Morgunblaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Falleg ferðadress
í miklu úrvali
STÆRÐIR
42-52
KYNNUM
VOR- OG SUMAR
2008
DAGANA 3.-12. APRÍL
Hverfisgötu 6 101 Reykjavík
sími 562 2862
M
bl
.9
77
38
8
Vorið er
komið
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978
www.damask.is
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-16.
Glæsidagar 4 - 5 apríl
20% afsláttur af allri barnavöru
30% afsláttur af
Lyocell satínsettum
Laugavegi 47, sími 552 9122. Laugavegi 47, sími 551 7575.
25% afsláttur
af öllum buxum
föstudag og langan laugardag
M
b
l 9
07
90
4
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
FÉLAGAR Bandalags háskóla-
manna telja að laun þeirra þyrftu að
hækka um 26-28% til að geta talist
sanngjörn. Þetta kemur fram í nýrri
kjarakönnun sem Capacent Gallup
hefur gert fyrir
BHM og kynnt
var á tveggja daga
aðalfundi banda-
lagsins sem hófst í
gær.
Kjaramálin eru
efst á baugi á
fundinum en
samningar BHM-
félaga losna 1.
maí. Í könnuninni
kom í ljós að mun-
ur á meðallaunum karla og kvenna
reynist 13,3% en þar af er kynbund-
inn launamunur 5,7%. Kynbundinn
launamunur er minnstur hjá fé-
lagsmönnum 30 ára og yngri. Helm-
ingur aðspurðra taldi sig ekki eiga
möguleika á launahækkun í starfi
sínu og er aðalástæðan sú að laun eru
fastbundin af kjarasamningum að
mati félagsmanna BHM.
Séu heildarlaun svarenda greind
eftir atvinnugreinum kemur í ljós að
þau voru hæst í samgöngum og sam-
skiptum eða að meðaltali 548.275 kr.
en lægst í menntageiranum þar sem
þau voru 404.840 kr.
Hallar verulega á BHM í
samanburði við VR og SSF
Gerður hefur verið samanburður
við laun annarra stéttarfélaga, þar
sem Capacent hefur einnig unnið
sambærilegar kjarakannanir fyrir
VR og Samtök starfsmanna fjármála-
fyrirtækja. Í ljós kemur að þar hallar
verulega á félagsmenn BHM því sam-
anburðurinn leiðir í ljós að heildar-
laun háskólamenntaðra innan VR eru
10% hærri og heildarlaun háskóla-
menntaðra innan SSF heilum 22%
hærri en heildarlaun félagsmanna
BHM.
Einnig kemur fram að vinnuvikan
er lengri hjá BHM eða 46,1 klukku-
stund á móti 43,8 stundum hjá starfs-
mönnum fjármálafyrirtækja (SSF)
og 45 stundum hjá VR.
Að mati forystu BHM er ljóst af
þessu að aðildarfélög BHM hafi verk
að vinna í kjarabaráttu komandi
vikna enda sé eitt helsta baráttumál
samtakanna að öll háskólamenntun
sé metin að verðleikum.
Ef niðurstöðurnar eru skoðaðar
eftir starfsstéttum kemur fram að
hærri stjórnendur eru með hæstu
launin eða um 520 þús. á mánuði og
háskólakennarar koma næstir í röð-
inni með um 486 þús. í heildarlaun að
meðaltali. Lægsti hópurinn eru
sjúkra-, þroska- og iðjuþjálfar með
um 331 þúsund í heildarlaun að með-
altali og bókasafns-og upplýsinga-
fræðingar með rúm 337 þús. kr. í
heildarlaun að meðaltali. Hæstu
heildarlaunin er að finna í Félagi há-
skólakennara, prófessora (rúm 572
þús kr. á mánuði) en lægstu meðal-
launin eru hjá Leikarafélagi Íslands
(rúm 298 þús. kr. á mánuði).
Kjarakönnunin var gerð 24. nóv-
ember 2007 – 17. janúar 2008. Í end-
anlegu úrtaki voru 3.059 félagsmenn
og svarhlutfallið var 54,2%.
Ólíkt verðmat á starfsstéttum
Halldóra Friðjónsdóttir, formaður
BHM, bendir á varðandi samanburð-
inn við VR og SSF á heildarlaunum
að ólíku sé saman að jafna að ýmsu
leyti. Félagsmenn í BHM séu að
stórum hluta á taxtalaunum, stór
hluti kvennastéttanna sem starfa í
heilbrigðisgeiranum, sé með mjög lé-
leg grunnlaun, sem þær bæta svo upp
með álagsgreiðslum og mikilli yfir-
vinnu. „Það er því erfitt að bera sam-
an heildarlaun svona ólíkra hópa en
það er engu að síður athyglisvert að
sjá niðurstöðurnar í þessu samhengi,“
segir hún.
Halldóra segist vera ánægðust með
að í ljós kom að launamunur kynjanna
er töluvert minni meðal félagsmanna
BHM en VR og SSF. „Það er stað-
festing á því sem ég hef haldið fram
lengi, að launamunur kynjanna hjá
hinu opinbera felst ekki í að verið sé
að mismuna fólki sem vinnur sömu
störf. Launamunur kynjanna hjá hinu
opinbera felst í að það er verið að
verðmeta stéttir mjög misjafnlega.
Það eru engar hreinræktaðar karla-
stéttir innan okkar raða. Ef svo væri
liti þetta örugglega öðruvísi út. Ef lit-
ið er á meðaltal dagvinnulauna hjá
Kjararannsóknarnefnd opinberra
starfsmanna, þá má t.d. sjá að mjög
mikill munur er á dagvinnulaunum
verkfræðinga sem vinna hjá ríkinu og
ljósmæðra sem eru með 6 ára há-
skólanám að baki og tveggja ára nám
umfram það sem krafist er í verk-
fræðinni. Þetta snýst því að miklu
leyti um verðgildi stétta.“
Gert er ráð fyrir að BHM-félögin
semji hvert fyrir sig í kjaraviðræðun-
um sem framundan eru. Rætt verður á
aðalfundinum í dag umhvaða leiðir séu
vænlegastar til að ná sömu launum og
gilda á almenna markaðinum.
Telja launin þurfa að
hækka um 26-28%
!
" # $#
%&%'
!
!
" "
!##
$
%%%"
$!
$#
#
%!$
#"!
!
( $$ " !) *
$# $ &$*
%&*
#
'()()
'*+,)
Halldóra
Friðjónsdóttir
Í HNOTSKURN
»BHM eru samtök 25 stétt-arfélaga háskólamenntaðra
og eru félagar í dag rúmlega tíu
þúsund.
»Heildarlaun karla voru skv.könnuninni að meðaltali
465.329 kr. og kvenna 403.520 kr.
Um 77% voru með lægri heild-
arlaun en 500 þús. á mánuði.
»Karlar í BHM vinna að jafnaði48 stundir í viku og konur 45
stundir.
Kynbundinn
launamunur í
BHM mælist 5,7%
www.sjofnhar.is