Morgunblaðið - 21.10.2007, Blaðsíða 39
hugsað upphátt
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 39
Íævisögu sinni Spilað ogspaugað kemst RögnvaldurSigurjónsson svo að orði umföður sinn að honum hafi ver-
ið ósýnt um fjármál. „Hann erfði
t.d. allt Doktorstúnið svokallaða
umhverfis gamla Stýrimannaskól-
ann og það fór fyrir slikk. Ef hann
hefði hangið á túninu nokkur ár í
viðbót hefði maður orðið stórríkur,
sæti kannski ennþá klofvega á millj-
ónum,“ sagði hann með sinni gneist-
andi kímni. Einhverra hluta vegna
datt mér þessi kafli í hug þegar alla
milljarðana í orku, mannauði og út-
rásarverkefnum bar hæst í um-
ræðunni um daginn og mér fyrir
hugskotssjónum svifu ýmsar
mannsmyndir – klofvega á millj-
örðum.
Á sama hátt og milljónirnar
spruttu upp af Doktorstúninu án
þess að Rögnvaldur nyti góðs af,
streyma nú milljarðar upp úr iðrum
jarðar án þess að eignarhaldið sé á
hreinu. Hingað til hefur jarðhitinn
verið talinn til samfélagslegra gæða,
svona nokkurs konar uppbót fyrir
gróðurvana sanda og strit forfeðr-
anna sem héngu á sínum túnum
löngu áður en þau urðu kjörlendi
fyrir sveitasetur í stíl rússnesks að-
als fyrir byltinguna. Hér er greini-
lega sprottinn upp séríslenskur að-
all sem m.a. lætur að því liggja að
hann ætli að kynda duglega upp hjá
orkusnauðum þjóðum með óskil-
greindum útrásarverkefnum og
hagnast í leiðinni. Verðmiðana líma
menn á sig sjálfir.
Ég ætla ekki að hætta mér lengra
út í þessa umræðu enda margir um
hituna. En einhvern veginn er mér
ofarlega í huga tilvitnun í annan
merkismann, meistara Jón Vídalín
þar sem hann segir: „Ég veit að
einn asni verður aldrei hestur þótt
menn setji á hann gullsöðul …“
Þessi orð vöktu nefnilega hlátur
nokkurra nemenda minna þegar við
lásum kafla úr Postillunni. „Það eru
þessir nýríku, sem halda að þeir séu
eitthvað merkilegri en aðrir,“ taut-
aði einn fyrir munni sér. „Það eru
ekki fötin sem skapa manninn,“
sagði annar. Og síðan var klykkt út
með hinu fornkveðna: „Margur
verður af aurum api.“ Samkvæmt
þessu hefur bókmenntaarfurinn
skilað einhverju.
Eftir að hafa gantast svolítið með
föður sinn og Doktorstúnið segir
Rögnvaldur að þótt þau systkinin
hafi ekki komið gulli klyfjuð úr föð-
urgarði hafi þau hlotið enn betra
veganesti. þ.e. ástúð, glaðværð og
talsverðan skammt af menningu.
Þessum dýrmætu eiginleikum tókst
honum að miðla hér heima og jafn-
vel í útrásarverkefnum austan hafs
og vestan sem sýndu að hér á hjara
veraldar var ekki menningarsnauð
eyðimörk. Þegar ég rifja upp kynni
mín af honum og hlýði á þann glæsi-
lega píanóleik sem hann eftirlét
okkur á geisladiskum hlýnar mér
ævinlega um hjarta. Í samanburði
við svo tæra snilld verður öll um-
ræðan um milljarðamannauð álíka
stórkarlaleg og saga Sölva Helga-
sonar af því er hann með stærðfræ-
ðikúnstum kom tvíburum inn í arab-
íska prinsessu og var annar hvítur,
hinn svartur.
Klofvega á
milljörðunum
Guðrún Egilson
Barcelona
– Tvisvar í viku í haust og vetur
WWW.UU.IS
ÚRVAL-ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 ~ FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS
AYRE HOTEL CASPE
Bjart og stílhreint hótel, hannað í nútímalegum
stíl en með þægindin að leiðarljósi. Hótelið er
í 10 mín. göngufjarlægð frá Plaza Cataluña og
í herbergjum er 25 tommu sjónvarpsskjár og
internet aðgangur.
Verð frá: 59.900,-
á mann m.v. 2 í herb. m/morgunverði í 3 nætur. 9. nóv.
Verð frá: 58.425,-
á mann m.v. 2 í herb. m/morgunverði í 3 nætur. 9. nóv.
Gott 4ra stjörnu hótel í göngufæri við Römbluna
og Plaza Catalunya Barcelona. Á hótelinu eru 221
herbergi, öll með síma, plasma sjónvarpsskjá með
gerfihnattarásum, smábar og öryggishólfi.
CATALONIA RAMBLAS
Ferðaskrifstofa
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, íslensk fararstjórn og gisting með morgunverði. Verð miðast við að bókað
séánetinu.Efbókaðeráskrifstofueðasímleiðiserbókunargjald2.500kr.fyrirhvernfarþega.
Það er stíll yfir Barcelona sem margir telja fallegustu borg
í Evrópu. Barcelona er heillandi heimsborg, iðandi af lífi
og uppfull af menningu og listum, sögu og söfnum.
Gotneska hverfið er heillandi með fínum höllum frá
miðöldum, veitingastöðum, tapasbörum, verslunum
og þaðan er örstutt niður að höfninni. Við munum
bjóða upp á ferðir til þessarar frábæru borgar
tvisvar í viku í haust og vetur. Þú ert í öruggum
höndum með frábæra fararstjóra sem fara
í skoðunarferðir og eru þér innan handar.
„Barcelona er heillandi borg og þar er margt að sjá. Ég mæli með að farþegar
fari í borgarferð til þess að ná áttum og þá næst líka að skoða ýmislegt á
stuttum tíma, t.d. Parque Güell og Sagrada Familia kirkjuna. Eins er frábært
útsýni yfir borgina frá Montjuïc hæðinni.
- Astrid Helgadóttir, fararstjóri Úrvals - Útsýnar í Barcelona
Fallega jólaskeiðin
frá Ernu
Smíðuð á Íslandi
úr ósviknu silfri
Verð kr. 8.900.
Gull- og
Silfursmiðjan Erna
Skipholti 3 • Sími 552 0775 • www.erna.is
Fréttir
í tölvupósti