Morgunblaðið - 21.10.2007, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 29
Reynisvatnsás er nýtt skipulagssvæði í Reykjavík og
er svæðið eingöngu hugsað sem sérbýlishúsabyggð
fyrir einbýlis-, par- og raðhús. Slík hverfi hafa ekki
verið í boði á höfuðborgarsvæðinu lengi en stefna
borgaryfirvalda er að allir sem vilja geti byggt og búið
í borginni og hún verði fyrsti búsetukostur sem flestra.
Skipulagssvæðið við Reynisvatnsás er lítt snortið svæði
norðaustan við Grafarholtið. Það afmarkast til suðvesturs af
Reynisvatnsvegi, hægakstursgötu sem tengir saman íbúðar-
byggðina í Grafarholti og Úlfarsárdal til norð-vesturs. Óbyggt
svæði liggur að hverfinu að suðaustan- og austanverðu og
verndarsvæði Úlfarsár afmarkar skipulag svæðisins til norðurs.
Suðaustan skipulagssvæðisins, ofar í Reynisvatnsási, er
skógræktarsvæði sem er hluti af Græna treflinum. Skipulags-
svæðið við Reynisvatnsás er eitt þeirra svæða í Reykjavík sem
ætlað er að fullnægja vaxtarþörf borgarinnar á næstu árum.
SKILAFRESTUR TIL 31. OKTÓBER
Umsóknum skal skila fyrir kl. 16:15 miðvikudaginn 31. október 2007. Tekið
verður á móti umsóknum í þjónustuveri Framkvæmdasviðs, Skúlatúni 2, 1. hæð.
Senda má undirritaðar umsóknir í tölvupósti til fs.lodir@reykjavik.is.
Fyrirvari er um gildistöku deiliskipulags hverfisins, sem samþykkt var í
borgarstjórn 2. október 2007.
Búseta í námunda við náttúru
UMSÓKNARGÖGN
Umsóknareyðublöð, úthlutunarreglur, skipulagsskilmálar og önnur
umsóknargögn eru aðgengileg á vef Framkvæmdasviðs, www.reykjavik.is/fs.
Enn fremur fást umsóknareyðublöð og skipulagsuppdráttur afhent í
þjónustuveri Framkvæmdasviðs í Skúlatúni 2.
REYNISVATNSÁS
10 ÍBÚÐIR Í EINNAR HÆÐAR RAÐ- OG PARHÚSUM.
36 ÍBÚÐIR Í TVEGGJA HÆÐA RAÐ- OG KEÐJUHÚSUM.
4 ÍBÚÐIR Í TVEGGJA HÆÐA PARHÚSUM.
3 ÍBÚÐIR Í EINNAR HÆÐAR EINBÝLISHÚSUM.
5 ÍBÚÐIR Í EINBÝLISHÚSUM Á PÖLLUM.
48 ÍBÚÐIR Í TVEGGJA HÆÐA EINBÝLISHÚSUM.
Mörk verndarsvæðis
Úlfarsár (100 m frá árbakka)
R-IIc
R-IIc
R-IIc
R-IIc
E-IIb
E-IIb
E-IIb
E-IIb
E-IIb
E-IIb
Ep-Ib
E-IIa
E-IIa
E-IIa
E-IIa
E-IIa
E-IIb
E-IIb
E-IIb
E-IIb
E-IIa
E-IIa
E-IIa E-IIb
E-IIb
Ep-Ia
Ep-Ia
E-IIaEp-Ib
Ep-Ib
E-IIb
E-IIb
E-IIb
E-IIa
E-IIa
E-IIa
E-IIa
E-IIa
E-IIa
E-IIa
E-IIa
E-IIa
E-IIa
E-IIa
R-IIa
R-IIa
R-Ia
E-IIa
E-IIa
E-IIa
E-Ia
EII-b
E-IIb
E-IIb
E-IIb
E-IIb
E-IIb
E-IIb
E-Ib
E-Ib
R-IIa
Rk-IIb
R-Ib
Rk-IIa
Z
Z
E-IIa
Ep-Ib
E-IIb
E-IIb
E-IIb
R-Ia
R-Ia
Rk-IIa
R-Ia
R-Ia
"H
æ
ga
ks
tu
rs
ga
ta
"
r
tilviljanakennt en auðvitað hefst ekkert nema
vera á staðnum og tilbúin í slaginn.“
Og Dísella söng fleira sér til dundurs; hún
tók þátt í söngkeppni í Los Angeles og komst
þar í lokaúrslitin. Í lok janúar 2006 fékk hún
loks ferðaleyfi og flýtti sér heim til Íslands,
þar sem hún náði að taka þátt í Söngvakeppni
Sjónvarpsins og syngja lagið „Útópía“ eftir
Svein Rúnar Sigurðsson.
Á Spáni er háð mikil keppni; Operalia, sem
er á vegum Placido Domingo. Dísella ákvað að
stefna þangað og þurfti að setja í póst
persónuupplýsingar og tvær aríur í síðasta
lagi 15. apríl.
Þegar til kom herjaði hálsbólga á Dísellu og
hún var eiginlega búin að gefa Domingo upp á
bátinn. En þegar á herðir er uppgjöf ekki til í
hennar orðabók. Þau Teddy fóru upp í skóla og
tóku á vídeóvél tvær aríur. „Við hentum þessu
í póst 14. apríl og fórum svo bara og fengum
okkur bjór.
Nema hvað, ég komst að og fór til Spánar í
október og komst í undanúrslit. Ég var ánægð
með þann árangur, þrátt fyrir allt. Og þetta
var frábær lífsreynsla, að ég tali nú ekki um að
hitta Domingo sjálfan. Hann er maður sem er
búinn að vera svo sérstakur í huga mínum svo
lengi, rétt eins og Metropolitan. Ég söng svo
aftur fyrir hann á þessu ári og hann sagðist
ætla að hafa mig í huga ef eitthvað félli til hjá
óperufyrirtæki hans.“
Ekki allir viðhlæjendur vinir
„Þessi tónlistarheimur er harður bransi og
ekki allir viðhlæjendur vinir. Mér fannst ég
framan af svolítið út undan í Bandaríkjunum;
ég hugsa að það hafi verið sveitamanneskjan í
mér sem skein svona í gegn. En núna þegar ég
er búin að syngja í Metropolitan og komin með
starfssamning, þá allt í einu er ég orðin
gjaldgeng og allir ætla að éta mig: Hæ,
Dísella! Hvað segirðu, Dísella? Hvernig
hefurðu það, Dísella? Það fer í mínar fínustu
taugar, þegar fólk hagar sér svona. Ég kann
bezt við að fólk tali hreint út og komi til
dyranna eins og það er klætt.“
Erindið til Íslands að þessu sinni var að
„debutera“ á einsöngstónleikum.
„Ég hef alltaf verið gripin í að syngja popp,
þegar ég kem heim, en ekki sýnt mína
klassísku hlið fyrr en núna. Ég ætlaði mér
auðvitað alltaf að halda tónleika hérna heima,
en kom þeim ekki á dagskrá, fyrr en Diddú rak
smiðshöggið fyrir mig. Við hlupum í skarðið
með Sinfóníuhljómsveitinni í sumar og þá
sagði hún: Þú átt að syngja í Mosfellssveit. Þar
er þín vagga og þar átt þú að debútera. Og
Diddú fékk tónlistarráðið í Mosó til þess að
setja mig á dagskrá hjá sér.
Svo ég setti á tónleika í Hlégarði. Teddý lék
undir hjá mér og ég söng Purcell, Grieg,
Strauss, Jórunni Viðar, Jón Ásgeirsson,
Rachmaninov og Donizetti.
Þetta var alveg mögnuð stund. Ég kom fram
í Hlégarði fimm ára gömul sem álfur í
Galdrakarlinum í Oz, sem mamma leikstýrði,
og tólf ára var ég með í Hans og Grétu. Í
minningunni var sviðið í Hlégarði mjög stórt,
en þegar ég stóð þarna nú, þá var það svo lítið
og heimilislegt. Og ég þekkti hvert einasta
andlit í salnum. Það var yndisleg nærvera. Ég
mátti taka mig taki til þess að hlaupa ekki
niður í sal milli laga og
spjalla við fólkið. Ég er
enn í skýjunum yfir
þessum tónleikum.“
Og þegar Dísella
Lárusdóttir er búin að
debútera í
Mosfellsbænum er hún
tilbúin til þess að halda
sína debúttónleika í New
York. Þeir verða í
Merkin Hall 20. febrúar
og Dísella segir að
efnisskráin verði á
svipuðum nótum og í
Hlégarði; kannski eilítið
íslenzkari. En áður en til þeirra kemur verða
tónleikar með Philadelphia Orchestra 27.
janúar. Hún sigraði í fyrra í sérstakri
söngvarakeppni hljómsveitarinnar og mun
koma fram á þessum tónleikum sem eru
sérstakir tónleikar fyrir styrktaraðila
hljómsveitarinnar. Auk hennar koma fram
Conrad Tao, sem er 13 ára undrabarn á
píanóið, Billy Joel og sveit, sem nefnist Blue
Man Group.
Plata í lok október
Fyrir þremur árum kom út platan Jólaboð
með þeim systrum; Dísellu, Ingibjörgu og
Þórunni. Ég spyr hvort önnur slík sé á leiðinni.
„Ekki eins og er. En við eigum ábyggilega
eftir að gera eitthvað fleira saman, systurnar.
Okkur líður svo vel saman. Við erum svolítið
uppteknar hver í sínu horni núna; Þórunn er
leikkona og nýbökuð móðir og Ingibjörg er í
fluginu og fjögurra barna móðir! En við
finnum okkur örugglega tíma til einhvers,
einhvern tímann.“
Í lok október kemur út geislaplata með söng
Dísellu. „Þetta er bland í poka, popp og
klassík. Ætli ég reyni ekki að ýta eitthvað á þá
plötu þegar ég kem heim um jólin og þá mun
ég líka koma fram á tónleikum með Diddú og
Garðari Thór.“
Þrjár systur „Við eigum ábyggilega eftir að gera
fleira saman systurnar. Okkur líður svo vel sam-
an.“ Dísella, Ingibjörg og Þórunn Lárusdætur.
Morgunblaðið/Sverrir
freysteinn@mbl.is
Í HNOTSKURN
»Dísella Lárusdóttir erfjórði íslenzki
óperusöngvarinn sem fær
starfssamning við
Metropolitanóperuna í New
York.
»María Markan reið á vaðiðog þeir Kristján
Jóhannsson og Kristinn
Sigmundsson hafa einnig
sungið þar.
Óperan „Ég og Elíasa í uppfærslu á Don Giovanni eftir
Mozart í marz síðastliðnum. Hún söng Donnu Elviru og
ég Zerlinu og Teddy var hljómsveitarstjóri.“
Ástfangin „Við Teddy á Malibuströndinni.“ Þau kynntust í skólanum, þar sem hún lærði söng og hann píanóleik.