Morgunblaðið - 13.04.2006, Síða 10

Morgunblaðið - 13.04.2006, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „ÞETTA er mjög mikil hækkun og kemur í kjölfar mikilla gengisbreyt- inga. Auk þess er olíuverð hátt um þessar mundir og ennþá, svo merki- legt sem það er, hækkun á fasteigna- markaði að því er virðist. Þetta leggst allt saman og er svona í meg- inatriðum í takt við þær spár sem bankinn hafði gert en þó heldur í efri kanti þeirra,“ sagði Davíð Oddsson, formaður bankastjórnar Seðlabank- ans. Hann sagði að þeir teldu að fast- eignamarkaðurinn hlyti að fara að róast. Vaxtakjör hefðu þrengst og mettun orðið og verð á nýrri íbúðum hefði farið lækkandi og meiri sölu- tregða þar en áður hefði verið. Tekur tíma að síast inn „Engu að síður má einnig búast við því að það taki nokkurn tíma fyrir gengisbreytingar af þessu tagi að síast inn í verð- lag, þannig að þeim áhrifum er ekki öllum lokið ennþá,“ sagði Davíð. Hann sagði að viðskiptahallinn myndi minnka þegar fram í sækti vegna þessara breytinga, auk þess sem menn ættu að fá trú á því að gengið væri komið í meiri jöfnuð, þó að vísu að þekkt væri að yfirskot gætu orðið í genginu bæði þegar það hækkaði og lækkaði. Davíð sagði að aðhald skipti mjög miklu máli við þessar aðstæður. Það væri ljóst að ýmis umbrot á launa- markaði væru til þess fallin að auka verðbólguþrýsting verulega. Formaður bankastjórnar Seðlabankans Í meginatriðum í takt við spár bankans Davíð Oddsson HALLDÓR Ás- grímsson for- sætisráðherra segir að hækkun neysluverðsvísi- tölunnar sé mikil. Þess hafi verið vænst að verð- bólguskot kæmi í kjölfar breytinga á genginu. Það sem vekti athygli sína væri að þetta væri að mestu vegna eigin bifreiðar og húsnæðis. Það hefðu flestir búist við að húsnæð- isliðurinn lækkaði, en sá liður væri um það bil 30% af þessari hækkun nú. Halldór sagði að það væri að sumu leyti jákvætt að fá nú fram þessar breytingar á genginu en það yrði til þess að það drægi hraðar úr við- skiptahallanum. Sér væri hins vegar ljóst að það myndi taka nokkurn tíma að verðbólguskotið gengi yfir. „Það er mjög mikilvægt nú á næst- unni að allir gæti aðhalds, bæði rík- isvaldið og sveitarfélögin. Ég veit að það er erfitt í kosningabaráttunni, en það er mjög mikilvægt. Það er líka nauðsynlegt að hemja launamarkað- inn þótt ég geri mér grein fyrir því að það verði ekki hjá því komist að á næstunni verði einhverjar leiðrétting- ar á allra lægstu laununum. Vandinn er hins vegar sá hvernig því verði við komið án þess að það hafi áhrif á ann- að,“ sagði Halldór. Hann sagði að ef það gerðist myndi það ekki skila neinum kjarabótum heldur verðbólgu fyrst og fremst. Halldór sagði að það væri líka mik- ilvægt að bankarnir hemdu útlán sín. Það hefði gengið hægar að því er virt- ist en hann hefði vonast til, en þeir fullyrtu að það væri í farvegi. Halldór benti á að gengi krónunnar hefði lækkað mjög mikið og hann teldi það ekki endurspegla efnahagslegan veruleika. Það væri komið yfirskot, en hann væri að vonast til að jafnvægi skapaðist í kringum það gengi sem væri um þessar mundir. Efnahagslífið stendur mjög traustum fótum Hann teldi að efnahagslífið stæði mjög traustum fótum og enn traust- ari fótum en áður eftir þessar breyt- ingar, því útflutningsatvinnuvegirnir sem hefðu kvartað mest hefðu nú fengið leiðréttingu. Það væru já- kvæðu fréttirnar, en neikvæðu frétt- irnar væru það verðbólguskot sem kæmi í kjölfarið. Spurður hvort gengisbreytingarn- ar undanfarna daga ýttu undir um- ræðu um evruna sagði Halldór: „Ég tel að þessar sviptingar leiði hugann að því hvað íslenskt efnahagslíf og ís- lenska krónan er viðkvæm fyrir ut- anaðkomandi áhrifum og þar af leið- andi komi til með að verða miklu meiri umræða um evruna í atvinnulíf- inu og í fjármálastofnunum en áður hefur verið. Ég hef áður margoft bent á það hvað sú umræða er lítil, en það eru hlutir sem verður að horfa á til lengri tíma litið. Það er ekkert sem gerist á stuttum tíma, en ég tel mik- ilvægt fyrir okur að læra af þessari reynslu og draga réttar ályktanir út frá því. Vaxtakostnaður er alltof hár hér á landi. Það er staðreynd sem menn komast ekki framhjá, vaxta- kostnaður sem skerðir samkeppnis- stöðu landsins og við þurfum að svara þeirri spurningu hvernig við getum lækkað hann til lengri tíma litið með okkar viðkvæmu krónu hafandi það í huga að við erum hér á frjálsum fjár- magnsmarkaði þar sem menn flytja peninga á milli eftir því sem hverjum sýnist,“ sagði Halldór ennfremur. Verðbólgan er nú sú mesta sem mælst hefur hér á landi í fjögur ár eða 5,5% undanfarna tólf mánuði Nauðsynlegt að hemja launamarkaðinn Halldór Ásgrímsson Mun taka nokkurn tíma að verðbólguskotið gangi yfir ALÞÝÐUSAMBAND Íslands segir að verðbólguhorfur næstu mánuði séu dökkar og búast megi við að veik- ing krónunnar skili sér í auknum mæli út í verðlag á næstu mánuðum. „Ekki er ljóst að hve miklu leyti veiking krónunnar leiðir til hækkunar á vöruverði þegar það er haft í huga að styrking krónunnar skilaði sér bara að hluta til lækkunar á vöruverði þegar krónan var hvað sterkust,“ seg- ir ennfremur á vef ASÍ vegna nýrrar neysluverðsvísitölu. „Síðustu tólf mánuði hefur verð- bólga samkvæmt mælingu Hagstof- unnar verið 5,5%. Verðbólgan er því heilum 3% stigum yfir verðbólgu- markmiði Seðlabanka Íslands. Fara þarf aftur til maí 2002 til að finna við- líka verðbólgutölur. Verðbólgan hef- ur nú verið yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans í tvö ár og yfir efri vik- mörkum bankans í átta mánuði í röð. Aukin verðbólga nú skýrist af mikl- um hækkunum á bensíni og dísilolíu, nýjum bílum og húsnæði, auk þess sem áhrifa hækkandi vaxta á íbúða- lánum er farið að gæta í vísitölunni. Þessu til viðbótar hækkar fatnaður nokkuð vegna útsöluloka.“ Þá segir að líkur séu á að verðbólgan aukist umtalsvert á næstu mánuðum. Trúverðug efnahagsstjórn skiptir öllu „Seðlabankastjóri hefur sagt að til greina komi að hækka stýrivexti í 16%. Ekki hefur heyrst neitt frá rík- isstjórninni hvað hún hyggst leggja að mörkum til að hemja verðbólgu og koma á stöðugleika. Grannt verður fylgst með viðbrögðum ríkisstjórnar- innar og Seðlabankans. Trúverðug efnahagsstjórn skiptir öllu máli.“ ASÍ um veikingu krónunnar Verðbólguhorfur dökkar næstu mánuði SJÁLFBOÐASAMTÖKIN Verald- arvinir hyggjast á næstu sex árum hreinsa íslensku strandlengjuna í samstarfi við sveitarfélög landsins. Til þess verður óskað eftir bæði ís- lenskum og erlendum sjálf- boðaliðum og segir Þórarinn Ív- arsson, formaður samtakanna, að alls muni um 1.600 sjálfboðaliðar koma að verkefninu. Strandlengja Íslands er um 4.950 kílómetrar og talið er að 134.400 vinnustundir fari í verkefnið á sex árum. Veraldarvinir voru stofnaðir árið 2001 að frumkvæði Þórarins og eru samtökin að hluta til að erlendri fyr- irmynd og er þar horft til sjálf- boðaliðasamtaka sem vinna að nátt- úruverndar- og samfélagslegum verkefnum með aðstoð sjálfboðaliða hvaðanæva úr heiminum. Sjálfboða- starfið fer þannig fram að unnið er í 12–20 manna hópum í tvær vikur í senn og segir Þórarinn að fólk komi sér sjálft á staðinn en fái mat og hús- næði á meðan unnið er. Hann segir að Veraldarvinir hér heima hafi undanfarin ár einbeitt sér að náttúruvernd, m.a. með því að leggja gönguleiðir og rækta plöntur en einnig með því að hreinsa strandlengjuna og má því segja að verkefnið sé þegar hafið. Hinir ís- lensku veraldarvinir hafa hreinsað strandlengjuna á Norðausturlandi undanfarin þrjú ár og segir Þór- arinn að í kjölfarið hafi verið tekin ákvörðun um að hreinsa alla strand- lengjuna. „Það er mikið af plasti, netadræs- um og öðru rusli sem rekur á strandirnar sem þarf að hreinsa,“ segir hann og bætir við að ætlunin sé ekki að fjarlægja rekavið af ströndunum heldur fyrst og fremst það sem á ekki erindi í náttúruna. Elsti sjálfboðaliðinn 73 ára Sveitarfélögin munu svo aðstoða samtökin við að flytja úrganginn burt og endurvinna hann. Það sem ekki er unnt að fjarlægja með ber- um höndum verður kortlagt og fjar- lægt síðar, segir Þórarinn. Undanfarin sumur hafa samtökin tekið við miklum fjölda af erlendum sjálfboðaliðum og segir Þórarinn að alls hafi á fimmta hundrað manns komið hingað til lands síðasta sumar til að taka þátt í verkefnum samtak- anna. Hópurinn er fjölbreyttur, frá 27 löndum og á öllum aldri, þótt al- gengast sé að ungt fólk taki þátt. Sá elsti sem kom í fyrrasumar var hins vegar 73 ára að sögn Þórarins. Að- spurður hvort ekki sé reynt að fá Ís- lendinga til þátttöku segir hann að það standi að sjálfsögðu til boða en hins vegar sé það sín reynsla að Ís- lendingar séu ekki mjög viljugir að taka að sér vinnu án þess að fá greitt fyrir hana. Þó komi einnig til að samtökin hafi ekki lagt mikið upp úr að kynna starfsemi sína hér á landi. Hann vill hins vegar hvetja alla Ís- lendinga til að taka þátt í starfinu og aðstoða við að hreinsa strandlengj- una hér við land. Samtökin Veraldarvinir ætla í stórátak á næstu sex árum Hreinsa strandlengju Íslands í sjálfboðavinnu Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Um 1.600 sjálfboðaliðar munu á næstu sex árum hreinsa strandlengju Íslands en hún er um 4.950 kílómetra löng. TENGLAR .............................................. www.wf.is HANNES G. Sigurðsson, að- stoðarfram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, segir að gengi krónunnar hafi lækkað ört undanfarið og hraðar en búist hafi verið við. Innflutningsfyr- irtæki hafi mörg hver brugðist strax við hækkun innflutningsverðs með hækkuðu vöruverði og mark- aðurinn taki við verðhækkunum vegna mikils eftirspurnarþrýstings. Nýjasta verðbólgumæling Hagstof- unnar staðfesti þetta. Hættulegar væntingar „Væntingar um mikla verðbólgu eru hættulegar efnahagslífinu vegna þess að þær eru sjálfar til þess fallnar að stuðla að verðhækk- unum og vaxandi verðbólgu. Það er almennt mjög erfitt að vinda ofan af slíkum væntingum og það á sér- staklega við um núverandi aðstæð- ur í efnahagslífinu þar sem inn- streymi fjármagns vegna stóriðjuframkvæmda er enn mikið og framkvæmdamet eru slegin í íbúðafjárfestingum,“ sagði Hannes ennfremur. Hann sagði að það sem helst gæti unnið gegn miklum verðbólguvænt- ingum væri að um hægist á fast- eignamarkaði, að það dragi úr lán- veitingum til íbúðamarkaðarins og að hart verði stigið á bremsurnar í opinberum fjármálum, bæði ríkis og sveitarfélaga. Framkvæmdaáform verður að endurskoða „Mikil framkvæmdaáform opin- berra aðila á næsta ári verður því að endurskoða. Þá er það alveg ljóst að launahækkanir, hvort sem þær koma í kjölfar kjarasamninga, per- sónubundinna samninga eða ólög- legra verkfallsaðgerða á borð við setuverkföll, virka sem olía á verð- bólgubálið. Það er útilokað að ná verðbólgunni niður á svipað stig og í löndunum í kringum okkur nema að það hægi á launabreytingum á næstu misserum og að þær komist niður á svipað stig og í viðskipta- löndum okkar,“ sagði Hannes einn- ig. Launahækkanir virka sem olía á verðbólgubálið Hannes G. Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.