Morgunblaðið - 21.10.2007, Page 87
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 87
E
N
N
E
M
M
/ S
ÍA
/ N
M
3
0
3
3
4
MYNDLIST
Fótógrafí – Árni Torfason
Norræna húsið – Samsýning
ljósmyndara, Airwaves, So far.
Fótógrafí er opið mán.-fös. frá kl. 12-18,
lau. og sun frá 10-16. Sýningu lýkur 3.
nóvember. Aðgangur ókeypis.
Norræna húsið er opið mán.-fös. frá kl. 8-
17, lau. og sun. frá 12-17. Sýningu lýkur
21. október. Aðgangur ókeypis.
NÚ á dögum Airwaves hafa bæði
ljósmyndagalleríið Fótógrafí og
Norræna húsið brugðið upp sýn-
ingum af ljósmyndum frá Airwa-
ves-tónleikum. Hjá Fótógrafí er
það einkasýning Árna Torfasonar
sem þekur sýningarrými gallerís-
ins með myndum sínum af íslensk-
um og erlendum stjörnum. Marg-
ar fantagóðar ímyndir í ágætum
takti við hætti eða framkomu
hljómsveitanna. Þannig er mynd
frá Kraftwerk-tónleikum álíka stíf
og fjarlæg og hljómsveitin kemur
fram (eða kemur reyndar ekki
fram), hreyfðar myndir, s.s. hjá
Foo Fighters eða Maus, gefa til
kynna kraftmikla sveiflu og þann-
ig má lesa í myndirnar. Helst þyk-
ir mér Árni sækja í einhverskonar
goðlegar ímyndir enda er hann að
mynda goð samtímans. Til að
mynda gefur sjónarhorn sem hann
tekur af Þresti í Mínus til kynna
einhvern mikilfengleika, en Þröst-
ur breytist auðvitað í þrumugoð
þegar hann missir sig á bassann.
Einnig notar Árni glampa frá ljós-
kösturum til að kalla fram þessar
goðlegu ásýndir, t.d. í mynd af
Duran Duran og auðvitað Nick
Cave sem blessar lýðinn með ljós-
geisla rétt ofar höfði.
Árni á einnig verk á sýningunni
í anddyri Norræna hússins og er
hann jafnframt sýningarstjóri
þeirrar sýningar. En auk hans
sýna Sigurjón Guðjónsson, Brynj-
ar Gunnarsson, Auðunn Nielsson,
Eyþór Árnason, Hörður Sveins-
son, Auður Sigbergsdóttir, Pétur
Óskarsson, Óskar Hallgrímsson og
Rúnar Sigurður Sigurjónsson.
Eins og með sýningu Árna í Fó-
tógrafí er þetta fyrst og fremst
heimildasýning í tilefni af Airwa-
ves og ýmsar forvitnilegar ímynd-
ir á boðstólum, en anddyrið er
frekar takmarkað og slitið þannig
að flæði í upphengi verður ekki
eins spennandi og í einkasýning-
unni.
Jón B.K. Ransu
Goð
sam-
tímans
Morgunblaðið/Árni Torfason
Sjónarhorn Þröstur í Mínus
breytist í þrumugoð.
LEIKKONAN unga Lindsay
Lohan ætlar að lifa lífinu til fulls.
Nú herma fregnir að stúlkan sé
trúlofuð. Haft er eftir lífverði
hennar að hún hafi játast Riley
nokkrum Giles, sem hún hitti á
Cirque Lodge-meðferðarstöðinni
í Utah, en þar var Lindsay í tvo
mánuði í áfengis- og fíkniefna-
meðferð.
Fyrir helgi sást hún kaupa sér
nýjan hring í verslun í Los Ang-
eles, en hún neitaði að svara
spurningum um meinta trúlofun
sína. Undanfarna daga hafði
reyndar verið eftir því tekið að
hún skartaði Cartier-hring á
baugfingri, en talsmenn hennar
hafa neitað því að hún sé trúlof-
uð. Nú er hún komin með hring á
löngutöng. Hún hefur reyndar
ekkert farið leynt með tilfinn-
ingar sínar til Giles sem er at-
vinnusnjóbrettakappi. Haft var
eftir henni: „Mér finnst frábært
að honum skuli þykja fyndið að
ég sé Hollywood-stjarna. Hann
hefur góðan húmor.“
Lohan lofuð
Reuters
Lofuð Lindsay Lohan
SÖNGKONAN Whitney Houston kom
á óvart þegar hún mætti í Swarovski
Fashion Rocks-góðgerðarpartí á
fimmtudagskvöldið síðasta.
Gestir horfðu með aðdáun á stjörn-
una þegar hún kom fram á sviðinu í Al-
bert Hall í London í flottum Valentino-
kjól til að kynna eina af tískusýningum
kvöldsins. Haft var á orði að hún hefði
ekki litið eins vel út lengi.
Houston hefur barist lengi við fíkni-
efnadjöfulinn en hún skildi við vand-
ræðagemsann Bobby Brown fyrr á
þessu ári.
Þegar dívan mætti á rauða dregilinn
sagði hún: „Ég veit að það hefur verið
sagt áður en ég vil segja það aftur –
takk fyrir stuðninginn og já, ég mun
alltaf elska ykkur.“
Það voru Uma Thurman og Samuel
L. Jackson sem tóku á móti gestum í
veisluna sem var haldin til styrktar
góðgerðarsjóði Karls Bretaprins.
Fram komu m.a. Dame Shirley Bas-
sey, Alicia Keys, Lily Allen, Joss Stone
og Timbaland. Sýnd voru föt frá merkj-
um eins og Burberry, Calvin Klein,
Chanel, Gucci, Stellu McCartney og
Yves Saint-Laurent.
Auk Houston létu sjá sig stjörnur á
borð við Gwyneth Paltrow, Claudiu
Schiffer, Naomi Watts og Kate Moss.
Houston
snýr aftur
Reuters
Komin aftur Whitney Houston