Morgunblaðið - 08.11.2007, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 08.11.2007, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2007 59 HLJÓMSVEITIN Stríð og friður heldur tvenna miðnæturtónleika á NASA um helgina, á föstudags- og laugardagskvöld. Bubbi Morthens stendur í stafni sem fyrr, stýrir knerri og verður bara betri með ár- unum, að sögn Jakobs Magnússonar, bassaleikara sveitarinnar. Ljósmyndari Morgunblaðsins tók þessa mynd af sveitinni við æfingar í húsnæði Félags íslenskra hljómlist- armanna, FÍH, í fyrradag. Bubbi var með sólgleraugun að vanda, þau eru að verða einkennismerki hans líkt og írska söngvarans Bono. Jakob segist þó hafa séð hann án sólgleraugna ný- lega en veit ekki til þess að Bubbi sofi með gleraugun. En að tónleikunum. „Við tökum lög af ferlinum hans Bubba, frá fyrstu plötu. Þetta er voða mikið rokkaðri hlutinn; Utangarðsmenn, Egó, Das Kapital, mest svoleiðis og eitthvað af sólóplötunum,“ segir Jak- ob. „Það er fínt,“ svarar Jakob, spurður að því hvernig sé að vinna með Bubba, hvort hann sé ekkert erfiður. „Hann náttúrlega ræður. Hann hefur lagast rosalega með ár- unum. Ég byrjaði að vinna með hon- um 1984, í Das Kapital. Það var erf- itt, gat verið rosalega erfitt. Svo hafa menn róast með aldrinum, við höfum unnið svo mikið saman. Það er allt voða fagmannlegt í kringum hann, hann vill að mönnum líði vel og gerir vel við sína.“ Auk Jakobs og Bubba eru í sveit- inni þeir Guðmundur Pétursson gít- arleikari, Pétur Hallgrímsson, einnig gítarleikari, og Arnar Geir Ómarsson trommari. Jakob segir þá hlakka mikið til tónleikanna. „Það er alltaf jafnskemmtilegt að spila þessi lög.“ Stríð og friður hitar upp Morgunblaðið/Sverrir Hljómsveitin Það er bæði stríð og friður að vera í hljómsveit með Bubba. ÓLUKKUANGINN Pete Doherty hefur beðið aðdáendur sína afsök- unar á eiturlyfjaneyslu sinni sem náðist á myndband í síðustu viku og sýnir tónlistarmanninn sprauta sig með heróíni aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann hélt því fram að hann væri laus við eit- urlyfin. Söngvari Babyshambles sést á myndunum á heimili sínu í Wilts- hire á föstudaginn að malla eiturlyf í skeið áður en hann setur þau í sprautu og sprautar í hægri hand- legginn. Á myndbandinu skartar Doherty enn grænu armbandi frá Evrópsku MTV-verðlaununum sem voru veitt í Þýskalandi kvöldið áður. Þar hélt hann því fram að hann væri laus við eiturlyfjafíkn eftir að hafa dvalið í sex vikur á meðferðarstofnun. Do- herty grínaðist jafnframt með það að hann saknaði harðra fíkniefna. „Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann sprautar sig síðan hann þótt- ist vera orðinn laus við eiturlyfin. Það getur verið að hann hafi komist í gegnum meðferð en um leið og freistingin er sett fyrir framan hann ræður hann ekki við sig. Hann hefur fengið mörg tækifæri til að byrja upp á nýtt en hann hendir þeim öllum frá sér,“ sagði kunningi Doherty við dagblaðið The Sun. Óforbetranlegur Pete Doherty Fallinn enn og aftur BRESKI leikarinn Clive Owen ætl- ar aldrei að flytja til Hollywood í at- vinnuskyni. Owen hefur þurft að vinna í Bandaríkjunum að mörgum stærstu myndunum sínum en hefur aldrei fundið þörf fyrir að flytja þangað. „Ég hef aldrei dregist að Holly- wood. Margar myndir eru gerðar í Evrópu núna og það gefur mér leyfi til að búa í Bretlandi. Heimili mitt er í London og svo á ég sumarhús í Essex-héraði. Þetta þýðir að ég er aldrei langt í burtu frá fjölskyld- unni. Hún getur líka heimsótt mig á tökustað. Fyrir mér er og verður London heimili mitt, ég hef búið þar í tuttugu ár eða síðan ég fluttist þangað til að fara í leiklistarskóla. Ég get ekki ímyndað mér hvernig það er að búa annars staðar,“ sagði Owen en hann er giftur Söruh-Jane Fenton og eiga þau tvær dætur, Hönnuh og Evu. Owen sér ekki eftir hlutverki James Bonds til Daniels Craig. „Ég hef aldrei itið tilbaka og velt mér upp úr því sem ég hef farið á mis . Eftir því sem ég verð eldri verður lífið betra. Mér hefur aldrei liðið jafn vel og núna. Ég er ham- ingjusamur með konu og börnum,“ segir sáttur Owen. Heimakær Clive Owen Ætlar ekki til Holly- wood

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.