Morgunblaðið - 08.11.2007, Síða 56

Morgunblaðið - 08.11.2007, Síða 56
56 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ TÍMARNIR hafa breyst, Sprengju- höllin er fallin úr efsta sæti Tón- listans með frumburð sinn, Tímana okkar. Drengirnir síkátu falla alla leið niður í sjötta sæti en búast má við því að þeir rokki upp og niður topp tíu-listann fram yfir jól. Á toppi Tónlistans er glænýr diskur sem ætti að höfða til yngri kynslóðarinnar. Safnplatan 100 ís- lensk barnalög situr í fyrsta sæti en það eru fimm plötur saman í einum pakka með 100 vinsælustu barnalögum síðustu áratuga. Áður hafa komið út í 100 flokknum hjá Senu 100 vinsæl lög um ástina, 100 íslenskir sumarsmellir, 100 vinsæl jólalög og 100 íslensk 80́s lög. Safnplatan 100 vinsæl jólalög sló í gegn fyrir síðustu jól og virðist ætla að verða vinsæl aftur í ár því hún er komin aftur inn á Tónlist- ann og situr nú í fjórða sæti. Það er búið að skreyta Kringluna, hvers vegna ekki að setja jólalögin á fón- inn? Nýjasta afurð Mugisons fékk glimrandi dóma og fimm stjörnur hjá gagnrýnanda Morgunblaðsins. Það er kraftur í Mugison því Mugi- boogie fer upp um sex sæti á milli vikna og situr nú í öðru sæti. Jólaplötuútgáfan er að komast á fullt skrið og á listanum má finna fimm nýja diska á Tónlistanum þessa vikuna, m.a safndisk með hinni fornfrægu sveit Nýdanskri sem kallast 1987-2007.                                  !                  "  # $ $% %& %'() *+ , % '#  %-./)%          ! " #$ %&$' (    ()$*+,  *)  -./# 0  (0!  1' 2.', 3 24'  5' 622      !  "#   $   %& ' (   )*+  ,,  - . /0  1 20  $0  +0 $+ 34 05 60 - 7  3  3+8 38  9  * $:,&   ;*<  0 21 =    + 0 )4 7  30 60        ,* "   % 0   "    " ( 1  " 2    -./)              $%3.'(  ',456'78    %&$' ()$*+, / 6783! 6 8 0 60 (  9"+  : :  '3  7 ;<#   6.=%;  ! " #$ 5      8  3 66<  *  0;   ! :)-;  . >? =  ! <&   $+ 34 05 8 > .0 9? ;@  9@ AB $@ . . <  ,,  7  9@ !  A  B #C+  D1 E F   ;   ?  ' B . 2  '   ' F, G8 3 '0 E? 4 F0   $  : 60  +            " " " "   (,2  (,2 %  9   % 0 " &,: " " / 9  3  30   Ungviðið á toppinn og jólin nálgast Morgunblaðið/Brynjar Gauti Nýdönsk Með vinsælasta lagið og eina söluhæstu plötuna. VERÐBÓLGIN augu Nýdanskrar hafa fengið að óma stíft á útvarps- stöðvum landsins síðan lagið kom út, enda þykir texti þess óvenjulega skemmtileg og smellin smíð. Lagið er tekið af nýútkominni safnplötu Nýdanskrar, 1987-2007, sem kom út nú á dögunum í tilefni 20 ára afmælis hljómsveitarinnar. Platan inniheldur 38 lög af 20 ára ferli sveitarinnar en á henni er einn- ig að finna tvö ný lög, „Verðbólgin augu“ og „Afneitum draumunum“. Eivör Pálsdóttir átti toppsæti Lagalistans í síðustu viku með „Mannabarn“ en hún hefur nú fært sig niður um eitt sæti á milli vikna. Þetta er áttunda vika hennar með lagið á listanum. „Apologize“ með Timbaland/One Republic er í þriðja sæti og gömlu brýnin í Oasis virðast ekki hafa gleymt neinu. Þau hafa nú komið sér fyrir í fjórða sætinu með lagið „Lord don’t slow me down“. Það er spurning hvort þessi bæn þeirra kemur þeim á toppinn. Fimm ný lög raða sér í neðri sæti Lagalistans, fjögur þeirra eru er- lend og eru þau í flutningi Orson, Robbie Williams, Paul McCartney og David Gray, en í tuttugasta sæti er lagið „Hvert á Ísland sem er“ í flutningi Stuðmanna, Valgeirs Guð- jónssonar og Birgittu Haukdal. Það verður gaman að sjá hvar þessi nýj- asti Stuðmannasmellur lendir í næstu viku. Mannabörn með verðbólgin augu BRITNEY okkar Spears er búin að vera í svo hamslausu rugli undanfarin ár að fólk er tekið að gleyma því að í grunninn á hún að heita söngkona, jafnvel tónlistarmaður. En ef fólk er ekki búið að gleyma því þá er því a.m.k. orðið slétt sama fyrir lifandis löngu. Hvað ætti Spears sosum að hafa merkilegt fram að færa tónlistarlega séð nú? Þegar þriðja plata hennar, Britney (2001), kom út var Spears með pálmann í höndunum, búin að hrista af sér hlekki unglinga- poppsins og snaraði fram últrasvölu nútímapoppi með hjálp frá snillingum eins og Neptunes. In the Zone (2003) var hins vegar ójöfn og stuttu eftir það hrundi líf hennar eins og spilaborg. Blackout ber sannanlega merki þessa, og er það plötunni bæði til framdráttar og ekki. Hér eru engar snotrar ballöður og gleðin er víðsfjarri. Það er dumbungur yfir og þetta er kalt, tölvubundið popp út í gegn og á tímum bara býsna svalt sem slíkt. Upptökustjórar eins og Neptunes og The Clutch leysa sitt víðast hvar vel af hendi. Þetta er ekki léleg plata, eitthvað sem margir hefðu ábyggilega búist við og jafnvel vonast eftir. En um leið er þetta ekkert stórkostlegt afrek, endurreisnarverk sem leiðir Britney til ljóssins á ný. Blackout er best lýst sem raunsannri hljóðmynd af því ástandi sem Spears er í hér og nú. Hún er döpur og dofin en um leið er þetta nánast hetjuleg plata, þar sem hún lýsir fal- lega sjúskaðri („elegantly wasted“) poppstjörnu sem flýtur hálfpartinn rænulaus að feigðarósi. Svo segir að fólk að samtíma-popp sé innantómt… Óminnið mikla Britney Spears - Blackout  Arnar Eggert Thoroddsen Reuters Britney Spears „Blackout er best lýst sem raunsannri hljóð- mynd af því ástandi sem Spears er í hér og nú.“ WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á / ÁLFABAKKA MICHAEL CLAYTON kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.7.ára THE GOLDEN AGE kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.7.ára THE INVASION kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára DIGITAL THE INVASION kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16.ára LÚXUS VIP ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ HEARTBREAK KID kl. 8 B.i.12.ára THE BRAVE ONE kl. 10:30 B.i.16.ára STARDUST kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.10.ára ASTRÓPÍA kl. 6 LEYFÐ SAMBÍÓIN ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI ERU EINU BÍÓIN Á ÍSLANDI SEM BJÓÐA UPP Á DIGITAL OG 3-D REAL TÆKNI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABA GEORGE CLOONEY LEIKUR LÖGFRÆÐING Í EINUM AF BETRI „ÞRILLERUM“ SEM SÉST HAFA Á ÞESSU ÁRI. eeee H.J. MBL. eeee KVIKMYNDIR.IS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.