Morgunblaðið - 21.10.2007, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.10.2007, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ kaupa íslenskt því aldrei eiga betur við en núna. „Engu að síður getur maður velt fyrir sér hversu lítið eða mikið íslensk vara ferðast. Vara sem þú kaupir – mjólk, lambakjöt eða annað – getur auðveldlega verið búin að ferðast tvisvar, þrisvar sinnum um landið þvert og endilangt.“ Ástæðan er samþjöppun afurðastöðva, þ.e. mjólkurstöðva og sláturhúsa með tilheyrandi flutningi. Ekki eru mörg ár síðan bændur í Borg- arfirði höfðu val um að senda gripi í slátrun t.a.m. í Borgarnes, að Laxá í Leirársveit eða í Búðardal. Eftir að öll þessi sláturhús voru aflögð er sláturfé flutt núna úr Borgarfirði á Selfoss eða Hvammstanga til þess eins að verða flutt til baka í formi lambakjöts eigi sveitungarnir að gæða sér á því, nú eða til Reykjavíkur standi til að selja það í verslununum í höfuðborginni. Eðlilega er ferskmeti á borð við lambakjöt flutt landleiðina á áfangastað en eftir að strandsigl- ingar lögðust af fyrir nokkrum árum gildir hið sama um allan annan varning, innlendan sem innfluttan. Þá skiptir engu hvort um er að ræða mótatimbur, klósettpappír eða kíví. Stefán hrist- ir höfuðið. „Ég veit eiginlega ekki hvað gerðist,“ segir hann ráðvilltur á svip. „Að öðru jöfnu er klárlega loftslagsvænna að fara sjóleiðina fyrir utan hvað við lendum í miklum vandræðum með vegina okkar vegna þessara flutninga.“ Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri starfsþróunar- og samskiptasviðs Eimskips, kann skýringar á þessu. „Strandflutningar höfðu farið minnkandi og þegar þeim var loks hætt voru innan við 20% flutt með skipum en um 80% með bílum. Þegar Kísiliðjunni var lokað minnk- uðu flutningar enn frekar og þá var endanlega ákveðið að hætta strandflutningum enda hafði strandflutningurinn verið rekinn með umtals- verðu tapi. Viðskiptavinir kusu auk þess al- mennt að fá vörur með bílum enda tók það mun skemmri tíma.“ Hún segir að talsvert þurfi til að strandsiglingarnar verði teknar upp aftur. „Mið- að við óbreyttar aðstæður er ljóst að við erum ekki með strandflutninga á teikniborðinu. Það gæti breyst ef tekinn yrði upp ríkisstyrkur eða flutningar myndu aukast. Þó verður að líta til þess að stór hluti flutninga myndi samt sem áð- ur fara með bílum þar sem viðskiptavinir vilja margir hverjir ekki bíða t.d. í viku eftir vörum. Þá þarf líka að líta til þess að tvöföldu kerfi fylgir alltaf ákveðin óhagkvæmni.“ Eftir því sem flutningarnir ganga hraðar berj- um við meira á loftslaginu. Sýnu verstir eru flutn- ingar með flugi því ein flugvél eða þota mengar margfalt á við flutningabíl. Jarðarber í janúar ættu því kannski ekki endilega að vera svo sjálf- sögð krafa eftir allt saman. „Sölufélag garðyrkjumanna er með töflu á heimasíðunni sinni,“ bendir Hulda á. „Þar sýna þeir hvenær árs er hægt að fá hvaða grænmeti til að hvetja fólk til að velja það sem er bundið árstíðum. Það kostar nefnilega ekki bara flutn- inga að bjóða fersk jarðarber í upphafi árs því janúar er ekki eðlilegur uppskerutími fyrir jarð- arber, ekki einu sinni á Spáni. Sennilega hefur þurft óvenju mikla orku við framleiðslu þeirra.“ Já, vel á minnst, framleiðsluorkan. Það er annað atriði sem vert er að hafa í huga við inn- kaup, þ.e. hversu mikil orka var notuð við fram- leiðslu vörunnar. Viljið þið vita af hverju steik er betri fyrir loftslagið en nautahakk? Af því það þurfti orku til að knýja hakkavélarnar. Því meira sem varan er unnin, þeim mun meiri orka fór í vinnsluna. Þeim mun meira hefur líka sloppið af gróðurhúsalofttegundum út í andrúmsloftið, einkum ef varan var framleidd erlendis. Sér- staða okkar Íslendinga felst nefnilega í því að við búum við loftslagsvænni orku en gengur og gerist annars staðar í heiminum. Og það í sjálfu ekki séð ljósið í slíkum búskap því lífræn ræktun og kjötframleiðsla er hverfandi hérlendis. Margir benda hins vegar á að íslenskur landbúnaður sé svo hreinn og ómengaður að sáralítið vanti upp á að hann sé lífrænn í raun. „Sé miðað við dæmigerðan evrópskan búskap er það alveg rétt,“ samsinnir Stefán. „Sumir segja að varan sé því næstum því jafn góð. Ég er nú ekki sam- mála því en ef svo væri – hvernig á ég að treysta því ef vottunina vantar? Þetta er eins og ef ég ætlaði að selja notaðan bíl sem ég vissi að væri í toppstandi. Sé hann ekki skoðaður skiptir engu hvað ég segi við kaupandann. Hann getur ekki treyst því að bíllinn sé í lagi nema hann hafi ein- hvern stimpil frá óháðum aðila um að svo sé.“ Ekki er öll sagan sögð þótt tekið sé tillit til staðsetningar verslunar, flutninga vörunnar og vottana um lífræna ræktun eða umhverfi. Um- muninn á þessum vörum og öðrum þó ekki endi- lega eðlilegan. Sé lífræna varan tvöfalt dýrari í frumframleiðslu haldist sá verðmunur í gegnum allt verðmyndunarferlið þar sem milliliðir leggi hlutfallslega á verð vörunnar, í stað krónutölu. Tuttugu hreinsiefni? Þegar öllu er á botninn hvolft gerum við um- hverfinu og loftslaginu þó mest gagn með því að hugsa okkur tvisvar um áður en við kaupum yf- irhöfuð. „Við spyrjum okkur allt of sjaldan að því hverjar þarfir okkar eru,“ segir Hulda þegar þetta ber á góma. „Vissulega þurfum við næringu, fatnað og fleira en stór hluti af innkaupum dags- ins í dag er tilbúnar þarfir. Upp úr 1984 tóku Sví- ar eftir því að innflutningur á tilbúnum efnum, s.s. hreinlætisvörum, olíum o.fl. jókst til muna. Þegar þeir fóru að brjóta þetta til mergjar fundu þeir út að um þetta leyti jukust sjónvarpsauglýs- ingar til muna. Áður hreinsaði fólk einfaldlega með grænsápu en í dag telur það sig þurfa alls kyns sérhæfð hreinsiefni. Kannski gætum við skorið niður þarfir okkar þar því sennilega þurf- um við ekki 20 mismunandi hreinsiefni.“ Stefán tekur undir þetta. „Oft er spurt hver eigi að taka fyrsta skrefið, stjórnvöld, fyrirtæki eða neytendur? Þeir síðastnefndu ráða þessu auðvitað – ekki bara af því að þeir eru neytendur heldur líka af því að þeir eru kjósendur. Við kjós- um ekki bara á fjögurra ára fresti í kjörklefanum heldur í hvert skipti sem við stöndum frammi fyr- ir vöruhillu í búðinni. Þá á fyrsta spurningin að vera hvort við þurfum þetta nokkuð? Og ef svarið er neitandi gengur maður bara að næstu hillu.“ „Úff, alltaf að neita sér um hluti,“ kemur upp í hugann og þegar Stefán býður meira kaffi er hann því spurður snúðugt hvort hann hefði ekki frekar átt að bjóða upp á vatn? Kaffið er jú flutt um langan veg og unnið á orkufrekan hátt. Ekki stendur á svari. „Jú, vissulega, en hér er enginn að tala um að fólk fari að lifa einhverjum meinlætalifnaði upp á vatn og brauð sem það bakar sjálft. En ef valið stendur milli þess að kaupa nautahakk úr Borgarfirði eða frá Nýja- Sjálandi er sjálfsagt að kaupa það fyrrnefnda. Ef ætlunin er hins vegar að kaupa kíví þá er það ekki ræktað í Borgarfirði. Þá verður bara að hafa það – ekki ætla ég að fara að boða að fólk eigi að neita sér um kíví.“ Enda hvað er eitt kíví til eða frá? Aftur komum við að smæð einstaklingsins – hvað gagnast að neita sér um stærri flatskjá meðan Siggi á sautján er með fjóra í fullum gangi? „Þessi umræða átti kannski erindi fyrir 10-15 árum en í dag höfum við ekki tíma til að hika,“ segir Hulda. „Við þurfum að gera eitthvað núna. M.a.s. stjórnvöld taka undir það. Það getur vel verið að Siggi í næsta húsi gefi skít í þessa hugsun núna en það mun breytast því umhverfið er takmörkuð auðlind. Og svo gæti farið að í framtíðinni yrði Siggi litinn hornauga fyrir að ganga á auðlind okkar allra.“  Talið er að Svíar noti 1,62 milljarða plastpoka á ári sem gerðir eru úr 52 milljónum olíulítra. Yfirfært á Ís- land væru það 54 milljónir poka og 1,7 milljónir olíulítra. Valdið í veskinu E r ekki eitthvað bogið við það að versla með tveimur konum í einu? Heldurðu að fólk stari ekki bara á okkur?“ spyr Loftur spúsu sína, Ísafold, þegar þau stíga út úr bílnum á planinu fyr- ir framan stórmarkaðinn. Þar eiga þau stefnumót við Líf, leiðbeinanda sinn á námskeiðinu „Vistvernd í verki“, sem ætlar að sýna þeim hvernig þau geta gert umhverfisvæn innkaup fyrir helgina. „Hættu þessu, Loftur,“ segir Ísa- fold önug. „Hvað?“ segir Loftur. „Þú hefur séð þáttinn í sjónvarpinu um mann- inn sem er kvæntur þremur konum. Kannski heldur fólk að ég stundi fjöl- kvæni?“ „Láttu þig dreyma, karlinn,“ svar- ar Ísafold sposk á svip. Líf tekur fagnandi á móti þeim við innganginn. „Jæja, krakkar, eigum við að láta slag standa?“ spyr hún hressilega. Líf er þessi galvaska týpa sem myndi hvorki láta öldurót né aurskriður hefta för sína. „Hún veit hvað hún vill, þessi,“ hugsar Loftur og veltir því fyrir sér hvort það væri yfir höfuð eftirsókn- arvert að eiga fleiri en eina konu. Líf og Ísafold virða hann grunlausar fyr- ir sér í þessum þönkum og hann  Út í loftið Umbúðalaust búðir vörunnar skipta líka máli enda er umbúða- framleiðsla mjög orkufrekur iðnaður. Í flestum tilfellum eru umbúðirnar framleiddar erlendis með fulltingi óloftslagsvænnar orku. Stór hluti umbúðanna, s.s. plast, er beinlínis úr jarð- efnaeldsneyti þ.e. olíu og flutningurinn á umbúð- unum til landsins kostaði líka orku. Loks mun það krefjast ákveðinnar orku að farga eða end- urvinna umbúðirnar. Í síðara tilfellinu þarf einnig að flytja þær utan til endurvinnslu svo orkuferill þeirra er langur og strangur. Síðustu umbúðirnar sem rata utan um vörurn- ar okkar eru svo plastpokarnir sem flestir grípa með sér við kassann. Á því sviði voru ömmur okkar langt á undan sinni samtíð þar sem þær örkuðu út í mjólkurbúð með heimagerðu inn- kaupanetin. Möguleikana í þessu hafa stóru tískuhúsin uppgötvað. „Nú eru alls konar frægir hönnuðir að hanna taupoka fyrir innkaup,“ segir Hulda. „Það er aldeilis frábært því innkaupa- pokar úr taui henta kannski fleirum ef þeir eru smart eða skemmtilegir útlits.“ Hafandi þessar ágætu leiðbeiningar í fartesk- inu ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að hafa loftslagið á bak við eyrað þegar verslað er. En líf- ið er ekki alltaf svo einfalt. Hinn græni og væni neytandi rekst gjarnan á að framboð vara sem uppfylla ofangreind skilyrði er af skornum skammti og dýrari að auki. Stefán telur þó verð- sér gerir íslenskar vörur enn fýsilegri fyrir þá sem hafa loftslagið í huga við innkaup. Seljum ekki bílinn óskoðaðan Björninn er þó ekki unninn þótt varan sjálf hafi ekki þurft að fara um langan veg áður en hún rat- aði í innkaupakörfuna. „Jógúrt er ekki bara jóg- úrt,“ útskýrir Stefán. „Það eru alls konar auka- hlutir í því. Ef það er jarðarberjajógúrt koma jarðarberin einhvers staðar frá og múslíið kemur kannski frá öðrum stað. Dollan utan um jógúrtið kemur svo frá þriðja staðnum og lokið á dolluna frá þeim fjórða. Þannig að það hvaða leið sjálf varan og aðföngin í hana eru flutt er oft miklu flóknara dæmi en maður getur ímyndað sér og um leið hversu mikið af gróðurhúsaloftteg- undum hefur sloppið út við þennan flutning.“ Svo eru það umhverfismerktar og lífrænar vörur sem sjálfsagt er að velja umfram aðrar þótt merkingarnar gefi ekki vísbendingar um ferðalagið sem vörurnar eiga að baki. „Umhverf- isvæn vara getur verið flutt jafn langt og önnur,“ segir Stefán. „Hins vegar er sjálf framleiðslan, orkunotkunin, aðföngin og flutningur aðfang- anna líklega loftslagsvænni en í tilfelli hinnar vörunnar. Við getum líka reiknað með því að í líf- rænum landbúnaði sé losað minna af gróð- urhúsalofttegundum en í venjulegum búrekstri.“ Einhverra hluta vegna hafa íslenskir bændur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.