Morgunblaðið - 14.12.2006, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
„TRÚIN er fyrst og fremst bæn.
Hin kristna trú er fyrst og fremst
bæn í Jesú nafni,“ sagði Karl Sig-
urbjörnsson, biskup Íslands. Hann
safnaði saman efni í Bænabókina –
leiðsögn á vegi trúarlífsins. Þegar
bókinni er flett leynir sér ekki að
mikil hugsun liggur að baki jafnt
efni og umbúnaði þess. Í frétt frá út-
gefanda segir að þetta sé stærsta og
viðamesta bænabók sem komið hef-
ur út hér á landi. Aðspurður sagði
Karl biskup afar mikilvægt að veita
fólki leiðsögn á vegi trúarlífsins.
„Það eru margir sem hafa löngun
til að kynna sér hvað trúin er. Það
gerir maður umfram allt í gegnum
bænina,“ sagði Karl. „Trúin er iðkuð
í bæninni sem er samfylgd með
Guði. Þar búum við yfir gríðarlega
miklum reynslusjóði kynslóðanna. Í
Bænabókinni er leitast við að draga
fram úr þeim góða sjóði, bæði nýtt
og gamalt.“
Bænir Biblíunnar verða ætíð
grundvöllur bæna kristinna manna,
að mati Karls. Davíðssálmarnir hafa
fylgt þjóð Guðs og kirkjunni frá örófi
alda. Í Biblíunni er einnig að finna
bæn Drottins, Faðir vor. Að auki
koma til sálmar og vers sem oft eru
það fyrsta sem fólk lærir þegar það
fer að tileinka sér trúarlíf. Í Bæna-
bókinni er reynt að safna þessu sam-
an og gera aðgengilegt. En hvað um
bænir frá eigin brjósti?
„Í meginstofni kirkjunnar hefur
verið lögð mikil áhersla á bæn á
grundvelli Orðsins og þá skrifaðar
bænir,“ sagði Karl. „Það er mjög
ríkt í okkar þjóðkirkju og kemur
fram t.d. í Passíusálmunum þegar
Hallgrímur Pétursson segir:
Bæn þína aldrei byggðu fast
á brjóstviti náttúru þinnar.
Í guðs orði skal hún grundvallast;
það gefur styrk trúarinnar.
Í bæninni erum við að staðsetja
okkur í samfélagi meðal þeirra sem
tilbiðja Guð og erum með einum og
öðrum hætti að taka undir með
þeim.“
Enginn Frelsaranum fremri
Karl taldi mikilvægt, þegar maður
byrjar að feta veg bænarinnar, að
leita eftir því að ganga við hlið ann-
arra eða taka undir með þeim sem
hugsanlega eru komnir eitthvað
lengra á þeirri braut. „Þess vegna
eru í þessari bók bænir frá hinum
ólíkustu hefðum kirkjunnar, okkar
eigin þjóðkirkjuhefð, frá kaþólskum,
orþódoxum og mótmælendakirkjum
af öllu tagi. Bókin er samkirkjuleg í
þeim skilningi. Meira að segja eru
auðar síður aftast þar sem hver og
einn getur skrifað sínar eigin bænir
eða eitthvað til að halda til haga.“
En skyldi biskup Íslands eiga sér
eftirlætisbænir eða bænahöfund?
„Það tekur enginn Frelsaranum
fram. Faðir vor er bæn allra bæna
og nær í raun utan um allt sem
bænalíf kristins manns snýst um.
Þar eru tilbeiðslan, lotningin, trún-
aðartraustið og hinar daglegu þarfir.
Faðir vor held ég að hljóti að vera sú
bæn sem kristnum mönnum er töm-
ust og allar aðrar bænir miðast út
frá því,“ sagði Karl. „Bænavers
Hallgríms Péturssonar eru okkur
líka töm og hugstæð. Svo er bæn
sem kemur til okkar úr austurkirkj-
unni, orþódoxhefðinni, svokölluð
Jesúbæn: „Jesús Kristur, Sonur
Guðs, miskunna þú mér.“ Þessi bæn
á sér afar merkilega sögu og er mér
afar kær.“
Að taka tíma til bæna
Biskup Íslands er væntanlega
önnum kafinn alla jafna. Hefur hann
tíma til bæna í dagsins önn?
„Mín reynsla er sú sama og allra
annarra – maður hefur aldrei tíma!
Tími er eitthvað sem maður tekur
sér. Það snýst um að ryðja sér til
rúms, taka sér stund til bæna. Það
er stöðugt viðfangsefni því það er
svo margt annað sem vill taka tím-
ann frá manni.“ En getur verið að
fólk mikli það fyrir sér að biðja?
„Það er vel til, ég hugsa að margir
hafi afar góðan ásetning í þessum
efnum en finni að það sé hægara
sagt en gert,“ sagði Karl.
„Í þessari bók eru leiðbeiningar
um hvernig má t.d. taka til minn-
isvers eða bænarorð, geyma þau í
huga sér og hverfa til í þessum
stuttu vökum sem gefast í dagsins
önn. Það er með bænina eins og alla
iðkun og allt mannlegt líf að það eru
þurrkatímar og gróskutímar. Gildi
bókar eins og þessarar er að það
hjálpar manni á þurrkatímunum að
hafa hana að hverfa til. Öll reynsla
trúarinnar staðfestir að það sé mjög
mikilvægt að hafa reglu á trúariðkun
sinni, eitthvað sem minnir mann á.
Þess vegna hefur kirkjan lagt upp úr
því að hafa ákveðna daga, eins og
rauðu dagana á almanakinu og há-
tíðir eins og jólin, til að minna sig á
Guð. Þá virka þessir dagar og stund-
ir eins og vörður á vegi trúarinnar.“
Nýtt og gamalt dregið fram
úr fjársjóði bænarinnar
Bænabókin – leiðsögn á
vegi trúarlífsins, geym-
ir bænir, hugleiðingar,
fræðslu og hagnýtar
leiðbeiningar.
Morgunblaðið/RAX
Leiðsögn Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, safnaði efni í Bænabókina.
Í HNOTSKURN
»BÆNABÓKIN – leiðsögn ávegi trúarlífsins, er heiti
nýrrar bókar eftir Karl Sig-
urbjörnsson, biskup Íslands.
Útgefandi er Skálholts-
útgáfan.
»Björg Vilhjálmsdóttir í Bóthannaði útlit bókarinnar
og Halla Sólveig Þorgeirs-
dóttir myndskreytti. Bókin er
540 blaðsíður í handhægu
broti og skiptist í fjölda kafla
með bænum og bænaleiðsögn.
GRAFARVOGUR Íbúar í Grafar-
vogshverfi eru ósáttir við hugmynd-
ir um tengingu Hallsvegar og Vest-
urlandsvegar, að sögn Elísabetar
Gísladóttur, formanns Íbúasamtaka
Grafarvogs.
„Við erum búin að berjast gegn
þessu frá 1991. Fyrir kosningarnar
í vor spurðum við alla flokka um af-
stöðu og þá sögðu t.d. sjálfstæð-
ismenn að aðrar leiðir en þessi
tenging Hallsvegar við Vestur-
landsveg yrðu skoðaðar,“ sagði El-
ísabet í samtali við Morgunblaðið.
Hún segir að þessi tenging sé angi
af miklu stærra máli. Létta eigi
umferðarþunga af Ártúnsbrekku og
Vesturlandsvegi og beina honum í
gegnum íbúðarhverfi Grafarvogs að
Sundabraut.
Hún ritaði grein sem birtist í
Grafarvogsblaðinu í liðinni viku þar
sem hún benti á að Hallsvegur
myndi í framtíðinni tengja saman
fyrirhugaða Sundabraut og Suður-
landsveg. Elísabet kveðst óttast að
Hallsvegur verði í raun hluti af
þjóðvegi eitt.
Þrýstingur vegna verslunar
Elísabet segir að þeir sem eru að
byggja stórverslun í Stekkjabrekk-
um knýi nú á um mislæg gatnamót
á mótum Vesturlandsvegar og
Hallsvegar sem eigi að kosta um
milljarð króna. „Þetta var pressað í
gegn fyrir tveimur vikum og nú
vilja þeir fara með þetta í umhverf-
ismat. Það þýðir að þeir eru að ýta
þessu af stað og hefja þessar fram-
kvæmdir,“ sagði Elísabet.
Ennfremur segir hún að það hafi
ekki tekið stjórnvöld langan tíma að
samþykkja að fara í umhverfismat
á mislægu gatnamótunum. Það hafi
verið samþykkt í öllum viðkomandi
ráðum Reykjavíkurborgar.
Samkvæmt aðalskipulagi 2001–
2024 er gert ráð fyrir vegtengingu
frá nefndum gatnamótum Hallsveg-
ar og Vesturlandsvegar, upp Úlf-
arsárdal, framhjá Langavatni, um
Hólmsheiði að Suðurlandsvegi.
Vilja ekki
fá þyngri
umferð á
Hallsveg
LUDOVIKUS Oidt-
mann, annar eigandi
glerverkstæðisins Dr.
H. Oidtmann í Linnich
í Þýskalandi, lést að-
faranótt síðasta
þriðjudags 77 ára að
aldri. Ludovikus
fæddist í Linnich árið
1929 og starfrækti þar
glerverkstæði ásamt
bróður sínum Fritz,
en fyrirtækið hefur
verið rekið af fjöl-
skyldu þeirra í eina og
hálfa öld. Þeir voru
þriðja kynslóð fjöl-
skyldunnar til að taka við rekstrin-
um og nú hafa synir þeirra tveir tek-
ið við starfseminni. Glerverkstæðið
er það elsta í Þýskalandi sem sér-
hæfir sig í steindum gluggum.
Bræðurnir Ludovikus og Fritz
Oidtmann hafa á síðustu áratugum
búið til steint gler og mósaík fyrir
fjölda íslenskra listamanna og verk
þeirra prýða kirkjur og stofnanir um
allt land. Kynni þeirra bræðra af Ís-
landi hófust árið 1958 þegar þeir
voru fengnir til að búa til steinda
glerið í glugga Gerðar
Helgadóttur í Skálholts-
kirkju. Þeir sáu einnig
um að búa til altaristöflu
Nínu Tryggvadóttur í
kirkjuna og síðar mósa-
íkverk Gerðar á Toll-
stöðvarhúsinu. Seinasta
verkefni Ludovikusar
hérlendis voru steindu
gluggarnir í Reykholts-
kirkju eftir Valgerði
Bergsdóttur.
Árið 2004 sæmdi for-
seti Íslands þá Ludovi-
kus og Fritz heiðurs-
merki Hinnar íslensku
fálkaorðu fyrir framlag þeirra til
menningar og listar á Íslandi. Lu-
dovikus Oidtmann bar alltaf sterkar
tilfinningar til Íslands og átti hér
marga vini. Síðustu árin lærði hann
íslensku í frístundum sínum vegna
áhuga á landi og þjóð.
Ludovikus Oidtmann lætur eftir
sig fjögur uppkomin börn sem hann
átti með Ingrid Oidtmann.
Útför Ludovikusar Oidtmann fer
fram á morgun, föstudaginn 15. des-
ember, í Erkelenz í Þýskalandi.
Andlát
Ludovikus Oidtmann
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn