Morgunblaðið - 31.03.2006, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 31.03.2006, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT STJÓRNVÖLD í Íran standa frammi fyrir tveimur kostum; að halda fast í áform sín um auðgun úr- ans og einangrast þannig á alþjóða- vettvangi eða snúa aftur að samn- ingaborðinu og leggja kjarnorku- áætlanir sínar til hliðar. Þetta voru þau skilaboð sem utanríkisráðherrar sex stórvelda sendu ráðamönnum í Teheran í gær, degi eftir að örygg- isráð Sameinuðu þjóðanna sam- þykkti ályktun þar sem Írönum er veittur 30 daga frestur til að hætta tilraunum með auðgun úrans. Utanríkisráðherrar ríkjanna fimm, sem fastafulltrúa eiga í örygg- isráðinu, hittust á fundi í Berlín í gær en gestgjafinn, þýski utanríkisráð- herrann Frank-Walter Steinmeier, sat einnig fundinn. „Þetta voru skýr skilaboð til Írana um að þeir ættu að velja leið við- ræðna en ekki árekstra,“ sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í gær um ályktun ör- yggisráðsins en bandarísk stjórn- völd eru sannfærð um að markmið kjarnorkuáætlana Írana sé að búa til kjarnorkuvopn, í andstöðu við samn- inginn um bann við frekari út- breiðslu kjarnavopna (NPT). Íranar staðhæfa hins vegar að þeir hyggist einungis framleiða kjarnorku í friðsamlegum tilgangi, þ.e. til orkunotkunar. Og talsmenn þeirra brugðust í gær hart við sam- þykkt öryggisráðsins. „Ákvörðun Ír- ans um auðgun [úrans], einkum að því er víkur að rannsóknum og þró- unarvinnu, verður ekki breytt,“ sagði Aliasghar Soltanieh, sendi- herra Írans hjá Alþjóðakjarnorku- málastofnuninni í Vín (IAEA). Komið til móts við sjónarmið Rússa og Kínverja Ályktun öryggisráðsins, sem var samþykkt samhljóða með atkvæðum allra fimmtán fulltrúanna í ráðinu, er útvötnuð útgáfa af ályktunardrögum sem Frakkar og Bretar höfðu lagt fram; tóku vesturveldin þann kost að koma til móts við óskir Rússa og Kínverja sem hafa ekki viljað ljá máls á neinum refsiaðgerðum gagn- vart Íran, en þeir eiga í miklum við- skiptum við Írana. Í ályktuninni eru Íranar hvattir til að fara þegar að tilmælum IAEA, þar er lýst áhyggjum af því að írönsk stjórnvöld hyggist með leynd koma sér upp kjarnorkuvopnum, og kveðið er á um að eftir þrjátíu daga eigi IA- EA að skila öryggisráðinu skýrslu þar sem fram komi hvort Íranar hafi orðið við kröfunni um að leggja kjarnorkuáætlanir sínar til hliðar. Fá Íranar sem fyrr segir 30 daga frest í stað tveggja vikna, sem var upphafleg tillaga Frakka og Breta. Ekki er kveðið á um neinar refsi- aðgerðir, verði Íranar ekki við kröfu öryggisráðsins, en Jack Straw, utan- ríkisráðherra Bretlands, sagði í gær að slíkt gæti fylgt í kjölfarið. Hér er hins vegar ágreiningur milli þjóð- anna, sem funduðu í Berlín í gær, því að Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, sagði Rússa í gær mót- fallna öllum refsiaðgerðum. Lausnin á deilunni yrði að finnast á vettvangi IAEA; sem eftirlit hefur með því að þjóðir, sem undirritað hafa NPT- samninginn, haldi hann í heiðri. Loftárásir raunhæfur kostur? Hljótist enginn árangur af þeim þreifingum, sem nú standa yfir, verður að teljast líklegt að hugsan- leg hernaðaríhlutun komi til um- ræðu í framhaldinu. En sá kostur er fyrst og fremst talinn fela í sér, að Bandaríkin og/eða Ísrael myndu gera loftárásir á kjarnorkustöðvar Írana og þannig draga verulega úr tækifærum þeirra til að þróa kjarn- orkuvopn í nánustu framtíð. Vandinn er hins vegar sá, eins og fram kom í fréttaskýringu Pauls Reynolds á vefsíðu BBC, að kjarn- orkustöðvar Írana eru dreifðar um allt landið og er ein meira að segja neðanjarðar. Ekki er talið að þessi kostur sé í reynd ofarlega í huga manna um þessar mundir, það var m.a. mat Magnúsar Þorkels Bernharðssonar, sérfræðings í sögu Mið-Austurlanda, á fundi í Háskóla Íslands í gær en hann sagði lítinn pólitískan stuðning við slík úrræði í Bandaríkjunum sem stendur. George W. Bush Banda- ríkjaforseti hefur á hinn bóginn lýst því yfir án nokkurra málalenginga að Bandaríkin geti ekki sætt sig við eða horft upp á það aðgerðalaus, að Íran komi sér upp kjarnorkuvopnum. Ályktun öryggisráðs SÞ „skýr skilaboð“ til Írana Talsmenn stjórnvalda í Teheran aftaka með öllu að verða við kröfum um að hætta auðgun úrans Eftir Davíð Loga Sigurðsson david@mbl.is SAMNINGAVIÐRÆÐUR hófust í gær um að réttarhöld í stríðsglæpa- máli Charles Taylors, fyrrverandi forseta Líberíu, færu fram í Haag í Hollandi. Stríðsglæpadómstóll í Síerra Leóne fór formlega fram á að réttað yrði yfir Taylor í dómhúsi Al- þjóðlega sakamáladómstólsins í Haag af öryggisástæðum. Óttast er að átök geti blossað upp fari rétt- arhöldin fram í Freetown, höfuð- borg Síerra Leóne. Talsmaður utanríkisráðuneytis Hollands, Dirk-Jan Vermeij, sagði að stjórn landsins myndi verða við beiðninni ef nokkrum skilyrðum yrði fullnægt, meðal annars að öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna heimilaði með sérstakri ályktun að réttarhöld- in færu fram í Haag. Seldi uppreisnarmönnum vopn fyrir demanta Charles Taylor er 58 ára og var stríðsherra áður en hann var kjörinn forseti Líberíu. Hann er talinn hafa átt mjög stóran þátt í borgarastríð- um í heimalandi sínu og grannríkinu Síerra Leóne á árunum 1989 til 2003. Stríðin kostuðu um 400.000 manns lífið í löndunum tveimur. Alþjóðlegur stríðsglæpadómstóll í Síerra Leóne hefur ákært Taylor fyrir glæpi gegn mannkyninu. Er hann sakaður um að hafa selt upp- reisnarhreyfingu í Síerra Leóne vopn fyrir demanta. Hreyfingin gerðist sek um skelfileg grimmdar- og níðingsverk, morð, nauðganir og skipulegar limlestingar á tugum þúsunda manna. Vígamenn hreyf- ingarinnar hjuggu fætur og hendur af fórnarlömbunum með sveðjum og öxum. Börn voru hneppt í þrældóm og neydd til að taka þátt í hern- aðinum. „Sönnunargögnin sem við höfum benda til þess að hann hafi notað demantana okkar til að kynda undir stríðinu og valda þjóð okkar ólýs- anlegum þjáningum,“ hafði frétta- vefur breska ríkisútvarpsins, BBC, eftir dómsmálaráðherra Síerra Leóne, Frederick Carew. Óttast skæruhernað Óttast er að stuðningsmenn Tay- lors safni liði og hefji skæruhernað í Líberíu og Síerra Leóne fari rétt- arhöldin fram í Freetown. Fyrrver- andi ráðgjafi Taylors, Kilari Anand Paul, sagði að hann yrði ánægður með að réttarhöldin færu fram í Haag. Stuðningsmenn Taylors ótt- ast að réttarhöldin verði ekki sann- gjörn fari þau fram í Freetown, jafn- vel þótt dómararnir komi frá öðrum löndum. Taylor nýtur enn talsverðs stuðn- ings í heimalandi sínu. James Bleet- an, ritstjóri dagblaðsins New Stand- ard, kvaðst telja að Taylor hefði sigrað örugglega í síðustu forseta- kosningum í Líberíu hefði hann ver- ið í framboði. Sigurvegari kosninganna, Ellen Johnson-Sirleaf, sagði eftir að hún tók við forsetaembættinu í janúar að endurreisn landsins hefði forgang, ekki mál Taylors. Tveimur mánuð- um síðar kom þó í ljós að hún hafði óskað eftir því formlega við stjórn Nígeríu, þar sem Taylor var í útlegð, að hann yrði framseldur til Líberíu. Talið er að vestræn stjórnvöld, einkum Bandaríkjastjórn, hafi lagt fast að Sirleaf að krefjast þess að Taylor yrði framseldur. Hermt er að hann hafi reynt að flýja til Kamerún eftir að skýrt var frá því að stjórn Nígeríu hefði samþykkt framsals- beiðnina. Sirleaf kvaðst í gær vera hlynnt því að Taylor yrði dreginn fyrir rétt í Haag. Talsmenn stríðsglæpadómstólsins í Síerra Leóne lögðu áherslu á að hann ætti að annast réttarhöldin þótt þau færu fram í Haag. Samein- uðu þjóðirnar, stjórn Síerra Leóne og ríki, sem hafa veitt landinu að- stoð, stofnuðu dómstólinn til að fjalla um stríðsglæpi sem framdir voru í landinu. Enginn dómstólanna í Haag hefur umboð til að fjalla um þá glæpi sem Taylor er sakaður um. George W. Bush Bandaríkjafor- seti sagði að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna þyrfti að heimila að rétt- arhöldin færu fram í Haag og Condoleezza Rice, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, teldi að slík ályktun yrði samþykkt „tiltölulega fljótt“. Óska eftir því að réttað verði yfir Taylor í Haag Óttast að átök blossi upp fari réttar- höldin fram í Síerra Leóne 6'1+>?1@>A+                               "          $%%&                       '(($                            '(('!        "        '(()#       $  %!   & '$     '((*   %   (         (      (   &  %     &         )     &(  %   '(((*       &  #,-         .   &      &"             + , - . / +  Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is ’Hreyfingin gerðist sekum skelfileg grimmdar- og níðingsverk, morð, nauðganir og skipulegar limlestingar á tugum þúsunda manna.‘ YFIRVÖLD í nokkrum ríkjum Mið-Evrópu eru í við- bragðsstöðu vegna mikillar flóðahættu eftir miklar rigningar, asahláku í fjöllum og leysingar. Í gær var ástandið einna verst í suðausturhluta Tékklands og var um 10.000 manns í bænum Znojmo gert að yfirgefa heimili sín í fyrradag, eftir að vatnsmagn árinnar Dyje þrjátíufaldaðist. Rennur Dyje í Dóná. Þá hafa vatnavextir í helstu ám í Slóvakíu, Póllandi, Austurríki, Þýskalandi og Ungverjalandi leitt til viðvarana um flóðahættu í miðhluta álfunnar. Tveir hafa látist í flóðunum, einn í Tékklandi, annar í Sló- vakíu. Íbúar tékkneska bæjarins Vranov nad Dyji róa hér báti eftir að vatn flæddi inn í hús þeirra. AP Varað við flóðahættu í Evrópu Bagdad. AFP. | Mannræningjar í Írak slepptu í gær úr haldi bandaríska blaðamanninum Jill Carroll en henni var rænt í Bagdad fyrir tólf vikum. Carroll, sem starfaði fyrir blaðið Christian Science Monitor, var við góða heilsu. Vopnaðir mannræningjar myrtu íraskan túlk Carroll er þeir rændu henni í Bagdad 7. janúar sl. Þeir hót- uðu ítrekað að drepa Carroll ef kröf- um þeirra yrði ekki mætt, en mann- ræningjarnir vildu að öllum konum í fangelsum Írak yrði sleppt. „Ég er glöð yfir því að geta um frjálst höfuð strokið. Mestu skiptir fyrir mig að hitta ástvini mína sem fyrst,“ sagði Carroll. Hún bætti við að gíslatökumenn hefðu aðeins leyft henni að fara á milli herbergisins, sem hún var geymd í, og salernisins meðan á fangavistinni stóð. Hún kvaðst ekki vita hvers vegna mann- ræningjarnir tóku hana í gíslingu. „Ég fékk aðeins einu sinni að lesa dagblað og horfa á sjónvarp, svo ég vissi hvað væri að gerast í umheim- inum,“ sagði Carroll, sem er 28 ára gömul. „Það var komið vel fram við mig. Þeir börðu mig aldrei. Ég var á öruggum stað, með góðum húsgögn- um og nóg af mat. Mér var leyft að fara í sturtu.“ Laus úr haldi mannræningja í Írak Jill Carroll
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.