Morgunblaðið - 27.05.2006, Side 24
24 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
!
"
# $%
!"#
&
'
( "
"
# $%
#$$ % &&&' ' ( )*+ ),-.
/01
2, 3 !3 4 5 #
)
!*
"
!*
*
+
!
, *
AKUREYRI
SUÐURNES
Reykjanesbær | „Það fer mikill tími í að spila hér og þar.
En það er svo skemmtilegt,“ segir Rebekka Bryndís
Björnsdóttir, tvítugur fagottnemandi við Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar. Hvatningarverðlaun Glitnis banka
voru veitt í fyrsta skipti við skólaslit Tónlistarskólans og
komu þau í hlut Rebekku.
Rebekka hóf tónlistarnám við Tónlistarskólann í
Keflavík ung að árum og hélt náminu áfram við stofnun
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. „Ég er alin upp í þessu.
Mamma [Karen Sturlaugsson] er trompetleikari og tón-
listarkennari. Ég fékk oft að fljóta með í tónleikaferð-
um,“ segir Rebekka. Hún byrjaði að læra á píanó og
bætti síðan sellóinu við. Einnig lærði hún á baritonhorn.
„Mömmu fannst ekki sniðugt að ég færi með í lúðrasveit-
arferðalög án þess að hafa blásturshljóðfæri þannig að
ég fór að læra á fagott og svo bættist bassinn við.
Fagottið er núna aðalhljóðfærið en ég spila líka á bassa,“
segir Rebekka.
Rebekka hefur alla tíð verið virk í starfsemi Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar. Hefur verið dugleg að taka þátt í
hljómsveitarstarfi og verið ötul í fjáröflunarstarfi fyrir
tónleikaferðir.
Hún hefur einnig verið eftirsótt sem fagottleikari utan
skólans. Hún segist hafa tekið þátt í starfi Sinfóníu-
hljómsveitar áhugamanna og Sinfóníuhljómsveit ungs
fólks, einnig tekið þátt í uppfærslu með Íslensku óper-
unni, svo nokkuð sé nefnt. „Hún hefur því haldið nafni
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar víða á lofti,“ svo vitnað
sé til orða Unu Steinsdóttur, útibússtjóra Glitnis, við af-
hendingu hvatningarverðlaunanna.
Rebekka stundar nú nám við Kvikmyndaskóla Íslands
samhliða tónlistinni. „Ég er nýbyrjuð en þetta er mjög
skemmtilegt nám,“ segir hún. Þá vinnur hún með þessu
öllu í bakaríinu hjá Sandholt á Laugavegi.
„Það verður að ráðast,“ segir Rebekka þegar hún er
spurð um framtíðaráformin. Hún segist hafa verið
ákveðin í því á tímabili að gerast ekki atvinnumaður í
tónlist. Svo komi tímabil þar sem hún spyrja sjálfa sig af
hverju hún ætti ekki að slá til og láta reyna á þetta. „Það
kemur alveg til greina,“ segir hún og viðurkennir að
gaman sé að fá hvatningu eins og birtist í hvatningar-
verðlaunum Glitnis.
Auk heiðursins sem felst í verðlaununum fær Rebekka
styrk frá Glitni sem varið er til greiðslu skólagjalda
hennar við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Rebekka Bryndís Björnsdóttir, fagottnemandi við Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar, fékk hvatningarverðlaun Glitnis
Skemmtilegt að spila
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Hvatning Rebekka Bryndís Björnsdóttir stundar kvik-
myndanám og leikur á fagott og rafbassa.
MIKIL spenna er fyrir bæjarstjórnarkosning-
arnar á Akureyri í dag. Ef marka má skoðana-
kannanir er meirihluti sjálfstæðismanna og fram-
sóknarmanna fallinn en framboðin störfuðu öll af
fullum krafti í gær, og kynntu stefnumál sín, m.a.
fyrir vegfarendum í miðbænum. Oddvitar fram-
boðanna sex komu svo fram í beinni útsendingu á
sjónvarpsstöðinni Aksjón í gærkvöldi og þá voru
meðfylgjandi myndir teknar.
Kynntu sig í beinni útsendingu
Jóhannes Bjarnason, oddviti framsóknarmanna, og Kristján Þór Júlíusson, oddviti sjálfstæðis-
manna, sestir fyrir útsendinguna, hljóðnemi festur á Odd Helga Halldórsson, oddvita L-listans,
en Björn Þorláksson sjónvarpsmaður er tilbúinn í slaginn.
Morgunblaðið/Skapti HallgrímssonStarfsmaður Aksjón festir hljóðnema á Hermann Jón
Tómasson, oddvita Samfylkingarinnar. Til hægri er
Baldvin H. Sigurðsson, oddviti Vinstri grænna.
ÖLL framboðin til bæjarstjórnar
verða með kosningakaffi í dag og
kosningavöku í kvöld. Framboðin
taka fram að allir séu velkomnir.
B-listinn | Kosningakaffi fram-
sóknarmanna verður í Vélsmiðj-
unni kl. 14.30–18. Kosningavaka
verður að Hólabraut 13 og hefst
kl. 21.
D-listinn | Kosningakaffi sjálf-
stæðismanna verður á Hótel KEA
kl. 14–17. Kosningavaka hefst á
sama stað kl. 22.
L-listinn | Kosningakaffi Lista
fólksins verður í Allanum (áður
húsi aldraðra) kl. 13–17. Kosn-
ingavaka á sama stað frá kl. 21.
O-listinn | Kosningakaffi Fram-
fylkingarflokksins verður á Par-
ken kl. 14–17. Kosningavaka
verður á Strikinu og hefst kl. 22.
S-listinn | Kosningakaffi Sam-
fylkingarinnar verður kl. 13–18 á
Kaffi Akureyri. Kosningavaka
hefst í Lárusarhúsi kl. 22.
V-listinn | Vinstri grænir verða
með kosningakaffi á Rocco (áður
Oddvitanum) kl. 14–18. Kosn-
ingavaka hefst á sama stað kl. 21.
Kosningavökur
og kaffiboð
SÝNING verður opnuð á Íslands-
verkum þýska myndlistarmannsins
Rudolfs Reiters í Ketilhúsinu á
Akureyri í dag.
Hannes Sigurðsson, forstöðu-
maður Listasafnsins á Akureyri,
segir sýninguna mjög sérstaka. „Á
sýningunni eru þrír voldugir
strangar, sem kalla mætti „eld-
verk“ því aðeins ellefu dögum síðar,
eða hinn 8. júní, verða myndirnar
fluttar með tilþrifum austur í
Kröfluhraun þar sem þeim verður
sökkt í stóra gjá að listamanninum
viðstöddum ásamt hópi aðdáenda
meistarans og fjölda erlendra
blaðamanna. Þarna í iðrum jarðar
munu verkin svo að fá að „malla“ á
lágum hita í 3–4 vikur. Að því búnu
verða þau sótt og höfð til sýnis á
sama stað í þeirri mynd sem náttúr-
an hefur skilað þeim,“ segir Hann-
es. Fyrir rúmu ári fór Rudolf Reit-
er í könnunarleiðangur til að finna
hentugan stað til að sökkva nokkr-
um myndum í eldinn. Með hjálp
fróðra jarðfræðinga fann hann
djúpa og mikla gjá í norðanverðu
Kröfluhrauni sem virtist vera mjög
hentugur staður til að fremja gjörn-
inginn. Í framhaldi af Íslandsferð-
inni málaði Reiter mörg málverk
sem hafa verið til sýnis í Þýska-
landi, nú síðast á flugvellinum í
München, þar sem þær kallast á við
landslagsljósmyndir Emils Þórs
Sigurðssonar.
Rudolf Reiter, sem er borinn og
barnfæddur Bæjari, er einn af
kunnustu myndlistarmönnum sam-
tímans í Þýskalandi. Hann hefur
verið kenndur við „nýrómantík“ og
telst jafnframt í fremstu röð þeirra
sem fást við þá tegund málaralistar
sem á þýsku gengur undir heitinu
„Informelle Malerei“ (óformlegt
málverk), að sögn Hannesar.
Verkefni þetta er unnið í sam-
vinnu við Listasafnið á Akureyri,
Menningarmiðstöðina í Listagili og
Icelandair. Sýningin verður opnuð í
dag, laugardag, kl. 15.
Íslandsverk Reiters verða látin
malla í iðrum jarðar við Kröflu