Morgunblaðið - 19.03.2006, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 19.03.2006, Qupperneq 23
kafla séu rangar. Aðspurður hvort hann telji kaflann um íslam í bókun- um tveimur nothæfan til kennslu seg- ir Jón Ormur: „Nei. Að mínu mati gefur þetta afar villandi mynd.“ Ekki var leitað að villum í fleiri köflum en um íslam í bókunum Fornir tímar og Íslands- og mannkynssögu NBI. Greinarhöfundur getur því ekki staðfest að bækurnar séu að öllu leyti ónothæfar. Þó má þess geta að kafl- inn um íslam í bókinni Fornir tímar samanstendur af rúmum fimm blað- síðum, en bókin í heild sinni er prent- uð á 384 blaðsíðum. Kaflinn um íslam í bókinni Íslands- og mannkynssaga NBI samanstendur af rúmum þrem- ur blaðsíðum, en að öllum blaðsíðum samantöldum er bókin 288 síður. Ekkert gæðaeftirlit af hálfu menntamálaráðuneytis Menntamálaráðuneytið hefur ekk- ert eftirlit með því hvort bækur, sem gefnar eru út til kennslu, fullnægi þeim faglegu kröfum sem aðalnám- skrá setur. Á heimasíðu menntamálaráðuneyt- is (http://bella.mrn.stjr.is/utgafur/ AFsamfelagsgreinar.pdf) má finna áfangalýsingar í samfélagsgreinum. Í inngangi að námskrá fyrir sögu segir meðal annars: „Söguleg þekking og innsæi getur dýpkað skilning og auk- ið víðsýni og lífsnautn í mannlegu fé- lagi þar sem skrafað er saman, leitað er lausna á þjóðfélagsvanda og lista notið.“ Í áfangalýsingu fyrir Sögu 103 er sérstaklega kveðið á um að kenna skuli efni um menningarheima mið- alda. Þar segir meðal annars: „Kristni og íslam eru hin stóru trúarbrögð sem breiddust út á fyrri hluta miðalda og hafa síðan mótað mannlíf á stórum svæðum og mæst með friðsamlegum hætti eða árekstrum allt til þessa dags.“ Aðspurður hvernig brugðist sé við ef upp komist um villur í kennslubók- um segir Sigurjón Mýrdal, deildar- stjóri námskrárdeildar menntamála- ráðuneytis, að „fyrsta skrefið væri þá ábending eða viðvörun. Síðan yrði væntanlega fylgst með því hvort gerðar yrðu úrbætur“. Edda útgáfa með um 70% markaðshlutdeild Báðar sögubækurnar eru gefnar út hjá útgáfufélaginu Eddu, sem hefur um 70% markaðshlutdeild af kennslu- bókamarkaðinum á Íslandi. Val á höfundum kennslubóka mið- ast ekki við það að hæfustu sérfræð- ingar á hverju sviði séu fengnir til að rita námsefni. Sagnfræðingurinn sem fenginn var til að rita kaflann um ísl- am í bókinni Fornir tímar er sérhæfð- ur í sögu verkalýðs. Sagnfræðingur- inn sem fenginn var til að rita kaflann um íslam í bókinni Íslands- og mann- kynssaga NBI er sérfróður í Íslands- sögu 18. aldar. Bækurnar sem greinarhöfundur skoðaði hafa farið í endurprentun án þess að villur í þeim hafi verið leið- réttar. Bókin Fornir tímar var fyrst gefin út árið 2003 og fór í endurprent- un árið 2004. Hún hefur verið kennd í rúm þrjú ár. Bókin Íslands- og mann- kynssaga NBI var fyrst gefin út árið 2000 af Nýja bókafélaginu, en Nýja bókafélagið gekk inn í Eddu árið 2003. Hún hefur verið kennd í rúm fimm ár. Dæmi eru til þess að útgáfufélagið Edda framleiði fleiri en eina kennslu- bók í fjölmennum áföngum á borð við Sögu 103. En í áföngum sem færri nemendur eru í, líkt og í Sögu 303, eru engar bækur framleiddar. Skortur á fjármagni til námsefnisgerðar Námsefnisskorturinn bitnar helst á áföngum námsgreina sem eru á kjör- og valsviði aðalnámskrár framhalds- skólanna. Aðalheiður Steingrímsdótt- ir, formaður Félags framhaldsskóla- kennara, segir að skorturinn á kennsluefni sé mjög mikill. „Ástandið er virkilega slæmt í mörgum kjör- sviðs- og valáföngum og í starfsnám- inu. Í sumum greinum hafa hvorki námskrár litið dagsins ljós – í sam- ræmi við núgildandi aðalnámskrá framhaldsskóla frá árinu 1999 – né nýtt kennsluefni í samræmi við hana.“ Aðalheiður segir að til sé námsefn- issjóður sem kennarar geta sótt um styrk úr til að framleiða námsefni, en fullyrðir að hann sé vanefnum búinn. Árið 2005 úthlutaði menntamála- ráðuneytið 19,3 milljónum til náms- efnisgerðar á framhaldsskólastigi. Samanlagðar fjárbeiðnir voru um 77 milljónir. Sigurjón Mýrdal, deildarstjóri námskrárdeildar menntamálaráðu- neytis, viðurkennir að ráðuneytið út- hluti ekki nægilegu fé til framleiðslu kennsluefnis. „Það er auðvitað aldrei nóg fjármagn og ég veit það er ekki nægilegt. Við myndum auðvitað vilja að það væri framleitt miklu meira af íslensku námsefni. Það gefur auga- leið. Við vitum um þessa takmörkun.“ Sigurjón segir ennfremur að náms- efnissjóður fyrir framhaldsskóla sé mjög lítill og því eru úthlutaðar upp- hæðir lágar. Aðeins ein leið til úrbóta Aðalheiður Steingrímsdóttir, for- maður Félags framhaldsskólakenn- ara, útskýrir hvað hefur farið úrskeið- is: „Kennarar sinna námsefnisskrif- um samhliða kennslunni og það sjá auðvitað allir að það kemur lítið út úr því á meðan staðan er svona. Árið 2004 voru t.d. 70 verkefni til námsefn- isgerðar styrkt eða að meðaltali um 270 þús kr. á hvert þeirra. Það segir sig sjálft að ekki er hægt að vinna mikil stórvirki í námsefnisgerð fyrir þá umbun. Margir kennarar leggja á sig ómælda vinnu til að bjarga því sem menntamálaráðuneytið á að sjá til að sé í lagi.“ Aðalheiður sér aðeins eina leið til úrbóta. „Námsefnissjóður hefur einfaldlega ekki nægilega pen- inga til að verða við þörfum um efnis- skrif og því fá miklu færri styrk en sækja um. Á meðan námsefnissjóður er svona fátæklegur og vanefnum bú- inn mun ástandið ekki batna. Sjóður- inn er á vegum menntamálaráðuneyt- isins og fær fé af fjárlögum. Það þurfa einfaldlega að koma miklu meiri fjár- munir til.“ Magnús Björn Ólafsson lagði til (e. contributed) greinarinnar. Heimildaskrá: Fornir tímar. 2003. Spor mannsins frá Lae- toli til Reykjavíkur 4.000.000 f.Kr. til 1800 e.Kr. Mál og menning, Reykjavík. dsskólum ábótavant Höfundur er sjálfstætt starfandi blaðamaður. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARS 2006 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.