Morgunblaðið - 04.04.2008, Side 32

Morgunblaðið - 04.04.2008, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ólafur Ragn-arsson bókaút- gefandi fæddist á Siglufirði 8. sept- ember 1944. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 27. mars 2008 eftir að hafa háð baráttu við ill- vígan sjúkdóm í rúm tvö ár. Foreldrar hans voru Guðrún Reyk- dal frá Siglufirði og Þ. Ragnar Jón- asson bæjargjaldkeri og fræði- maður frá Eiðsstöðum í Blöndu- dal, Austur-Húnavatnssýslu. Systkini Ólafs eru Jónas rit- stjóri, f. 24.2. 1948, og Edda, f. 4.10. 1949. Ólafur kvæntist Elínu Bergs 6. júlí 1968. Elín fæddist 11.6. 1949, foreldrar hennar voru Lís Er- iksen Bergs húsmóðir og Helgi Bergs alþingismaður og banka- stjóri. Börn þeirra eru 1) Ragnar Helgi myndlistarmaður í Reykja- vík, f. 5.10. 1971, kona hans er Margrét Sigurðardóttir kennari. Börn þeirra eru Diljá, Ólafur Kári og Una. 2) Kjartan Örn við- skiptaráðgjafi í New York, f. 25.10. 1972. Hann er kvæntur Ástu Sóllilju Guðmundsdóttur líffræðingi. Börn þeirra eru Val- týr Örn, Elín Halla og Ólafur Helgi. Ólafur útskrifaðist með versl- unarpróf frá Verslunarskóla Ís- lands 1963 og nam síðar gerð sjónvarpsefnis og kvikmynda hjá sjónvarpsstöðvum í Danmörku og Svíþjóð árið 1966 og við Syra- cuse-háskóla í New York-ríki í Bandaríkjunum 1973. Ólafur var kennari við Barna- skóla Siglufjarðar skólaárið 1964-1965 en hóf síðan störf sem blaðamaður á Alþýðublaðinu. Hann starfaði sem fréttamaður aðalræðismaður Hollands á Ís- landi 1991-1999. Ólafur hafði umsjón með gerð sjónvarpsþátta um margvísleg málefni, skrifaði handrit að og stjórnaði fjölda heimild- arkvikmynda. Má þar nefna sex þátta sjónvarpsflokk um Íslend- inga í Vesturheimi, 1975. Meðal þátta hans fyrir útvarp má nefna 20 þátta röð um íslenska þjóðtrú 1987 og fimm þætti um ferðir sínar um Vestur-Indíur 2003. Auk þess að koma að útgáfu hundraða bóka og ritverka skrif- aði Ólafur og ritstýrði átta bók- um. Hann skrifaði samtalsbók við Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra 1981 og ritstýrði og skráði skýringar með efni bók- anna Frelsi að leiðarljósi, úrvali úr ræðum Gunnars Thoroddsens, 1982, og greinasafni Halldórs Laxness, Af menníngarástandi, 1986. Ólafur tók saman og ritaði ásamt Valgerði Benediktsdóttur bókina Lífsmyndir skálds sem fjallar um æviferil Halldórs Lax- ness og var gefin út á níræð- isafmæli hans, 1992, auk þess að vera einn þriggja ritstjóra Ís- lensks þjóðsagnasafns, fimm binda safnverks um íslenskar þjóðsögur, sem út kom árið 2000. Hann skrifaði bókina Halldór Laxness – Líf í skáldskap, sem gefin var út 2002, þegar öld var liðin frá fæðingu skáldsins og bókina Halldór Laxness – Til fundar við skáldið, sem kom út haustið 2007. Í mars á þessu ári kom út fyrsta ljóðabók Ólafs, Agnarsmá brot úr eilífð. Ólafur er ennfremur höfundur fjölda viðtala og greina í blöðum og tímaritum. Ólafi hlotnaðist fjöldi við- urkenninga á ferli sínum, þar á meðal Riddarakross Oranje- Nassau-orðunnar hollensku, Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu auk þess að vera Heið- ursfélagi Félags íslenskra bóka- útgefenda. Ólafur verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 11. og dagskrárgerð- armaður hjá Sjón- varpinu í tíu ár, frá stofnun þess 1966. Árið 1976 tók hann við sem ritstjóri dagblaðsins Vísis og gegndi því starfi í fimm ár. Árið 1981 stofnaði Ólafur ásamt eig- inkonu sinni bóka- forlagið Vöku. Hann var framkvæmda- stjóri þess og síðar (frá 1985) Vöku- Helgafells til ársins 1999. Hann var stjórnarformaður Vöku- Helgafells 1999-2000 og síðar Eddu – miðlunar og útgáfu hf., 2000-2002. Hann hóf aftur af- skipti af bókútgáfu árið 2005 er hann var annar stofnenda bóka- forlagsins Veraldar. Ólafur var mikilvirkur í ýms- um félagsstörfum. Hann sat í stjórn Félags kvikmyndagerð- armanna 1971-1974, var formað- ur Samstarfsnefndar um reyk- ingavarnir 1973-1976, formaður Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni 1977-1981, sat í stjórn Félags íslenskra bókaút- gefenda 1982-1998 (formaður þess 1995-1998), var formaður stjórnar Verðlaunasjóðs ís- lenskra barnabóka frá stofnun hans 1985 til 2000 auk þess að vera formaður Bókasambands Ís- lands frá stofnun þess 1986 til 1992. Ólafur sat í stjórn hollvina- félags Þjóðminjasafnins, Minja og sögu, frá stofnun þess 1989 og í stjórn Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins frá 1989 til 1993. Hann átti í fimm ár sæti í nefnd Þjóðkirkjunnar til und- irbúnings 1000 ára afmælis kristnitöku á Íslandi árið 2000 auk þess að vera formaður Holl- vinafélags hugvísindadeildar Há- skóla Íslands frá stofnun félags- ins 1998 til 2006. Ólafur var Í dag kveðjum við Ólaf Ragnars- son, elskulegan tengdaföður minn, eftir hetjulega baráttu við hræðileg- an sjúkdóm. Sjúkdóm sem fyrst rændi hann fallegu röddinni sem hljómaði svo oft bæði í sjónvarpi og útvarpi og seinast tók máttinn úr litla fingri, eina samskiptatækinu sem hann hafði átt mánuðum saman. Þó ekki fyrr en sá litli hafði lokið við að skrifa tvær bækur og gott betur. Það er lýsandi fyrir skapgerð tengdapabba hvernig hann tókst á við þann sjúkdóm sem hann vissi að engin lækning hefði enn fundist við og sem legði fólk tiltölulega fljótt að velli. Hann var ekki á þeim buxunum að láta veikina valda sér hugarangri heldur leit á hana sem hluta af sínu nýja daglega lífi sem hann reyndi að laga sig að eftir bestu getu. Hann tók hverju sem gekk á af einstöku æðru- leysi og leit alltaf jákvæðum augum fram á veginn. Oftast var það hann sem stappaði stálinu í okkur hin þeg- ar áföllin dundu yfir og minnti á hve dýrmætt lífið er og hve mikilvægt er að fólk njóti þess og fari vel með það. Hann stóð heldur ekki einn í þessu stríði. Tengdamóðir mín var vakin og sofin yfir honum síðustu tvö árin þegar sjúkdómurinn fór að taka sinn toll. Fórnfýsi hennar og kærleikur er aðdáunarverður. Það er óréttlátt að Óli skyldi vera tekinn frá okkur í blóma lífsins þeg- ar ábyrgð á útgáfurekstri var frá og til stóð að njóta lífsins á nýjan hátt, ferðast, skrifa bækur og fást við ann- að skemmtilegt. Mér þykir líka ótrú- lega sárt að litli nafni hans fái ekki tækifæri til að kynnast afa sínum á sama hátt og hin barnabörnin, fara með honum í göngutúra í Brekku- koti, fleyta kerlingar á Skorradals- vatni og fylgjast með hegrunum á ströndinni í Flórídu. En við munum segja honum frá afa Óla, hvað hann var einstaklega hlýr og þolinmóður, jákvæður og skemmtilegur og hvað hann elskaði barnabörnin sín óend- anlega mikið. Ásta Sóllilja. Elsku afi Óli. Þú varst besti afi sem nokkurt barnabarn getur hugsað sér og við veltum því fyrir okkur af hverju við vorum svo heppin að fá að eiga þig sem afa. Þú hafðir alltaf tíma fyrir okkur og það var alveg sama hvað var að eða í hvaða vanda við vorum, þá gast þú alltaf hjálpað okkur. Þú stóðst alltaf með okkur og studdir okkur hundrað prósent í öllu því sem við tókum okkur fyrir hendur og sýndir því alltaf áhuga. Fáar mann- eskjur hafa kennt okkur jafn mikið og þú. Þú varst alveg svakalega lífsglaður og gast alltaf kætt okkur ef okkur leið illa. Þú hugsaðir alltaf um alla aðra en sjálfan þig fyrst. Það var svo gaman að vera í kringum þig, þú varst alltaf svo hress og góður. Með jákvæðni þinni og bjartsýni var allt hægt! Al- veg sama hversu ómögulegt eitthvað virtist, það var hægt, bara með smá bjartsýni. Þú og amma fóruð oft með okkur til útlanda. Eins og t.d. þegar þið fóruð með okkur til Danmerkur og þú skipulagðir alla vikuna og gerð- ir meira að segja litla bók með ferða- áætlun. Þegar við lítum til baka sjáum við bara góðar minningar. Við þökkum guði fyrir að hafa fengið að njóta þeirra forréttinda að kynnast þér. Það gerði okkur að betri manneskjum. Og við þökkum þér afi fyrir allt sem þú kenndir okk- ur og alla ástina og gleðina sem þú veittir okkur. Takk fyrir allt elsku afi. Diljá Ragnarsdóttir og Ólafur Kári Ragnarsson. Síðustu mánuðir hafa verið mjög sérstakir. Erfiðir en jafnframt gef- andi. Við heimsóttum hann oft, fyrst í Bjarmalandið, síðan á Borgarspít- alann og loks á líknardeildina í Kópa- vogi, þar sem honum leið eins vel og hugsast gat. Tölvupóstarnir urðu einnig margir. Sjúkdómurinn, sem oftast er nefnd- ur MND, greindist fyrir rúmum tveimur árum þó að einkennanna hefði orðið vart nokkrum mánuðum fyrr. Lömunin jókst smám saman og hreyfi- getan minnkaði. Hugsunin var skýr til hinstu stundar og æðruleysið ótrúlegt. Hann missti málið fyrir meira en ári. Í skóla hafði hann vélritað allra manna hraðast en varð nú undir lok- in að sætta sig við að nota einn fingur á tölvu til að hafa samskipti við fólk. Og með þessum eina fingri gat hann lokið við bók um vin sinn Halldór Laxness. Einnig lauk hann við mjög persónulega ljóðabók. Fyrsta eintak bókarinnar kom úr prentun í vikunni fyrir páska og það gladdi hann mjög að fá að handleika hana. Óli var alltaf að miðla upplýsing- um. Á æskuárunum á Siglufirði skrif- aði hann fréttir og tók myndir fyrir dagblöðin. Kvikmyndataka var eðli- legt framhald. Hann gerði myndir um lífið í síldarbænum og sýndi þær opinberlega við mikla aðsókn. Þegar undirbúningur íslensks sjónvarps hófst var hann sjálfkjörinn í hópinn. Landsmenn þekkja framhaldið. Óli og Ella voru eitt. Þau voru gef- in saman í Dómkirkjunni fyrir nær fjörutíu árum og stóðu saman alla tíð. Í áratugi ráku þau eina stærstu bókaútgáfu landsins. En fjölskyldan og heimilið voru þeim allt. Alúðin við börnin og barnabörnin var einstök. Ella stóð eins og klettur við hlið Óla í veikindum hans. Hún studdi hann í öllum hans verkum og hjúkr- aði honum af sérstakri alúð. Þvílík- ur styrkur. Alltaf þegar við komum í heimsókn var Ella jákvæð og hlý. Þetta voru eftirminnilegar stundir. Hugur okkar er nú hjá Ellu, Ragnari Helga og Margréti, Kjart- ani Erni og Ástu – og ekki síst hjá barnabörnunum sex, sem nú þurfa að kveðja ástríkan afa. Megi góður Guð styrkja þau í sorginni. Jónas Ragnarsson og Katrín Guðjónsdóttir. Í dag kveðjum við mág okkar og svila, Ólaf Ragnarsson. Óli lést eftir langa og stranga baráttu við erfiðan sjúkdóm. Við áttum samleið í rúm 40 ár og bar aldrei skugga á samskipti okkar sem ætíð voru mikil og góð. Viljum við minnast hans með nokkr- um orðum. Óla var fróðleiksfýsn í blóð borin og var hann einstaklega vel lesinn. Þeir sem þekktu hann kannast við þennan eiginleika. Við gátum alltaf leitað til hans ef okkur fýsti að vita eitthvað. Og ekki var að sökum að spyrja, Óli var með svör á hraðbergi. Við kölluðum það að „fletta upp í Óla“. Hann hafði ánægju af að leita frétta, grúska og segja frá, enda byrjaði hann snemma að skrifa. Hann var fréttamaður með sanni enda starfaði hann á þeim vettvangi um langan tíma, var m.a. einn af fyrstu fréttamönnum Sjónvarpsins. Hugmyndaauðgi Óla voru engin tak- mörk sett. Hugmyndir spruttu fram hraðar en hann gat frá skýrt og miklu hraðar en honum tókst að koma í framkvæmd. Engu að síður kom hann mörgu til leiðar á lífsleið- inni. Hann stofnaði ásamt Ellu Bókaútgáfuna Vöku er síðar varð Vaka-Helgafell. Velgengni fyrirtæk- isins var ekki síst undir því komin hve Óli var frjór í hugsun og reiðubú- inn að fara nýjar leiðir. Áhugamál Óla voru óteljandi. Honum var sérlega annt um íslenskt mál eins og sjá má á skrifum sem eft- ir hann liggja. Hann samdi texta við nokkur dægurlög en hvað þekktast er „Á sjó“ sem enn er eitt vinsælasta sjómannalag okkar og hefur hljómað á öldum ljósvakans í meira en þrjá áratugi. Óli hafði mikinn áhuga á gömlum Íslandskortum, einnig þjóð- sögum, áhuga sem hann hlaut í föð- urarf, en Óli gaf einmitt út fimm binda þjóðsagnasafn Ragnars föður síns. Ýmis skrif liggja eftir Óla um þjóðfræði, og útvarpsþættir hans um þjóðtrú urðu ákaflega vinsælir og langtum fleiri en til stóð vegna áhuga landsmanna. Þar naut sín sá hæfileiki að segja frá en við fengum oft að njóta frásagnargleði hans, t.d. þegar hann flutti okkur sögur um eyjar í Karíbahafinu í útvarpsþátt- unum „Á sjóræningjaslóðum“. Þar leiddi hann hlustanda milli eyja svo ljóslifandi að það var eins og áheyr- andinn væri á staðnum með honum. Ekki er ofsagt að Óli hafi verið óvenju vinmargur enda félagslyndur með afbrigðum. Hann tók fólki sem leitaði til hans ávallt vel og sérdeilis áhugasamur um það sem aðrir voru að gera; þar hefur sjálfsagt verið samhljómur með gömlu blaða- mannataugunum. Óli var baráttu- maður og þrautseigur og hann lét veikindin ekki aftra sér frá því að skrifa seinna bindi bókar um Halldór Laxness sem kom út rétt fyrir síð- ustu jól. Einnig er að koma út ljóða- bók sem hann skrifaði síðustu mán- uðina sem hann lifði. Óli var mikill fjölskyldumaður og naut þess að vera í faðmi fjölskyldunnar, hvort sem það var heima, í sumarbústaðn- um Brekkukoti eða á ferðum erlend- is. Sérstaklega eru eftirminnilegar minningar af honum með barnabörn- in í fanginu að segja sögur. Elsku Ella, Ragnar og Maggý, Kjartan og Ásta og börn, okkar inni- legustu samúðarkveðjur, Guð veri með ykkur. Sólveig og Ævar. Guðbjörg og Viðar. Elsku góði frændi minn. Það voru þung spor og sorg í sinni er við geng- um í síðasta sinn út úr sjúkrastofu þinni fyrir nokkrum dögum. Ég þótt- ist vita að ég myndi ekki sjá þig aftur hérna megin tjaldsins. Ég var með þeim fyrstu sem litu þig augum þá er þú fæddist í þennan heim. Ég bjó þá á heimili þinna ágætu foreldra. Frá fyrsta degi varst þú sólargeisli á heimilinu. Síð- ar eignaðist þú tvö frábær systkini og öll ólust þið upp við umhyggju og gott atlæti í foreldrahúsi. Hamingja ríkti á heimilinu, þar bar engan skugga á. Það var gott að alast upp á Siglufirði á þessum árum, mikið um að vera. Rætur þínar voru sterkar til æskustöðvanna alla tíð. Það sýndir þú svo oft í ræðum og riti síðar á lífs- leiðinni. Þú varst sjálfkjörinn foringi um árabil þeirra Siglfirðinga sem sest höfðu að á suðvesturhorninu en formennsku í Siglfirðingafélaginu í Reykjavík og nágrenni gegndir þú í nokkur ár. Einnig stóðst þú að yf- irgripsmikilli útgáfu á fimm bókum eftir föður þinn sem bar heitið Úr Siglufjarðarbyggðum sem lýsti mannlífi og sögu Siglufjarðar á liðn- um tímum. Fáir bæir eiga slíka út- gáfu til að státa af. Þegar þinni hefð- bundnu unglingafræðslu á Siglufirði lauk sóttir þú suður til frekara náms. Blaðamennska heillaði hug þinn all- an og eftir nokkra reynslu í henni var íslenska sjónvarpið að hefja göngu sína. Þú gerðist einn af fyrstu starfsmönnum þess og lagðir fyrir þig fréttamennsku, viðtalsþætti og ýmsa þáttagerð fyrir sjónvarpið. Rödd þín og framkoma öll varð til þess að þú vaktir athygli og vinsæld- ir áhorfenda. Þið Ella stofnuðuð bókaútgáfuna Vöku sem síðar varð Vaka-Helgafell. Með ótrúlega mikilli vinnu og hagsýni tókst ykkur að gera þessa bókaútgáfu að einni af stærstu útgáfum í landinu. Þú varst frábær stílisti og ritsnillingur, skrif- aðir margar viðtalsbækur og greinar í blöð og tímarit. Allt bar því vitni hvað þú hafðir gott vald á íslensku máli. Afrek vannst þú mörg í ykkar út- gáfustarfsemi en að þú skyldir geta lokið við síðara bindið af stóru við- talsbókinni um nóbelsskáldið, „Til fundar við skáldið“, eftir að þú varst kröftum þrotinn var óskiljanlegt. Þegar páskahátíðin var að ganga í garð gast þú augum litið eintak af ljóðabók eftir sjálfan þig sem er að koma út núna um mánaðamótin. Minningar um Óla frænda eru margar og bjartar. Þegar þið hjónin voruð að koma til Siglufjarðar með litlu prinsana ykkar og þegar þeir voru búnir að heilsa afa og ömmu vildu þeir óðara hlaupa til „Skúla frænda“ og heilsa okkur. Þar strax bundust traust vinabönd sem von- andi vara lengi enn. Eins og áður hefur komið fram varst þú ekki einn í lífsbaráttunni. Lífsförunaut þínum, Elínu Bergs, má líkja við klett sem hefur staðið með þér í blíðu og stríðu og sýnt al- veg ótrúlegt þrek og tryggð í þínum langvarandi veikindum og aldrei gef- ist upp. Eins hafa synir ykkar og fjölskyldur staðið traust við sjúkra- beð þinn. Guð launi ykkur fyrir. Óli var traustur hlekkur í stórfjöl- skyldukeðjunni og brást aldrei. Hann var veitandi, ekki þiggjandi. Eftir stendur vandfyllt skarð. Skúli og Guðrún. Það var ljóst þegar eitt okkar systkinanna heimsótti Óla fyrir um þremur vikum að stundaglas hans var að tæmast hratt. Tímabundnir sigrar sem höfðu unnist í orrustum við hinn illvíga sjúkdóm sem hann hafði glímt við af ótrúlegri raun í hátt í þrjú ár voru að verða að engu – stríðið var að tapast. Öllu er afmörk- uð stund, og sérhver hlutur undir himninum hefur sinn tíma segir Pre- dikarinn. Þrátt fyrir að við hefðum öll vitað að hverju stefndi og fengið fréttir nánast daglega hina síðustu daga þá setti okkur hljóð þegar and- látsfregnin kom. Minningar um góð- an mann og yndislegan frænda hrönnuðust upp. Í Heimsljósi segir á einum stað: Dauðinn er eitt af því fáa sem maður trúir ekki, kannski það eina. Við eigum erfitt með að trúa að góður frændi okkar sé genginn en hann er nú laus undan oki sjúkdóms- ins. Óli var næstelstur systkina- barnanna frá Eiðsstöðum í Blöndu- dal. Hann fæddist á Siglufirði og þar bjuggu um tíma fjögur Eiðsstaða- systkin með stóran krakkahóp. Mik- Ólafur Ragnarsson Sá sem eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson) Hjartans þökk fyrir vin- áttuna, elsku drengurinn. Egill Eðvarðsson. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.