Morgunblaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 49
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl 8.30, vinnustofa kl.
9-16.30, baðþjónusta kl. 10-16.30, bingó kl. 14
(ath. hækkað verð), söngstund við píanóið kl.
15.30.
Árskógar 4 | Baðþjónusta kl. 8.15-16, opin
smíðastofa kl. 9-16.30. Bingó næsta föstudag.
Bólstaðarhlíð 43 | Dansað með Jean kl. 13.30.
Hárgreiðsla, böðun, almenn handavinna, morg-
unkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður,
kertaskreyting, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofan í handmennt opin
kl. 9-16, enginn leiðbeinandi í dag. Guðrún hár-
greiðsluk. s. 553-3884 / 893-3384.
Félagsheimilið Gjábakki | Boccia, málm- og silf-
ursmíði og jóga fyrir hádegi, hádegisverður, fé-
lagsvist kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefnaður kl. 9,
jóga kl. 9.15, ganga kl. 10, leikfimi kl. 10.30, há-
degisverður, gleðigjafarnir syngja kl. 14 og á eftir
leikur Vitabandið nokkur lög.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatns-
leikfimi kl. 12, félagsvist kl. 13.30, rútuferð frá
Hleinum kl. 13 og Garðabergi kl. 13.15. Miðar í
bæjarferð á mánudaginn seldir í Jónshúsi í dag
kl. 13-16, kr. 1.500.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl.
9-16.30, m.a. bókband. Prjónakaffi/Bragakaffi kl.
10, ganga og leikfimi kl. 10.30 í ÍR-heimilinu v/
Skógarsel, kaffi og spjall. Frá hádegi spilasalur
opinn, kóræfing kl. 14.20. Postulínsnámskeið
hefst 8. apríl kl. 13.
Furugerði 1, félagsstarf | Aðstoð við böðun, hár-
greiðslustofan og fótaaðgerðarstofan opin, tré-
smíði og útskurður kl. 9, hádegismatur, mynd-
bandssýning kl. 14, föstudagskaffi.
Hvassaleiti 56-58 | Frjáls aðgangur að opinni
vinnustofu kl. 9-12, postulínsmálning. Jóga kl. 9-
11, Björg F. Böðun fyrir hádegi, hádegisverður.
Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og venjulega.
Listasmiðjan opin, félagsvist, skapandi skrif, Bör
Börsson, Müllersæfingar, brids, þegar amma var
ung, leikfimi, sönghópur Hjördísar Geirs, Stef-
ánsganga o.fl. Bókmenntaferð til Akureyrar 14.-
16. maí. Uppl.: 568-3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgunkaffi, blaða-
klúbbur kl. 10, leikfimi kl. 11, opið hús, vist/brids
kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30.Hárgreiðslustofa s.
552-2488 og fótaaðgerðastofa s. 552-7522.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan og vinnustofa í
handmennt opin kl. 9-16, myndlistarnámskeið
leiðb./ Hafdís kl. 9-12, leikfimi leiðb./Janick kl.
13. Fyrsta föstudag í mán. kl. 14 er guðsþjón-
usta með sr. Sigurði Jónssyni og kirkjukaffi á
eftir.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl.
9.15-14.30, handavinna kl. 10.15, spænska, byrj-
endur kl. 11.45, hádegisverður, sungið v/flygilinn
kl. 14, kaffiveitingar, dansað í aðalsal.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, leirmótun,
morgunstund, leikfimi, hárgreiðslu- og fótaað-
gerðarstofan opin, bingó kl. 13.30. Sími: 411-
9450.
Þórðarsveigur 3 | Salurinn opinn kl. 13, kaffiveit-
ingar.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12.
Íslenska Kristskirkjan | Námskeið um lækningar
í Fossaleyni 14, Grafarvogi laugardaginn 5. apríl
kl. 10-15. Paul og Rivers Tesku kenna og vitna
um eigin reynslu. Námskeiðið er ókeypis og öll-
um opið.
Laugarneskirkja | Árlega samtals- og bænahelgi
Laugarneskirkju verður í Vatnaskógi 4.-5. apríl.
Stefnumótunarvinna safnaðarins verður undir
stjórn Jóns Garðars Hreiðarssonar rekstrar- og
stjórnunarráðgjafa. Uppl. hjá sóknarpresti í síma
820-8865.
80ára afmæli. Á morgun,5. apríl, verður Séra
George, fyrrverandi skóla-
stjóri í Landakotsskóla, átt-
ræður. Séra George tekur á
móti gestum í safnaðarheimili
kaþólsku kirkjunnar við
Landakot.
50ára afmæli. Í dag, 4.apríl, er Bogi Jónsson
bæklunarskurðlæknir fimm-
tugur.
dagbók
Í dag er föstudagur 4. apríl, 95. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Hann veitti sálum vorum lífið og lét oss eigi verða valta á fótum. (Sl. 66, 9.)
Hundahótelið á Leirum ann-ast vörslu óskilahunda fyr-ir lögreglu og hundaeft-irlitsmenn á
höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt lögum ber sveitarfélög-
unum skylda til að vista hunda í óskil-
um sjö sólarhringa, en hafi eigandi
ekki gefið sig fram innan þess tíma má
ráðstafa hundum til nýrra eigenda eða
svæfa þá.
Hreiðar Karlsson er hótelstjóri á
Leirum, og segir blessunarlega takast
að finna flestum óskilahundum nýtt
heimili: „Að jafnaði koma um 300
óskilahundar á hótelið á hverju ári, og
langflestir þeirra eru sóttir af eig-
endum sínum. Okkur gengur vel að
finna nýja eigendur handa þeim hund-
um sem enginn sækir, og þónokkur
fjöldi fólks leitar til okkar í leit að
hundi til að ættleiða,“ segir Hreiðar.
Þá hringja margir sem finna lausa
hunda í Hundahótelið en vilja geyma
hundinn hjá sér fyrst um sinn, og tek-
ur Hreiðar þá með glöðu geði að sér að
leiða saman finnendur og eigendur
hunda sem hafa samband við hótelið í
leit að dýrinu sínu.
Hundar í heimilisleit
Þeir sem áhuga hafa á að ættleiða
heimilislausan hund geta leitað beint
til Hreiðars: „Því fylgja margir kostir
að fá fullorðinn hund frekar en hvolp.
Fullorðnir hundar eru orðnir hús-
hreinir og hafa fengið þjálfun. Það er
mikill miskilningur að ekki megi kenna
gömlum hundi að sitja, og má hæglega
þjálfa fullorðna hunda eftir þörfum nýs
húsbónda,“ útskýrir Hreiðar og bætir
við að fullorðnir hundar hafi einnig
þann kost yfir hvolpa að hafa full-
þroskaðan persónueika sem nýr eig-
andi getur metið vel hvort falli að þeim
íbúum sem fyrir eru á heimilinu.
Hótelið á Leirum vistar einnig
hunda fyrir almenning í lengri og
skemmri tíma, s.s. vegna ferðalaga og
flutninga og er eftirspurnin mjög mikil
að sögn Hreiðars: „Á hótelinu fá allir
hundar góða umönnun, ást og um-
hyggju. Hver hundur hefur sitt eigið
hótelbúr, sem skiptist í inni- og úti-
svæði, og einnig veljum við saman
hunda til að leika sér á 600 fermetra
útileiksvæði þar sem oft verður mikið
fjör,“ segir Hreiðar en hótelið og gestir
þess eru undir nánu eftirliti allan sól-
arhringinn.
Heimasíða Hundahótelsins á Leirum
er á slóðinni www.hundahotel.is.
Dýrahald | Óskilahundar bíða nýrra eigenda á Hundahótelinu á Leirum
Eldri hundar góðir félagar
Hreiðar Karls-
son fæddist í
Reykjavík 1950.
Hann lauk sveins-
prófi og síðar
meistaraprófi í
skriftvélavirkjun
1980. Hreiðar
starfaði sem
tölvurafeindavirki
til 1994 þegar hann hóf rekstur
Hundahótelsins á Leirum. Hreiðar er
kvæntur Elínu Gestsdóttur framkv.stj.
og eiga þau tvær dætur og þrjú barna-
börn.
Tónlist
Hallgrímskirkja | Verdi Requiem
– Vox academica 5. apríl kl. 17.
Sólrún Bragadóttir sópran,
Rannveig Fríða Bragadóttir
messósópran, Gissur Páll Giss-
urarson tenór, Kristinn Sig-
mundsson bassi. Hljómsveit Jón
Leifs, Camerata, stjórnandi Há-
kon Leifsson. 12 tónar, Skóla-
vörðustíg 15. Tónastöðin, Skip-
holti 50D.
Myndlist
Deild 33b | 33b er sýningarrými
og vinnustofur myndlistarmanna
og tónlistarmanna í Skipholti
33b, fyrir aftan gamla Tónabíó.
Árleg sýning vinnustofunnar
verður um helgina. Sýningin
verður opnuð á föstudag kl. 20-
23 og opið er um helgina, 5. og
6. apríl kl. 14-17.
Næsti bar | Myndlistarmaðurinn
Þóra Ben opnar sýningu kl. 18 á
Næsta bar, Ingólfsstræti 1a,
gegnt Íslensku Óperunni. Sýn-
inguna kallar Þóra, Úr einu í
annað en hún hefur vent kvæði
sínu í kross. Í stað ljóðrænna
landslagsmynda sýnir hún nýjar
fígúratífar myndir. Sýningin
verður opin til 9. maí.
Mannfagnaður
Samfylkingin í Hafnarfirði |
Kaffisetur 60+ í Hafnarfirði er
opið alla þriðju- og föstudaga kl.
10-12 að Strandgötu 43. Gunnar
Axel Axelsson nefndarmaður í
miðbæjarnefnd mætir í dag og
bæjarfulltrúar verða nk. þriðju-
dag.
Kvikmyndir
Skriðuklaustur | Síðari sýning-
ardagur heimildar- og stutt-
myndahátíðarinnar 700IS verð-
ur laugardaginn 5. apríl. Þá
verða m.a. sýndar myndirnar
Hero, Mother Economy og The
Akademi.
Frístundir og námskeið
Maður lifandi | Opinn hlát-
urjógatími í heilsumiðstöðinni
Borgartúni 24, laugardaginn 5.
apríl kl. 10.30. Ásta Valdimars-
dóttir og Kristján Helgason leið-
beina. Aðgangseyrir er 1.000 kr.
Útivist og íþróttir
Motormax | Íslandsmeistaramót
ÍKF METAL í kraftlyftingum,
Motormax-mótið verður haldið í
húsakynnum Motormax, 5. apríl
kl. 13. Flestir sterkustu menn
landsins verða með og mun
kraftlyftingamaður ársins, Sig-
fús Fossdal, reyna að lyfta
mestu þyngd Íslandssögunnar í
bekkpressu. Frítt inn.
Ljósmynd/Steingrímur
Sprengdi formlega smásprengingu
MÓTTÖKUATHÖFN fór fram í Héðins-
fjarðargöngunum í gær með formlegri
smásprengingu í tilefni af því að búið er að
sprengja síðasta haftið inn til Héðins-
fjarðar. Kristján Möller samgöngu-
ráðherra var við athöfnina ásamt föru-
neyti, starfsmönnum Vegagerðarinnar,
bæjarstjórnarfólki, fulltrúum verktaka og
verkeftirlits og fleiri gestum. Fulltrúar
verktaka sýna hér samgönguráðherra
hvernig hann á að bera sig að við að koma
sprengingunni af stað.
FÉLAGSSTOFNUN stúdenta í
samstarfi við Te & Kaffi og Hjálp-
arstarf kirkjunnar mun standa fyr-
ir sanngjörnum dögum á Háskóla-
torgi dagana 3. og 4. apríl.
Í fréttatilkynningu segir m.a. að
tilefnið sé að Félagsstofnun stúd-
enta hefji nú sölu á fyrstu fair-
trade-vörunni sem framleidd er á
Íslandi og verður hún fáanleg í
Hámu og kaffistofum stúdenta sem
staðsettar eru í byggingum Há-
skóla Íslands. Fairtrade-vöru-
merking er staðfesting á því að í
viðskiptum með vöruna hafi sann-
girni verið gætt gagnvart framleið-
anda.
Um nokkurt skeið hefur verið
hægt að kaupa innfluttar fairtrade-
vörur hér á landi en fyrir um ári
leitaði FS eftir samstarfi við Te &
Kaffi um framleiðslu á fairtrade-
kaffi. Ástæðan fyrir því að kaffi
varð fyrir valinu er sú að það er sú
vara sem stúdentar við HÍ neyta
mest af, þ.e. tæplega 1.000 bollar á
dag sem gera rúmlega 287.000
bolla á ári eða um 61.100 lítra.
Kaffibarþjónar frá Te & Kaffi
kynna fairtrade-kaffi á Háskóla-
torgi kl. 14-17 í dag og á morgun
og einnig verður boðið upp á dag-
skrá kl. 14-15 á morgun, föstudag,
í sal 102 á Háskólatorgi. Hljóm-
sveitin Flís spilar á Torginu kl. 16-
18 og Bóksala stúdenta býður
bækur um fairtrade og kaffi á til-
boði.
Dagskráin er öllum opin.
Kaffi kynnt
á Háskóla-
torgi
STOFNFUNDUR Náttúruvernd-
arsamtaka Vestfjarða verður hald-
inn í Hömrum á Ísafirði laugar-
daginn 5. apríl kl. 14.
„Vestfirðingar hafa löngum ver-
ið hreyknir af þeirri einstöku nátt-
úrufegurð sem hér ríkir og hún er
stór og mikilvægur þáttur í þeirri
ímynd sem Vestfirðingar hafa
skapað sér á undanförnum árum.
Nýting Hornstrandafriðlands, vist-
fræði og náttúrurannsóknir, áform
tengd ferðamennsku, stóriðju, pól-
siglingum, hafnarmannvirkjum og
samgöngum – allt kallar þetta á að
vestfirsk náttúra hafi formlegan
málsvara í heimabyggð,“ segir í
tilkynningu
Þórunn Sveinbjarnardóttir um-
hverfisráðherra verður heiðurs-
gestur stofnfundarins. Meðal ann-
arra frummælenda verða Árni
Finnsson, formaður Náttúruvernd-
arsamtaka Íslands, og Ómar
Ragnarsson, fjölmiðlamaður og
rithöfundur. Úr hópi heimamanna
munu Þórhallur Arason, Sigríður
Ragnarsdóttir og Ragnheiður Há-
konardóttir taka til máls. Fund-
arstjóri verður Ólína Þorvarðar-
dóttir.
Stofnfundur
Náttúruvernd-
arsamtaka
Vestfjarða
Þjóðverjar höfðu betur
Missagt var í greininni Vor í Varsjá í
Morgunblaðinu í gær á bls. 18 að
Varsjárbúar hefðu haft betur í upp-
reisninni gegn Þjóðverjum 1944. Hið
rétta er að Þjóðverjar höfðu betur.
LEIÐRÉTT
♦♦♦
♦♦♦
♦♦♦
STOFNFUNDUR vinafélags Tíb-
ets verður haldinn á Kaffi Hljóma-
lind kl. 13 sunnudaginn 6. apríl. All-
ir sem láta ástandið í Tíbet sig
varða eru velkomnir. Nánari upp-
lýsingar eru á heimasíðu félagsins,
www.tibet.is.
Stofnfundur
vinafélags Tíbets
MORGUNBLAÐIÐ birtir
til kynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
og mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/ eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
númer.
Hægt er að hringja í
síma 569-1100, senda til-
kynningu og mynd á net-
fangið ritstjorn@mbl.is, eða
senda tilkynningu og mynd
í gegnum vefsíðu Morgun-
blaðsins, www.mbl.is, og
velja liðinn „Senda inn
efni“. Einnig er hægt að
senda vélritaða tilkynningu
og mynd í pósti. Bréfið skal
stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.