Morgunblaðið - 11.05.2007, Síða 30

Morgunblaðið - 11.05.2007, Síða 30
30 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI JÓNÍNA Bjartmarz umhverfis- ráðherra friðlýsti í gær hluta jarð- arinnar Hrauns í Öxnadal sem fólk- vang, svo og Arnarnesstrýtur á botni Eyjafjarðar. Arnarnesstrýtur, sem fundust fyr- ir aðeins þremur árum, eru friðlýstar til að vernda megi einstök nátt- úrufyrirbrigði sem felast í myndun hverastrýtnanna, efnasamsetningu, útliti og lögun ásamt lífríki, þar með talin örveruvistkerfi sem þar þrífast við óvenjulegar aðstæður. Hverast- rýturnar eru allt að 10 metra háar og standa á 25 til 45 metra dýpi. Samkvæmt friðlýsingunni eru tog- veiðar, netalagnir og línuveiðar bannaðar við náttúruvættið og á jað- arsvæði þess. Umhverfisráðherra undirritaði friðlýsingu strýtnanna á Hjalteyri síðdegis, skömmu eftir að hún skrifaði undir þá fyrri í gamla bænum á Hrauni. Friðlýst svæði Hrauns í Öxnadal mun ná yfir 2.286 hektara jarð- arinnar. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda svæðið til útivistar, náttúruskoðunar og fræðslu. Vernd- argildi svæðisins byggist auk þess á því að landslag og náttúrufar, sér- staklega jarðmyndanir, eru mjög fjölbreytt og eru þar m.a. mikilvægar minjar um horfna búskaparhætti. „Um fegurð og jarðfræðilegan fjöl- breytileika þessa svæðis efast eng- inn,“ sagði Bjarni Guðleifsson, nátt- úrufræðingur á Möðruvöllum, ötull talsmaður þeirrar verndunar sem í gær varð að veruleika, þegar hann ávarpaði samkomuna á Hrauni. „Berghlaupin sem hálfan dalinn fylla einkenna svæðið og mynda ein- staklega vinalegt hólasvæði sem hef- ur lokað útrennsli Vatnsdals og myndað Hraunsvatn, og í fjallinu stendur eftir þunn fjallsegg prýdd Hraundranga, einum þekktasta og fegursta fjallstindi á Íslandi,“ sagði Bjarni Guðleifsson. Hann sagði það auka gildi svæð- isins að á Hrauni fæddist árið 1807 þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson. „Þótt hann ætti ekki lengi heima á þessum bæ, þá er hann ævinlega og órjúfanlega tengdur staðnum. Það má segja að gildi svæðisins felist að- allega í þrennu; fegurð, jarð- fræðilegri fjölbreytni og loks sögu staðarins. Allir þessir þrír þættir tengjast Jónasi Hallgrímssyni; í fyrsta lagi var hann skáld fegurð- arinnar og hefur jafnvel verið sagt að hann hafi fundið upp fegurðina á Ís- landi. Í öðru lagi var jarðfræðin sú grein náttúrufræðinnar sem hann stundaði mest og var hann fræðilega langt á undan samtíðinni. Í þriðja lagi var hann rómantískur hug- sjónamaður sem vildi halda sögu landsins á lofti,“ sagði Bjarni. Óheimilt er að spilla gróðri og trufla dýralíf í fólkvanginum, svo dæmi séu tekin. Leyfi Umhverf- isstofnunar þarf til framkvæmda í fólkvanginum þar sem hætta er á að spillt verði friðlýstum nátt- úruminjum. Jarðrask og mann- virkjagerð er einnig háð leyfi um- sjónarnefndar fólkvangsins og skal vera í samræmi við uppbyggingu fólkvangsins þar sem gert er ráð fyr- ir merktum og stikuðum gönguleið- um og stígum. Jafnframt er gert ráð fyrir aðstöðu til náttúruskoðunar og umhverfisfræðslu. Í verndaráætlun er nánari útfærsla á framkvæmdum innan fólkvangsins í þágu útivistar og fræðslu.  Fegurð, jarðfræði og saga á Hrauni  Hverastrýturnar við Arnarnes einstakt náttúrufyrirbrigði Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Friðlýsing Bjarni Guðleifsson náttúrufræðingur á Möðruvöllum, Jón Kr. Sólnes stjórnarmaður í Hrauni í Öxnadal ehf., Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra og Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri í Hörgárbyggð. Arnarnesstrýtur og hluti Hrauns friðlýst skapti@mbl.is Í HNOTSKURN »Hraun í Öxnadal ehf.stefnir að opnun fræði- mannaíbúðar í gamla íbúðar- húsinu og opnun fólkvangsins á fífilbrekkuhátíð 16. júní og opnun minningarseturs á Hrauni um Jónas Hallgríms- son 16. nóvember, þegar 200 ár verða frá fæðingu hans. »Umsjón og rekstur fólk-vangsins á Hrauni verða í höndum þriggja manna um- sjónarnefndar sem skipuð er einum fulltrúa Hörgár- byggðar, einum fulltrúa Hrauns í Öxnadal ehf. og ein- um fulltrúa Umhverfisstofn- unar. BÚIST er við allt að 50 pólskum verkfræð- ingum til náms í RES Orkuskólanum á Ak- ureyri á næstu tveimur árum. Þetta kom fram í máli Valgerðar Sverrisdóttur utan- ríkisráðherra og Davíðs Stefánssonar, for- manns stjórnar Orkuverða ehf., sem eiga og reka skólann, þegar hann tók formlega til starfa í fyrradag. Eins og fram kom í blaðinu í gær er von á 150 milljóna króna framlagi úr Þróunarsjóði EFTA vegna umsóknar fimm tækniháskóla í Póllandi um menntum pólskra verkfræðinga í orkufræðum „Mér skilst að þessi styrkur muni tryggja nemendagjöld fyrir á fimmta tug nemenda í meistara- og doktorsnám á næstu tveimur árum,“ sagði Valgerður við þetta tækifæri. Að sögn Davíðs voru það fimm fremstu tækniháskólar Póllands sem sameinuðust um umsókn til að mennta pólska verkfræð- inga í orkufræðum við Orkuskólann á Ak- ureyri. Það voru Tækniháskóli Var- sjárborgar, Tækniháskólinn í Kraká, Háskólinn í Warmia og Mazury í Olstynborg, Háskólinn í Rzeszow og Tækniháskólinn í Rzeszow. Valgerður Sverrisdóttir sagði í fyrradag að áratugaþekking Íslendinga á beislun fall- vatna og jarðhita skapaði ný tækifæri til sóknar í útflutningi á menntun. „Menntun erlendra nemenda á þessu sviði hér á landi skapar á móti tengsl og tækifæri til áfram- haldandi samstarfs okkar landa í millum um beislun náttúruauðlinda, allri heimsbyggð- inni til hagsbóta. Opnun RES Orkuskóla hér í dag er sér- staklega mikilvæg í þessu tilliti. Skólinn er í raun svar við brýnni þörf sem til staðar er og kallað er eftir um heim allan. Hann sam- einar allt í senn – þekkingu, hugvit, reynslu og framsýni, og er einn fárra skóla á þessu sviði í heiminum. Og hvar annars staðar ætti alþjóðlegur háskóli á sviði orkurannsókna að vera en í höfuðstað Norðurlands, í ná- munda við Mývatnssveit þar sem Kröflu- virkjun er að finna, Bjarnarflag, Jarðböðin og fleira? Ylræktin sem stunduð er á Hvera- völlum og Hitaveita Húsavíkur eru heldur ekki langt undan, nú eða hitaveitan hér [á Akureyri] og á Ólafsfirði sem er ein sú elsta á landinu. Hér eru einnig vatnsaflsvirkjanir í næsta nágrenni, t.d. Laxárvirkjun, Blöndu- virkjun og auðvitað Kárahnjúkavirkjun,“ sagði ráðherrann. Í fréttatilkynningu frá RES Orkuskóla segir að ljóst sé að umfang skólans kalli á byggingu vísindagarða við Háskólann á Ak- ureyri og sömuleiðis sé í farvatninu bygging nýrra íbúða við stúdentagarða Háskólans á Akureyri sem nýtast munu skólanum. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Orkuskóli Frá hátíðardagskránni þegar RES Orkuskóli tók formlega til starfa. Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri, Guðjón Steindórsson framkvæmdastjóri Orkuvarða ehf. sem eiga og reka skólann, Björn Gunnarsson akademískur forstöðumaður, Valgerður Sverrisdóttir utan- ríkisráðherra, Benedikt Sigurðarson stjórnarmaður í Orkuvörðum, Þorleifur Björnsson for- stöðumaður RES og Davíð Stefánsson stjórnarformaður Orkuvarða. Allt að 50 Pólverjum í RES BÆJARRÁÐ Akureyrar hafnaði í gær erindi frá Íþróttafélaginu Þór um niðurfellingu fast- eignagjalda frá árinu 2003. Þá fór Þór fram á að framvegis yrðu ekki lögð fasteignagjöld á félagið en hugmyndinni var hafnað. Félagið hefur átt í miklum fjárhagserfiðleikum. Á fundi bæjarráðs voru einnig lagðir fram og fjallað um viðauka á rekstrarsamningum íþróttafélaganna Þórs og KA, sem tillögur hafa verið gerðar um, og gagnrýndu fulltrúar minnihlutans í bæjarstjórn meirihlutaflokkana fyrir hvernig staðið hefur verið að málum. „Við furðum okkur á þeim vinnubrögðum sem viðhöfð hafa verið við samningsgerð þessa. Fulltrúar minnihlutans í bæjarráði eru að sjá samningsdrögin í fyrsta sinn á þessum fundi og það er ómögulegt að taka afstöðu til málsins við þessar aðstæður,“ sagði m.a. í bók- un bæjarfulltrúanna Jóhannesar Gunnars Bjarnasonar, Baldvins H. Sigurðssonar og Odds Helga Halldórssonar. Bæjarstjóri, Sigrún Björk Jakobsdóttir, lét í framhaldi af þessu bóka að Íþróttaráð hefði farið gaumgæfilega yfir samningsdrögin og átt viðræður við stjórnir félaganna og í bæjarráði í síðustu viku verið greint munnlega frá þeim samningshugmyndunum. Afgreiðslu málsins var svo frestað. Vilja fá fast- eignagjöldin felld niður Bæjarráð hafnar hugmyndum Þórsara

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.