Morgunblaðið - 19.03.2006, Side 61
Ólafsdóttur. Verkið fjallar um íslenskar
fjölskyldur og vandamál þeirra. Hægt er
að panta miða í síma 848 5448 eða á
midasala@gmail.com Miðaverð er 1.000
kr. 500 kr. fyrir nema og börn undir 16
ára.
Uppákomur
Borgarbókasafn – aðalsafn | Sögustund,
Ingibjörg Hafliðadóttir les úr barnabók-
um.
Fyrirlestrar og fundir
Alanóhúsið | Tólf spora samtök Debtors
Anonymous funda í Alanónhúsinu, Selja-
vegi 2, kl. 11–12. Eru skuldirnar að stjórna
lífi þínu? Það er til lausn! Samtök hömlu-
lausra skuldara.
Iðnó | Á bókmenntakvöldi Dante-
félagsins í Iðnó 21. mars ræða Thor Vil-
hjálmsson og Halldór Guðmundsson um
kynni Halldórs Laxness af Ítalíu en þau
hófust árið 1925 er hann vann að Vef-
aranum mikla frá Kasmír. Kynningin hefst
kl. 20 og gefst kostur á fyrirspurnum og
umræðum.
Krabbameinsfélagið | Samhjálp kvenna
verður með opið hús í Skógarhlíð 8, 21.
mars kl. 20. Á dagskrá verður: Tískuráð-
gjöf á vegum Debenhams, Erla Lúðv. stíl-
isti sýnir vortískuna og veitir ráðgjöf.
Snyrtifræðingur kynnir nýjungar og leið-
beinir. Ingibjörg Sigurbj. gullsmiður sýnir
skartgripi. Vöfflur með rjóma.
Norræna húsið | Umræðufundur um fjöl-
menningu á Norðurlöndum verður 20.
mars kl. 14–17. Einkum um Danmörku.
Aðalfyrirlesari verður Inge Thorning, for-
stöðukona Interkulturelt Center, Árósum.
Aðrir málshefjendur eru: Gestur Guð-
mundsson, Jon Milner, Sesselja T. Ólafs-
dóttir og Sigrún Sigurðardóttir. Fund-
urinn fer fram á dönsku.
Fréttir og tilkynningar
GA-fundir | Er spilafíkn að hrjá þig eða
þína aðstandendur? Hægt er að hringja í
GA-samtökin (Gamblers Anonymous) í
síma: 698 3888.
Tungumálamiðstöð HÍ | Alþjóðlega
þýskuprófið TestDaF verður haldið í
Tungumálamiðstöð HÍ 20. apríl. Skráning
fer fram í Tungumálamiðstöð HÍ, Nýja
Garði og skráningarfrestur er til 21.
mars. Nánari upplýsingar: Tungumála-
miðstöð H.Í. Nýja Garði: 525 4593,
ems@hi.is, www.hi.is/page/tungu-
malamidstod og www.testdaf.de
Háskóli Íslands heldur einnig 12. maí nk.,
hin alþjóðlegu DELE próf í spænsku. Inn-
ritun fer fram í Tungumálamiðstöð HÍ
sem staðsett er í kjallara Nýja Garðs.
Frestur til innritunar rennur út 7. apríl.
Nánari upplýsingar um prófin og inn-
ritun: http://www.hi.is/page/dele
**FRMT**
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19. MARS 2006 61
DAGBÓK
Íslenski dansflokkurinn stendur nú í annaðsinn að dansnámskeiði fyrir stráka. Nám-skeiðinu er ætlað að efla áhuga stráka ádansi. Á mánudag munu piltar úr 9. og
10. bekk Víkurskóla og Austurbæjarskóla fá að
spreyta sig og fræðast undir leiðsögn sumra
fremstu karldansara landsins.
„Hugmyndin að baki verkefninu er að örva og
vekja áhuga stráka á unglingsaldri á dansi, en
eins og staðan er í dag er skortur á karldöns-
urum á Íslandi,“ segir Bryndís Nielsen, kynn-
ingarfulltrúi hjá Íslenska dansflokknum. „Það
hefur lengi loðað við að strákum þyki frekar
hallærislegt að dansa og þessu viljum við breyta
og teljum að marga langi að stunda dans en
vanti aðgang, fyrirmyndir og möguleika til að
læra dans innan um aðra stráka.“
Ungu dönsurunum er boðið að heimsækja
dansflokkinn í Borgarleikhúsinu þar sem þeim
eru kennd undirstöðuatriði listarinnar. Þá er
þeim skipt í hópa og er hverjum hópi falið að
semja eigið dansverk sem piltarnir síðan sýna í
skólum sínum. „Við leggjum áherslu á að draga
fram persónulegan styrk hvers og eins og örva
sköpunargleði og kraft,“ segir Bryndís en Peter
Anderson hefur yfirumsjón með kennslunni og
nýtur liðsinnis karldansara dansflokksins. Peter
Anderson hefur starfað hjá Íd síðan 2001 og
m.a. samið fjölda verka og gert dansmyndir.
Sem fyrr sagði er þetta í annað skiptið sem
Íslenski dansflokkurinn stendur fyrir verkefni af
þessum toga og tóku síðast þátt í því átján pilt-
ar en þá var Hlíðaskóli fenginn til samstarfs.
„Það var mikil ánægja með verkefnið frá öllum
hliðum og okkur sýnist að enn meiri þátttaka
verði í námskeiðinu að þessu sinni.“ Bryndís
bætir við glettin að það hafi ekki reynst nei-
kvætt fyrir vinsældir strákanna að taka þátt í
því .
Bryndís segir að alltof algengt sé að fólk komi
sér upp röngum staðalmyndum af dönsurum:
„Þessar staðalmyndir eru ekki allskostar réttar.
Dans er ekki bara bleikar sokkabuxur og tútú-
pils heldur mjög fjölbreytt listform. Sem dæmi
má nefna að dansflokkurinn hefur núna í sýn-
ingum tvö dansverk og er annað þeirra, til að
mynda, fremur aggressíft og með tónlist sem
höfðar mjög vel til stráka,“ bætir Bryndís við.
Tvö námskeið eru haldin, 20. og 27. mars. Í
hinu síðara taka nemendur úr Haga- og Val-
húsaskólum þátt. Þótt námskeiðið sé að þessu
sinni í samstarfi við skólana fjóra sem hér að of-
an voru nefndir segir Bryndís að áhugasömum
ungum karldönsurum úr öðrum skólum sé
frjálst að setja sig í samband við Dansflokkinn
og sækja um að fá að koma.
Að námskeiðinu loknu er piltunum boðið á
sýninguna „Talaðu við mig“ sem í eru tvö verk,
eftir Didi Veldman og Rui Horta, og dansflokk-
urinn setur upp um þessar mundir.
Nánari upplýsingar um dansflokkinn og nám-
skeiðið má finna á heimasíðu Íslenska dans-
flokksins: www.id.is
Dans | Íslenski dansflokkurinn býður strákum úr 9. og 10. bekk að kynnast danslistinni
Strákarnir fá að dansa
Bryndís Nielsen
fæddist í Madison-borg,
Wisconsin í Bandaríkj-
unum 1977. Hún lauk
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í
Reykjavík 1998 og BA-
prófi í sálfræði með
kynjafræði sem auka-
grein frá Háskóla Ís-
lands 2003. Þá lauk
Bryndís mastersnámi í
sjónrænni mannfræði frá Goldsmiths college í
Lundúnum 2006. Brýndis hefur sinnt ýmsum
ritstörfum og kynningarmálum en frá áramót-
um hefur hún starfað sem kynningarfulltrúi
Íslenska dansflokksins.
Skráning og afhending gagna
Ræ›a formanns
Hrund Rudolfsdóttir, forma›ur stjórnar SVfi
Ávarp
Valger›ur Sverrisdóttir, vi›skiptará›herra
Sk‡rsla um stö›u og horfur í fljónustugreinum
á Íslandi
Katrín Ólafsdóttir, a›júnkt Háskólanum í Reykjavík
Innovation in the service sector - characteristics
and policy consequences
Per Koch, a›sto›arframkvæmdastjóri NIFU STEP,
Rannsóknarstofnunar um n‡sköpun í Noregi
A›ger›ir til a› bæta samkeppnishæfni
fljónustufyrirtækja
Gu›mundur Arason, framkvæmdastjóri Securitas hf.
Annáll SVfi 2005
Sigur›ur Jónsson, framkvæmdastjóri SVfi
Veitingar - Afhending gagna fyrir a›alfund
Hef›bundin a›alfundarstörf
D A G S K R Á
12:45
13:00
A›alfundur
SVfi – Samtaka verslunar og fljónustu
haldinn 21. mars 2006 á Grand Hótel Reykjavík
fiema fundarins:
N‡sköpun í fljónustu
Á fundinum ver›ur kynnt vi›amikil úttekt á stö›u
og horfum í íslenskum fljónustugreinum
14:40
15:00
Fundarstjóri:
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins
Per Koch
Valger›ur Sverrisd.
Katrín Ólafsdóttir
Hrund Rudolfsdóttir
Gu›mundur Arason
Sigur›ur Jónsson
Vinsamlega tilkynni› flátttöku í síma 511 3000
e›a me› tölvupósti til svth@svth.is
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
3
62
.0
0
9
Vilhjálmur Egilsson
Jakob aftur.
Norður
♠Á53
♥543 A/Allir
♦6
♣KG10654
Vestur Austur
♠K972 ♠D64
♥2 ♥Á109876
♦K98732 ♦Á5
♣D9 ♣73
Suður
♠G108
♥KDG
♦DG104
♣Á82
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 1 hjarta 1 grand
Pass 3 grönd Allir pass
Hjónin Jakob Kristinsson og Gail
Hanson voru í vörn gegn þremur
gröndum eftir sagnirnar að ofan. Spilið
kom upp í hliðarkeppni á þjóðarleik-
unum í Orlando fyrir tveimur árum.
„NS voru næststerkasta par keppn-
innar,“ segir Jakob – og bætir við: „Þú
veist hvers vegna.“
Jakob kom út með smáan tígul og
Gail tók með ás og spilaði tígulfimmu
um hæl. Tígulstaðan lá þá nokkuð ljós
fyrir og Jakob sá að hann yrði að leita
fanga annars staðar.
En hvar og hvernig?
Jakob tók á tígulkónginn og skipti
yfir í spaðakóng! Sagnhafi drap með ás
og fór að telja punkta: Vestur hefur
sýnt tvo kónga og virðist eiga spaða-
drottningu líka. Austur hlýtur þar með
að eiga laufdrottningu með rauðu ás-
unum, því annars er enginn styrkur til
að opna á einu hjarta.
Sagnhafi drap því á á spaðaás, spil-
aði laufgosa og lét hann rúlla til Jakobs
í vestur. Einn niður og hreinn toppur.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Kisur í miðborginni
ÉG LAS uppástungu um það í Mbl.
16. mars að banna lausagöngu katta
í miðborginni. Þeir væru greyin að
reyna að hlýja köldum klóm með
því að fara inn í búðir við Lauga-
veginn. Ef þetta eru kettir sem eig-
endur henda út úr húsi þegar þeir
fara að heiman á morgnana er það
forkastanlegt og það ætti enginn
sem annt er um dýrið sitt að gera.
Hins vegar ef um er að ræða ketti
sem eru í neyð ber fólki að koma
þeim til aðstoðar samkvæmt dýra-
verndunarlögum. Sigríður í Katt-
holti og hennar góða fólk eru alltaf
tilbúin að hjálpa kisum. Þar er sko
ekki kisum í kot vísað.
Annars er einhver árátta hér að
dýr í bæjum megi bara ekki sjást.
Það sem vantar frekar er að hlúa
að dýrum og vera góð við þau og
mikið vantar upp á að sumt fólk
sýni ábyrgð varðandi kattahald.
Mega margir skammast sín í þeim
efnum. Annað mál er, gerði það svo
voðalega til að búðareigandi leyfði
kaldri kisu að hlýja sér smástund?
Mundi það ekki bara lífga upp á
annars fremur dauflegan Lauga-
veg? Eins kostar nú engar fúlgur
að gefa svangri kisu þurrmat í
gogginn.
Að lokum, kæru kattavinir, styðj-
um við bakið á Kattholti og því
mikla og óeigingjarna starfi sem
þar er unnið í þágu vegalausra og
yfirgefinna katta.
Kattavinur.
Hreyfing Faxafeni
ÁRIÐ 2001 stundaði ég líkamsrækt
hjá Hreyfingu. Faðir minn greiddi
reikninginn með visakorti og skrif-
aði undir samning. Ári seinna sagði
ég samningnum upp. Ég byrjaði
aftur í Hreyfingu á síðasta ári,
gerði greiðslusamning, að taka ætti
mánaðarlega af debetkortinu mínu.
Fyrir nokkrum vikum kom í ljós að
þeir hjá Hreyfingu hafa dregið
þennan pening af visakorti pabba í
nær ár án hans samþykkis. Pabbi
fór þangað til að fá skýringar. Þeir
sáu að þeir höfðu gert mistök, kort-
ið var notað í heimildarleysi (korta-
upplýsingarnar hans voru enn í
tölvunni 2005!). Pabbi krafðist end-
urgreiðslu. Þeir spurðu hvort hann
gæti ekki rukkað dóttur sína um
peninginn! Pabbi hélt nú ekki, sagði
að þeir hefðu verið að nota visa-
kortið ólöglega. Pabbi fór í bankann
og í kjölfarið var send krafa frá
bankanum á Hreyfingu um endur-
greiðslu. Ég hringdi svo nokkum
vikum seinna og tala við starfs-
mann hjá Hreyfingu. Ég fékk ekki
blíðar móttökur, starfsmaðurinn
byrjaði á því að segja að þeir væru
búnir að reyna að hringja oft í mig
út af þessu máli og að krafan væri
komin. Ég var ekkert ánægð með
þetta rugl hjá þeim og sagði það.
Hún spurði hvort það væri ekki allt
í góðu milli mín og pabba míns og
hvort ég skoðaði ekki yfirlitið af
debetkortinu! Hún var ekki á því að
þeir hefðu gert neitt ólöglegt. Þetta
mál er alvarlegt, að þeim skyldi
detta það í hug að pabbi ætti að
rukka mig fyrir pening sem þeir
væru búnir að taka af honum á
ólöglegan hátt. Ég var aldrei beðin
afsökunar. Ég er hætt hjá Hreyf-
ingu og þykir mér það miður.
Guðný Hrund Rúnarsdóttir
(160578-3519).
Lyklakippa týndist
FÖSTUDAGINN 10. mars töp-
uðust húslyklar. Lyklakippan er
merkt Renault. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma 553 4569.
Sigurrós.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
HALDNIR verða tónleikar til heið-
urs Jóni Nordal í Tónlistarhúsinu
Laugarborg í dag. Flytjendur á tón-
leikunum eru Tríó Reykjavíkur í
samvinnu við Tónskáldafélag Ís-
lands og hefjast tónleikarnir kl. 15.
Á tónleikunum verða eingöngu
flutt verk eftir Jón Nordal sem varð
áttræður í þessum mánuði. Uppi-
staðan er kammerverk fyrir fiðlu,
selló og píanó sem spanna allan feril
Jóns. Flest verkanna eru meðal
þekktustu kammerverka Jóns sem
hafa fyrir löngu náð hylli íslenskra
flytjenda og tónlistarunnenda. Elst
verkanna er Systur í Garðshorni fyr-
ir fiðlu og píanó frá árinu 1944 en
þar á eftir verður leikin Fiðlusónata
frá 1952. Þá verða flutt Dúó fyrir
fiðlu og selló frá 1983, Myndir á þili
fyrir selló og píanó frá 1992 og loks
tríóið Andað á sofinn streng fyrir
fiðlu, selló og píanó sem samið var
1998.
Jón Nordal heiðraður
í Laugarborg
Fréttir í tölvupósti