Morgunblaðið - 27.05.2007, Blaðsíða 79
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27. MAÍ 2007 79
Náðu jafnvægi
Fiat Punto
Eknir kílómetrar á ári: 15 þús.
Koltvísýringslosun: 4,1 tonn
Kolefnisjöfnun: 5.764 kr.
Fyrir það verða
gróðursett 39 tré.
B A K H J A R LA R :
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
7
Bindum kolefni
með skógrækt.
Farðu inn á
www.kolvidur.is
Í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU
föstudaginn 17. ágúst kl. 19.00
MIÐASALA: HALLGRÍMSKIRKJA - 12 TÓNAR -
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ, KRISTNISJÓÐUR, REYKJAVÍKURPRÓFASTSDÆMI EYSTRA OG
VESTRA, HOLLENSKA SENDIRÁÐIÐ, MINNINGARSJÓÐUR MARGRÉTAR BJÖRGÓLFSDÓTTUR
Í HALLGRÍMSKIRKJU
lokatónleikar hátíðarinnar
sunnudaginn 19. ágúst kl. 19.00
Styrkt af
Reykjavíkurborg
2 0 0 7
einsöngvarar:
Robin Blaze kontratenór, Kirstín Erna Blöndal sópran, Elfa Margrét
Ingvadóttir sópran, Eyjólfur Eyjólfsson tenór, Alex Ashworth baritón,
Hrólfur Sæmundsson baritón og Benedikt Ingólfsson bassi
Alþjóðlega barokksveitin í Den Haag og SCHOLA CANTORUM
stjórnandi: Hörður Áskelsson
ÍSRAEL Í EGYPTALANDI
eftir GEORGE FRIDERIC HANDEL
Óratóría í þremur þáttum - frumflutningur á Íslandi
Í SKÁLHOLTSDÓMKIRKJU
mánudaginn 13. ágúst kl. 19.00
Í HALLGRÍMSKIRKJU
opnunartónleikar hátíðarinnar
laugardaginn 11. ágúst kl. 17.00
sunnudaginn 12. ágúst kl. 20.00
„ É g v i l l o f s y n g j a D r o t t n i “
K I R K J U L I S TAHÁT Í Ð
FESTIVAL OF SACRED ARTS
MESSA Í H-MOLL
eftir JOHANN SEBASTIAN BACH
einsöngvarar:
Monika Frimmer sópran, Robin Blaze kontratenór,
Gerd Türk tenór og Peter Kooij bassi
Alþjóðlega barokksveitin í Den Haag og Mótettukór Hallgrímskirkju
stjórnandi: Hörður Áskelsson
11. - 19. ágúst
w w w. k i r k j u l i s t a h a t i d . i s
!
"
# $
%!
& '
(
$)
*
+,
"-
-
%!
. '
'
$
#
KVIKMYNDIR
Reykjavík Shorts & Docs
Annað líf Ástþórs
Íslensk heimildamynd. Leikstjórn, klipp-
ing, taka, framleiðsla og handrit: Þor-
steinn Jónsson. Viðmælendur: Ástþór
Skúlason, Skúli Hjartarson, Ólöf Matt-
híasdóttir o.fl. 66 mín. Kvikmynd. Ísland.
2007.
ÖKULEIÐIN upp frá Rauðasandi
er með þeim glæfralegustu á land-
inu, örmjóar, krappar beygjurnar
hanga utan í bröttum Bjarg-
götudalnum. Ekkert má út af
bera, þá tekur hengiflugið við,
eins og henti Ástþór Skúlason,
ungan mann og bónda á Rauða-
sandi vestur. Bíllinn valt með
þeim alvarlegu afleiðingum að
mænan skaddaðist og Ástþór lam-
aðist á fótum, en ekki að sjá að
annað sé heilt.
Hvað gera menn eins og Ást-
þór? Þorsteinn leitar svara með
því að draga upp portrett af
manninum með rólegum og athug-
ulum hreyfingum tökuvélarinnar.
Hann virðir viðfangsefnið fyrir sér
úr náinni fjarlægð og veltir því
íhugull fyrir sér. Þorsteinn er
vandvirkur heimildamyndagerð-
armaður, árangurinn er sá að eftir
því sem á líður kemst áhorfandinn
í snertingu við sterkan persónu-
leika Ástþórs Skúlasonar.
Hann er sterkur og harð-
duglegur og lætur ekkert undan
óveðrum lífsins frekar en mik-
ilúðlegt umhverfið sem mótaði
hann. Brött fjöllin sem girða af
sveitina hans í næsta nágrenni
Látrabjargsins, grænt og búsæld-
arlegt vallendið, síðan seiðandi
ægissandurinn, rómaður fyrir feg-
urð, og hafið úti fyrir í öllum sín-
um myndum. Ef á að reyna að
finna þekkta samlíkingu þá minnir
þessi skarpleiti og stælti náungi
með dökkt hökuskegg og hár, ei-
lítið sposkur en með viljafestu í
hverjum andlitsdrætti, á leiðtog-
ann, hinn trausta og óbifanlega
Robert De Niro, sem Michael í
The Deer Hunter. Slíkir menn
gefast ekki upp.
Fylgst er með Ástþóri í sjúkra-
þjálfun í Reykjavík, en mestum
tíma er varið í sveitinni, við al-
menn jafnt sem ólíklegustu störf
sem honum tekst að ljúka við eins
og þar fari alheill maður. Ástþór
heyjar, hugsar um dýrin, þeysist
um á bílum og fjórhjólum, bregður
sér á hestbak, gerir við vélar,
bætir sprungið dekk, skýtur varg
og fer á sjó með félögunum – svo
eitthvað sé nefnt. Engu er líkara
en að lömunin hái honum ekki
þótt maður skynji líkamlegt erf-
iðið og sársaukann.
Við kynnumst heimilisfólkinu á
bænum, foreldrum, systur og unn-
ustu, sem öll standa eins og klett-
ur með Ástþóri, þótt ekki sé ein
báran stök í sjúkrasögu heim-
ilisfólksins. Við eigum notalegar
stundir með því er það ræðir bú-
skaparmálin og framtíðarhorf-
urnar.
Draumur Ástþórs er að vera
bóndi í sinni fallegu sveit og með
viljastyrk, þvermóðsku og góðra
manna og véla hjálp er hann að
rætast. Ástþór er ekki maður sem
velur auðveldu leiðina og áhorf-
andinn fær sterkari trú á lífið eftir
kynnin við þennan vestfirska
galdramann sem sækir styrk í
landið, dýrin og lífið og lætur
óblíð örlög ekki buga sig. Megi
hann yrkja sinn reit sem lengst.
Sæbjörn Valdimarsson
Flest er fötluðum fært