Morgunblaðið - 17.09.2006, Page 29
voru kafbátaleitarflugvélar og hinum
megin er gamla flugstöðin, þar sem
Íslendingar komust upp á lagið með
að drekka bjór klukkan sex á morgn-
ana. Í flugskýli innar er þyrluskýli,
þar sem tvær þyrlur eru eftir og
áhafnir, sem virðast helst hafa fyrir
stafni að pakka niður, enda hættu
þeir á vakt hér landi á föstudaginn
var.
„Það er rólegt,“ segir Steve Huss,
sem kom til landsins í janúar með
konu sinni og þremur börnum, þann-
ig að tíðindin komu honum í opna
skjöldu í mars að það ætti að leggja
starfsemina niður. „Það komu meira
að segja nokkrir 15. mars, sama dag
og tilkynnt var um lokunina,“ skýtur
Friðþór Eydal inn í. „Þeim hefur
áreiðanlega brugðið í brún.“
Að sögn Huss er góð þjálfun að
fljúga á Íslandi vegna erfiðra að-
stæðna. „Jöklarnir eru til dæmis með
eigið veðrakerfi og þar er allt hvítt,
þannig að maður hefur enga tilfinn-
ingu fyrir hæðinni. Eini staðurinn
sem mér hefur fundist erfiðari er
Kúveit. Þar þyrlast sandurinn upp,
ekki síst í logni, og ef myrkrið bætist
við sér maður ekkert.“
Pósthúsinu lokað síðast
Innihlaupabrautinni verður lokað
eftir viku, þó að líklega geti það ekki
talist mannfrek starfsemi. Og tóm-
legt er um að litast í íþróttahúsinu.
Eini viðskiptavinurinn á leið út og því
óhætt að ganga í gegnum auðan
kvennaklefann að stórri vatnslausri
innisundlaug með vatnslausri renni-
braut sem liggur út um vegginn og
inn aftur. Þegar blaðamaður hverfur
á braut er útidyrunum skellt í lás.
Síðasta starfsemin sem leggst af á
varnarstöðinni verður pósthúsið og
gerist það 28. september. Þar er enn í
nógu að snúast, fólk að skrifa nöfn og
heimilisföng á erlendri grundu á
kassa og umslög. Og innan skamms
verður allt fólkið sem skrifar á kass-
ana að nöfnum með heimilisföng á er-
lendri grundu.
Keila Chris og Karla Bennett kynntust Íslendingum í keiluíþróttinni.
» Snemma á tíunda
áratugnum bjuggu
5.700 manns á varn-
arstöðinni. Þá var þetta
sjötta stærsta byggða-
lag á Íslandi.
pebl@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2006 29