Morgunblaðið - 21.10.2007, Page 23
yfirmaður íranska heraflans, hefur
tekið til sinna ráða til að sýna vald
sitt og rak fyrir skömmu forustu-
menn bæði byltingarvarðarins og
basij-þjóðvarðliðsins.
Sérfræðingar um málefni Írans
telja að þetta hafi verið gert til að
blása nýju lífi í herinn, sérstaklega
vegna þess að komið gæti til átaka
við Bandaríkjamenn. En einnig er
til þess tekið að herforingjarnir,
sem var vikið til hliðar, voru nánir
Ahmedinejad og höfðu lagt hart að
sér að koma stefnu hans í gegn á
undanförnum tveimur árum.
Þótt Ahmedinejad haldi upp-
teknum hætti með árásum á
Bandaríkin í ræðum og yfirlýsing-
um ræður hann ekki yfir þeim
stofnunum, sem ákveða hvert
framhald kjarnorkuáætlunar Írans
verður og hvernig samskiptum við
alþjóðasamfélagið verður háttað.
Hótunin um refsiaðgerðir vofir yfir
og íranskt viðskiptalíf – að ekki sé
talað um almenning – hefur fundið
fyrir sársauka einangrunar.
Þátttaka og tengsl forustumanna
Írans við viðskiptalífið gera það að
verkum að ekki má vanmeta áhrif
viðskiptaþvingana. Efnahagslífið er
eini þátturinn í írönsku samfélagi,
sem Ahmedinejad hefur umtalsvert
vald yfir. Í þeim efnum hefur
frammistaða hans hins vegar verið
veik og yfirlýsingar hans gera ein-
ungis illt verra vegna þess að þær
auka á einangrun Írans frá efna-
hagslífi heimsins.
Þegar deilurnar við Vesturlönd
harðna er því mikilvægt að hafa í
huga þær valdasviptingar, sem nú
eiga sér stað í lítt gagnsæju stjórn-
málakerfi Írans. Ahmedinejad
kann að ganga lengra og lengra
með hverri yfirlýsingunni, en hann
hefur ekki vald til þess að standa
við þær. Staðreyndin er reyndar sú
að aðeins hernaðarátök við Banda-
ríkin geta veitt honum aðgang að
ákvörðunarvaldinu á ný. Þeir, sem
móta utanríkisstefnu Bandaríkja-
manna, ættu að hafa það í huga.
Höfundur skrifaði bókina The Last
Marja: Sistani and the End of Tradi-
tional Religious Authority in Shiism.
Hann er sjía-guðfræðingur með
menntun frá Qom og Sorbonne í París
og starfar um þessar mundir tíma-
bundið við Washington Institute for
Near East Policy.
©Project Syndicate, 2007.
ekki á tombóluverði. Sölurnar á
Michael Essien, Mahamadou Diarra
og Florent Malouda staðfesta að for-
svarsmenn frönsku meistaranna
gefa ekki þumlung eftir við samn-
ingaborðið.
Sjálfur lætur Benzema sér fátt um
finnast. Hefur margsagt að hann sé
hæstánægður hjá Lyon – þar slái
hjartað. En sjáum hvað setur.
Draumabyrjun með
„þeim bláu“
Benzema átti að þreyta frumraun
sína með landsliðinu gegn Grikkjum
fyrir tæpu ári en hrökk úr skaftinu
vegna meiðsla. Í mars rann stóra
stundin hins vegar upp og ekki var
glímuskjálfti Benzema fjötur um fót
– hann gerði sigurmarkið í 1:0-sigri
á Austurríkismönnum með hnitmið-
uðu skoti eftir vel útfærða auka-
spyrnu Francks Ribérys. Alls hefur
kappinn nú gert 3 mörk í 6 lands-
leikjum. Það er ágætisbyrjun.
Þess má til gamans geta að Zid-
ane var orðinn 22 ára þegar hann
skrýddist bláa búningnum í fyrsta
skipti.
Benzema er ekki eini uppalning-
urinn hjá Lyon sem látið hefur ljós
sitt skína á vettvangi landsliðsins að
undanförnu en jafnaldri hans, út-
herjinn Hatem Ben Arfa, kom við
sögu í báðum leikjunum í síðustu
viku. Skoraði í Færeyjum og átti
drjúgan þátt í fyrra marki Henrys
gegn Litháum. Voru þetta hans
fyrstu landsleikir. Ben Arfa hefur
verið iðinn við að leggja upp mörk og
marktækifæri fyrir Benzema hjá
Lyon í haust og binda Frakkar mikl-
ar vonir við samvinnu þeirra félaga á
komandi árum og misserum.
Eins og nafnið gefur til kynna á
Ben Arfa einnig rætur að rekja til
Norður-Afríku. Foreldrar hans
koma frá Túnis.
Verst að við Íslendingar eigum
engar gamlar nýlendur. Þá myndi
Eyjólfur ef til vill hressast.
Birting lýsingar 19. október
Fyrsti viðskiptadagur 23. október
Skráning í kauphöll
A
R
G
U
S
/
0
7
-0
8
2
5
SPRON hf. gefur út lýsingu í tengslum við skráningu félagsins í kauphöll og var birtingardagur
hennar föstudagurinn 19. október 2007. Lýsingin er birt á heimasíðu SPRON, www.spron.is, og auk
þess í fréttakerfi kauphallar og á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins. Innbundin eintök verður hægt að
nálgast frá 22. október næstkomandi og næstu tólf mánuði hjá SPRON Ármúla 13a í Reykjavík.
OMX Nordic Exchange Iceland hefur samþykkt að skrá
SPRON hf. á Aðallista OMX og taka hlutabréf SPRON
hf. til viðskipta frá og með þriðjudeginum 23. október
næstkomandi.
Hlutafé
Heildarfjöldi útgefinna hluta í SPRON hf. er
5.004.000.000 og er hver hlutur 1 kr. að nafnverði.
Hlutirnir eru gefnir út rafrænt í kerfi Verðbréfaskrán-
ingar Íslands. Hlutirnir eru allir í einum flokki og allir
jafn réttháir. Samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er
einstökum hluthöfum aldrei heimilt, fyrir sjálfs sín hönd
eða annarra, að fara beint eða óbeint með meira en 5%
af heildaratkvæðamagni nema SPRON-sjóðurinn ses.
sem fer með atkvæðisrétt í samræmi við hlutafjáreign
sína á hverjum tíma. SPRON-sjóðurinn er stærsti hluthafi
SPRON og á nú 15,0% hlut. Stefna sjóðsins er að beita
sér ekki eða hafa áhrif á stjórn SPRON að öllu jöfnu og
langtímamarkmið sjóðsins er að eign hans nemi ekki
meira en 5%.
Fyrirhuguð viðskipti 23. október
SPRON-sjóðurinn ses. er tilbúinn að selja í viðskiptakerfi
kauphallar að hámarki 4,8% hlut í SPRON hf. á fyrsta
viðskiptadegi. Markmiðið með sölunni er að stuðla að virkri
verðmyndun á markaði. Kaupþing banki hf. mun hafa
milligöngu um viðskiptin. Þegar og ef SPRON-sjóðurinn
hefur selt 60% af áætluðu magni eða í síðasta lagi klukkan
14.00 á fyrsta viðskiptadegi eiga tveir viðskiptavakar valrétt
á að kaupa af honum hluti í SPRON að fjárhæð 300 milljónir
króna hvor á vegnu meðalverði þeirra hluta sem SPRON-
sjóðurinn hefur selt í viðskiptakerfi kauphallar fram að þeim
tíma.
Viðskiptavakt
SPRON hefur samið við Kaupþing banka hf. og Saga Capital
Fjárfestingarbanka hf. um viðskiptavakt á hlutabréfum
félagsins eftir skráningu á OMX ICE. Viðskiptavakar munu
sjá um markaðsvakt frá og með öðrum viðskiptadegi, 24.
október 2007. Sömu skilmálar eru á vakt beggja aðila.
Lágmark kaup- eða söluandvirðis tilboða er 15 milljónir
króna og hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern
150 milljónir króna að markaðsvirði. Munur á kaup- og
sölutilboðum er að hámarki 1,0% og frávik frá síðasta
viðskiptaverði að hámarki 3,0%.
Útgefandi: Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis hf.
Umsjónaraðili: Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hf.
Reykjavík, 19. október 2007
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 23
» Að mínu mati þarf að upp-lýsa jafnt stjórnmálamenn
og fjárfesta mun betur en gert
hefur verið um kosti og mögu-
leikana sem felast í nýtingu
jarðvarma.
John W. Lund , fráfarandi forseti IGA
(Alþjóðajarðhitasambandið) og forstjóri
Geo-Heat Center hjá Oregon Institute
of Technology, sem hér var staddur í
t i lefni af aðalfundi IGA og tók þátt í
haustþingi Jarðhitafélags Íslands.
» En ef við megum ekkibera saman flóru vöruteg-
unda er ekki nokkur leið fyrir
okkur neytendur að átta okkur
á því hvort verðlag sé svona
eða hinsegin.
Gylfi Arnbjörnsson , framkvæmdastjóri
ASÍ um yfirlýsingu Haga, eiganda Bón-
uss, Hagkaupa og 10-11, sem meinaði
Alþýðusambandi Íslands að gera
verðkannanir hjá verslunum sínum.
» Þetta er bara framhaldiðaf þeirri upphlaupapólitík
sem keyrði Sjálfstæðisflokkinn
út í skurð og þeir ættu að
læra af.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri , eft ir
að Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir , borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagði í
fréttum RÚV að þjónustusamningur
mill i OR og REI breyttu forsendum
samruna REI og Geysis Green Energy
og byrja ætti málið upp á nýtt og ógilda
fundinn þar sem samruninn var ákveð-
inn.
» Ég hef ekki nokkraástæðu til að fara með
rangt mál í þessu og það kom
alls ekki fram á þessum fundi
að um væri að ræða 20 ára
einkaréttarsamning. Það er
bara rangt að halda slíku
fram.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson , fráfarandi
borgarstjóri , en orð hans stangast á við
staðhæfingar Bjarna Ármannssonar,
stjórnarformanns REI, Hauks Leósson-
ar, stjórnarformanns OR, og Hjörleifs
B. Kvarans, forstjóra OR, sem halda því
fram að hafa kynnt Vilhjálmi samning-
inn 23. september.
» Ég vona, borgarfulltrúiBjörn Ingi Hrafnsson, að
þú gerir þér grein fyrir því og
gerir það strax að við sjáum
ekki nokkurn skapaðan hlut
eftir þér.
Jórunn Frímannsdóttir , borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, á fyrsta fundi
borgarstjórnar eftir að nýr meirihluti
hafði tekið völdin.
» Sá sem er ábyrgur fyrirliðinu er þjálfarinn og við
skoðum stöðu hans á næstu
dögum.
Geir Þorsteinsson , formaður Knatt-
spyrnusambands Íslands, eft ir að ís-
lenska landsliðið í fótbolta tapaði 3:0
fyrir Liechtenstein.
» Follow the money, cherchez la femme,
finndu Finn.
Árni Snævarr , upplýsingafulltrúi Norð-
urlandanna hjá Sameinuðu þjóðunum,
setti fram kenningu um undirl iggjandi
afl í ís lenskum stjórnmálum í umræðum
um Orkuveituna og borgarstjórnarmál í
Kastljósi á mánudag.
Vísaði hann þar t i l þess að í Bandaríkj-
unum væri lykil l inn að rekja slóð pen-
inganna, í Frakklandi væri spurt hvar
konan væri, en á Íslandi þyrfti að f inna
Finn Ingólfsson.
Ummæli vikunnar