Morgunblaðið - 11.05.2007, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2007 63
Elsku vinur.
Við munum fallega brosið þitt og
góðvild þína í okkar garð og þökkum
þér fyrir samfylgdina.
Ó, Jesús bróðir besti
og barnavinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.
(Páll Jónsson.)
Hvíl í friði elsku vinur.
Amma og afi á Hrafnistu.
Benedikt
Stein-
þórsson
✝ Benedikt Steinþórsson fædd-ist 11. maí 1984. Hann lést 26.
apríl síðastliðinn og var útför
hans gerð frá Grafarvogskirkju 4.
maí.
✝ Halldór PéturFerdinandsson
Eyfeld fæddist í
Hrísakoti á Sel-
tjarnarnesi 28. júní
1922. Hann and-
aðist á hjúkrunar-
heimilinu Sóltúni 3.
maí síðastliðinn,
þar sem hann bjó
síðasta árið. For-
eldrar hans voru
Þórdís Halldóra
Pétursdóttir hús-
freyja í Hrísakoti á
Seltjarnarnesi, f. 25
júlí 1893, d. 10. júní 1935 og Ferd-
inand Ríkharð Eyjólfsson Eyfeld
frá Hagakoti í Álftaneshreppi í
Gullbringusýslu, vélstjóri hjá
Landhelgisgæslunni og síðar með-
eigandi og frkv.stj. Vélsmiðjunnar
Odda á Akureyri, f. 30. okt. 1899,
d. 15. desember 1946. Systkini
Péturs eru: Sólveig, f. 17. apríl
1924, d. 12. apríl 1981, Eyjólfur, f.
29. ágúst 1927, d. 23. febrúar
1993, Systur þeirra samfeðra
voru Kristín Hulda, f. 29. janúar
1935, d. 1998, og Edda, f. 24. apríl
1941.
Pétur gekk 28. júní 1962 að
eiga Pálínu Guðrúnu (Lillu) Vídal-
ín Eyfeld húsfreyju, f. í Reykjavík
26. október 1936, d. í Reykjavík 1.
september 2001. Foreldrar henn-
ar voru Njála Eggertsdóttir, f. í
Reykavík 10.4. 1916, d. 21.4. 1989,
og Páll Vídalín Magnússon, f. á
Bjarnastöðum í Saurbæ 5.9. 1910,
d. 22.8. 1988.
Pétur og Lilla bjuggu fyrstu
búskaparárin sín á Víðimel 63.
1965 fluttu þau á Laugaveg 65 og
bjuggu þar öll sín hjúskaparár.
Pétur og Pálína Guðrún (Lilla)
13 ára. Systkinin voru send á
Barnaheimilið á Silungapolli, en
Pétur fór þaðan til Maríu föð-
ursystur sinnar, sem bjó í Banka-
stræti 14 í Reykjavík. Hún kom
honum til manns. Hann varð send-
ill í verslun suður í Skerjafirði, en
svo fór hann til starfa hjá Andrési
Andréssyni klæðskerameistara á
Laugavegi 3. Pétur lærði þar
klæðskeraiðn og útskrifaðist
1945. Árið eftir komst hann til
framhaldsnáms í embætt-
ishúfugerð í Svíþjóð. Er heim
kom, fór hann til starfa hjá Rein-
hold Andersen, sem rak herra-
fataverslun og húfugerð að
Laugavegi 2. Starfið þar hvíldi
brátt mikið á Pétri og svo fór, að
hann keypti fyrirtækið. P. Eyfeld,
húfugerð og herraverslun var svo
opnuð í Ingólfsstræti 1 árið 1954,
en flutti árið 1965 að Laugavegi
65, þar sem fyrirtækið starfar
enn.
Pétur fór á Landakotsspítala
2005, en hefur svo verið nærri ár
í Sóltúni, þar sem hann lést, á 85.
aldursári.
Pétur starfaði sjálfstætt allan
sinn starfsaldur og konan hans
starfaði við hlið hans til margra
ára. Sonur Péturs og alnafni
starfaði með honum síðustu 26 ár-
in og lærði handverkin. P. Eyfeld
var fjölskyldufyrirtæki þar sem
öll fjölskyldan lagðist á eitt að
vinna saman svo allar stúdents-
húfurnar væru afgreiddar á rétt-
um tíma, Njála, Guðbjörg, Þórdís,
Ragnheiður og Róbert hafa öll
starfað í fyrirtækinu ásamt fleiri
fjölskyldumeðlimum. Barnabörnin
Ragnheiður, Eggert, Róbert, Pét-
ur Karl og Hreindís hafa öll leikið
sér með nál og tvinna á gólfinu
hjá ömmu og afa.
Pétur verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
eignuðust tvö börn,
þau eru: 1) Þórdís
Eyfeld, f. í Reykjavík
5. október 1958, unn-
usti Lars F. Rickelt,
f. 8. desember 1954,
dóttir Lars er Nele,
f. 20 mars 1992.
Fyrri maki Þórdísar
var Gaukur Gunn-
arsson, f. 29. mars
1964. 2) Pétur Ferd-
inand, f. í Reykjavík
13. apríl 1961, maki
Guðbjörg Erna
Karlsdóttir, f. 19.
apríl 1965. Börn þeirra eru Pétur
Karl, f. 16. janúar 1994 og Hrein-
dís Guðrún, f. 17. apríl 1997. Son-
ur Péturs Ferdinands af fyrra
hjónabandi með Ingunni Ein-
arsdóttur er Róbert Einar, f. 31.
desember 1979. Fyrir átti Pétur
Eyfeld, Sigrúnu, f. 10. janúar
1950, d. 13. janúar 2006, maki
Bogi Magnússon, f. 10. september
1950. Börn þeirra eru Magnús, f.
13. nóvember 1974 og Guðríður
Stella, f. 7. desember 1981. Fóst-
urdóttir Péturs og dóttir Lillu er
Njála Sigurbjörg Vídalín, f. 20.
desember 1953, maki Gísli Ólafs-
son, f. 30. desember 1949. Börn
þeirra eru Ragnheiður Vídalín, f.
2. september 1973, maki Hilmir
Kolbeins, f. 3 nóvember 1975,
dóttir þeirra er Aþena Rún, Egg-
ert Vídalín, f. 11. ágúst 1975, í
sambúð með Eddu Sif Sævars-
dóttur, f. 20. ágúst 1976, börn
þeirra eru Sigríður Ósk, f. 23.
apríl 2001, og Eggert Orri, f. 31.
janúar 2004.
Þórdís móðir Péturs fékk
berkla og fór á hælið á Vífils-
stöðum. Hún lést þegar hann var
Þá er komið að kveðjustundinni,
pabbi minn. Þegar ég sat hjá þér
daginn áður en þú fórst sá ég kær-
leikann í augunum á þér, þegar ég
hvíslaði að þér að allt væri í lagi. Við
þurftum aldrei að segja hvort öðru
hversu vænt okkur þótti um hvort
annað, við bárum virðingu fyrir
hvort öðru alla tíð. Við vissum bæði
að þitt líf væri að taka enda.
Þegar ég rifja upp æskuárin þá
man ég eftir mér þar sem þú leiddir
mig niður Laugaveginn, við áttum
margar góðar ferðir niður á pósthús-
ið. Ég var lítil stúlka, hélt um einn
putta og við ræddum um daginn og
veginn.
Þegar ég var lítil stelpa þá sagði
ég góðan daginn við viðskiptavininn
en þá sagðir þú að ég ætti að segja
góðan dag, alltaf svo fágaður, vildir
kenna mér gott mál og að koma vel
fyrir. Þegar ég var að skrifa beiðn-
irnar þá skrifaði ég löðreglan en ekki
lögreglan og þú leiðréttir það var-
færnislega hjá mér. Þegar uppreisn-
arárin gengu í garð, og ég byrjaði að
skrópa í skólanum þá kom félagsráð-
gjafinn í búðina til þín að kvarta yfir
mér. Seinna fékk ég að vita að þú
hefðir vísað henni á dyr. Þennan dag
kom ég heim og lét sem ég hefði ver-
ið í skólanum. þá sagðir þú við mig að
ef ég vildi ekki vera í skóla, þá yrði
ég auðvitað að fara að vinna. Þú
varst alveg rólegur og hef ég aldrei
skammast mín jafn mikið og þá. Eft-
ir þessa uppákomu var ég dugleg að
mæta í skólann. Á mínum uppreisn-
arárum varstu alltaf til staðar fyrir
mig, alveg sama hvaða vitleysu ég
tók upp á, þá bjargaðir þú mér út úr
henni. Þú skammaðir mig aldrei. Ég
gat alltaf leitað til þín. Seinna fór ég
að vinna hjá þér og átti ég góð ár
niðri á Laugavegi hjá þér, mömmu
og Pétri bróður.
Þú fékkst langt og gott líf og nú er
tími til að kveðja.
Ég ímyndaði mér að hún mamma
mín væri komin og kannski foreldrar
þínir líka til að sækja þig. Stundin
var runnin upp og tilfinningaböndin
breyta um lit. Þú munt lifa áfram í
hjarta mér og þar sem enginn verður
gamall eða veikur. Þar sem bara er
gaman og skálað í guðaveigum
Elsku pabbi minn, mig langar til
að þakka þér fyrir samferðina í
þessu lífi.
Þórdís Eyfeld.
Elsku afi. Þá er komið að kveðju-
stund. Nú ferð þú og hittir ömmu og
er ég viss um að það verða fagnaðar-
fundir þar sem þú hefur saknað
hennar mikið. Ég mun ávallt minn-
ast þín við saumavélina enda varstu
eiginlega alltaf við hana. Ef þú tókst
þér pásu þá var það til að fá smá
sætabrauð eða nammi. Enda hef ég
aldrei kynnst öðrum eins súkku-
laðigrís. Ég vona að þú fáir þá hvíld
og frið sem þú beiðst eftir. Ég mun
ávallt minnast þín. Ég vil enda þetta
með þínum orðum sem þú sagðir við
eiginmann minn þegar hann fékk að
taka viðtal við þig vegna ritgerðar
sem hann gerði. „Ég pæli ekkert
mikið í ævikvöldinu, ég hef lifað góðu
lífi og hef haft góða heilsu, þannig að
ég óttast ekki endalokin.“
Ragnheiður Vídalín Gísladóttir
Pétur Eyfeld
Ég lifi’ í Jesú nafni,
í Jesú nafni’ eg dey,
þó heilsa’ og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti’ eg segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.
(Hallgrímur Pétursson.)
Barnabarnabörn
HINSTA KVEÐJA
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
✝
Hjartans þakkir sendum við öllum fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug vegna andláts ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
VILHJÁLMS RÚNARS HENDRIKSSONAR,
er lést á Sjúkrahúsi Akraness mánudaginn
30. apríl.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna.
Aðalheiður A. Oddsdóttir,
Dagbjartur Kr. Vilhjálmsson, Þórdís Sveinsdóttir,
Jón Ragnar Vilhjálmsson, Anna Kristín Guðnadóttir,
Aðalheiður Ósk Dagbjartsdóttir.
✝
Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs föður okkar,
BJARNA Þ. VIGFÚSSONAR.
Ingibjörg Bjarnadóttir, Einar Baxter,
Vilborg Bjarnadóttir, Þorgils Jónasson,
Gunnhildur Bjarnadóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og
útför elskulegs sonar okkar, bróður og barnabarns,
BENEDIKTS STEINÞÓRSSONAR.
Guðrún Björk Benediktsdóttir, Hreggviður Þorsteinsson,
Steinþór Benediktsson, Hildur Guðbjörnsdóttir,
Jóna B. Guðlaugsdóttir, Benedikt J. Ágústsson,
Matthildur Guðbrandsdóttir, Benedikt Þorvaldsson,
systkini og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
sem okkur var sýnd við andlát og útför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
JÓHANNS SIGURÐAR BJÖRGVINSSONAR,
Gautlandi 7,
Reykjavík.
Klara Sjöfn Kristjánsdóttir,
Sigurður Björgvin Jóhannsson, Gyða Ragnarsdóttir,
Bergljót Jóhannsdóttir, Einar Þórðarson,
Ásta Margrét Jóhannsdóttir, Kristján Bragason,
Björg Jóhannsdóttir, Haukur Þorvaldsson,
Kristján Jóhannsson, Sigurrós Erlendsdóttir,
Jóhann Már Jóhannsson, Lady Hendrawatie,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra,
GUÐMUNDA LÁRA GUÐMUNDSDÓTTIR,
Munda,
áður til heimilis í Skarðshlíð 2d,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hornbrekku laugardaginn 5. maí.
Útförin fer fram frá Höfðakapellu, Akureyri, mánudaginn 14. maí kl. 13:30.
F.h. vina og ættingja,
Guðrún Lóa Kristinsdóttir.
✝
Sonur okkar og bróðir,
PÉTUR BIERING JÓNSSON,
Vættaborgum 82,
Reykjavík,
sem lést fimmtudaginn 3. maí, verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju mánudaginn 14. maí kl. 15.00.
Þóra Biering, Jón Snorrason,
Sveinn Biering Jónsson,
Henrik Biering Jónsson.