Morgunblaðið - 08.11.2007, Blaðsíða 27
Hreinn ávaxtasafi
ætlaður börnum
Sól ehf.
hefur hafið
framleiðslu á
100% hrein-
um ávaxta-
safa fyrir
börn og ung-
linga undir heitinu Ávöxtur. Saf-
anum er ætlað að mæta þörfum
neytenda sem í auknum mæli gera
kröfur um holla og næringarríka
fæðu. Í Ávexti er enginn viðbættur
sykur, engin sætuefni og engin lit-
arefni. Ávöxtur er sniðinn að þörf-
um barna og er þess vegna mildur
á bragðið auk þess sem að hann
uppfyllir kröfur foreldra um heilsu-
samlegan drykk fyrir börn, að því
er segir í fréttatilkynningu.
Unnt er að velja um þrjár mis-
munandi tegundir af Ávexti en þær
eru hreinn safi úr eplum, þyrni-
blómum og hindberjum, hreinn safi
úr eplum, appelsínum, ananas og
mangó og hreinn safi úr eplum og
perum.
Ferrari-bílstólarnir
á Íslandi
Ferrari-barna-
bílstólarnir eru
nú fáanlegir á
Íslandi, en þessir
barnabílstólar
eru framleiddir
í Frakklandi
og prófaðir
og sam-
þykktir sam-
kvæmt ECE-
reglu- gerð númer 44/03. Þeir
eru, að því er segir í fréttatilkynn-
ingu, með hámarkshliðarvörn og
þykja auk þess bæði léttir og með-
færilegir.
Bílstólarnir fást í versluninni
Móðurást í Hamraborg 7, Ellingsen
á Fiskislóð 1 og á stærri stöðvum
Olís.
Innflytjandi er VL heildverslun.
nýtt
teljum þau ofmetin. Það voru
næstum því allir á nagladekkjum
á 7. áratugnum en síðan hefur
þeim fækkað og hlutfallið er nú
komið undir 50%.“ Nýleg könnun
framkvæmdasviðs Reykjavík-
urborgar sýnir að 46% borgarbúa
reikna með að nota nagladekk í
vetur. „Síðasta vetur var líka gerð
mæling þar sem aðferðafræðin er
sú að fjöldi bifreiða á nagladekkj-
um er talinn á bílastæði eins og í
Mjóddinni og hlutfallið fór hæst í
50%. Það fór áður í 60% en vonir
standa til að það fari niður í 40%.
Varkárni vegur þungt
Umhverfissvið mælist því til að
allir bílar sem er einungis ekið
um borgina séu á annars konar
hjólbörðum en nagladekkjum.
„Ónegld dekk hafa reynst betur
samkvæmt könnunum en auðvitað
er erfitt að fullyrða slíkt og þetta
er mjög mikið deilumál,“ bendir
Gunnar á og í framhaldinu er
hann inntur eftir því hvað hann
ráðleggi fólki á landsbyggðinni og
þeim sem fari oft um fjallvegi.
„Þegar ökuaðstæður eru gler á
veginum og bleyta virðast nagl-
arnir halda bílnum á veginum en
við segjum því til mótvægis að
varkárni og framsýni geta líka
vegið mjög þungt.“ Sigríður Ólafs-
dóttir, ökukennari og starfsmaður
hjá umhverfissviði, segir á vef
Reykjavíkurborgar að fyrirhyggja
við vetrarakstur felist m.a. í því
að nota mjúk vetrardekk og gæta
að því að a.m.k. 1⁄3 af munstrinu sé
til staðar, auk þess sem mikilvægt
sé að hreinsa bíldekkin reglulega
og gíra bíla niður í hálku. Gunnar
segir það ekki meininguna að
skipta sér af nagladekkjum hjá
þeim sem fari mikið út úr bænum
eða búi út á landi. „En ef fólk á
tvo bíla þá segjum við því að hafa
bara annan á nöglum og hafa hinn
sem „borgarbílinn“. Öryggið er
sem sagt í góðum málum í borg-
inni þótt maður sleppi nöglunum
og ávinningurinn er minni loft-
mengun sem er orðið mjög mikið
vandamál í borgum,“ segir Gunn-
ar. Á síðasta ári hafi svif-
ryksmengun í Reykjavík farið 29
sinnum yfir heilsuverndarmörk á
sólarhring. „Okkur finnst það ekki
viðunandi en auðvitað er ástandið
verra í mörgum öðrum borgum.
Fyrir lungna- og asmasjúklinga
og þá sem eru með viðkvæm önd-
unarfæri er þetta ekkert grín því
litlar breytingar skipta mjög
miklu máli upp á lífsgæði. Svifryk
er líka lúmskt, þetta eru örfínar
agnir sem smjúga inn í lungun og
fara ekki. Baráttan gegn nagla-
dekkjunum snýst um þessa loft-
mengun.“
Mælingu á loftgæði í Reykjavík
er að finna á vef borgarinnar, sem
er símæling á svifryki, og í gær
var settur upp slíkur mælir á
mbl.is.
Gjald á notkun nagladekkja?
Að sögn Gunnars hafa margir
velt því fyrir sér hvort yfirvöld
ættu að banna nagladekk í borg-
um eða setja gjald á notkun
þeirra ef þróun svifryks heldur
svona áfram. Í fyrirlestri Þor-
steins Jóhannssonar til meist-
araprófs í umhverfisfræði í Há-
skóla Íslands sagðist hann geta
fallist á rökin um gjaldtöku á
nagladekk. „Ef nagladekk slíta
akbrautum t.a.m. hundraðfalt
meira en önnur dekk væri sjálf-
sagt að ökumenn greiddu auka-
lega fyrir notkun á þeim,“ sagði
hann. Á vef umhverfissviðs eru
nagladekk sögð slíta akbrautum
hundraðfalt meira en önnur dekk
og ætla megi að fólksbílar á
negldum dekkjum frá meðalheim-
ili spæni upp hálfu tonni af mal-
biki á ári og þyrli upp allt að 10
kg af heilsuspillandi svifryki.
Gunnar Hersveinn segist finna
fyrir miklum áhuga um þessi mál-
efni í þjóðfélaginu og umræðan sé
langt í frá þurrausin.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 27
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Vetur 2007
Glæsilegur kvenfatnaður
Ný sending
(í sama húsi og Bílaapótek og NC Næs Connection)
Hæðasmára 4 · Kópavogur · 555 7355
Ný ver
slun Síðumúla 3 · Reykjavík · 553 7355