Morgunblaðið - 11.05.2007, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 127. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
FÓTBOLTASUMAR
NÍUTÍU LEIKIR Á ÍSLANDSMÓTI KARLA Í
KNATTSPYRNU >> FÓTBOLTINN Á 28 SÍÐUM
YFIRLITSSÝNING Á
VERKUM RONI HORN
HENNAR OZ
UPPLIFUN: MERKING >> 26
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ólaf Þ. Stephensen
olafur@mbl.is
JÓN Sigurðsson, formaður Framsóknar-
flokksins, á ekki víst að komast á þing og
fylgi Vinstri grænna hefur hrunið í heima-
kjördæmi flokksformannsins. Þetta er á
meðal þess, sem má lesa út úr skoðanakönn-
unum Gallup fyrir Morgunblaðið og RÚV,
sem birzt hafa undanfarna daga.
Þegar teknar eru saman niðurstöður
raðkannana Gallup 5.–9. maí gefst færi á að
brjóta úrtakið, samtals 2.650 manns, niður
eftir kjördæmum.
Þá sést til dæmis að Framsóknarflokk-
urinn í Reykjavíkurkjördæmi norður, þar
sem Jón Sigurðsson býður sig fram, fær að-
eins 5% fylgi en hafði 7% í kjördæmakönnun
Gallup 29. apríl til 3. maí. Það er líka vafa-
samt að Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráð-
herra nái kjöri í Suðvesturkjördæmi með
7,8% fylgi.
Fylgi Vinstri grænna í Norðausturkjör-
dæmi er nú 12,7%, en var 23,9% í kjördæma-
könnun 22.–26. apríl. Fylgið hefur minnkað
um nærfellt helming, er undir meðalfylgi
flokksins á landsvísu og líka kjörfylginu fyr-
ir fjórum árum, er VG fékk 14,1% atkvæða í
kjördæminu. Hugsanlega er þetta til merkis
um að atvinnustefna VG fæli kjósendur frá
þegar nær dregur alvöru kjördagsins.
Guðjón Arnar í sókn
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, virðist hafa rifið upp
fylgi hans í sínu heimakjördæmi norðan-
lands og vestan. Flokkurinn mælist nú þar
með 13,4% fylgi en var með 8% í kjördæma-
könnun 22.–26. apríl. Formaðurinn virðist
heima í héraði hafa lagt meiri áherzlu á fisk-
veiðistjórnunarmál en innflytjendamál og
uppsker kannski samkvæmt því.
Í Reykjavík suður takast þrír flokksfor-
menn á. Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir eru með mjög svipað fylgi og í
kjördæmakönnun 15.–19. apríl, Geir með
41% og Ingibjörg með 26,9%. Ómar Ragn-
arsson, formaður Íslandshreyfingarinnar,
nýtur hins vegar aðeins 3,4% stuðnings, sem
er minna en fyrir þremur vikum en þá sögð-
ust 5,4% í kjördæminu ætla að kjósa flokk
hans. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra
er í fallhættu með 3,9% fylgi í kjördæminu.
Jón:
Óvíst um sæti.
Steingrímur:
Fylgið hrynur.
Guðjón:
Bætir við sig.
Geir:
Með yfir 40%.
Ingibjörg:
Stöðugt fylgi.
Ómar:
Fer ekki á þing.
Foringjar
í fallhættu
Fylgið hrynur af
Steingrími J. nyrðra
Naumur þingmeirihluti | 4
LISTAHÁTÍÐ í Reykjavík var
sett í gær í Listasafni Íslands og
var þar um leið opnuð fyrsta yf-
irlitssýningin hér á landi á mynd-
list CoBrA-hópsins.
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra setti
hátíðina og kom fjöldi listamanna
fram við það tækifæri.
Kongóska hljómsveitin Konono
N°1 lék þjóðlega danstónlist og
sjást liðsmenn hennar á myndinni
til hliðar leika og dansa af inn-
lifun.
Hamrahlíðarkórinn frumflutti
nýtt verk eftir Jón Nordal við
texta Jónasar Hallgrímssonar og
Einar Örn Benediktsson og Curv-
er Thoroddsen, eða Ghostigital,
fluttu tónleika- og útvarpshljóð-
verkið RADÍUM, Radíó -í og um,
sem þeir unnu í samstarfi við
myndlistarmanninn Finnboga
Pétursson. | 22Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Listahátíð
hafin í
Reykjavík
London. AFP. | Breskir veðmangarar sögðust í gær
hafa tekið fjölmörgum veðmálum í tengslum við þá
yfirlýsingu Tonys Blairs að hann hygðist láta af
embætti forsætisráðherra 27. júní.
Veðjað var um heiti endurminninga Blairs,
hvaða leiðtogi yrði fyrstur til að lofsyngja hann og
um litinn á bindinu hans er hann tilkynnti ákvörð-
unina. Einnig var veðjað um hvað Blair tæki sér
næst fyrir hendur og líklegast þótti að hann færi í
fyrirlestraferð til Bandaríkjanna. Nokkrir veðjuðu
á að hann færi í tónleikaferð með Ugly Rumours, hljómsveit sem hann
söng með á námsárunum, en aðrir að hann yrði knattspyrnustjóri
Newcastle United, liðsins sem hann heldur með. | 21
Blair í hljómsveit
eða fótboltann?
Tony Blair
Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur
sigrunrosa@mbl.is
Einkahlutafélagsformið hentar
betur fyrir Actavis, að mati Björg-
ólfs Thors Björgólfssonar, stjórn-
arformanns félagsins. Novator, fé-
lag í eigu Björgólfs, mun leggja
fram yfirtökutilboð í allt hlutafé
Actavis og eru áform um að taka fé-
lagið af markaði í kjölfar þess.
„Ég hef verið stjórnarformaður í
félaginu í sjö ár og séð hvernig
landslagið hefur breyst á stuttum
tíma. Samþjöppun er mjög hröð og
yfirtökur eru orðnar harðvítugar.
Því er mikilvægt að fyrirtæki sem
ætla að halda áfram að stækka geti
brugðist hratt við og tekið skjótar
ákvarðanir,“ segir Björgólfur
Thor, sem telur heppilegra fyrir fé-
lag eins og Actavis að það sé í
einkaeigu þar sem ákvarðanataka
sé hröð og áhættan aðeins á herð-
um þeirra sem ákvarðanirnar taka.
Ráðstafi eigin peningum
„Gangi áform okkar eftir verður
félagið skuldsettara og áhættan
meiri. Mér finnst rétt að þegar
menn taka mikla áhættu í viðskipt-
um, þá séu þeir að ráðstafa eigin
peningum, ekki annarra,“ segir
Björgólfur Thor ennfremur.
Eins og áður segir ætlar Nova-
tor, fjárfestingafélag í eigu Björg-
ólfs, að leggja fram frjálst yfirtöku-
tilboð í allt hlutafé Actavis Group
hf. í A-flokki, að því er fram kemur
í tilkynningu frá Novator, og hefur
félagið fjórar vikur til þess. Eign-
arhlutur Novator og tengdra fé-
laga í Actavis er nú um 38,5%. Til-
boðið jafngildir um 85,23 krónum á
hlut. Bréf í félaginu tóku síðan 12%
stökk í gær eftir að tilkynnt var um
tilboð Novator og endaði gengi
þeirra í 87,5 krónum, sem er 2,9%
yfir tilboði Novators.
Segir ákvarðanatöku vera
hraðari í einkahlutafélögum
Í HNOTSKURN
» Novator býðst til að kaupaöll hlutabréf Actavis í
A-flokki á 85,23 krónur á hlut.
» Gangi yfirtakan eftirverður hún sú stærsta í Ís-
landssögunni eða jafnvirði um
180 milljarða króna.
» Novator hyggst taka Actavis af markaði eftir
yfirtökuna.
» Sérfræðingum ber ekkisaman um hvort tilboðið sé
of lágt eða sanngjarnt.
Novator gerir um 180 milljarða yfirtökutilboð í lyfjafyrirtækið Actavis
Yfirtökutilboð | 16
framsokn.is
Árangur áfram - ekkert stopp