Morgunblaðið - 21.10.2007, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 21.10.2007, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 69 Kæri vinur. Í dag hefðir þú orðið átján ára ef Guði hefði ekki legið svona mikið á að fá þig til sín í sínar englaraðir. Kannski er það Guðmundur Ingi Ólafsson ✝ GuðmundurIngi Ólafsson fæddist á Akureyri 21. október 1989. Hann lést á gjör- gæsludeild Land- spítalans í Fossvogi 8. nóvember 2006 og var jarðsunginn frá Hólaneskirkju á Skagaströnd 18. nóvember. þannig með Guð eins og okkur mennina, okkur liggur stundum svo mikið á, við getum ekki beðið eftir hlut- unum. Auðvitað vild- um við öll hafa þig hjá okkur í þessu lífi svo miklu, miklu lengur. Allar þær minningar sem fjölskylda þín og vinir eiga um þig eru ánægjulegar og skemmtilegar. Þær eru ekki ófáar stundirnar sem Lena man eftir sér á rúntinum með þér á flotta bílnum þínum sem þú hugsaðir um eins og gullmola. Henni hefur gengið vel að keyra enda veit ég að þú vakir yfir henni og passar hana fyrir mig í umferðinni. Þú varst góð- ur strákur sem átti allt lífið eftir en fjölskylda þín og vinir verða víst öll að læra að lifa lífinu án þín í framtíð- inni. Ég veit fyrir víst að þú hefðir ekki viljað að þeim liði endalaust illa. Vinir þínir senda þér risastórt af- mælisknús og myndu örugglega senda pakka og köku ef hægt væri. Þeir munu alltaf sakna þín, en vona að þú hafir það sem best þarna uppi. Til hamingju með daginn elsku vin- ur. Kveðja, Íris. Útfararþjónusta Davíðs Ósvaldssonar ehf. Davíð Ósvaldsson Útfararstjóri S. 896 6988 / 553 6699 Óli Pétur Friðþjófsson Útfararstjóri S. 892 8947 / 565 6511 ✝ Hugheilar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, GUNNLAUGS ARNÓRSSONAR, fyrrverandi aðalendurskoðanda Seðlabanka Íslands, Bakkavör 11, Seltjarnarnesi. Guð blessi ykkur öll. Sofía Thorarensen, Eiður Th. Gunnlaugsson, Örn Gunnlaugsson, Heiðrún Bjarnadóttir, Sunna Gunnlaugsdóttir, Scott McLemore, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum hlýhug og vinsemd við andlát og útför SIGURLAUGAR SIGURÐARDÓTTUR, áður til heimilis að Guðrúnargötu 4, Reykjavík. Bestu þakkir til starfsfólks á deild V3A á Grund fyrir frábæra umönnun. Sigurður Pálmar Gíslason, Kristín Eiríksdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, besta vinar og föður okkar, ÁSGEIRS EYFJÖRÐ SIGURÐSSONAR, Ægisgötu 19, Akureyri. Sérstakar þakkir til þeirra sem veittu okkur ómetanlegan stuðning á þessum erfiðu tímum. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Valgerður Ásgeirsdóttir, Sigurvin Guðlaugur Eyfjörð Ásgeirsson, Unnur Rósa Eyfjörð Ásgeirsdóttir, Þórhildur Helga Eyfjörð Ásgeirsdóttir, Stefán Ásgeir Eyfjörð Ásgeirsson, Guðrún Borghildur Eyfjörð Ásgeirsdóttir. ✝ Við færum innilegar þakkir öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTJÖNU SIGURÐARDÓTTUR, áður til heimilis í Arahólum 4. Starfsfólk Grundar fær bestu þakkir fyrir alúð og góða umönnun. Elísabet Kristinsdóttir, Guðmundur Sveinsson, Sigríður Sigurðardóttir, Jóhann Vilbergsson, Reynir Sigurðsson, Sigríður Bragadóttir, Hlín Sigurðardóttir, Gísli Jónsson, Júlíana Sigurðardóttir, Hannes Pétursson, barnabörn og langömmubörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför RAGNARS SIGURMUNDSSONAR vélstjóra, frá Svínhólum í Lóni, áður til heimilis að Strandgötu 67a, Eskifirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Hulduhlíðar fyrir góða umönnun. Sigríður Rósa Kristinsdóttir, Hafdís Þóra Ragnarsdóttir, Júlíus Ingvarsson, Sigrún Ragna Ragnarsdóttir, Helgi Jónsson, Kristján Ragnarsson, Katrín Guðmundsdóttir, Kristinn Jóhannes Ragnarsson, Halla Ósk Óskarsdóttir, Guðný Hallgerður Ragnarsdóttir, Jón E. Guðmundsson, Kristján B. Sigurðarson, Sigurmundur Víðir Ragnarsson, Áslaug Ragnarsdóttir, Guðlaugur Sæbjörnsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu samúð og hlýhug við andlát og útför HJÖRDÍSAR PÉTURSDÓTTUR, Sörlaskjóli 32, Reykjavík. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Karitasar og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi. Gunnsteinn Magnússon, Ingibjörg Bjarnadóttir, Hannes Erlendsson, Ágúst Bjarnason, Guðrún C. Emilsdóttir, Guðrún Bjarnadóttir, ömmubörn og langömmubörn. Elsku systir, nú ertu farin. Og eftir situr fullt af minning- um. Þegar þú varst lítil komstu til mín eins oft og hægt var, við vorum báðar svo ánægðar þegar þú komst til mín. Ég á svo ósköp erfitt með að skilja að þú skulir fara á undan mér, en þú varst orðin svo veik og þráðir hvíld. Ég skildi það ekki, þegar þú sagðir mér að þú biðir eftir því að sofna. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Megi Guð vera með ykkur og styrkja ykkur í sorginni. Halldóra, Ágústa Kristín Jónsdóttir ✝ Ágústa KristínJónsdóttir fædd- ist á Siglufirði 13. október 1936. Hún andaðist á líkn- ardeild Landakots- spítala 1. október síðastliðinn og var jarðsungin frá Lágafellskirkju 10. október. Inga, Jón, Sævar, Ólafur og fjölskyldur, hver minning er perla. Kveðja, Hulda. Elsku Stína systir, þú hefur alltaf verið kölluð Stína systir og þú ert kölluð þetta meðal systkina minna. Mamma sagði alltaf Stína systir, þetta hefur alltaf haldist og gerir það enn. En hvað ég á eftir að sakna þess að koma við hjá þér í Mosó, hefði viljað koma oftar til þín, en svona er þetta. Það var svo gott að tala við þig og fá ráð hjá þér í síma og skiptast á jólakortum. Við hvern get ég nú talað? Við höfum átt margar stundir saman, ég gleymi því aldrei þegar þú komst vestur í Litla-Laug- ardal á Tálknafirði, þú varst svo flott, alltaf vel tilhöfð. Dóra, Inga og Nonni voru með, þau voru líka svo fín. Ég man ekki alveg hvað ég var gömul en það var voða gaman að hafa ykkur og kynnast þér. Ég hef alltaf frá þessum tíma passað að gefa mér tíma til að vera fín, – þú varst mér fyrirmynd á þessum tíma um að vera flott. En svo kom að því að þú fengir sjúkdóm sem var fljót- ur að ná þér. Ég náði nokkrum sinnum að kíkja á þig, það var mjög ánægjulegt og yndislegur tími en erfiður. Dóra, Inga, Nonni, Sævar og Ólafur og fjölskyldur, ég óska ykk- ur alls hins besta ykkur til handa. Hver minning er perla. Saknaðar- kveðjur, Guðrún frænka. ✝ Elskulegur maðurinn minn og faðir okkar, BERNARD JOHN SCUDDER, sem lést mánudaginn 15. október, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 25. október kl. 15. Sigrún Ástríður Eiríksdóttir, Hrafnhildur Ýr og Eyrún Hanna Bernharðsdætur. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birt- ist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.