Morgunblaðið - 21.10.2007, Page 45

Morgunblaðið - 21.10.2007, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 2007 45 lega ákveðið að selja ekki, jafnvel þótt erlendir aðilar leiti eftir því. Það tengist auðvitað spurningunni um það hvort yfirleitt eigi að einkavæða orkufyrirtæki í eigu ríkis eða sveitarfélaga. Geir H. Haarde for- sætisráðherra lýsti því yfir fyrir nokkrum dög- um að einkavæðing Landsvirkjunar væri ekki á dagskrá. Í þessu sambandi er nauðsynlegt að hafa í huga alþjóðlegar skuldbindingar okkar í þessum efnum. Um það segir í skýrslu auðlindanefndar sem taka ber fram að er frá árinu 2000 og eitt- hvað af því sem hér er nefnt komið til fram- kvæmda: „Fyrsta skrefið í átt að nýskipan raforkumála verður líklega aðskilnaður vinnslu, flutnings, dreifingar og sölu á raforku, en slíkur aðskiln- aður er forsenda virkrar samkeppni. Bókhalds- legur aðskilnaður þessara þátta verður lág- markskrafa samkvæmt samningum Íslendinga um EES, eins og fram kemur í tilskipun Evr- ópuþingsins og ráðsins 96/92EB frá 19. desem- ber 1996 um sameiginlegar reglur um innri markað á sviði raforku. Hornsteinar þeirrar til- skipunar eru þrír. Í fyrsta lagi afnám einka- réttar starfandi orkufyrirtækja, sé hann fyrir hendi m.a. til að framleiða rafmagn. Í öðru lagi aðskilnaður vinnslu, flutnings, dreifingar og sölu raforku, a.m.k. í bókhaldi. Í þriðja lagi takmark- aður aðgangur þriðja aðila að flutningskerfum, þannig að þeir orkukaupendur, sem fullnægja tilteknum skilyrðum, sem hvert ríki setur á grundvelli tilskipunar geti gert samning við orkuvinnslufyrirtæki um orkukaup og fengið orkuna flutta um orkuflutningskerfið.“ Til þess að þjóðin átti sig á öllum hliðum þess- ara mála er nauðsynlegt að fram fari almennar umræður um þessar spurningar áður en nokkr- ar frekari ákvarðanir verða teknar, þannig að vilji almennings liggi nokkuð ljós fyrir og raunar æskilegt að slík ákvörðun verði tekin í þjóð- aratkvæðagreiðslu að undangengnum víðtækum umræðum um málið. Lítill angi þess máls er sala ríkisins fyrr á þessu ár á hlut þess í Hitaveitu Suðurnesja. Hvers vegna var sú ákvörðun tekin? Hvaða rök lágu þar að baki? Það er ljóst að salan hefur leitt til þess að einkaaðilar hafa komizt með fót- inn inn fyrir dyrnar í fyrirtæki sem áður var í opinberri eigu. Eru einhver tengsl á milli þeirr- ar ákvörðunar og þeirrar atburðarásar sem þjóðin hefur orðið vitni að í tengslum við Orku- veitu Reykjavíkur? Það er nauðsynlegt að upp- lýsingar liggi fyrir um þetta. Einkavæðing orkufyrirtækja er svo stórt mál að það er óhugsandi að ákvarðanir verði teknar um slíkt án þess að þjóðin verði spurð. Inn í það blandast auðvitað umræður um stöðu þeirra fyr- irtækja sem veita almenningi þá þjónustu að selja fólki rafmagn, heitt vatn og kalt. Þetta eru í eðli sínu einokunarfyrirtæki og óhugsandi að þau verði einkavædd. En þau byggja auðvitað á því að fá söluvörur sínar keyptar í heildsölu og hvernig á að koma í veg fyrir að einkavæddur heildsöluaðili og framleiðandi hafi smásölufyr- irtækin í greipum sér varðandi verðlagningu? Umræður um Orkuveitu Reykjavíkur hafa leitt í ljós að það fyrirtæki er að selja raforku og vatn á of háu verði til almennings til þess að safna peningum til að nota í aðrar þarfir. Hver hefur leyft Orkuveitu Reykjavíkur að leggja slíkan útrásarskatt á viðskiptavini fyrirtækisins? Hefur einhver veitt fyrirtækinu heimild til þess? Allar þessar spurningar þarf að ræða í botn áður en frekari ákvarðanir eru teknar. Að hugsanlegri einkavæðingu raforkufyrir- tækja er vikið í umræddri skýrslu auðlinda- nefndar. Þar segir m.a.: „Sum réttindi til nýtingar á vatnsafli eru eins og áður segir háð einkaeignarrétti en önnur yrðu í þjóðareign samkvæmt tillögum nefnd- arinnar. Að teknu tilliti til þessa telur nefndin að innheimta eigi auðlindaarð af vatnsafli í þjóð- lendum sem enn hefur ekki verið selt eða fram- selt svo skuldbindandi sé og yrði því að þjóð- areign með því að selja langtíma nýtingar- réttindi á uppboði ef nægileg samkeppni er fyrir hendi. Að öðrum kosti skuli semja um greiðslu auðlindagjalds á grundvelli þess umframarðs sem gera má ráð fyrir að falli til á samningstím- anum. Vegna þeirra sértæku breytinga, sem vænt- anlega verða gerðar á skipulagi raforkufyrir- tækja og raforkumarkaðnum á næstu árum, tel- ur nefndin ekki fært að setja fram ákveðnar hugmyndir um það hvernig skuli greiða fyrir þau orkuréttindi sem eru í eigu raforkufyr- irtækja landsins. Nefndin leggur til að mat á því verði þáttur í þeirri endurskoðunarvinnu sem framundan er á þessu sviði. Líklegt er að loka- áfangi þróunarinnar verði einkavæðing raforku- fyrirtækja en með útboði hlutafjár sköpuðust skilyrði til að fá greitt fullt markaðsverð fyrir þau vatnsréttindi sem þessi fyrirtæki, ríki og sveitarfélög hafa sannanlega eignazt.“ Loks er vikið að athyglisverðum þætti þessa máls í skýrslu auðlindanefndar: „Auk greiðslu fyrir nýtingu þess vatnsafls sem er í þjóðareign og greiðslu fyrir umhverf- istjón er rétt að settar verði ákveðnar reglur er tryggi að ríkinu sé endurgreiddur sá kostnaður sem það hefur lagt fram vegna rannsókna og annarrar þjónustu sem koma virkjunaraðilum til góða. Slík kostnaðargjöld ættu þeir ekki síður að greiða sem nýta vatnsafl í einkaeign.“ Iðnaðarráðherra hefur greinilega nóg að gera á næstu árum og spurning hvort hann hefur tíma til að vera mikið á ferðinni til Indónesíu og Filippseyja til þess að vasast í orkumálum í þeim löndum! Enda þau mál augljóslega í góð- um höndum hjá forsetanum. Pólitíkin E ins og af framangreindu má sjá eru að opnast umræður um mjög stór grundvallarmál í kjöl- farið á því að kíkt var undir teppin hjá Orkuveitu Reykjavík- ur. Í lýðræðislegu samfélagi eins og við búum í er það eðlileg og sjálfsögð krafa almennings að víðtækar umræður fari fram um grundvallarþætti í meðferð og ráð- stöfun orkuauðlinda þjóðarinnar áður en lengra verður haldið. Líklega eiga allir stjórnmálaflokkar eftir að ræða þessi mál til hlítar innan eigin raða sem er auðvitað forsenda þess að þeir geti tekið af ein- hverju viti þátt í almannaumræðum um málin. Það skiptir hins vegar máli að engar óaft- urkallanlegar ákvarðanir séu teknar áður en þessar umræður hafa farið fram og fólkinu í landinu gefinn kostur á að taka ákvarðanir um hinar stóru línur í beinni atkvæðagreiðslu. Þess vegna m.a. er nauðsynlegt að hraða eins og kostur er rannsókn stýrihóps Reykjavík- urborgar á málefnum Orkuveitunnar og sjá hvort eitthvað fleira kemur í ljós en nú þegar liggur fyrir. Og þess vegna er mikilvægt að nú verði staldrað við í málefnum Hitaveitu Suð- urnesja og engar ákvarðanir teknar í málefnum þess fyrirtækis sem ekki verður hægt að breyta. »En sá er hins vegar munur á þessum tveimur auðlindum aðAlþingi hefur lýst fiskinn í sjónum sameign íslenzku þjóð- arinnar en stór hluti hinnar auðlindarinnar, orkunnar, hefur alltaf verið í einkaeign. Þessi staðreynd hefur ekki komið nægi- lega fram í umræðum og þess vegna hafa þær bæði verið rugl- ingslegar og misvísandi. Í skýrslu auðlindanefndar frá árinu 2000 er talið að um þriðjungur orkulinda íslenzku þjóðarinnar sé í einkaeign. rbréf Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.