Morgunblaðið - 19.03.2006, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARS 2006 47
UMRÆÐAN
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
GRÍMSHAGI - TVÆR ÍBÚÐIR - LAUS STRAX
Stór og rúmgóð 184 fm kjallari/jarðhæð í
húsi sem er byggt 1978. Íbúðin er innst í
botnlangagötu fyrir framan opið svæði, og
er í dag skipt upp í tvær íbúðir, báðar með
sérinng. Stærri íbúðin skiptist í forstofu,
hol, borðstofu, stofu, eldhús, stofu, tvö
herbergi og baðherbergi. Minni íbúðin
skiptist í forstofu, hol, eldhús, baðherbergi
og stofu/herbergi. V. 32,0 m. 5681
HRAUNBÆR - RÚMGÓÐ OG HLÝLEG ÍBÚÐ
Góð þriggja herbergja íbúð á 3. hæð með
fallegu útsýni. Íbúðin er í húsi, sem er ofar-
lega í Árbænum og er staðurinn mjög
barnvænn. Íbúðin skiptist í hol, baðher-
bergi, tvö svefnherbergi, stofu og eldhús.
V. 16,2 m. 5679
NÝTT SUMARHÚS VIÐ ÞINGVALLAVATN.
Nýr og sérlega vandaður 65,4 fm sumar-
bústaður sem skiptist annarsvegar í 57,6
fm hús með anddyri, stofu, tveimur her-
bergjum, eldhúsi og baðherbergi og hins-
vegar í 7,8 fm í sérhúsi. 5.000 fm eignar-
land. Útsýni. Einungis 45 mín. akstur frá
Reykjavík. V. 14,5 m. 5684
SUMARHÚS VIÐ ÞINGVALLAVATN
Fallegur 37,5 fm sumarbústaður í Miðfells-
landi sem skiptist í anddyri, baðherbergi,
svefnherbergi, eldhús, stofu og svefnloft.
Sumarbústaðurinn stendur á 5.000 fm
leigulóð. Einungis 45 mín. akstur frá
Reykjavík. V. 7,9 m. 5683
ÞORRAGATA M. BÍLSKÚR
Glæsileg 3ja-4ra herbergja íbúð á 3. hæð í
þessu vinsæla lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í
stóra stofu, bókaherbergi/sjónvarpsherb.,
eldhús, baðherbergi, þvottahús og for-
stofu. Innangengt er í bílskúrinn. Um er að
ræða íbúð fyrir eldri borgara. 5675
LANGAMÝRI - GARÐABÆR
3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinn-
gangi, sólskála og verönd. Íbúðinni fylgir
stór bílskúr. Íbúðin skiptist í hjónaherbergi,
barnaherbergi, þvottahús, baðherbergi,
eldhús, stofu, sjónvarpsstofu, sólstofu og
geymslu. V. 32 m. 5680
OPIÐ HÚS - LEIFSGATA 28 JARÐH.
73,6 fm jarðhæð á vinsælum stað í mið-
borginni. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi,
tvær stofur, eldhús, bað og geymslu. Hús-
ið stendur við rólega götu. Nýlega hefur
verið endurnýjað, í heild eða hluta, í íbúð-
inni gluggar og gler, raflagnir, gólfefni fyrir
fáum árum, ofnalagnir og ofnakranar.
EIGNIN VERÐUR TIL SýNIS Í DAG
(SUNNUDAG) FRÁ KL. 14-16. Á bjöllunni
stendur Sigurður Jónsson. V. 16,9 m.
MÁNAGATA - NORÐURMÝRI
Góð 2-3ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu
steinhúsi. Íbúðin skiptist m.a. í hol, stofu,
herbergi, eldhús og bað. Í kjallara fylgir
sérgeymsla auk sam. þvottahúss. Geymsl-
uris fylgir. V. 15,5 m. 5690
ÖLDUGRANDI - MEÐ STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU
2ja herbergja íbúð á annarri hæð ásamt
stæði í góðri bílageymslu. Íbúðin skiptist í
forstofu, hol, eldhús, stofu, baðherbergi og
svefnherbergi. Í kjallara fylgir rúmgóð
geymsla svo og sam. hjólageymsla o.fl.
Innangengt er í bílageymsluna en innaf
bílageymslunni er mjög gott þvottahús
með vélum. Öll sameign er snyrtileg. V.
15,3 m. 5686
TÓMASARHAGI - SÉRHÆÐ.
Glæsileg og nýlega endurnýjuð 129 fm
neðri sérhæð með tvennum svölum ásamt
39,2 fm bílskúr. Hæðin skiptist í forstofu,
hol, tvö svefnherbergi (voru þrjú), stofu,
borðstofu, sjónvarpshol, baðherbergi og
eldhús. Íbúðin er mjög mikið endurnýjuð
m.a. öll gólfefni, innréttingar, hurðir, skáp-
ar, eldhús og tæki, baðherbergi, rafmagn
ofl., V. 39,4 m. 5678
VEGHÚS - RÚMGÓÐ OG SNYRTILEG
MJÖG FALLEG 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ Á
ANNARRI HÆÐ Í LITLU FJÖLBÝLI.Húsið
lítur mjög vel út og sameign nýlega teppa-
lögð og máluð. Íbúðin skiptist í anddyri,
hol, eldhús, þrjú svefnherbergi, þvottahús,
baðherbergi, stofu og geymslu í risi. V.
23,9 m. 5676
HRAUNBÆR - SNYRTILEG ÍBÚÐ
2ja herbergja íbúð í 3ja hæða fjölbýlishúsi.
Húsið lítur vel út og var málað fyrir um 2
árum síðan. Íbúðin skiptist í hol, eldhús,
stofu, bað og svefnherbergi. Íbúðin er í ró-
legu hverfi og stutt er í útvist, verslun,
íþróttaiðkun og margt fleira.V. 13,0 m.
5677
GOÐALAND Í FOSSVOGI
ATH - Eignin er aðeins í skiptum fyrir 100-
140 fm íbúð í Fossvogi. Fallegt 227,5 fm
endaraðhús á tveimur hæðum sem stend-
ur fyrir ofan götu. Bílskúr er í lengju fyrir
neðan húsalengjuna. Húsið skiptist þannig
að á efri hæð (aðalhæð sem er 137 fm) er
forstofa, gestasnyrting, hol, þrjú herbergi
(voru fjögur), baðherbergi, eldhús og stofa.
Á neðri hæð er hol, stórt sjónvarpsh., tvö
herbergi, baðherbergi, gufubað og
geymsla. 5666
DALTÚN - KÓPAVOGUR
Glæsilegt 248,1 fm parhús. Á miðhæð er
forstofa, þvottahús/herbergi, innra hol,
stórt eldhús, stofa og borðstofa og snyrt-
ing. Á efri hæð er hol, baðherbergi og þrjú
stór herbergi. Í kjallara er 46,4 fm stórt
herbergi og 46,4 fm bílskúr. V. 44,5 m.
5662
IÐUFELL
Snyrtileg 3ja herbergja 85 fm íbúð í blokk
sem hefur verið klædd með varanlegri
klæðningu. Íbúðin skiptist í hol tvö her-
bergi, eldhús, baðherbergi, stofu og yfir-
byggðar svalir. Á jarðhæð er sameiginlegt
þvotthús með vélum og sér geymsla. V.
13,7 m. 5687
SÓLTÚN - EFSTA HÆÐ - ÚTSÝNI
Vorum að fá í einkasölu stórglæsilega 3ja
herb., 115 fm íbúð á 7. hæð í nýju lyftu-
húsi, ásamt stæði í bílageymslu. Einangrun
er í gólfi til aukinnar hljóðvistar. Myndsími.
Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni. Kaupendur
geta valið um viðaráferð og tæki. Íbúðin af-
hendist fullbúin án gólfefna 1. des. nk. V.
49,0 m. 5661
„meingerð sem verði að ganga til
baka.“
„Villta vestrið“
Daginn fyrir gamlársdag var
staðan mjög á reiki. Skammast Ís-
landspóstur sín fyrir ómennskt as-
naspark eða heldur fyrirtækið sínu
striki, rekur virtan og afar vinsælan
starfsmann sinn í þrjá áratugi og
hrúgar verkefnum hans á þann
landpóst sem eftir er og hefur nú
þegar nóg á sinni könnu? Verða
vöru- og farþegatengslin við Ísa-
fjörð og Hólmavík slitin? Stjórn-
arformaður Íslandspósts sagði við
þingmann að við Djúpmenn værum
ekkert of góðir til að skella frímerki
á mjólkina, skyrið og brauðin (og
láta Íslandspóst flytja þau fyrir 50
kr. kg.). Sá bíll færi með vöruna
framhjá viðtakendum síðdegis, hún
væri látin í safnkassa á víðavangi
inn við Steingrímsfjarðarheiðar-
vegamót og á svo að skila sér með
landpósti til baka næsta dag ef veð-
ur og færð leyfa.
Í nefndum kassa við alfaraleið á
síðan að „varðveita“ ábyrgðarpóst
hvers konar, m.a. tékkhefti, pen-
ingasendingar og upplýsingar um
korta- og ávísanareikningsnúmer.
Einnig áfengissendingar og bjór
fyrir hótel, lyf fyrir menn og skepn-
ur, húsgögn og heimilistæki, bensín,
olíur og gas fyrir þá sem lengst
eiga í slíka þjónustu, auk alls ann-
ars sem verðmæti eru í.
Og þar sem bilaður bíll má varla
standa í vegarkanti yfir nótt hér við
Djúp svo ekki sé búið að stela úr
honum öllu steini léttara og í bígerð
er að koma löggæslu okkar á
Hólmavík suður til Borgarness, auk
þess sem svona „póstvarðveisla“
mun ekki heimil samkvæmt lögum
og reglugerðum Íslandspósts, þá
eigum við íbúar hér engin nógu
sterk orð yfir þá vanvirðu sem okk-
ur er sýnd með þessari fyrirætlan.
Hér er nóg gegnumstreymi af
ribböldum, eiturfíklum og veiðiþjóf-
um nú þegar, þó póstræningjar
bætist ekki við. Ef á að hafa vopn-
aðan vörð við kassann að staðaldri
þá fer nú væntanlega þessi 1,1
milljón króna áætlaði sparnaður
fyrir lítið.
Ég vil að síðustu vara dreif-
býlisfólk við næstu sparnaðarstefnu
margnefnds fyrirtækis. Ef við hér
þurfum ekki að fá póst nema þrisv-
ar í viku, plús þær misþyrmingar á
þjónustu landpósta sem hér áttu að
taka gildi 2. jan. síðastliðinn hlýtur
þá ekki að vera næsta skref hvað
ykkur snertir að fækka póstdreif-
ingardögum í sveitum almennt um
einn eða tvo?
Höfundur er bóndi á
Skjaldfönn við Djúp.
Marteinn Karlsson: „Vegna
óbilgjarnrar gjaldtöku bæjar-
stjórnar Snæfellsbæjar af okkur
smábátaeigendum, þar sem ekk-
ert tillit er tekið til þess hvort við
megum veiða 10 eða 500 tonn,
ákvað ég að selja bátinn og flytja
í burtu.“
Sigríður Halldórsdóttir skrifar
um bækur Lizu Marklund sem
lýsa heimilisofbeldi.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
Fréttir
í tölvupósti