Morgunblaðið - 11.05.2007, Blaðsíða 60
60 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Bryndís Svav-arsdóttir fædd-
ist í Reykjavík 7.
apríl 1946. Hún lést
í Faro í Portúgal
laugardaginn 28.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Svavar Gests,
f. 17. júní 1926, d.
1. september 1996
og María Stein-
grímsdóttir hús-
móðir, f. 1. október
1928. Systkini
Bryndísar eru Hjör-
dís Guðrún, f. 25. júní 1949, maki
Gísli Steinar Jónsson. Hörður, f.
15. janúar 1960, maki Díana Sig-
urðardóttir. Gunnar, f. 26. sept-
ember 1962, maki Hrönn Ásgeirs-
dóttir. Hálfbræður Bryndísar
samfeðra eru Máni, f. 15. júní
1967, maki Þuríður Jónsdóttir og
Nökkvi, f. 29. júní 1971, maki Ás-
dís Wöhler.
Bryndís giftist 11. febrúar 1967
Óskari Hauki Friðþjófssyni hár-
skerameistara, f. 25. maí 1942, d.
26. nóvember 2000, og voru þau
Verzlunarbankanum í Banka-
stræti, síðar Íslandsbanka og
flutti á Kirkjusand við opnun nýs
útibús og höfuðstöðva bankans
þar. Á þeim rúmu 33 árum sem
hún starfaði hjá bankanum
gegndi hún margvíslegum störf-
um. Fyrst og fremst í þjónustu við
viðskiptavini, m.a. sem deildar-
stjóri en einnig sá hún um ýmis
námskeið og kom að opnun nýrra
útibúa bankans. Árið 1997 söðlaði
Bryndís um og starfaði um tíma
við fararstjórn á Kanaríeyjum. Er
hún flutti heim aftur starfaði hún
fyrir Spron við opnun nýs útibús
bankans. Síðustu ár starfaði hún
á köflum við verslunarstörf hér
heima og í Portúgal.
Hún sótti fjölmörg námskeið í
gegnum tíðina bæði tengd vinnu
og áhugamálum sínum. Ferðalög,
þá sér í lagi á suðrænar slóðir,
heilluðu Bryndísi alla tíð. Ótal
ferðir til suðrænna landa í styttri
og lengri tíma voru reglulegar.
Þar kynntist hún suðrænum döns-
um sem voru eitt af hennar helstu
áhugamálum ásamt því að sækja
tónleika hér heima sem hún gerði
ötullega alla tíð.
Útför Bryndísar verður gerð
frá Dómkirkjunni í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
gift í 32 ár. Faðir
hans var Friðþjófur
Adolf Óskarsson
hárskerameistari, f.
13. apríl 1916, d. 10.
júní 1967 og Krist-
jana Jósepsdóttir, f.
20. júlí 1918, d. 13
febrúar 2004. Bryn-
dís og Óskar eign-
uðust tvö börn, Mar-
íu Björk og Hauk.
María Björk, f. 30.
júlí 1967, er gift Þór
Sigurgeirssyni, f. 7.
apríl 1967. Börn
þeirra eru Dagur, f. 17. febrúar
1997, d. 17. febrúar 1997, Sara
Bryndís, f. 20. maí 1998, Arna
Björk, f. 24. apríl 2000 og Marta
Sif, f. 28. febrúar 2007. Haukur, f.
14. ágúst 1972, er í sambúð með
Huldu Bjarnadóttur, f. 6. apríl
1973. Sonur þeirra er Óskar Dag-
ur, f. 3. janúar 2000.
Bryndís ólst upp í Laugarnes-
hverfinu. Hún lauk gagnfræða-
prófi frá Vogaskóla árið 1962 og
starfaði í framhaldi við verslunar-
störf. Árið 1964 hóf hún störf hjá
Elsku besta mamma mín, afskap-
lega er ég tóm og sorgmædd þegar
raunveruleikinn blasir svo harka-
lega við mér. Þú ert farin frá mér
svo alltof fljótt, ég sem var alltaf að
vona að það kæmi betri tíð með
blóm í haga og meiri tíma. Það er
ótal margt óuppgert í huga mínum
enda fyrirvarinn að fráfalli þínu
enginn. Ég er að reyna að átta mig
á þessum örlögum, að þú skulir,
eins og pabbi, verða bráðkvödd
langt fyrir aldur fram, í bæði skipt-
in er ég með nýfætt barn og í bæði
skiptin fer Haukur út fyrir land-
steinana að sækja ykkur. Áföllin
hafa verið svo alltof mörg hjá okkar
litlu fjölskyldu síðustu 10 árin og
fórst þú ekki varhluta af þeim
fremur en við hin. Brotthvarf þitt
átti ekki að vera partur af þeirri
mynd nærri strax.
Þau eru mörg minningabrotin
sem fljúga í gegnum huga minn og
ég er reyna að grípa þau sem flest.
Alltaf varstu nú kletturinn okkar
sem hélst heimilinu í föstum skorð-
um þrátt fyrir allt og allt. Þú varst
alla tíð yndislega falleg innan sem
utan og elskaðir okkur Hauk tak-
markalaust þó að við sýndum þér
kannski ekki alltaf þann skilning
sem þú þurftir á að halda. Fram til
síðasta dags fann maður hversu
stolt þú varst af okkur og hve mikið
þú elskaðir barnabörnin – gullmol-
ana þína og gleðigjafa. Við vorum
lánsöm að eiga þig og mér finnst
leiðinlegt að hafa ekki þakkað þér
betur.
Ég man eftir sólbaðsstundunum
úti í garði í Efstasundinu, ég man
líka eftir ferðunum okkar saman til
útlanda þar sem við misstum okkur
í búðunum þ.e.a.s. þú hvattir mig
iðulega til að kaupa þetta og kaupa
hitt, Þór til mismikillar ánægju
þegar við komum heim með tösk-
urnar og kortareikninginn. Ég man
hve gaman mér þótti að koma í
bankann til þín en þar varstu svo
sannarlega í essinu þínu enda alla
tíð dýrkuð og dáð af viðskiptavin-
unum. Ég man viðbrögð þín þegar
spurt var um Maju en þú fullyrtir
að þarna byggi engin Maja bara
María. Ég man eftir tárunum þín-
um daginn sem ég flutti að heiman
og tárunum þegar við Þór misstum
litla drenginn okkar hann Dag. Ég
man líka eftir gleðitárunum þínum
þegar ég útskrifaðist úr Háskólan-
um og þegar yndislegu dæturnar
mínar þrjár fæddust.
Ítrekuð áföll á skömmum tíma
settu mark sitt á þig, elsku mamma
mín. Af öllu mínu hjarta vildi ég að
málin hefðu þróast á annan hátt. Að
ég hefði fundið vinningsformúluna í
stuðningnum því ég vildi þér aðeins
það besta, en ráð mín féllu eðlilega
kannski í misgóðan jarðveg þegar
ég brá mér í hlutverk uppalandans.
Á þessari stundu er gott að vita
að þú ert nú komin á fallegan og
góðan stað. Við vitum að þú ert bú-
in að hitta afa Óskar, elskulega Dag
okkar og öll hin. Við vitum að þau
tóku þér opnum örmum og umvefja
þig ást og umhyggju. Við vitum að
framvegis mun þér alltaf líða vel og
aldrei skorta neitt – það er okkur
sem eftir erum mikil huggun því þú
átt bara það besta skilið, elsku
mamma mín.
Þakka þér fyrir árin sem við átt-
um saman og fyrir að vera sú sem
þú varst. Ég sakna þín innilega. Ég
mun halda minningu þína í heiðri
um ókomin ár og kenna ömmu-
stelpunum þínum, þeim Söru Bryn-
dísi, Örnu Björk og Mörtu Sif allt
það góða sem þú kenndir mér. Ég
veit að Haukur mun gera slíkt hið
sama. Þú skilar kveðju til pabba og
gætir Dags fyrir mig þar til við
sjáumst á nýjan leik.
Megi góður Guð vernda þig og
styrkja okkur öll í sorginni. Hvíldu
í friði, elsku mamma.
Þín dóttir að eilífu,
María Björk.
Elsku mamma mín, með þessum
örfáu orðum langar mig að kveðja
þig elskan mín. Ég get ekki á nokk-
urn hátt skilið af hverju þetta
þurfti að gerast núna – þú áttir það
ekki skilið. Þú gafst mér líf og svo
traust og gott uppeldi. Þú gafst
mér endalausa ást og hlýju. Þú
gafst okkur Huldu vináttu og hjálp
eftir fremsta megni. Alltaf varstu
boðin og búin fyrir hann Óskar Dag
sem þú elskaðir svo mikið. Ég vildi
svo innilega eiga meiri tíma til þess
að endurgjalda þér þetta allt með
einhverju móti. Það verður því mið-
ur ekki í bráð. Ég held nú að þrátt
fyrir öll barnabörnin, sem voru þitt
líf og yndi, hafi ég nú alltaf verið
litli strákurinn þinn. Ég verð það
áfram og mun heiðra minningu
þína hvar sem ég kem. Ég bið góð-
an Guð um að finna þér stað þar
sem þér líður vel. Að finna þér stað
þar sem ást, umhyggja og hlýja er
mikil því það áttu svo sannarlega
skilið. Guð blessi þig elsku mamma
mín – ég sakna þín og mun ávallt
elska þig.
Þinn
Haukur.
Við ótímabært andlát tengda-
móður minnar er gengin mikil
gæðakona sem hafði virkilega
margt til brunns að bera. Það er
skrítið að Bryndísi aðeins 61 árs og
Óskari rakara tengdaföður mínum
heitnum sem lést árið 2000 aðeins
58 ára að aldri skyldi ekki vera gef-
inn meiri tími í þessari jarðvist með
okkur. Þau njóta því ekki ævi-
kvöldsins í faðmi barna og sístækk-
andi hópi barnabarna. Í staðinn
geymum við fallegar minningar um
þau.
Enn og aftur er höggvið skarð í
fjölskyldu okkar sem er vandfyllt.
Dætur okkar ömmustelpurnar Sara
Bryndís, Arna Björk, og nýskírð
Marta Sif sakna ástríkar ömmu og
vinar.
Ég kynntist Bryndísi vel árið
1987 þegar við María dóttir hennar
fórum að vera saman. Hún var eld-
hress, glæsileg og með skemmti-
lega kímnigáfu sem var mér aldeilis
að skapi. Við náðum því mjög vel
saman og ekki spillti svo að við er-
um bæði hrútar með sama afmæl-
isdag 7. apríl. Oft og iðulega í gegn-
um árin fékk ég einhverja
grín-afmælisgjöf frá Bryndísi sem
hitti auðvitað beint í mark. Alltaf
talaði hún um að þetta væri frá
hrúti til hrúts.
Hún var á þessum árum í
skemmtilegu starfi í Verzlunar-
bankanum og ófáa hefur maður hitt
á förnum vegi um dagana sem
minnast afburðaþjónustu hennar í
bankanum. Ég er á því að banka-
störfin hafi gefið henni kraft og
sjálfstraust því þar naut hún virð-
ingar og velgengni. Rík þjónustu-
lund var henni í blóð borin.
Ferðalög voru mikið áhugamál
Bryndísar og starfaði hún um skeið
við fararstjórn á Kanaríeyjum og
gekk vel. Síðari árin varð Portúgal
hins vegar árlega fyrir valinu þar
sem hún naut mikillar gestrisni
góðrar vinkonu sinnar Jóhönnu.
Síðustu ár hafa verið Bryndísi
þung í skauti af ýmsum ástæðum.
Hún bar sig þó yfirleitt vel, sinnti
barnabörnum sínum afar vel og var
alltaf að bera á þau gjafir og góð-
gæti. Þau voru henni ljós á erfiðum
stundum. Við Bryndís vorum ekk-
ert alltaf sammála en hún var frá-
bær tengdamamma sem naut virð-
ingar og ástar okkar.
Ég er þakklátur tengdamóður
minni fyrir allar þær skemmtilegu
stundir svo sem jólin og afmælin og
allt sem við höfum upplifað saman.
Hún setti svo sannarlega sinn svip
á þær stundir. Eins er ég ríkari
maður fyrir að hafa verið tekið opn-
um örmum inn í fjölskylduna í
Efstasundi á sínum tíma.
Það er öruggt mál að það hafa
verið fagnaðarfundir hjá ykkur
Óskari og líklega hefur fótboltast-
rákurinn okkar Dagur verið með
ykkur ásamt fleiri ástvinum sem
kvatt hafa á stund endurfundanna.
Elsku Bryndís mín! Ég þakka
þér samfylgdina af heilum hug og
mun gæta augasteina þinna hér um
ókomna tíð. Ég veit þú gerir slíkt
hið sama á þínum stað – frá hrúti til
hrúts…
Minningin um góða konu mun
lifa.
Þinn tengdasonur
Þór Sigurgeirsson.
Elsku Bryndís mín.
Sorgin er mikil við fráfall þitt og
Guð einn veit hve mikið hefur verið
lagt á Maríu og Hauk, nú við fráfall
þitt og áður við fráfall Óskars. Þú
þjáðist mikið þegar Óskar lést, en
erfiðast fannst þér sennilega að
horfa upp á börnin þín missa vin
sinn og föður. Nú við andlát þitt,
horfum við hin upp á elskulegu
börnin þín þjást sem aldrei fyrr. En
það yljar okkur öllum um hjarta-
rætur að hugsa til þess að nú munið
þið fá hvíldina saman, amma Bydda
og afi Óskar, bæði þó alltof ung til
að vera horfin á braut.
Það var gæfa mín í lífinu að eign-
ast þig sem tengdamóður. Frá
fyrsta degi tókstu mér með opnum
örmum og þú veittir mér þá vináttu
og hlýhug sem þú veittir börnum
þínum, enda var hugulsemi þín ein-
stök. Það var gaman að vera í
kringum í þig og þegar ég kynntist
þér varst þú oftar en ekki hrókur
alls fagnaðar, ekki síður í gleðskap
barna þinna. Það var ekki að
ástæðulausu sem vinir Hauks köll-
uðu þig „Byddu beib“, enda varstu
alltaf svo fín og flott til fara og fas
þitt heillaði fólk. Þú þekktir orðið
annan hvern mann úti á götu eftir
öll þín ár í bankanum, enda með
heillandi framkomu, jákvætt við-
mót og framúrskarandi þjónustu-
lund. Þú varst greinilega ein sú
allra besta í bænum í því hlutverki
og skal engan undra.
Tónlistin var þitt líf og yndi og
dáðist ég alltaf jafn mikið að því
hversu hugrökk og dugleg þú varst
að drífa þig ein á tónleika þegar
enginn annar komst með. Við hrút-
arnir látum ekkert stöðva okkur,
varstu vön að segja, enda hafðir þú
ekki lítið gaman af því að við
tengdabörnin þín værum fædd í
sama stjörnumerki og þú. Þú vitn-
aðir ýmist í sjálfa þig sem hrútinn
eða salsa-drottninguna, enda
tókstu ósjaldan salsa-sporin þín
fyrir okkur þegar sá gállinn var á
þér. Þær góðu stundir sem við átt-
um saman eru nú dýrmætari en
nokkru sinni fyrr. Þú komst fram
við alla af auðmýkt og virðingu og
munum við Haukur hafa þá mann-
kosti að leiðarljósi í uppeldi barna
okkar. Ég kveð góða vinkonu og við
í Rauðalæknum biðjum litlu engl-
ana á himnum að taka á móti þér og
lýsa niður til okkar hinna sem
sakna þín svo sárt.
Þín tengdadóttir og vinkona,
Hulda.
„Hún er búin að eignast kvígu“
hrópaði ég um allan Stafnsbæinn.
Ein af mínum fyrstu minningum er
sú þegar ég fékk að tala í símann í
Stafni, þar sem mér var tilkynnt að
elsta systir mín væri búin að eign-
ast barn. Ég var áhugasamur
strákur í sveit og vildi strax vita
hvort það væri naut eða kvíga.
Bydda var mín stóra systir og ég
var stoltur strákur í sveit.
En minningarnar eru svo marg-
ar. Man eftir stoltri móður sýna
nýja borðstofusettið sitt í Bólstað-
arhlíð, man eftir þrítugri konu í
Sigluvogi fá bíl í afmælisgjöf frá
frábærum eiginmanni, man eftir
húsmóður banna allt golfspil í stof-
unni, man eftir ótal heimsóknum til
skemmtilegrar systur sem alltaf
átti mjólk og kex, man eftir
skemmtilegum stundum í Efsta-
sundi, man eftir gleði, man eftir
sorg, man eftir stúlku og síðar konu
sem gaf sig 100% í áratugi fyrir
Verzlunarbankann – ekki bara fyrir
stjórnendur, heldur fyrst og síðast
fyrir viðskiptavinina. Man eftir svo
mörgum sem þykir vænt um systur
mína. Man eftir samræðunum og
man eftir tölvupóstunum – man eft-
ir ótal mörgu svo mörgu svo mörgu
– það er gott að eiga minningar.
Það er gott að eiga systur, gott
að geta leitað til og rætt um hluti,
það nýttist mér vel þegar að ég var
að alast upp. Nýttist mér síðar,
nýttist okkur báðum vel síðar – það
var gott að geta líka verið sá sem
hlustaði, gott að geta verið sá sem
leitað var til.
Samúðarkveðjur sendum við,
Hrönn, Tinna, Ásgeir og Ólöf Rún,
frændsystkinum mínum, þeim Mar-
íu Björk og Hauki, börnum þeirra
og fjölskyldum. Þau hafa misst
góða móður, ömmu og vin, sorg
þeirra er mikil. Mamma, María
Steingrímsdóttir, syrgir og biður
fyrir kveðjur til allra. Sendum öll-
um öðrum ættingjum, vinum og
samstarfsfólki samúðarkveðjur og
biðjum góðan Guð að styrkja alla
þá sem syrgja góða og fallega
stúlku sem vildi öllum svo vel. Með
Bryndísi er gengin ein sú vand-
aðasta og eftirminnilegasta kona
sem ég hefi kynnst.
Megi Guð vera með henni.
Gunnar Svavarsson.
Það var sólríkt síðsumarsíðdegi
um 1965 og garðshliðið við Skafta-
hlíð 13 stóð opið. Við bræður vorum
að skottast úti í garði og komum
auga á að þessar dyr að hinum for-
boðna og hættulega umheimi stóðu
opnar. Ég var fimm ára og vissi
ekki fyrr til en Gunnar bróðir minn
sem er tveimur árum yngri, hafði
stormað út um hliðið. Ég hef alla
tíð verið kvíðnari og varkárari en
Gunni og ég man vel eftir þeirri
togstreitu sem heltók mig þegar ég
kem út í hliðið og sé á eftir Gunna í
Bryndís Svavarsdóttir
Amma Bryndís var góð
kona. Við söknum hennar
mikið og elskum hana líka.
Það var leiðinlegt að missa
hana.
Við munum alltaf eiga
mynd af þér í hjartanu og
munum alltaf eftir þér. Þú
varst besta amma okkar.
Kær kveðja frá ömmu-
stelpunum þínum,
Sara Bryndís, Arna Björk
og Marta Sif.
Sofðu vært hinn síðsta blund,
uns hinn dýri dagur ljómar,
Drottins lúður þegar hljómar
hina miklu morgunstund.
(Vald. Briem)
Með Bryndísi er horfin
ræktarsöm kona. Ég þakka
henni góðan hug er hún
sýndi tónlistarsafni mínu hér
á Bíldudal. Ég bið börnum
hennar, systkinum og að-
standendum öllum blessunar
Guðs.
Jón Kr. Ólafsson söngvari,
Reynimel, Bíldudal.
HINSTA KVEÐJA
Samúðar og
útfaraskreytingar
Bæjarhrauni 2 • sími 565 0300
Hafnarfirði
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ANNA NIKULÁSDÓTTIR,
er látin.
Minningarathöfn fer fram frá Fossvogskapellu
föstudaginn 11. maí kl. 11.00.
Ólafur Reynir Sigurjónsson, Brynhildur Aðalsteinsdóttir,
María Knútsdóttir, Alf Bengtsson,
Tómas J. Knútsson, Magga Hrönn Kjartansdóttir,
Björn Ingi Knútsson, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.