Morgunblaðið - 21.10.2007, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.10.2007, Blaðsíða 32
heilsa 32 SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Undanfarin ár hefurþrengt æ meir að reyk-ingamönnum hér á landirétt eins og víðast hvar á Vesturlöndum. Það er löngu orðin viðtekin sjón að sjá örfáar úti- legukindur híma utan í opinberum stofnunum jafnt sem einkafyr- irtækjum í ýmsum veðrum og streitast við að brosa í kampinn. En getur hugsast að kappið gegn reykingabölinu hafi einhvers staðar farið af leið? Er hugsanlegt að áherslur í svonefndum reyk- ingavörnum séu á einhvern hátt misráðnar og fara þurfi öðru vísi að? Helga Jónsdóttir, prófessor í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og forstöðumaður hjúkrunar lang- veikra fullorðinna á Landspít- alanum, telur svo vera. Hún segir það auk þess hluta vandans að það séu í auknum mæli tilteknir þjóð- félagshópar hér sem víðar á Vest- urlöndum sem enn reyki – hópar sem eigi oft erfitt með að stíga það skref sem reykleysismeðferð felur í sér. Fordæmingin tilgangslaus Á dögunum var haldið málþing í Þjóðmenningarhúsinu á vegum Lýðheilsustöðvar, hjúkrunar- fræðideildar Háskóla Íslands og Reykleysismiðstöðvar A-3 á Land- spítala. Yfirskrift ráðstefnunnar var Efling meðferðar til reykleysis – aðgerðir íslenskra heilbrigðisyf- irvalda í tóbaksvörnum. Þar hélt Helga erindi meðal annarra og nefndi það Reykleysismeðferð fyrir alla. Hún vill að Íslendingar skipti um kúrs í því hvernig komið sé til móts við reykingamenn sem vilja drepa í fyrir fullt og fast. Hún vísar þar í fyrirmynd Breta, en bresk kona, Jennifer Pervical, hélt ein- mitt erindi á umræddri ráðstefnu um „Bresku leiðina“ í tóbaks- vörnum. Nú hefur staðið yfir harður áróð- ur gegn reykingum um árabil og komnar upp kynslóðir fólks sem hefur alist upp við hann. Hefur for- dæming á reykingum og reyk- ingamönnum gengið of langt hér? „Hún hefur bara engan tilgang. Óbeinar reykingar eru hættulegar og það er réttur fólks að fá vernd fyrir þeim. En það þarf að draga línurnar þar. Það má ekki stimpla reykingafólk minna virði. Ég lít á reykingar sem heilsufarsvandamál sem fólk þurfi aðstoðar við, rétt eins og ef það hefur astma eða hjartasjúkdóm. Við erum reyndar að tala um fíkn. Tóbaksfíkn hefur sérstök einkenni. En fólk þarf að fá hliðstæða aðstoð. Það er ljóst samkvæmt íslenskri heilbrigðisáætlun til 2010 að það er markmið að minnka reykingar en aðgerðir hafa ekki fylgt nægilega vel þar á eftir. Fólk verður að gera sér ljóst að ef á að fjarlægja reyk- ingar úr daglegu lífi þá verður að aðstoða þá sem reykja. Við erum komin langt með að koma á algeru reykingabanni hérlendis. En slíku banni verður að fylgja aðstoð við fólk sem vill hætta reykingum. Sú aðstoð er í algeru lágmarki í ís- lensku samfélagi. Á hinn bóginn höfum við fyrirmynd frá Bretlandi, þar eru mjög markvissar aðgerðir. Það eru aðgerðir sem kosta fólk mjög lítið en þær markast af ákveðnum ramma. Fólk þarf að fara og leita sér stuðnings og reglu- bundinnar ráðgjafar og þá fær það nikótínlyf á mjög lágu verði. Hér er fólk að greiða nikótínlyf fullu verði. En tóbaksnotkun er flokkuð sem fíknsjúkdómur og því skyldi hún ekki meðhöndluð þá á sama hátt og önnur fíkn og aðrir sjúkdómar? Ég get trúað að vandinn felist dálítið mikið í því að fólk vill ekki reyna að skilja í hverju fíkn felst. Að það sé ekki nóg að vilja hætta. Það kemur í ljós að þrír af hverjum fjórum reykingamönnum vilja hætta en ekki nema lítið brot getur hætt af sjálfsdáðum.“ Þegar þú segir fólk ekki vilja skilja fíknina áttu þá líka við heil- brigðisstéttir? „Ég er að tala um almenning, ekki þá sem reykja, þeir eru vænt- anlega ofurseldir fíkninni. En við sem eigum að vita og kunna; við höfum heldur ekki verið til í að horfast í augu við það hversu erfið tóbaksfíkn er. En vissulega þarf viljastyrk og góðar aðstæður og það þarf að skipuleggja sig vel ef maður ætlar að hætta.“ Er það sérstakt átak fyrir t.a.m. fólk í heilbrigðisstéttum að læra að skilja sjálfa fíknina? „Já, og ég held að það sé þar sem við þurfum að taka okkur mest á. Það er stundum sagt að tóbaksfíkn sé verri en heróínfíkn. Og í huga okkar er heróínfíkn eitthvað skelfi- legt. En það eru til lyf sem hafa áhrif á starfsemi heilans og eiga að hjálpa til við að glíma við þessa fíkn.“ Lesið í sögu hvers og eins Helga skrifaði m.a. grein í Tíma- rit hjúkrunarfræðinga í fyrra um þessi mál. Þar segir hún reykleys- ismeðferð hér einkum hafa snúist um hina náttúruvísindalegu hlið. Hún þurfi hins vegar að beinast meira að persónu og sögu hvers og eins sjúklings. Hún talar þar um mikilvægi þess að lesið sé í sögu hvers einstaklings og metnir áhrifa- valdar þar. „Við viljum laga meðferðina að hverjum og einum einstaklingi,“ segir Helga. „Til þess að vita hverj- ar einstaklingsbundnar þarfir eru þarf að tala við viðkomandi ein- stakling, fá sögu hans og finna hvað hentar hverjum og hvenær. Fólk þarf að ráða því sjálft hvernig við hjálpum því áfram. Þetta byggist mikið á samræðum, umhyggju, áhuga og hvatningu. Hrós er mik- ilvægt og eins að viðkomandi ein- staklingur hrósi sér og umbuni þeg- ar svolítill árangur næst þótt hann sé ekki alger og endanlegur. Þegar fólk hefur ákveðið að hætta reykingum þarf það m.a. að átta sig á við hvaða aðstæður það reykir. Og hvers vegna er það svona gott? Það hefur komið í ljós í rannsóknum að stundum var nikó- tínfíknin ekkert svo sterk og í raun réðu aðstæður því meira hvenær fólki fannst best að reykja. Hvaða sígarettu væri erfiðast að sleppa. Því eitt er að vilja hætta, annað að fyrirbyggja að byrja aftur. Og þar þarf að lesa í væntanlegar kring- umstæður. Sumir segja að þetta sé meira og minna félagssakapurinn, þetta sé ekkert svo rosalega gott. Er þá hægt að gera eitthvað annað í þeim félagsskap eða finna kannski annan félagsskap? Þetta þarf fólk allt að lesa í um sjálft sig. Stundum byrjar fólk aftur að reykja þegar það bragðar áfengi. Þá er spurning um að sjá til þess að áfengi og tób- ak fari ekki saman í byrjun reyk- bindindis. Við höfum heyrt fólk segja að sígarettan sé eini vinur þess. En ég held að það sé þá betra að átta sig á því. Þá dæmir maður sjálfan sig kannski ekki eins hart, maður er þá ekki þessi voðalegi aumingi.“ Svo þetta snýst um að byggja upp nýtt sjálfsálit meðfram með- ferðinni? „Já. En fólki er heldur ekki alveg sjálfrátt, fíknin tekur völdin og kall- ar á tóbakið. Því er ekki hægt að segja bara að viljinn sé allt sem Morgunblaðið/Frikki Drepið í æsingarlaust Helga Jónsdóttir, pró- fessor í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og forstöðumaður hjúkr- unar langveikra fullorð- inna á Landspítalanum, telur að í kappinu gegn reykingabölinu hafi ekki alltaf verið staðið rétt að málum. Hún sagði Hallgrími Helga Helga- syni að áherslur í reyk- ingavörnum ættu m.a. að felast í að heilbrigð- isþjónustan byði upp á ókeypis reykinga- meðferð. Heilsufarsvandamál Helga Jónsdóttir, prófessor í hjúkrunarfræði, lítur á reykingar sem heilsufarsvandamál, sem fólk þurfi að leita sér aðstoðar við, rétt eins og ef það hefði astma eða hjartasjúkdóm. Slíka aðstoð segir hún að sé í algjöru lágmarki á Íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.