Morgunblaðið - 11.05.2007, Qupperneq 20
20 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
BENEDIKT XVI páfi ræddi í gær
við Luiz Inacio Lula da Silva, for-
seta Brasilíu, eftir að þeir höfðu
skipst á orðum opinberlega um
deiluna um fóstureyðingar. Páfi
fordæmdi fóstureyðingar í fyrstu
ræðu sinni eftir að hann kom í fimm
daga heimsókn til Brasilíu í fyrra-
kvöld. Lula sagði hins vegar í við-
tali að þótt hann væri andvígur
fóstureyðingum persónulega teldi
hann sem þjóðhöfðingi að þær gætu
verið nauðsynlegt úrræði í heil-
brigðismálum vegna þess að „ann-
ars leiðir það til dauða margra
stúlkna í land-
inu“.
„Núna eru um
30% stúlkna í
Brasilíu á aldr-
inum 15–17 ára
utan skóla vegna
þess að þær urðu
barnshafandi,“
bætti forsetinn
við.
Fóstureyðing er aðeins leyfð í
Brasilíu ef konu er nauðgað eða
þegar líf hennar er í hættu vegna
meðgöngunnar.
Páfi ræðir við Lula eftir
umræðu um fóstureyðingar
Benedikt XVI
ÓTTAST er að yfirvofandi sé
sprenging í krabbameinstilfellum í
þróunarlöndunum, einkum í Afr-
íku. Um allan heim voru ný tilfelli
11 millj. árið 2000 en verða líklega
16 millj. árið 2020. Þar af verða
70% tilfellanna í þróunarlöndunum.
Slæm þróun
ÁKÖF leit stendur yfir að Made-
leine, þriggja ára stúlku, sem rænt
var í Portúgal, en talið er, að lög-
reglan hafi fengið nýjar vísbend-
ingar í málinu. Fullyrða portúgölsk
blöð, að nóttina eftir mannránið
hafi tveir menn og kona verið
mynduð á bensínstöð á bíl með
breskum númerum. Hefur áður
verið grunur um, að mannræningj-
arnir séu breskir en breska lög-
reglan vinnur einnig að málinu.
Vísbending
um Madeleine
DANSKIR bankar taka ekki í mál,
að fyrrverandi bankaræningjar fái
að opna reikning hjá þeim. Gerir
það ræningjunum mjög erfitt fyrir
og þá vegna þess, að öll opinber að-
stoð fer nú um slíka reikninga.
Lítil þjónusta
RÚSSAR minntust þess á miðvikudag með mikilli viðhöfn að 62 ár voru lið-
in frá uppgjöf Þýskalands í seinni heimsstyrjöld. Vladímír Pútín Rúss-
landsforseti notaði tækifærið í ræðu sinni til að gagnrýna með lítt dulbún-
um hætti Bandaríkjamenn og stefnu þeirra í alþjóðamálum að sögn
stjórnmálaskýrenda er hann ræddi orsakir stríðsins sem hefðu verið ýmis
mistök. Hættan á þeim hefði ekki minnkað á okkar tímum, aðeins breytt
um form. „Þessi nýja hætta felur í sér, eins og í tíð Þriðja ríkisins, sömu
fyrirlitninguna gagnvart mannlegu lífi og sömu kröfurnar um að njóta sér-
stöðu og mega skipa fyrir um tilhögun heimsmála,“ sagði Pútín.
Pútín gagnrýnir Bandaríkin
Dili. AFP. | Friðarverðlaunahafinn
Jose Ramos-Horta var kominn með
73% atkvæða í gær þegar búið var að
telja um 90% greiddra atkvæða í for-
setakosningunum á Austur-Tímor en
þær fóru fram á miðvikudag. Hann
hét því að sameina þjóðina en hörð
átök hafa verið mánuðum saman í
landinu sem varð sjálfstætt árið 2002
eftir blóðugt frelsisstríð gegn Indó-
nesum.
Mótherji Ramos-Horta í seinni um-
ferð kosninganna var Francisco
Guterres úr stjórnarflokknum Fretil-
in. Guterres barðist sem skæruliði
gegn Indónesum en Ramos-Horta
var landflótta og hélt á lofti merki
þjóðar sinnar á alþjóðavettvangi.
Sú barátta endaði með því að Sam-
einuðu þjóðirnar skárust í leikinn og
þvinguðu fram þjóðaratkvæða-
greiðslu um sjálfstæði Austur-Tímor.
Reuters
Sigurreifur Jose Ramos-Horta, verðandi forseti Austur-Tímor. Ramos-
Horta hlaut á sínum tíma friðarverðlaun Nóbels og voru það liðsmenn
Kvennalistans á Íslandi sem tilnefndu hann til verðlaunanna.
Ramos-Horta
sigraði á A-Tímor
„GRIKKLAND verður aldrei neinn
Spánn,“ sagði Fanny Palli-Petralia,
ferðamálaráðherra Grikklands, í
gær en miklar framkvæmdir í ferða-
þjónustunni í Grikklandi og á grísku
eyjunum sæta vaxandi gagnrýni.
„Við munum standa vörð um þá
miklu auðlegð sem grísk náttúra er
enda er það hún sem laðar hingað
ferðamennina,“ sagði Petralia en
ferðaþjónusta er annar mesti at-
vinnuvegur Grikkja. Hinn er skipa-
útgerð.
Við ferðaþjónustu starfa um
800.000 manns en erlendir ferða-
menn eru um 15 milljónir árlega.
Eru tekjurnar rúmlega 86 milljarðar
ísl. kr. á mánuði hverjum.
Náttúrunni fórnað
Petralia vék ekki nánar að samlík-
ingunni við Spán en var þó augljós-
lega að gefa í skyn að Spánverjar
fórnuðu náttúrunni fyrir hótel og
aðrar ferðaþjónustutengdar fram-
kvæmdir. Er mikil samkeppni í þess-
ari grein á milli Miðjarðarhafsríkj-
anna, Grikklands, Spánar, Ítalíu,
Tyrklands og Kýpur, og sífellt verið
að brjóta land undir ný hótel og ann-
að slíkt.
Grikkir vinna nú að því að koma
upp 2.500 hektara sumarleyfisstað á
Krít en umhverfissinnar og fólk á
staðnum segir að um leið sé verið að
gjöreyðileggja þá náttúru sem fyrir
var.
Óttast er að sjaldgæf skjaldböku-
tegund á eynni Zakynthos í Jónahafi
verði brátt útdauð vegna ólöglegra
framkvæmda þar en Petralia hét því
að stöðva þær.
Enginn
Spánn