Morgunblaðið - 11.05.2007, Side 6

Morgunblaðið - 11.05.2007, Side 6
Morgunblaðið/Gísli Sigurðsson VEGNA stórsýningar franska götu- leikhússins Royal de Luxe í miðborg Reykjavíkur, verður bílastæðum í gönguleið Risessunnar lokað á föstu- dag og laugardag. Göturnar sem um ræðir á föstu- dag eru: Pósthússtræti, Hafn- arstræti, Grófin, Bankastræti, Skólavörðustígur, Klapparstígur of- an Laugavegar ásamt Laugavegi frá Klapparstíg upp að Snorrabraut. Auk þessa verða bílastæðin á Mið- bakka lokuð á föstudag og laug- ardag. Á laugardag er bílastæðum lokað við Pósthússtræti, Kirkjustræti, Austurstræti, Aðalstræti og Grófina. Bílastæðum verður lokað með keil- um og borðum. Eru það eindregin tilmæli frá Reykjavíkurborg, að veg- farendur virði merkingarnar, enda sé tilgangurinn að koma í veg fyrir hugsanlegar skemmdir á bílum og skapa svigrúm fyrir þetta risavaxna ævintýri. Bílar, sem lagt verður í merkt stæði, verða fjarlægðir á kostnað eigenda þeirra. Starfsmenn Framkvæmdasviðs og Bílastæðasjóðs sjá um lokanir bíla- stæða en umferðarstjórn er í hönd- um lögreglu. Bílastæðum lokað vegna stórsýningar 6 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KOSNINGAR 2007 | FRÉTTASKÝRING Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is UNDIRBÚNINGUR fyrir kjördag er nú á lokaspretti um allt land og ætti því allt að verða klappað og klárt þegar landsmenn ganga að kjörborðinu á morgun. Að mörgu er að hyggja til að allt geti gengið smurt fyrir sig. Sveitarfélög þurfa að gæta þess að kjör- skrár liggi fyrir, skipuleggja þarf vinnu þeirra sem vinna á kjörstað og að sjálfsögðu þurfa kjörseðlar og blýantar að vera á sínum stað. Í Reykjavík þarf t.a.m. að hafa um fimm þúsund vel yddaða blýanta með dökku blýi til reiðu á kjörstöðum borgarinnar svo að lögum sé framfylgt. Skrifstofa borgarstjórnar ber hitann og þungann af undirbúningi fyrir kosningarnar í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og að sögn Gunnars Eydal skrifstofustjóra hófst vinnan fyrir þremur mánuðum. Gunnar segir undirbúning hafa gengið vel en yfirkjör- stjórnir kjördæmanna tveggja hafa aðsetur í Hagaskóla og í Ráðhúsi Reykjavíkur. „Það er vel á sjötta hundrað manns sem kemur að undirbúningnum,“ segir Gunnar og bætir við að þá sé að sjálfsögðu ekki meðtalið allt það fólk sem sinnir öðrum störfum í kringum kjördag, s.s. löggæslu, sendibílaakstri og leigubílaakstri. Gunnar segir kjörskrárgerð skipa veiga- mikinn sess í undirbúningi en það er á ábyrgð sveitarfélaganna að leggja fram kjörskrá tíu dögum fyrir kosningar. „Kjörskrá getur tekið breytingum allt fram á kjördag, t.d. vegna fólks sem nýlega hefur fengið ríkisfang og svo falla látnir að sjálfsögðu út,“ útskýrir Gunnar. Um kl. 18 annað kvöld verða kjörkassar sóttir á kjörstaði og í framhaldi af því byrjað að telja. Áætlað er að fyrstu tölur liggi fyrir um kl. 22. „Við vonumst til að vera þá þegar búin að telja um 60% atkvæða en það fer auð- vitað eftir því hvernig kjörsókn er og hversu vel gengur,“ segir Gunnar og leggur mikla áherslu á að fólk muni eftir persónuskilríkjum enda þurfi allir að framvísa þeim á kjörstað. Á landinu öllu eru ríflega 220 þúsund manns á kjörskrá en kosningarétt hafa allir íslenskir ríkisborgarar sem hafa náð 18 ára aldri og eiga lögheimili hér á landi. Miðað er við lögheimili fólks fimm vikum fyrir kosn- ingar og í þessu tilviki því 7. apríl sl. Brottfluttir halda rétti í átta ár Fólk sem flyst af landi brott heldur kosn- ingaréttinum í átta ár frá því að lögheimili var flutt. Íslendingar sem lengur hafa búið erlendis geta sótt sérstaklega um að komast á kjörskrá. Í alþingiskosningum fyrir fjórum árum voru kjósendur rúmlega 10 þúsundum færri. Konur eru að þessu sinni um 0,5% fleiri en karlar og ungt fólk sem gengur að kjörborð- inu í fyrsta sinn er um 7,7% kjósenda eða rúmlega 17 þúsund talsins. Kjördæmin eru einnig misstór, bæði land- fræðilega og m.t.t. til fólksfjölda. Flestir kjós- endur eru að þessu sinni í Suðvesturkjör- dæmi og Reykjavíkurkjördæmin eru næststærst. Samtals eru 64% kjósenda í þess- um þremur kjördæmum. Minnsta kjördæmið er svo Norðvesturkjördæmi þar sem rúmlega 20 þúsund manns eru á kjörskrá. Ríflega 220 þúsund kjósendur á kjörskrá og 17 þúsund kjósa í fyrsta sinn Fimm þúsund blýantar í borginni Morgunblaðið/Árni Sæberg Fundað með kjörstjórnum Fjölmennur fundur fór fram í Hagaskóla í gær þar sem hverfis- og undirkjörstjórnir í Reykjavík suður fóru yfir helstu skipulagsatriði varðandi kjördag. Heimsferðir bjóða frábært tilboð til Rimini í júní. Njóttu lífsins í sumar á þessum vinsælasta sumarleyfisstað Ítalíu. Rimini er ekki aðeins frábær áfangastaður út af fyrir sig heldur eru ótrúlega spennandi valkostir í næsta nágrenni, vilji menn kynnast mörgum andlitum Ítalíu í einni ferð. Bókaðu flugsæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Rimini 28. júní frá kr. 29.990 m.v. 2 Allra síðustu sætin Verð kr. 29.990 - Netverð á mann, m.v. að lágmarki 2 ferðist saman. Stökktu tilboð í viku 28. júní. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Aukavika kr. 10.000. Munið Mastercard ferðaávísunina Eftir Guðmund Sverri Þór sverrirth@mbl.is FIMM manna sendinefnd frá al- þjóðlega netfyrirtækinu Yahoo er stödd hér á landi til þess að kynna sér aðstæður og möguleika á því að reisa hér netþjónabú á næstu árum. Fulltrúar fyrirtækisins áttu fund með Geir H. Haarde forsætisráð- herra og Guðlaugi Þ. Þórðarsyni, stjórnarformanni Orkuveitu Reykjavíkur, í stjórnarráðinu í gær. Athugun þeirra er á frumstigi en auk Íslands kannar Yahoo aðstæður í tíu öðrum löndum. Kevin Timmons, framkvæmda- stjóri aðgerða hjá Yahoo, sagði í samtali við blaðamenn líklegt að fulltrúar fyrirtækisins kæmust að niðurstöðu um hvaða staður væri hentugastur að um hálfu áruiliðnu. Jafnframt sagði hann Ísland vel þekkt sem vistvænt land sem byggi yfir ofgnótt ódýrrar orku. „Það er mjög erfitt að segja til um hversu mörg störf gætu skapast hér á landi vegna netþjónabús og að sama skapi er erfitt að segja til um hversu mikla orku við mundum þurfa. Það veltur allt á stærð starf- seminnar.“ Raj Patel, framkvæmdastjóri netverka hjá Yahoo, sagði að fyrir þessa tegund starfsemi þyrfti fyr- irtækið aðgang að mörgum teng- ingum sem gætu flutt um 10 gígabit á sekúndu af gögnum. Það vekur óneitanlega spurningar um sæ- strenginn sem hefur verið til vand- ræða að undanförnu. Geir H. Haarde sagði það alveg ljóst að 100% öryggi í tengingu væri forsenda starfsemi af þessu tagi. Hið sama ætti við um aðrar at- vinnugreinar og því væri sam- gönguráðuneytið með nýjan sæ- streng í undirbúningi. „Mér finnst það mjög jákvætt að Yahoo skuli sýna Íslandi þennan áhuga og það er út frá mörgum sjónarmiðum. Þeir hafa komist að því að hér á landi er vinsamlegt umhverfi fyrir starfsemi af þessu tagi og mér finnst þetta vera ágætis viðbót við aðrar greinar atvinnulífsins. Þetta byggist fyrst og fremst á samn- ingum við aðra aðila en ríkið en ég tel þetta geta verið mjög ánægju- lega þróun,“ sagði Geir ennfremur. Guðlaugur Þ. Þórðarson segir margt mæla með því að netþjónabú séu starfrækt á Íslandi. „Í fyrsta lagi erum við með örugga vistvæna orku og þessi fyrirtæki leggja mikið upp úr umhverfismálum, þeir hafa mjög metnaðarfull markmið um að takmarka útblástur koltvísýrings. Að sama skapi er það kostur að hér er kaldara loftslag en víða annars staðar, auk þess sem stöðugt stjórnarfar er mikilvægt svona fyr- irtækjum.“ Guðlaugur hefur að eigin sögn haft frumkvæði að því að fá net- þjónabú til landsins og hitti í því sambandi forsvarsmenn Cisco Systems. Kanna möguleika á starfsemi netþjónabús Morgunblaðið/G. Rúnar Netþjónabú Geir H. Haarde forsætisráðherra (t.v.), Raj Patel og Kevin Timmons funduðu um möguleikann á starfsemi Yahoo á Íslandi. Í HNOTSKURN »Verði netþjónabú Yahoo áÍslandi að veruleika getur starfsemin hafist eftir 2–3 ár og er sá tími nægur til þess að leggja nýjan sæstreng. »Yahoo varðveitir gífurlegamikið magn gagna vegna starfsemi sinnar, t.d. rekur fyrirtækið tölvupóstþjónustu og fjármálaupplýsingaþjón- ustu. »Ef allt gengur að óskumætti að vera hægt að taka sæstreng í notkun haustið 2008 að sögn samgöngu- ráðuneytisins. Netfyrirtækið Yahoo lýsir áhuga á starfsemi hérlendis TIL ERU margar og misgóðar kenningar um áhrif veðurfars á kosningaþátttöku fólks. Hér á landi hefur reynst erfitt að setja fram slíkar kenningar þegar kemur að alþingiskosningum enda blæs norðanáttin ekki eins í norðri og suðri og oft sannast hið fornkveðna að skjótt skipast veður í lofti. Að þessu sinni er spáð norðaustanátt svo að íbúar Norður- og Austurlands ættu að bíða með að rífa fram sumarklæðnaðinn. Hiti verður á bilinu 3–5 stig yfir daginn og Ásdís Auðunsdóttir veðurfræðingur segir að gera megi ráð fyrir slyddu eða rigningu og jafnvel snjókomu á köflum. Í suðri og vestri verður veðrið betra ef spáin rætist en þar verður þurrt, þó líklega ekki sólríkt, og hitinn gæti farið upp í tíu stig yfir daginn. Ekki strax í sumarfötin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.