Morgunblaðið - 11.05.2007, Side 68
68 FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
BRÁÐUM KEMUR SÁ
TÍMI ÁRSINS...
ÞEGAR MJÚKUR
SNJÓRINN FELLUR
TIL JARÐAR...
OG ÞAÐ FÓLK BYRJAR
AÐ ELDA JÓLAMATINN
ÞESSIR
KENNARAR
EGGJA-
SKURN...
JÁ, OG
EGGJA-
SKURN
ÉG HELD AÐ ÞEIR SÉU ALLTAF
AÐ FARA Á TAUGUM... ÞEIR
HUGSA UM OF MIKIÐ Í EINU
KENNARA FUNDI,
EINKUNNASKIL, PASSA UPP Á
BÖRNIN, FORELDRAFUNDIR...
ÞAÐ ER LANGT
SÍÐAN ÞÚ ÞURFTIR AÐ
KASTA UPP SÍÐAST. ÉG
ÆTLA AÐ MÆLA ÞIG
EGG ÞARR
ADD GUUA
HVAÐ
SAGÐIR
ÞÚ
KALVIN?
EGG
ÞARR
ADD
GUUA!
AF HVERJU
SAGÐIR ÞÚ
ÞAÐ EKKI
STRAX? DRÍFÐU
ÞIG FRAM!
ÉG VAR BÚIN AÐ
SEGJA ÞÉR AÐ ÞETTA
VÆRI VINNUFERÐ...
EN EF ÉG
HEF TÍMA
SEINNA...
ÞÁ GETUM VIÐ
FARIÐ TIL LONDON
AÐ VERSLA
ÞIÐ HAGIÐ
YKKUR EKKI EINS
OG ÁLFAR! HVAÐ
HEITIÐ ÞIÐ?
ÉG HEITI
TEITUR OG
ÞETTA ER
KÚTUR
ÞETTA ERU DVERGA-
NÖFN! ÞÚ ERT EKKI
ÁLFUR ÞÚ ERT HUNDUR!
STOPP!
HANN
ER AÐ
HAGA SÉR
EINS OG
PURKUR
DRÍFÐU
ÞIG BARA
GLÁMUR!
ÞESSIR LED ZEPPELIN
AÐDÁENDUR ELSKA
OKKUR!
ÉG RÆÐ EKKI VIÐ MIG,
ÉG VERÐ AÐ LÍFGA AÐEINS
UPP Á ÞETTA... ÞAÐ TEKUR
ENGINN EFTIR ÞVÍ
ÚPS!
Á MEÐAN BÚNINGURINN
MINN ER Í TÖSKUNNI ÞÁ TEK
ÉG EKKI AUGUNA AF HENNI
NÚNA ÆTLA ÉG AÐ
SLAPPA AF OG HÆTTA AÐ
HUGSA UM NOKKUÐ SEM
TENGIST OFURHETJUM
MYNDIN
SEM VIÐ
SÝNUM Í
FLUGINU Í
DAG ER...
...„BATMAN
SNÝR AFTUR“
Æ,
NEI!
dagbók|velvakandi
Fátækt er staðreynd
ÉG HEF verið að hlusta á frambjóð-
endur í fjölmiðlum undanfarið. Þeg-
ar farið er að tala um velferðarmálin
og fátæktina þá harðneita stjórnar-
liðar að nokkuð sé að. Svo byrjar
sama gamla lumman um aukinn
kaupmátt sem var 60% fyrir nokkr-
um dögum, en hefur hækkað í 75%
þegar nær líður kosningum. Allir
eiga að hafa svo gott og líka þeir
lægst launuðu. Ég er verkamaður og
þekki því vel til mála. Fólk verður að
leggja mikla aukavinnu á sig til að
geta skrimt. En það er heldur ekki
meira en svo. Það er hart að fram-
bjóðendur skuli voga sér að tala
svona við okkur tilvonandi kjós-
endur. Þeir væru meiri menn, í mín-
um augum, ef þeir myndu viður-
kenna vandann og reyna að lagfæra
hlutina. En sjálfsagt er lítil von til
þess. Kannski er mikill pólitískur
vilji til að viðhalda fátækt hér á Ís-
landi, hver veit? Það þarf engar reik-
nikúnstir til að sjá hvað fátækt hefur
aukist mikið hér undanfarin ár og
hvað erfitt er hjá mörgum. Við skatt-
greiðendur borgum alþingismönnum
mjög góð laun fyrir utan mörg
hlunnindi sem þeir hafa. Að lokum
vil ég segja þetta, að atkvæði þeirra
fátæku vega jafnþungt og hinna.
Halli verkamaður.
Upplifun
SÍÐDEGIS í gær fékk ég sjálfa Jó-
hönnu Sigurðardóttur í stutta heim-
sókn. Hef aldrei séð hana augliti til
auglitis en tel hana – og hennar mál-
stað Íslendingum til mikilla heilla.
Hún hefur flest. Þessi sjarmerandi
kona færði mér rauða rós sem lyktar
yndislega og færir mínu koti ilm,
sem er ekki dagsdaglega. Aldrei áð-
ur hafa konur fært mér blóm. Ég er
sjálfstæðismaður 75% og veit að XD,
– og með yfirtöku heilbrigðisráðu-
neytis – mun 25% fara að líða betur
með tíð og tíma.Við erum ung þjóð
sem byggir það besta. Danir, ásamt
öðrum, lögðu þann grundvöll að við
töldumst til siðmenntaðra. Flest
virðist stefna í að Íslendingar veki
athygli á heimsvísu.
Að fá rós frá sjálfri Jóhönnu Sig-
urðardóttur vermdi hjarta mitt og
sál. Í landhelgisdeilu urðu allir Ís-
lendingar einhuga. Íslendingar voru
ekki sammála árið 1944. Með vin-
semd og virðingu.
Helgi Steingrímsson,
130643-3889.
Týnd læða
AÞENA Mandý er lítil svört læða, ca
2½ árs, nett, gljásvört með nokkur
hvít bringuhár. Hún hvarf 1. maí frá
heimili sínu í Þingholtunum, Lauf-
ásvegi 39 og hefur ekki sést síðan.
Hún er ómerkt og gelt og örlítið fæl-
in. Hennar er sárt saknað. Vinsam-
legast hafið samband í síma 694-1831
Heiðveig, eða 820-4462 Rósa. Fund-
arlaun.
Ferðataska tapaðist
FYRIR ca 10 árum tóku hjón, sem
keyrðu hjá BSR, ferðatösku í pant.
Eru ættingjar vinsamlegast beðnir
um að hafa samband í síma 847 1096,
Heiðrún.
Eyrnalokkur í óskilum
GULLEYRNALOKKUR fannst sl.
föstudagskvöld í verslun í Kringl-
unni. Upplýsingar gefur Sigurlaug í
síma 588-1188 eða 895-1985.
Peningur tapaðist
VERÐLAUNAPENINGUR fyrir
dans tapaðist í Laugardalshöllinni á
meistaramóti í dansi, 5. til 6. maí. sl.
Hans er sárt saknað. Uppl. í síma
822-6869. Fundarlaun.
Morgunblaðið/Árni Torfa
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
FRÉTTIR
ÍÞRÓTTA- og ólympíusamband Ís-
lands, ÍSÍ, hefur samið til þriggja
ára við Vodafone um fjarskipta-
þjónustu fyrir sambandið. Stefán
Konráðsson, framkvæmdastjóri
ÍSÍ, og Ómar Svavarsson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og þjónustu-
sviðs Vodafone, skrifuðu undir
samninginn í húsakynnum ÍSÍ á
dögunum.
Í tilkynningu segir að með samn-
ingnum lækki verulega fjarskipta-
kostnaður ÍSÍ, sem á hverjum degi
vinnur að því að hagræða í rekstri
og tryggja gæði þjónustunnar við
aðildarfélög og almenning í land-
inu.
Stefán Konráðsson segir samn-
inginn mikilvægan fyrir ÍSÍ, ekki
síst vegna þeirra miklu möguleika
sem hann skapi á lækkun símkostn-
aðar erlendis. Framundan sé t.d.
ferð með 200 manna hóp á Smá-
þjóðaleikana í Mónakó þar sem nýi
samningurinn muni strax sanna
gildi sitt fyrir ÍSÍ.
Fjarskiptaþjónusta Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, og Ómar
Svavarsson, framkvæmdastjóri hjá Vodafone, ganga frá samningnum.
ÍSÍ samdi við Vodafone