Morgunblaðið - 14.12.2006, Síða 40

Morgunblaðið - 14.12.2006, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ KristrúnBjarnadóttir fæddist í Reykjavik 16. október 1908. Hún lést á Vistheim- ilinu Víðihlíð í Grindavík fimmtu- daginn 7. desember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Ingveldur Sverr- isdóttir, f. 7.12. 1875, d. 26.11. 1938 og Bjarni Jónsson, f. 14.2. 1875, d. 4.9. 1963. Kristrún átti tvo bræður, Jón, f. 4.5. 1904, d. 10.9. 1988 og Sverri, f. 3.2. 1907, d. 17.10. 2002. Fóstursonur Kristrúnar er Ágúst Ísfjörð, f. 3.8. 1944, kvænt- ur Kristínu Einarsdóttur og eiga þau fjögur börn, þau eru: 1) Ragn- hildur, f. 12.3. 1965, maki Ólafur Baldursson og eiga þau eina dótt- ur, Guðrúnu Ósk. 2) Kristrúnu, f. 5.9. 1970, maki Steingrímur Ell- ertsson og eiga þau tvö börn, Birgittu og Ellert. 3) Einar Rúnar, f. 9.12. 1972, maki Helga Þórhalls- dóttir og eiga þau tvö börn, Elsu Björk og Ágúst Ísfjörð. 4) Jens Karl, f. 13.7. 1978, maki Marí- anna Bjarnleifs- dóttir. Kristrún ólst upp í Reykjavík til 10 ára aldurs, en þá flutti hún með for- eldrum sínum að Hvammi í Skorradal. Kristrún flutti aftur til Reykjavíkur um 1940 og vann hin ýmsu verka- kvennastörf, lengst af hjá ull- arverksmiðjunni Framtíðinni við Frakkastig eða rúm 45 ár og svo hjá sútunarverksmiðju S.S. við Grensásveg í fimm ár, eða til 75 ára aldurs. Útför Kristrúnar verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku Dúna amma mín, þú áttir langa og farsæla ævi, mikill dugnað- arforkur í alla staði og ákaflega ósérhlífin. Listamaðurinn í þér var óendanlegur, allt sem þú gerðir í höndunum var æðislegt og þær eru ófáar flíkurnar sem þú gerðir handa mér amma mín, allar myndirnar sem þú málaðir, allt sem þú saum- aðir, allt sem þú prjónaðir, ég gæti talið ennþá fleira upp, því þú gerðir svo margt elsku amma. Það rifjast upp svo ótal minningar um þig amma mín, allar stundirnar á Bú- staðaveginum, en þar bjuggum við saman í mörg ár, það voru forrétt- indi að hafa þig á neðri hæðinni, stundirnar okkar þegar ég var hjá þér á föstudagskvöldum, þú fléttaðir allt hárið á mér í margar fléttur og með þær svaf ég, allt gert til þess að fá flottar krullur, stundirnar okkar á sunnudögum kl. fjögur, við tvær og Húsið á sléttunni. Allar sögurnar sem þú sagðir mér frá Hvammi í Skorradal. Ferðirnar með þér, pabba, mömmu og systkinum mínum til út- landa … alveg yndislegar minningar þar á ferð bæði í Danmörku og Hol- landi. Öll skiptin amma, sem þú reddaðir mér flottum dressum fyrir kvennakvöldin hjá Fák. Við áttum tvennt algjörlega sam- eiginlegt; ég fékk þann heiður að vera skírð í höfuðið á þér og hitt er að áhugamál okkar var alveg það sama, hestar og aftur hestar. Guð hvað við gátum talað og talað enda- laust saman um þá og ekki nóg með það heldur náðum við að ríða út saman. Mikið var nú æðislegt þegar þú komst með mér upp í hesthús fyrir fjórum árum, varst þar með mér í nokkra klukkutíma, þú ætlaðir sko ekki að fara strax, varst bara komin á sópinn og inn í hlöðu að ná í hey. Þetta eru algjörlega ómetan- legar minningar. Það var alltaf gaman að heim- sækja þig á Bústaðaveginn því það var hægt að ræða við þig um allt milli himins og jarðar, þú varst svo vel inni í öllum hlutum. Þér gat ég sagt allt. Þú varst líka mjög nösk að sjá það á mér ef mér lá eitthvað á hjarta og það sama var með mig, ég sá það líka alltaf á þér ef það var eitthvað. Við vorum mjög nánar alla tíð, þú varst trúnaðarvinur minn frá fyrstu tíð. Ég á með mér svo margt fallegt sem þú sagðir mér er þú tókst pabba að þér, þegar þú talaðir um það brast þú ávallt í grát, því þú varst svo þakklát fyrir að eiga hann pabba að, og hann pabbi minn gat ekki fengið betri fósturmóður, ykk- ar samband var einstakt og missir hans er mikill. Pabba og mömmu votta ég samúð mína. Elsku besta amma mín, takk fyrir allt, hvíl í friði. Þín Kristrún. Dúna amma, 98 ár eru langur tími. En eftir sitja minningarnar og þegar ég fór að skoða hvað ég ætti að skrifa þá komu upp svo margar minningar. Bæði frá þeim tíma þeg- ar maður fékk að gista hjá þér á Bú- staðaveginum sem smápolli, og þeg- ar við sátum og vorum að spila. Ferðirnar til útlanda eru líka fullar af minningum. Þegar ég var bara polli og þú varst að koma heim úr vinnunni þá fór maður alltaf hlaup- andi á móti þér. Ég mun aldrei gleyma kleinunum þínum, þær voru bestu kleinur í heimi og þó að þú hafir alltaf sagt að nú færirðu að hætta að baka kleinur þá gat maður alltaf fengið þig til að baka eina og eina hræru. Alltaf gátum við talað saman um heima og geima og skemmtum við okkur konunglega við að ræða hvort heldur það var pólitík eða annað enda lágum við ekki á skoðunum okkar á samfélag- inu þegar við hittumst. Fróðleikur sem þú miðlaðir til mín er ómetanlegur, eins fannst Elsu dóttur minni svo gaman að spjalla við þig og hún sagði alltaf við mig, hún langamma er svo fróð og getur frætt mann um svo margt. Pabba og mömmu votta ég samúð mína. Elsku Dúna amma, hvíl í friði. Þinn Einar Rúnar Ísfjörð. Með þessum orðum viljum við kveðja þig Dúna langamma og þakka þér fyrir allar notalegu stundirnar sem við áttum með þér, öll samtölin þar sem þú fræddir okk- ur um hvernig lífið var í gamla daga. Innst inni öfundaði ég þig að hafa upplifað allar þessar breytingar á heiminum síðastliðin hundrað ár. Það var alltaf svo gaman að koma til þín á Bústaðaveginn, það fyrsta sem ég gerði var að telja öll fallegu blómin þín sem voru út um alla íbúð og voru langt yfir hundrað talsins. Hvíl í friði, elsku langamma. Elsa Björk og Ágúst Ísfjörð. Þegar pabbi hringdi í mig á fimmtudagskvöldið í síðustu viku og sagði mér að þú værir látin leið mér undarlega. Þó ég vissi að þú værir hvíldinni fegin þá kom yfir mig söknuður vegna þess ég hafði ekki bara misst ömmu heldur einnig mína bestu vinkonu. Samband okkar var nokkuð sérstakt en við deildum ýmsu, s.s. að vera léttar í lund, áhuga fyrir líðandi stund og þeim margbreytileika sem lífið færir okk- ur. Ófá voru hlátursköstin sem við áttum saman á Bústaðaveginum. Oftar en ekki var tilefnið eitthvað lítilfjörlegt vegna þess að ekki þurfti mikið til að kitla hláturtaugarnar hjá okkur. Þegar ég var staddur hjá þér í Grindavík fyrir um tveimur vikum rifjuðum við m.a. upp eina sumarbústaðaferðina af mörgum með fjölskyldunni norður að Mýri. Sú ferð lýsir þér afar vel að mínu mati. Það var sumarið 1993, ég 15 ára og þú 85 ára. Fjölskyldan og gestir höfðu farið niður að vatni að spóka sig í norðlenskri veðurblíð- unni og ég tók eftir því að þú varst ekki með. Ég spurði mömmu hvar þú værir og hún sagði mér að þú hefðir ætlað að leggja þig. Ég brun- aði á skellinöðrunni upp í bústað og það passaði alveg, þú varst að hvíla þig. Við fórum að spjalla og ég spurði hvort þig langaði ekki að koma niður að vatni, það væri svo fallegt veður. Þú hélst það nú en þá sagði ég þér að ég væri á skellinöðr- unni og þá kom einn gullmolinn frá þér: ,,Heldur þú að ég hafi nú ekki setið stærri mótorhjól en þetta um ævina“ og af því sögðu gerðum við okkur klár að bruna eftir vegslóð- anum niður að vatni, þú settir upp hjálminn og settist aftan á. Þegar við komum niður að vatni brá fólk- inu svolítið og við töluðum um það eftir á að þetta hefði verið svona „Kodak moment“. Þarna var þér rétt lýst, fyrir þér var aldurinn svo sannarlega afstæður. Annað sem við deildum var áhugi á bílum. Ekki var nóg með það að þú fylgdist vel með nýjungum í bílaframleiðslu, heldur hafðir þú mikinn áhuga á aksturs- íþróttum, formúlunni aðallega og þar var Þjóðverjinn Schumacher þinn maður. Mörgum þótti það und- arlegt að svo fullorðinn einstakling- ur hefði áhuga á slíku en það skipti þig engu vegna þess að þér var bara alveg sama hvað öðrum fyndist. Þú hafðir unnið við vélbúnað hjá Slát- urfélaginu og vissir hvað teldist til vandaðs búnaðar og varst vel að þér þegar við vorum að spá í bíla, hrifn- ust varstu af þýskum bílum, sér- staklega vegna þess hve hljóðlátir þeir væru. Ófáar voru bílasöluferðir okkar og í einni þeirra komstu með snilldar heilræði, þá var ég að hugsa um að kaupa mér Ford Fairlane árg. 1959. Við fórum að kíkja á grip- inn á bílasölu þar sem höfuðstöðvar Eflingar standa nú og þú skoðaðir bílinn vel og vandlega og sagðir eft- irfarandi: ,,Þetta er afar skemmti- legur bíll og var vinsæll á sínum tíma en hann á eitt sameiginlegt með fallegum konum, þ.e. hann eyðir allt of miklu“ og að því sögðu hlógum við innilega og héldum heim á Bústaðaveginn. Betra heilræði var vandfundið og í sjálfu sér sniðið og hnitmiðað fyrir unglinginn mig. Þær minningar sem ég hef rifjað hér upp eru einungis brot af ótal minningum sem ég geymi um þig og þær hjálpa mér að bíða eftir þeirri stund er við hittumst á nýjan leik. Elsku amma, þú ert best. Með einlægri þökk fyrir allt og allt. Undir háu hamra belti höfði drúpir lítil rós. Þráir lífsins vængja víddir vorsins yl og sólarljós. Ég held ég skynji hug þinn allan, hjartasláttinn, rósin mín. Er kristallstærir daggardropar drjúpa milt á blöðin þín. Æsku minnar leiðir lágu lengi vel um þennan stað, krjúpa niður, kyssa blómið, hversu dýrðlegt fannst mér það. Finna hjá þér ást og unað, yndislega rósin mín. Eitt er það sem aldrei gleymist, aldrei, það er minning þín. (Guðmundur G. Halldórsson.) Guð geymi þig, Jens Karl Ísfjörð Þeir sem komu í þennan heim á fyrsta áratug síðustu aldar safnast nú óðum til feðra sinna. Þannig er nú einu sinni lífsins gangur. Ein úr þessum hópi, föðursystir mín, Krist- rún Bjarnadóttir, fór héðan af heimi fyrir nokkrum dögum. Hún andaðist á heimili aldraðra í Grindavík hinn 7. þessa mánaðar, 98 ára að aldri. Dúna eins og hún var jafnan nefnd fæddist á Njálsgötunni í Reykjavík en faðir hennar Bjarni reisti fyrsta húsið, sem byggt var við þá götu og stendur það hús enn. Þar ólst hún upp fyrstu æviárin hjá foreldrum sínum, Bjarna Jónssyni trésmið og Ingveldi Sverrisdóttur, ásamt tveim bræðrum, Jóni og Sverri, sem báðir eru látnir. Í lok heimsstyrjaldarinnar fyrri hófu for- eldrar hennar búskap í Hvammi í Skorradal. Þar í þeim fagra dal dvaldi hún síðan til fullorðinsára og þar mótaðist hún með þeim hætti, sem einkenndi allt hennar líf. Yf- irborðið gat stundum verið hrjúft og svörin hvöss en undir sló hlýtt hjarta konu, sem var miklum mann- kostum búin. Dúna gekk í Kvenna- skólann í Reykjavík en á sumrin vann hún heima í Hvammi og hjálp- aði til við bústörfin. Eftir að móðir hennar Ingveldur dó árið 1938 bjó hún um hríð með föður sínum Bjarna, en bræður hennar voru þá báðir að heiman farnir. Þar reyndi strax á þá eiginleika Dúnu, sem mér eru mjög eftirminnilegir, trygglynd- ið og samviskusemina. Hún vildi ekki yfirgefa föður sinn, sem orðinn var einn. Það sagði henni samvisk- an, Hún flutti þó suður og starfaði hjá Framtíðinni, klæðaverksmiðju Sambandsins. Þar vann hún síðan mest alla sína starfsævi. Leiðir þeirra Dúnu og föður hennar lágu þó enn saman langa hríð því þegar Bjarni seldi Hvamminn hófu þau bú- skap í Blesugróf. Þar var á árunum eftir síðari heimsstyrjöldina merki- legt mannlíf, sem lesa má um í bók- um Tryggva Emilssonar. Frá ung- lingsárum eru mér minnisstæðar reglubundnar heimsóknir okkar feðga í Blesugrófina á sunnudags- morgnum. Þar áttu þau lítið ein- býlishús sem afi hafði sniðið að þeirra þörfum af hagleik sínum. Þarna áttu þau heima uns hann féll frá en þá flutti Dúna á Bústaðaveg þar sem hún bjó með vinum sínum blómunum allt til þess er hún flutti á heimili aldraðra í Grindavík. Hún var handlagin enda af slíkum komin. Í dag væri sennilega sagt að hún væri listfeng. Eftir hana liggja margir gripir á mörkum handiðnar og listar hvar svo sem þau mörk liggja. Þó er ónefndur einn eiginleiki þessarar konu, sem mér þykir merkilegastur og er mér minnis- stæðastur allra en það er hófsemin. Þessi eiginleiki sem svo mikil þörf er fyrir á okkar dögum og svo lengi hefur verið þörf fyrir allt síðan er meistarinn frá Nasaret sagði í ræðu sinni „sælir eru hófsamir“. Hún stjórnaði lífi sínu með harðri hendi. Þar sátu vinnusemi og sjálfsagi í fyrirrúmi. Dúna giftist ekki en engu að síður átti hún bæði fjölskyldu, börn og barnabörn. Í kaupavinnu í Skorra- dal eignaðist hún kæra vinkonu. Þessi vinkona hennar féll frá langt um aldur fram. Hún átti ungan son, sem hún bað Dúnu að sjá til með og enn sannaðist það sem sagt er að það tekur tryggðinni í skóvarp, sem er tröllum einum vætt. Hún brást ekki þessari vinkonu sinni. Sonurinn ólst upp undir handarjaðri hennar og eignaðist bæði konu og börn. Þetta varð hennar fjölskylda, son- urinn, konan og börnin. Það er vissulega fagurt að sjá hvernig þau hafa öll goldið fósturlaunin og á dauðastundinni voru þau sonurinn og tengdadóttirin hjá henni uns yfir lauk. Þau hafa reist sér óbrotgjarn- an minnisvarða. Enn liggja vegir þeirra Dúnu og afa saman því hún verður jarðsett við hlið hans í Foss- vogskirkjugarði. Nú þegar leiðir okkar skiljast verður mér hugsað til þess að sunnan undir húsveggnum í sveitinni okkar vex hjá mér rósa- runni, sem Dúna gaf mér fyrir mörgum árum. Á sumrum ber hann rauðar rósir og minnir mig daglega á frænku mína, blómavininn mikla og minnisstæða. Gunnar Jónsson. Kristrún Bjarnadóttir, Dúna, eins og hún var ávallt kölluð, er látin í hárri elli, 98 ára að aldri. Heilsu hennar hafði farið hrakandi á und- anförnum mánuðum en þó var hún ávallt andlega hress. Dúna var frænkan í fjölskyldunni og fastur punktur í tilverunni svo langt sem minni rekur til. Hún var tíður gestur á æskuheimilinu á Bragagötunni og hún var ómissandi hlekkur í fjöl- skyldutengslunum alla tíð. Dúna fæddist á Njálsgötu 37, Reykjavík, sem var fyrsta húsið sem var reist við þá götu. Faðir hennar, Bjarni Jónsson trésmiður, byggði húsið, hann hafði fengið þar út- mælda lóð og það var áður en gatan varð til. Þetta hús, sem enn stendur, er á tveimur hæðum, portbyggt. Þetta var fjölskylduhús, á efri hæð- inni bjuggu afi minn og amma, Bergur Bárðarson og Guðbjörg Sverrisdóttur, en hún var systir Ingveldar móður Dúnu. Þær voru frá Sólheimum í Mýrdal. Þegar Dúna var níu ára eignaðist faðir hennar jörðina Hvamm í Skorradal og þangað fluttist fjöl- skyldan og hóf búskap og þar lærði Dúna fljótt til verka. Til er ljósmynd frá þessum tíma, sem tekin var af Jóni afa Dúnu fyrir utan gamla bæ- inn í Hvammi. Þá mynd tók þýskur ferðamaður vegna þess að gamli maðurinn var með svo sítt og fallegt skegg. Mundi Dúna vel eftir þessu atviki. Dúna var einhleyp og barnlaus og vann lengst af í ullarverksmiðjunni Framtíðinni á Frakkastíg. Hún var hörkudugleg og vinnusöm. Hún var sérlega skemmtileg í tilsvörum, stundum snögg upp á lagið og lét menn heyra það, ef þeir voru ekki með á nótunum. Hún bjó lengi ásamt föður sínum Bjarna Jónssyni í Blesugróf í Reykjavík, en hann lést árið 1963. Síðar bjó hún á Bústaða- veginum og ræktaði þar garðinn sinn. Það voru blóm hvert sem litið var inni hjá henni og mörg eingöngu í vatni. Var ótrúlegt að sjá hve natin hún var með blómin og gat hún komið smæstu afleggjurum til vaxt- ar og blóma. Skipti þá engu hvort tegundin var frá suðlægum eða norðlægum slóðum. Síðustu árin er heilsan fór að bila bjó Dúna á heimili fóstursonar síns Ágústar Ísfjörð og konu hans Krist- ínar í Keflavík. Hafa þau hjón og börn þeirra verið Dúnu mikill styrk- ur gegnum tíðina og annast hana af mikilli umhyggju í veikindum henn- ar. Þau voru einnig hjá henni síð- ustu stundir jarðlífsins. Síðustu tvö æviárin var hún á dvalarheimili aldraðra, Víðihlíð í Grindavík, og naut þar góðrar umönnunar. Þar var afmælisveislan hennar haldinn á afmælisdaginn 16. október sl. og reyndist vera sú síð- asta. Það er söknuður á kveðjustund en sjálf var Dúna tilbúin til að fara og fá hvíldina. Blessuð sé minning hennar. Eggert Óskarsson. Kristrún Bjarnadóttir ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, ÁGÚSTA JÓNASDÓTTIR, Lindargötu 5, Sauðárkróki, sem lést á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki föstudaginn 8. desember, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 16. desember kl. 14:00. Einar Sigtryggsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Marta Sigríður Sigtryggsdóttir, Jón Ósmann Magnússon, Ingibjörg Hólm Vigfúsdóttir, Ólöf Helga Pálmadóttir, Margrét H. Pálmadóttir, Jenny Inga Eiðsdóttir, Ágúst Brynjar Eiðsson, Svanhildur D. Einarsdóttir, Gunnar S. Einarsson, Ásgeir B. Einarsson, Ágústa J. Stoltenberg, Hólmfríður Ósmann Jónsdóttir, langömmubörn og langalangömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.