur 22 staðreyndavillur í
einum kafla bókarinnar Fornir tímar.
Bókin er kennd í grunnáfanganum
Sögu 103 í mörgum framhaldsskólum
landsins. Kaflinn sem um ræðir fjallar
um íslam. Dr. Jón Ormur Halldórs-
son, sem hefur ritað fjölda bóka um
íslam og er einn fremsti fræðimaður
Íslands um sögu trúarinnar, staðfest-
ir að um staðreyndavillur sé að ræða.
Dæmi um staðreyndavillur í bók-
inni Fornir tímar má finna á bls. 97.
Þar er að finna mynd af Hvelfingu
klettsins (e. Dome of the rock). Í neð-
anmálstexta myndarinnar segir með-
al annars: „Klettamoskan í miðborg
Jerúsalem er annar heilagasti staður
múslíma.“
Í þessari einu setningu eru þrjár
staðreyndavillur: Byggingin, sem
myndin er af, er ekki moska. Hún er
ekki í miðborg Jerúsalem, heldur í
gamla hluta bæjarins. Líklega er höf-
undur að reyna vísa til al-Aqsa-mosk-
unnar, sem er nokkrum metrum frá
Hvelfingu klettsins, en moskan er
þriðji helgasti staður múslíma – ekki
annar.
„Þetta er mjög mikilvægt,“ segir dr. Jón
Ormur Halldórsson um umrætt dæmi.
Hæðin sem Hvelfing klettsins og al-Aqsa-
moskan liggja á er bæði múslímum og
gyðingum heilög.
Gyðingar gera tilkall til svæðisins á
þeim forsendum að helgasti staður
þeirra, Annað musterið (e. The se-
cond temple), hafi staðið þar áður en
Rómverjar lögðu það í rúst. En al-
Aqsa-moskan, sem þar stendur nú, er
eins og áður sagði þriðji helgasti stað-
ur múslíma.
Segja má að umrætt svæði sé mið-
depill deilu gyðinga og múslíma um
heilaga landið. Skemmst er að minn-
ast þess er Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, steig fæti inn í al-Aqsa-
moskuna árið 2000. Sú heimsókn varð
kveikjan að annarri uppreisn Palest-
ínumanna gegn ísraelsku hernámi.
Uppreisnin hefur verið blóðug, þar
sem óbreyttir borgarar hafa fallið á
báða bóga og öryggi margra annarra
ríkja verið raskað.
Myndina má einnig finna á bls. 127,
þar sem Hvelfing klettsins er aftur
sögð „annar heilagasti staður músl-
íma“.
Ónothæft kennsluefni
Sögukennarar í framhaldsskólum
hafa tvær bækur til að velja úr í
kennslu í grunnáfanganum Sögu 103.
Auk áðurnefndrar bókar stendur til
boða bókin Íslands- og mannkyns-
saga NBI. Í þeim kafla hennar sem
fjallar um íslam fann greinarhöfund-
ur einnig margvíslegar staðreynda-
villur. Dr. Jón Ormur Halldórsson
staðfestir að 12 staðhæfingar í þeim
Kennsluefni í framhal
Formaður félags framhalds-
skólakennara og deildarstjóri
námskrárdeildar mennta-
málaráðuneytis eru sammála
um að skortur sé á fjármagni
til útgáfu kennsluefnis á
framhaldsskólastigi. Afleið-
ingarnar eru þær að mörgum
nemendum eru kenndar
bækur sem „ekki eru alls
kostar góðar“, auk þess sem
skortur er á kennsluefni til að
fullnægja markmiðum aðal-
námskrár framhaldsskóla.
Ingólfur Shahin kynnti sér
málið og tók meðal annars
fyrir umfjöllun um íslam í
kennslubókum.
AP
Nokkuð leynist af villum í þeim námsbókum sem í boði eru. Á þessari mynd eru al-Aqsa moskan (lengst til vinstri) sem er þriðji helgasti staður múslima og Hvelf-
ing klettsins (lengst til hægri) sem í bókinni Fornir tímar er ranglega er sögð annar helgasti staður múslima.
Morgunblaðið/Þorkell
Framhaldsskólanemendur þreyta próf. Úrval námsbóka fyrir framhaldsskólanema þykir af heldur skornum skammti.
Íslands- og Mannkynssaga NBI:
Rangt – „Shíatrúflokkurinn telur kalíf-
ana vera afkomendur Múhameðs“
Rétt – Shíatrúflokkurinn klauf sig
undan sunnítrúflokkinn vegna þess að
kalífarnir voru ekki af ætt Múhameðs.
Eðli vísinda:
Á blaðsíðu 149 stendur „Mjög mik-
ilvægt er að gera sér grein fyrir mun-
inum á atómmassa og massatölu“.
Á blaðsíðu 150 er sýnidæmi þar sem
atómmassa er ruglað saman við
massatölu.
Félagsfræði:
Rangt – Á bls. 132 segir að þeir sem
aðhyllast íslam séu ,,um 6% af íbúum
heims eða um það bil 315 milljónir eru
múslímar“.
Rétt – Þeir sem aðhyllast íslam eru
1,3 milljarðar eða um 21% af íbúum
heims.
Bókin Félagsfræði: Einstaklingur og
samfélag, var fyrst gefin út árið 1997.
Hún fór í endurprentun árið 1998 og
var endurútgefin árið 2001.
Heimildaskrá:
Adherents. 2005. „Major religions of the world“. Ranked by number of ad-
herents.
Vefslóð: http://www.al-shia.com/html/eng/p.php?p=philosophy&url=book2
Síðast skoðuð: 15.03.2005.
Al-Shia. 2005. „Our belief“. A brief description of Islam as the shi’ites be-
lieve.
Vefslóð: http://www.al-shia.com/html/eng/p.php?p=philosophy&url=book2
Síðast skoðuð: 1503.2005.
Eðli vísinda. 2005. Inngangur að eðlis- og efnafræði. Mál og
menning, Reykjavík.
Félagsfræði. 2001. Einstaklingur og samfélag. Mál og menning,
Reykjavík.
Íslands og mannkynssaga NBI. 2000. Frá upphafi til upplýsingar.
Nýja bókafélagið, Reykjavík.
Dæmi um villur
í kennslubókum