Morgunblaðið - 19.03.2006, Blaðsíða 64
64 SUNNUDAGUR 19. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ
K
olsvarta gamanmyndin The
Matador er frumsýnd hér-
lendis um helgina en Pierce
Brosnan fer með burð-
arhlutverk í myndinni. Nafn
hans er auðvitað samofið nafni þekktasta
njósnara kvikmyndasögunnar, James Bond,
enda hefur hann túlkað séntilmanninn í
fjórum vinsælum myndum. Brosnan hefur
lagt sig fram við að vera ekki bara í Bond-
hlutverkum og í þessari mynd leikur hann
veraldarvanan morðingja, sem er mikið fyr-
ir kvenfólk (!) en gæti þó ekki verið ólíkari
Bond, að minnsta kosti á yfirborðinu.
Eftir að hafa rætt við almannafulltrúa og
aðstoðarmenn kvikmyndastjörnunnar var ég
nærri búin að gefa viðtalið upp á bátinn.
Hélt þó í vonina og síminn hringdi loks síð-
degis í vikunni, engir aðstoðarmenn heldur
beintenging: „Hi Inga, this is Pierce Brosn-
an.“ Ekki á hverjum degi sem maður fær
slíka kveðju en þessi lína er nóg til að láta
hvaða konu sem er kikna í hnjáliðunum.
Brosnan virkar ótrúlega hress miðað við
það að klukkan er aðeins rúmlega sex um
morgun í Vancouver þar sem hann er stadd-
ur. Mér skilst hann sé á leiðinni á flugvöll-
inn og stefni til Los Angeles.
Hann er mjög kurteis og býður af sér
mikinn þokka, jafnvel í gegnum símalínuna
frá limósínunni, sem ég ímynda mér að
hann ferðist í á flugvöllinn. Auðvitað byrja
ég á lofræðunni: „Mér fannst þetta frábær
mynd og þetta er einhver fyndnasti karakt-
er sem ég hef séð lengi á hvíta tjaldinu,“
segi ég og vonast til þess að hann trúi mér.
Auðvitað er alltaf verið að ausa þessar kvik-
myndastjörnur lofi en í þetta skiptið er
hvert einasta orð satt. Brosnan er hreint og
beint frábær í þessari stórskemmtilegu
mynd.
Hann er kurteis, talar yfirvegað með auð-
þekkjanlegri röddu og þakkar fyrir sig. „Ég
sá handritið og hló mikið að textanum.
[Leikstjórinn og handritshöfundurinn Rich-
ard] Shepard lagði upp með að gera enn
svartari kómedíu en þetta varð bara svona
fyndið,“ segir Brosnan en það er allt hljótt í
kringum hann. Kannski er hann sjálfur að
keyra út á flugvöll, írskar rætur hans leyfa
ekki lúxus á borð við limósínur. Hann er lík-
legast í Range Rover með skyggðu gleri og
talar í farsímann með handfrjálsum búnaði.
Brosnan leikur leigumorðingjann Julian
Noble, sem er úr tengslum við eigin tilfinn-
ingar og annarra og er fylgst með því
hvernig hann brotnar niður í myndinni.
„Hann er óheflaður og sérstakur maður.
Hann er mjög einmana og stendur al-
gjörlega fyrir utan samfélagið,“ segir hann
en öllum þessum þáttum persónunnar nær
Brosnan að koma til skila. Það er ekki hægt
að hlaupast á brott frá tilfinningum sínum
eða gjörðum.
Hann undirbjó sig fyrir hlutverkið með
ýmsum hætti. „Ég talaði við afbrotasálfræð-
ing í Los Angeles til að fá að skyggnast inn
í heim þessara manna. Það er ekki eins og
ég hefði áhuga á að tala við þá í eigin per-
sónu. Hann gaf mér ágæta innsýn í heim
siðblindra. Hann las handritið og greindi
persónu mína eins og hvern annan sjúk-
ling.“
Julian lendir sífellt í því að segja óviðeig-
andi hluti á óviðeigandi stað. Svoleiðis
manneskjur geta verið fyndnar en maður
vildi ekki vera ein þeirra. „Auðvitað eru
ekki allir geðsjúklingar eins og hann en
margir komast upp með þessa hegðun
vegna þessa að þeir eru sjarmerandi,“ segir
hann og Julian er einn af þeim, siðblindur
og sjarmerandi. Brosnan sjálfur hefur hæfi-
leika til að segja réttu hlutina á réttum
stað.
Konan ekki hrifin af skegginu
Brosnan skartar yfirvaraskeggi í mynd-
inni. „Mér fannst það passa við karakterinn,
hann er svo sjúskaður. En konan mín er alls
ekki hrifin af yfirvaraskeggi. Henni fannst
það hræðilegt. Í annarri mynd sem ég er
nýbúinn að gera þurfti ég að vera með al-
skegg. Hún var ekki ánægð. Í næstu mynd
verða engin andlitshár.“
Jafnvel þótt Brosnan hefði ekki leikið
Bond er óhjákvæmilegt að bera hvern ein-
asta njósnara og leigumorðingja hvíta
tjaldsins saman við þessa erkitýpu kvik-
myndanna. Slík eru áhrif hans. Bond er allt-
af nýrakaður og snyrtilegur, öfugt við Juli-
an, sem er ólíkur James en kjarninn nálgast
það að vera Bond án glyssins.
„Þegar allt kemur til alls er útgáfa [rit-
höfundarins Ians] Flemings af Bond ekki
alltaf sykursæt. Bond gleypir lyf og svolgr-
ar í sig ótæpilegt magn af vodka. Julian er
brengluð útgáfa af honum, einhvers konar
vondur bróðir hans.“
Söguþráðurinn í The Matador er áhuga-
verður og heldur manni við efnið með
óvæntum snúningum. Miðpunkturinn er
samband Julians við sölumanninn Danny
Wright, túlkaður af Greg Kinnear, sem er
heppinn í ástum en óheppinn í viðskiptum.
Þeir hittast fyrir tilviljun á hótelbar í
Mexíkóborg og taka tal saman. Samtalið
gengur brösulega enda eru samskiptahæfi-
leikar Julians ekki upp á marga fiska. Svo
fer að þeir verða miklir áhrifavaldar í lífi
hvor annars.
Brosnan talar vel um reynslu sína af því
að vinna með Kinnear og útskýrir nánar
samband þessara ólíklegu vina. „Julian og
Danny eru að hluta til líkir, þeir eru báðir
einmana. Danny verður í raun bjargvættur í
hans lífi og á endanum bjarga þeir hvor
öðrum. Fyrir Danny er Julian líka svali vin-
urinn sem hann átti aldrei í menntaskóla.“
Undir lokin er Danny farinn að apa allt
eftir honum. Hann er meira að segja kom-
inn með yfirvaraskegg þegar Julian bankar
upp á hjá Wright-hjónunum í Denver.
„Hugmyndin með yfirvaraskeggið var al-
gjörlega komin frá Greg og virkaði mjög
vel. Þetta kom upp sama dag og við skutum
þetta. Hann lét á þetta reyna og allt small
saman,“ segir hann en þetta undirstrikar á
sjónrænan hátt hversu mikill áhrifavaldur
Julian hefur verið í lífi Dannys.
Þó að myndin sé fyndin á hún sér dekkri
hliðar og er hættan áþreifanleg. „Í þriðja
hlutanum þegar Julian fer heim til Dannys
og [eiginkonu hans] Bean fær maður á til-
finninguna að hann eigi eftir að rústa lífi
þeirra, sofa hjá konunni og koma Danny í
eintóm vandræði. Julian er á sama tíma
mjög brjóstumkennanlegur,“ segir Brosnan.
Ekki aðeins fékk Brosnan að skarta yf-
irvaraskeggi í myndinni heldur gengur hann
í áberandi fötum. „Hönnuðurinn Cat Thom-
as hefur verið búningahönnuður í mörgum
mynda Tarantinos og er mjög hrifinn af
þessum retró-stíl. Mér datt í hug að persón-
an gæti verið í kúrekastígvélum en hún
fann þessi frábæru ítölsku, renndu stígvél.
Karakterinn varð til frá botninum og upp.“
Eftirminnileg sena í myndinni er þegar
Julian gengur í nærbuxum og stígvélum í
gegnum anddyri á hóteli, og hoppar síðan
ofan í sundlaug með bjórdós í hendi. Brosn-
an segist hafa haft gaman af því að leika í
þessari senu, sem undirstrikar einmanaleik-
ann sem umlykur Julian.
„Þetta var í anddyrinu á hótelinu sem við
bjuggum á. Shepard var mjög hrifinn af út-
litinu á því og vildi taka upp þessa senu
þarna,“ segir hann en leikstjórinn hefur áð-
ur notað hótelanddyri sem vettvang í mörg-
um af handritum sínum og smásögum.
Magnaðar tökur í Mexíkó
Myndin er tekin upp í Mexíkó og fannst
Brosnan það magnaður tökustaður. „Þetta
er ótrúlega lifandi borg og mikil orka í
henni. En því miður er hún mjög menguð.
Fjölskyldan hafði áhyggjur af mér og það
þurfti að gæta að öryggi okkar þarna,“ seg-
ir hann en á svipuðum tíma höfðu borist
fréttir af mannránum í borginni. „Við
keyrðum um í brynvörðum bílum.“
Mexíkó reyndist fjölbreyttur tökustaður.
Til viðbótar við senur sem áttu að gerast í
Mexíkóborg var landið notað sem töku-
staður fyrir atriði sem áttu að eiga sér stað
í Tucson og Denver í Bandaríkjunum, Búda-
pest í Ungverjalandi og Manila á Filipps-
eyjum. Útkoman er lífleg og ljær myndinni
alþjóðlegan blæ.
Ekki aðeins leikur Brosnan í myndinni
heldur er hann einnig framleiðandi. „Það
sem ég er bestur í er að ná saman góðum
hópi fólks og ég held það hafi tekist í þess-
ari mynd. Ég er með stórgóðan samstarfs-
mann [Beau St. Clair]. Hún er alveg frábær
í fjárhagshliðinni og allri skipulagningu.
Samstarfið gengur vel hjá okkur,“ segir
Brosnan á eilítið kristilegri tíma en þegar
samtal okkar hófst.
„Það var frábær reynsla að gera þessa
mynd og hún skilur eftir sig miklar og góð-
ar minningar,“ segir hann og lýkur samtal-
inu á jafn kurteisan hátt og það byrjaði,
rétt áður en hann flýgur úr höndum mér,
suður á bóginn til Englaborgarinnar.
Siðblindur og
sjarmerandi
Pierce Brosnan fer á kostum í hlutverki leigumorðingj-
ans Julians Nobles í myndinni The Matador, sem frum-
sýnd er hérlendis um helgina. Inga Rún Sigurðardóttir
ræddi við þennan skemmtilega leikara sem ávallt er
minnst fyrir túlkun sína á öðrum manni sem hefur
atvinnu af því að drepa og með leyfi upp á það.
Julian Noble
er einmana sál
sem á fá vini fyr-
ir utan flöskuna.
Pierce Brosnan er í hlutverki Julians Noble, kvensams leigumorðingja sem er heldur sjúskaðari en útsendari hennar hátignar.
Ólíklegt par: Leigu-
morðinginn og sölu-
maðurinn knái sem
Greg Kinnear ljær líf
af stakri prýði.
ingarun@mbl.is
’Eftirminnileg sena ímyndinni er þegar Julian
gengur í nærbuxum og
stígvélum í gegnum and-
dyri á hóteli, og hoppar
síðan ofan í sundlaug með
bjórdós í hendi.‘