Morgunblaðið - 08.11.2007, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 11
FRÉTTIR
RÚMLEGA 30 ný störf hafa skapast
hjá Eimskip á Austurlandi í kjölfar
aukinnar starfsemi á Reyðarfirði.
Fyrir störfuðu 40 manns hjá Eim-
skip á Austurlandi, að sögn Guð-
mundar Davíðssonar, fram-
kvæmdastjóra Eimskips á Íslandi.
Alls starfa því 70 manns hjá Eim-
skip á svæðinu.
Skrifað var undir flutningasamn-
ing milli Alcoa Fjarðaáls og Eim-
skips í fyrradag, eins og greint var
frá í Morgunblaðinu í gær. Eimskip
sjá um flutning á rúmlega 220.000
tonnum, þar af innflutning á
180.000 tonnum og útflutning á
40.000 tonnum á ári, fyrir Alcoa
Fjarðaál. Um er að ræða alla flutn-
inga á rafskautum fyrir álver Alcoa
Fjarðaáls í Reyðarfirði. Jafnframt
hafa félögin náð samkomulagi um
40.000 tonna álflutninga til Banda-
ríkjanna og er því um að ræða
flutninga upp á 260.000 tonn á ári.
Samningar fyrirtækjanna
tveggja á sviði flutningastarfsemi
og þjónustu leiða af sér eitthvert
umfangsmesta samstarf á sviði
flutninga sem ráðist hefur verið í á
þessu sviði hér á landi.
Þau leiðu mistök urðu við birt-
ingu fréttarinnar í gær að með
henni birtist röng mynd. Um leið og
rétt mynd er birt biður Morgun-
blaðið alla hlutaðeigandi afsökunar
á þessum mistökum.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Undirritun Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls (t.v.), og Guð-
mundur Davíðsson, framkvæmdastjóri Eimskips á Íslandi, að lokinni und-
irskrift hins umfangsmikla samnings aðilanna um flutninga.
Eimskip skapar
mörg ný störf
BRÉF sýslumanna á Íslandi til
danskra stjórnvalda frá því um 1700
til ársins 1890, um ástand lands og
lýðs, eru mikill fjársjóður að mati dr.
Astrid Ogilvie, veðurfarssagnfræð-
ings við Stofnun norðurslóða- og há-
fjallarannsókna í Boulder í Color-
adoríki í Bandaríkjunum. „Þessi bréf
eru algjör gullkista,“ sagði dr. Ogilv-
ie í samtali við Morgunblaðið.
Astrid Ogilvie hélt í gær fyrirlest-
ur í húsnæði Háskólans á Akureyri;
árlegan minningarfyrirlestur Vil-
hjálms Stefánssonar, og greindi frá
þverfaglegri rannsókn sem hún og
fleiri vinna að um loftslag, sögu og
mannvistfræði á norðanverðu Ís-
landi.
Bréfin sem hún nefndi voru
skýrslur sem sýslumenn landsins
héldu og sendu, í formi bréfa,
til danskra stjórnvalda einu sinni
til þrisvar á ári. „Bréfin eru til úr öll-
um 22 sýslum landsins flestöll ár á
ofangreindu tímabili, um 4000 alls.
Þau eru varðveitt í Þjóðskjalasafn-
inu og hafa aldrei verið gefin út og
lítið notuð,“ sagði Ogilvie.
Meginhluti bréfanna er ritaður á
dönsku með gotnesku skrifletri sem í
langflestum tilvikum þarf nokkra
kunnáttu til að lesa úr, að hennar
sögn. „Verkefninu er ætlað að gera
almenna grein fyrir innihaldi bréf-
anna og draga fram upplýsingar um
veðurfar; hitafar og úrkomu, hafís og
náttúruhamfarir auk upplýsinga um
fiskveiðar, landbúnað og heilsufar.
Sérstök áhersla verður lögð á teng-
ingu við veðurmælingar sem hafa
verið gerðar hér á landi frá því um
1780 auk gerðar tímaraða um hafís-
komur, fiskveiðar og grassprettu.“
Astrid Ogilvie segir að umræddar
gagnaraðir muni bæta yfirsýn um
samband veðurfars og búsetu um-
talsvert auk þess að vera mjög mik-
ilvæg viðbót við upplýsingar um veð-
urlag við upphaf iðnbyltingar. „Mikil
ásókn er í íslenskar gagnaraðir frá
þessum tíma. Úrvinnsla sýslu-
mannabréfanna gefur tækifæri til
mikilla endurbóta á þeim röðum sem
þegar eru á markaði. Þetta er mjög
spennandi verkefni og áhugavert.“
Ogilvie greindi einnig frá skoðun á
þróun loftslags, sérstaklega með því
að skoða veðurdagbækur. Nefndi
hún sérstaklega slíkar dagbækur
sem feðgarnir og nafnarnir, Jón
Jónsson eldri og yngri, héldu sam-
tals í nærri heila öld, frá 1747 til
1846. „Þessi gögn eru mjög gagnleg
og mikilvæg, ekki síst nú þegar fólk
hefur svo mikinn áhuga á veðurfari,
loftslagsbreytingum og slíku.“ Jón
og Jón voru báðir prestar í Eyjafirði
og dagbækurnar skrifaðar víða um
fjörðinn, eftir því hvar þeir bjuggu; á
Möðruvöllum, Guðrúnarstöðum,
Grund, Núpufelli, Möðrufelli og í
Dunhaga.
Hún sagði athuganir þeirra feðga
mjög nákvæmar og ítarlegar. Þeir
hefðu skráð niður veðrið daglega,
hitastig, vind og skýjafar. Vikulega
samantekt er að finna í bókum þeirra
og loks sérstaka skýrslu fyrir hvert
ár frá 1748 til 1768, þar sem einnig er
fjallað um aflabrögð á sjó og hey-
feng. Síðan nefna feðgarnir ýmislegt
fleira þegar ástæða þykir til; í bók-
um þeirra er t.d. að finna nákvæmar
upplýsingar um öskufall í Eyjafirði í
Heklugosinu 1766 og áhrif þess í
Eyjafirði þegar gaus í Lakagígum
1783.
Ýmsar samfélagslýsingar er einn-
ig að finna. Jón eldri skrifar 1756,
þegar mjög hart var í ári: „Margir
áttu mjög erfitt […] Fátækt fólk
þurfti víða að yfirgefa heimili sín […]
og margir flæktust um en fáir áttu
nokkuð aukalega til þess að fæða
þetta fólk. Vegna þessa létust marg-
ir úr hungri.“
Jón segir svo frá því 1761, þegar
einnig var hart í ári, að fólk þurrkaði
sjávargróður til matar. Einnig lýsti
hann nákvæmlega hafís við landið og
segir Ogilvie bækur þeirra feðga af-
ar dýrmætar heimildir, bæði vegna
þess hve nákvæmar þær eru og yfir
hve langan tíma þær ná.
Ogilvie greindi einnig frá forn-
leifarannsóknum í Mývatnssveit sem
hún tekur þátt í ásamt hópi fólks.
Hún segir þegar komið í ljós að fólk
hafi sest að í Mývatnssveit jafn-
snemma og annars staðar á landinu,
og þar hafi að öllum líkindum mun
fleiri búið fljótlega eftir landnám en
almennt hefur verið talið.
Bréf sýslumanna til
Dana eru gullkista
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fróðleikur Dr. Astrid E.J. Ogilvie ræðir við einn áheyrenda að fyrirlestr-
inum loknum í gær. Í baksýn má sjá ljósmynd af Vilhjálmi Stefánssyni.
Í HNOTSKURN
»Astrid Ogilvie er bresk, afskosku og norsku foreldri.
Hún hefur búið í Bandaríkj-
unum í 12 ár þar sem hún
starfar við Stofnun norður-
slóða- og háfjallarannsókna í
Boulder í Coloradoríki.
»Ogilvie talar prýðilega ís-lensku. Tungumálið hefur
hún bæði lært í skólum og af
heimamönnum þegar hún
dvaldi um skeið bæði á Græna-
vatni í Mývatnssveit og Braut-
arhóli í Svarfaðardal.
KRISTÍN Sigþóra
Björnsdóttir kennari
lést á Hrafnistu í
Reykjavík mánudaginn
5. nóvember sl., 88 ára
að aldri.
Kristín fæddist að
Rútsstöðum í Svínadal í
Húnavatnssýslu 1.
mars 1919, dóttir
hjónanna Þorbjargar
Kristjánsdóttur, hús-
freyju og síðar kennara
og saumakonu, og
Björns Magnússonar
frá Ægissíðu á Vatns-
nesi, kennara, bónda og
síðar verkamanns.
Kristín var í fóstri hjá afa sínum,
Kristjáni Sigurðssyni, bónda að
Reykjum við Reykjabraut, frá 3-11
ára aldurs og síðan tvö ár hjá móð-
ursystur sinni í Skagafirði. Árið 1932
kom Kristín til Reykjavíkur og sam-
einaðist fjölskyldu sinni.
Kristín fór í gagnfræðaskóla í
Reykjavík og síðar Kennaraskólann
og lauk kennaraprófi 1938. Hún hélt
smábarnaskóla í Reykjavík 1938-41,
kenndi við Landakots-
skóla 1941-45 og
stundaði smábarna-
kennslu í Reykjavík
1949-51 og var með
eigin smábarnaskóla í
Vogahverfi 1953-62.
Kristín var kennari í
Vogaskóla 1962-79 og
stundakennari til 1985.
Kristín samdi
barnabókina Sóley
sem kom út 1972 hjá
Ríkisútgáfu náms-
bóka.
Kristín unni tónlist
og hafði sjálf fagra
söngrödd og sönggleði. Hún fylgdist
vel með tónlistarlífinu í Reykjavík og
lagði sinn skerf til styrktar ýmsu
tónlistarstarfi, byggingu Tónlistar-
húss, kórum, orgelsjóði o.fl. Ekki
síst var kór Langholtskirkju henni
afar kær.
Eiginmaður Kristínar var Gísli
heitinn Tómas Guðmundsson póst-
fulltrúi. Þau eignuðust þrjú börn.
Barnabörn Kristínar eru sjö og
barnabörnin fjögur.
Andlát
Kristín S. Björnsdóttir
VESTMANNAEYJABÆR og
Vinnslustöðin hf. hafa komist að
samkomulagi um þátttöku í forvali
vegna útboðs á rekstri ferju, sem
sigla á milli Vestmannaeyja og
Landeyjahafnar við Bakkafjöru.
Segjast báðir aðilar telja að við-
skiptaleg tækifæri kunni að felast í
eignarhaldi og rekstri ferjunnar.
Í tilkynningu segir að Vest-
mannaeyjabær og Vinnslustöðin
séu sammála um að sú breyting,
sem felist í tíðum og öruggum 30
mínútna ferðum milli Vest-
mannaeyja og hafnar í Landeyjum,
beri með sér mikil sóknarfæri fyrir
Vestmannaeyjar, bæði íbúa og at-
vinnulíf. Mikilvægt sé fyrir heima-
menn að kanna af fullri alvöru for-
sendur reksturs og eignarhalds
ferjunnar með þátttöku í forvali
fyrir útboð.
„Þekking og reynsla þessara
samstarfsaðila á skiparekstri, þjón-
ustu og umsýslu er mikil,“ segir í
fréttatilkynningu. Vinnslustöðin hf.
er stærsta fyrirtækið í Eyjum.
Heimamenn
vilja reka
Eyjaferju
Kringlunni - sími 568 1822 – www.polarnopyret.se
Tilboðsdagar
20% afsláttur af bolum
fimmtudag til sunnudags
Traustur kaupandi óskar eftir skrifstofu-, verslunar- og
þjónustuhúsnæði fyrir a.m.k. einn milljarð.
Húsnæðið mætti gjarnan vera í útleigu.
Staðgreiðsla í boði.
Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson
og Þorleifur Guðmundsson fasteingasalar.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
M
bl
9
33
71
5
Atvinnuhúsnæði fyrir a.m.k.
kr. 1.000.000.000,- óskast