Morgunblaðið - 11.05.2007, Qupperneq 32
|föstudagur|11. 5. 2007| mbl.is
VÍSINDAMENN og tölvusérfræð-
ingar vonast til að geta bætt GPS-
búnaði við tónhlöður, eða MP3-
spilara, og auðveldað fólki þannig
að rata um ókunnar slóðir – t.a.m.
í erlendum borgum, að því að
greint var frá á vefmiðli BBC.
Þannig gæti fólk stillt áfanga-
stað sinn inn í tækið og notið leið-
sagnar á göngu sinni á sama tíma
og það hlustaði á tónlist. Sé við-
komandi á leið í rétta átt heyrist
tónlist í báðum heyrnartólum, en
sé vikið af réttri leið þá lækkar
tónlistin í öðru hvoru heyrnartól-
inu, eftir því í hvaða átt á að
stefna.
Fyrirmynd kerfisins var hönn-
uð af dr. Matt Jones, við tölvu-
deild Swansea-háskóla í Bret-
landi.
Morgunblaðið/Golli
Leiðsögn Það er ekki amalegt að geta látið tónhlöðuna
segja sér til vegar á ókunnum slóðum.
Tónhlöður með GPS?
ÞAÐ verður að teljast heldur
óvenjulegt, brúðarparið sem hér
sést. Enda ekki algengt að tveir
fiðraðir vinir gangi í það heilaga
upp á mannlegan máta. Svo er
engu að síður um þessa tvo dopp-
óttu pelíkana sem búa í dýra-
garðinum í Fuzhou í suðaustur-
hluta Kína. Kvenpelíkaninn
fannst í Hainan-héraði í Suður-
Kína og var handsamaður og
færður karlfuglinum sem hefur
verið búsettur öllu lengur í dýra-
garðinum og missti maka sinn
þar fyrir þremur árum.
Myndin er tekin við sérstakt
„brúðarhús“ sem komið var fyrir
á svæði fuglanna í tilefni brúð-
kaupsins. Reuters
Óvenjulegt
brúðkaup
Lónsöræfum, Öræfajökli og Esjunni. Hvort sem það
er til að ganga þar um eða njóta þess að horfa á.
Morgunstund. Besti tími dagsins til þess að njóta
rólegheita.
Expressó Róma kaffi frá Te og kaffi. Besta kaffið
og fer fjarskalega vel með góðri morgunstund.
Kakómikið súkkulaði. Bragðast best með kaffinu
góða.
Dagbjört mælir með
Morgunblaðið/G.Rúnar
Frímerkjateppi Frumlegheitin ráða för í bútasaumnum.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Mig hefur dreymt um aðeignast mótorhjól al-veg frá því ég var tán-ingur og ég lét draum-
inn loksins rætast fyrir fjórum árum
og keypti mér hjól. Ég nennti ekki
lengur að sitja aftan á hjólinu hjá
manninum mínum, en hann er líka
með þessa dellu. Ég fer ekki í nein
meiriháttar ferðalög á þessu hjóli,
snattast bara um hér í bænum og
skrepp í stutta túra eins og til dæmis
upp í Heiðmörk. Þetta er rosalega
gaman,“ segir Dagbjört Guðmunds-
dóttir sem er mikil hagleikskona og
lætur fáar stundir ónotaðar í frítíma
sínum.
„Ég er ekki mikið fyrir aðgerðar-
leysi og mér finnst ég koma miklu
meiru í verk og vera meira lifandi
þegar ég hef nóg að gera. Ég nærist
t.d. á útivist. Ég er mikill göngu-
garpur og ég fer mikið á fjöll. Í fyrra
fór ég í fimm daga gönguferð um
Kárahnjúkasvæðið yfir Brúárjökul
og inn á Kringilsárrana. Ógleym-
anleg ferð með stelpunum í Augna-
bliki, jóga kvölds og morgna. Í sum-
ar ætla ég að ganga um
Herðubreiðarlindir og Öskju. Svo er
ég líka á fullu í myndlistinni, ég er í
listaklúbbi sem heitir Art 11 og sam-
anstendur af ellefu konum sem voru
saman í Myndlistarskóla Kópavogs
hjá Bjarna Sigurbjörnssyni. Svo á ég
á líka helling af barnabörnum sem
þarf að sinna sem og börnunum mín-
um,“ segir Dagbjört sem er líka for-
maður Íslenska bútasaumsfélagsins.
„Við opnum sýningu í Gerðubergi
á morgun, laugardag, þar sem sýnd
verða bútasaumsverk sem unnin eru
í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli
Jónasar Hallgrímssonar. Unnið er
út frá ljóði Jónasar Ég bið að heilsa.
Það komu mjög ólíkar og skemmti-
legar útfærslur úr þessu,“ segir Dag-
björt sem sjálf á verk á sýningunni
sem líka er samkeppni því veitt verða
verðlaun fyrir besta verkið.
„Ég er svo ánægð með að Gerðu-
berg skuli hafa valið þetta ljóð því það
er uppáhaldsljóðið mitt eftir Jónas.
Þegar ég var lítil átti systir mín púða
sem var saumaður eftir þessu ljóði
með mynd af stúlku, fugli og fjöllum.
Ég var alltaf voða hrifin af þessum
púða en hann finnst ekki lengur.“
Í Gerðubergi verður sýning á
Evróputeppum sem eru bútasaums-
teppi frá sautján löndum. „Við ætlum
líka að sýna stórt og mikið búta-
saumsteppi sem er útskriftarverkefni
eftir karlmann í grafískri hönnun í
Listaháskólanum. Þá verður líka boð-
ið upp á námskeið í bútasaumi og ým-
islegt fleira.“
Dagbjört segir að á Íslandi sé fjöldi
fólks sem stundar bútasaum.
„Við erum með tæpa 500 meðlimi í
félaginu, en vitum af fullt af klúbbum
þar fyrir utan sem eru út um allt land.
Það er mikil virkni í þessu. Konur eru
í meirihluta í bútasaumsfélaginu en
þó er einn karl þar innanborðs. Þetta
er svo mikil tjáning og litagleði.“
Dagbjört saumaði sitt fyrsta búta-
saumsteppi fyrir þrjátíu árum en þá
var þetta ekkert byrjað hér heima.
„Ég fór bara eftir dönsku blaði.
Upprunalega er þetta gert út frá geó-
metrískum formum en það hefur
losnað um þau form og nú er þetta
líka frjálst. Bútasaumsfélagið stend-
ur fyrir fundum einu sinni í mánuði
og þá erum við með fræðslu, fyrir-
lestra og myndasýningar. Við erum
líka með verkefni sem við köllum
Teppi fyrir hetjur, en þá búa félags-
menn til teppi og gefa til Langveikra
barna.“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Töffari Á milli þess sem Dagbjört sinnir myndlist og bútasaum þá þeysir hún um á Hondunni sinni.
Listakona
á mótorfák
daglegtlíf
Þau seldu einbýlishúsið og
byggðu hesthús sem hefur að
geyma bæði sundlaug og
göngubretti fyrir hestana. »38
daglegt
Chile hefur verið eitt heitasta
ríkið í vínheiminum síðustu árin
og framhaldið segir Steingrím-
ur Sigurgeirsson lofa góðu. »36
vín
Hollir og ljúffengir meistara-
réttir létta lund bæði nemenda
og starfsfólks í Listaháskól-
anum. »34
matur