Morgunblaðið - 21.10.2007, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.10.2007, Blaðsíða 36
leikhús 36 SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Leikminjasafn Íslands erungt að árum. Það varstofnað vegna þess aðminjar um íslenska leik- listarsögu voru að hverfa fyrir aug- unum á fólki. Leikminjasafnið hefur ekkert hús- næði undir sýningar. Um stund- arsakir hefur það fengið inni með brúðusýningu sína í gömlu heilsu- verndarstöðinni við Barónsstíg. Aðrir gripir safnsins eru í geymslum sem safnið hefur tekið á leigu. Hvöss norðaustanáttin skók ljósa- staurana og rigningin þyrmdi engum sem var á ferli utandyra. Ég hafði mælt mér mót við Jón Viðar Jónsson, forstöðumann Leikminjasafns Ís- lands, en honum seinkaði um nokkrar mínútur. Á meðan leitaði ég skjóls fyrir illviðrinu. Enginn var á ferli við bygginguna. Undarlegt að hugsa til þess að heil- brigðisyfirvöld skyldu selja þetta fal- lega hús sem var sérstaklega hannað sem heilsuverndarstöð. Nú gista það einungis leikbrúður. Þær hanga í strengjum sínum og bíða þess að ein- hver bregði blundi þeirra. Jón Viðar birtist von bráðar og fylgir mér upp á aðra hæð. Þarna eru brúðurnar hans Jóns E. Guðmunds- sonar og sitt hvað fleira. Ég snerti eina brúðuna ofur varlega. Hún hrekkur undan snertingunni. Það er eins og hún sé lífi gædd. Mér verður hverft við, vissi ekki að brúðan væri svona viðkvæm. Við Jón Viðar setjumst í útskorna stóla sem Lárus Ingólfsson átti og Jón telur að hafi jafnvel verið notaðir í einhverri sýningu sem Lárus átti hlut að. Jón Viðar segir mér að óvíst sé hvað brúðurnar fái að vera þarna lengi til sýnis, en stefnt sé að því að halda nokkrar sýningar í safninu frameftir hausti. Lista- og minjasafn „Tildrögin að stofnun safnsins voru þau að leikhúsfólk hafði rætt um það árum saman að hér væri ekkert safn til þar sem leiklist væru gerð skil og sögu hennar,“ segir Jón Viðar Jóns- son, forstöðumaður Leikminjasafns Íslands, en hann er jafnframt eini starfsmaður safnsins. „Af þessu leiddi að fjölmörg gögn höfðu týnst og eru ennþá að týnast. Leikmyndahöfundar fundu einna helst fyrir þessu. Verk þeirra eru á mörkum leiklistar og myndlistar og hefðbundin listasöfn taka því helst ekki við slíkum hlutum. Þess vegna eru gögn frá leikmyndahöfundum mjög stór hluti safnsins enda hafa margir okkar fremstu manna á þessu Dýrgripirnir í Leikminjasafni Íslands Morgunblaðið/G.Rúnar Jón Viðar Jónsson „Safn er ekki eingöngu geymsla heldur lifandi fræðslu- og menningarstofnun.“ Um þessar mundir er haldin sýning á leik- brúðum Jóns E. Guð- mundssonar í gömlu heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á vegum Leikminjasafns Íslands. Jón Viðar Jónsson sagði Arnþóri Helgasyni frá starfsemi safnsins. Sjónvarpsbrúða Fúsi flakkari er góður fulltrúi fyrir brúðurnar í safni Jóns E. Guðmundssonar. Hann er að vísu nokkru stærri og loðnari en þær flestar, enda var hann skapaður fyrir sjónvarpið og er, að því er best er vit- að, fyrsta leikbrúðan sem gerð er fyrir íslenskt sjón- varp. Var brúðan, sem er strengjabrúða, gerð fyrir Stundina okkar árið 1968 og vann Jón við þættina næstu tvö ár. Fúsi ók um á bíl sínum sem var sérstak- lega smíðaður af Ingólfi Herbertssyni. Fór hann víða um land og kom gjarnan við á sveitabæj- um. Leikatriðin voru unn- in af Jóni ásamt upptökustjórunum Andrési Indriðasyni og Tage Ammendrup“. Sagt hefur verið að fátt sé jafnforgengilegt og list leikarans og ekkert sé eins dautt og dauður leik- ari. Nútímatækni gerir okk- ur kleift að varðveita leik- listina mun betur en áður var hægt. Þú mætir með miðann sem fylgdi Morgunblaðinu 28. sept. til Heims- ferða, Skógarhlið 18, eða á einhverja af umboðsskrifstofum þeirra. Einnig er unnt að bóka tilboðið á www.heimsferdir.is E N N E M M / S IA • N M 29 89 8 Jamaica Frábært sértilboð fyrir áskrifendur Morgunblaðsins 30. okt - 7. nóv. Morgunblaðið, í samstarfi við Heimsferðir, býður áskrifendum sínum frábær til- boð í ferð til Jamaica 30. október. Í boði er gisting á góðu hóteli, Superclubs Starfish Trelawny. Ævintýraeyjan Jamaica lætur engan ósnortinn. Þú kynnist stórkostlegri náttúrufegurð eyjunnar og þjóð sem er einstök í mörgu tilliti. Einstakt tækifæri til að heimsækja þessa einstöku Karíbahafseyju á frábærum kjörum. 8 daga Karíbaveisla frá aðeins kr. 99.890 - með öllu inniföldu Áskr. verð frá Alm. verð Superclubs Starfish Trelawny ***+ 2 í herbergi m/allt innifalið í 8 nætur 99.890 128.790 Aukagjald fyrir einbýli kr. 16.110. Barnaafsláttur, 2-12 ára, kr. 5.000 (ath. hámark 2 fullorðnir og 2 börn í herbergi). Innifalið í verði er flug, skattar, gisting m/öllu inniföldu í 8 nætur og íslensk fararstjórn. Athugið aðeins takmarkað framboð er í boði á þessu tilboðsverði. Fyrstur kemur – fyrstur fær! Verðdæmi – 8 nætur: (nánar á www.heimsferdir.is) Þú sparar allt að kr. 28.800 á mann Superclubs Starfish Trelawny UPPSELTSíðustu forvöð5 herb. laus vegna forfalla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.