Morgunblaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 04.04.2008, Blaðsíða 52
Ef maður er hjá ömmu sinni þá er það mögi- son, þar sem u er skýrt fram tekið sem flámælt ö… 59 » reykjavíkreykjavík  Stórsöngv- arinn Geir Ólafs situr ekki auðum höndum þessa dagana en auk þess að vera til- tölulega nýkom- inn frá Bandaríkjunum þar sem hann fylgdist með upptökum 34 manna hljómsveitar í hljóðveri út- gáfurisans Capitol Records á lögum fyrir fyrirhugaða plötu kappans, þá hefur hann lóðsað tónlistarmann- inn Bigga Gunn um fjölmiðlastræti borgarinnar og séð til þess að plata hans I Was Younger Then sé nægi- lega vel kynnt í öllum helstu miðl- um landsins. Annars heyrast þær sögur nú að Gísli Guðmundsson bílasölumaður, sem staðið hefur þétt við bakið á Geir, hafi sagt skilið við söngv- arann og vilja einhverjir meina að það haldist í hendur við vináttu Geirs við annan fjársterkan aðila, Bretann Peter Harvey, en Geir heillaði Harvey upp úr skónum á veitingastað á Kanaríeyjum á síð- asta ári. Hvað sem öllu því líður er ljóst að Geir mun takast að senda frá sér aðra stórsveitarplötu fyrir næstu jól – og er það vel. Tók upp í hljóðveri Capitol í Kaliforníu  Dr. Spock, Sign og Benny Crespo’s Gang þeytast nú um Suð- urlandið á leið austur. Í kvöld verð- ur þó stoppað í Höfn í Hornafirði þar sem Hornfirðingum verður gef- in kennslustund í rokki en næsti viðkomustaður er Eskifjörður. Tón- leikar á morgun hefjast ekki fyrr en kl. 22 en ástæðan er ferðalag tveggja liðsmanna Dr. Spock, Arn- ars Þórs Gíslasonar og Þorbjörns Sigurðssonar. Þeir félagar spila á Höfn í kvöld en fara ekki með band- inu með rokkrútunni til Eskifjarðar í fyrramálið, heldur fljúga suður til að geta spilað í Bandinu hans Bubba á föstudagskvöld. Að því loknu hoppa þeir upp í vél og fljúga austur þar sem þeir sameinast rest- inni af bandinu á sviði rétt eftir miðnætti. Á fleygiferð um landið Eftir Birtu Björnsdóttur birta@mbl.is „ÞAÐ hefur gengið alveg rosalega vel, bandið er vel þétt og það er mjög góður mórall hjá okkur strák- unum. Við höfum verið að kynnast svolítið upp á nýtt,“ byrjar Krummi, söngvari Mínuss, þegar blaðamaður hitti þrjá fjórðu hluta sveitarinnar að máli í London á dögunum. Þá var að baki 10 daga tónleikaferðalag um Bretland og síðustu tónleikar ferðarinnar áætl- aðir á Barfly-klúbbnum í London nokkrum klukkutímum síðar. Krummi: „Það eru þrjú eða fjög- ur ár síðan við túruðum síðast sam- an og þetta er í fyrsta sinn sem Siggi túrar með okkur.“ Bjarni: „Það er fínt að blása ryk- ið af okkur.“ Krummi: „Já blása rykið af túr- skónum.“ Hvernig líst nýjasta liðsmann- inum á þetta allt saman? Siggi: „Bara rosalega vel. Það er ótrúlega gaman að komast aðeins í burtu og vera bara að gera þetta, spila tónlist og hanga saman.“ Nú hafa Mínusmenn verið í smá- hvíld frá tónleikahaldi og öðru, var einhver sérstök ástæða fyrir því? Krummi: „Við tókum okkur smá- hvíld einfaldlega. Bjarni og Bjössi eignuðust börn …“ Bjarni: „Ekki saman reyndar.“ Krummi: „Og ég vildi fara að fá mér venjulega vinnu og finna mér íbúð. Hvíldin var alveg nauðsynleg. Mitt persónulega líf var í algjörum henglum þegar við komum heim úr tónleikaferðinni síðast og þá varð ég bara að taka mér tíma til að næra sjálfan mig og finna út úr mínum málum. En núna erum við alveg endurnærðir og það er svo gaman að vera saman.“ Eru tónleikaferðirnar með breyttu sniði hjá ykkur eftir hvíld- ina góðu? Krummi: „Við erum svo miklu ró- legri og sofum miklu betur. Metn- aðurinn hjá okkur liggur í því að fara snemma í háttinn til að við get- um verið úthvíldir daginn eftir og haldið frábæra tónleika. Við feng- um reyndar tveggja daga frí núna og þá fórum við á smáfyllerí og trúnó. Þegar við vorum yngri var miklu meiri kraftur í okkur til að vera í partístandi. Núna er þetta miklu þægilegra, það er enginn okkar búinn á því. Fyrir vikið erum við miklu betra band einfaldlega, spilum betur og erum þéttari.“ Nýir og gamlir áhorfendur Platan The Great Northern Whalekill kom út í Bretlandi í byrj- un mars og var tónleikaferðin farin til að fylgja henni eftir. Fundu strákarnir fyrir því að tónleika- gestir væru búnir að kynna sér nýja efnið? Bjarni: „Já það eru alltaf ein- hverjir.“ Krummi: „En svo var fólk líka ánægt þegar við tókum gömlu lög- in.“ Lifir Mínus á einhverri fornri frægð síðan síðast hér í Bretlandi? Krummi: „Já það eru alltaf ein- hverjir sem muna eftir okkur. En við erum líka að sanka að okkur nýjum hlustendum, sem er ekki síð- ur mikilvægt. Við erum að vissu leyti að byrja aftur á byrjuninni en eigum þó smáforskot síðan í gamla daga.“ Síðustu misseri hafa Mínusmenn alið mannin í Borgarleikhúsinu þar sem þeir taka allir þátt í uppfærslu Jesus Christ Superstar.Finnst þeim annað að fara í tónleikaferð með þá reynslu í farteskinu?“ Bjarni: „Við erum í miklu betri æfingu en við værum annars.“ Krummi: „Ja, það er ákveðin tækni sem ég lærði við að syngja á sviði sem ég nýti mér hiklaust. Ég hef meira þol í söngnum.“ Næsta plata á netið En eru þið farnir að leggja drög að nýrri plötu? Bjarni: „Já við erum búnir að semja fullt af nýju efni og ætlum að reyna að taka upp nýja plötu í júní eða júlí.“ Krummi: „Þetta eru ekki einu sinni lög hjá okkur. Þetta eru ein- hverjir 10 til 15 mínútna ópusar af einhverri sækadelíu. Næsta plata verður örugglega nokkurs konar konsept-plata, allavega ekki þessi hefðbundna 10 laga rokkplata. Við ætlum að fara í mikla tilrauna- mennsku. Og við erum líka búnir að blanda þessari tilraunamennsku svolítið við gömlu lögin okkar, nokkuð sem gestir á Organ fá að heyra.“ Og hvenær ætlið þið svo að gefa plötuna út? Krummi: „Ætli við reynum ekki að koma henni út á netið fyrir jólin. Við höfum aldrei farið þá leið áður en nú skuldum við engum plötufyr- irtækjum neitt og getum ráðið þessu alveg sjálfir.“ Bjarni: „Við græðum það lítið á hverri seldri plötu að við viljum frekar að sem flestir hlusti á okkur á netinu. Þannig er líklegra að fólk heyri í okkur og kaupi jafnvel fleiri plötur í kjölfarið. En við myndum trúlega ekki fara þessa leið ef við seldum hverja plötu í hundruðum þúsunda eintaka.“ Krummi: „Ég var reyndar mjög hrifinn af því sem þeir í Radiohead gerðu en þeir settu nýjustu plötuna sína á netið og fólk réð hvað það borgaði mikið fyrir að hlaða henni niður. Svona nokkuð aflimar líka plötufyrirtækin algerlega.“ Hverju mega tónleikagestir bú- ast við í kvöld? Krummi: „Við að spila mjög langt sett þar sem við spilum tónlist af öllum plötunum okkar í bland við nýtt, óútgefið efni. Við höfum verið að betrumbæta mörg af lögunum okkar líka undanfarið. Þetta eru bara tónleikar sem enginn Mínus- aðdáandi má láta framhjá sér fara. Blása rykið af túrskónum  Mínus nýkomin úr tónleikaferð um Bretland og heldur tónleika á Organ í kvöld  Tónleikaferð um Evrópu áætluð í maí og ný plata fer beint á netið Ljósmynd/Birta Björnsdóttir London Mínusliðar fyrir utan tónleikastaðinn Barfly í hinu skemmtilega Camden-hverfi í Norður-London. Nokkr- um tímum síðar stigu þeir sveittir niður af sviði eftir vel heppnaða tónleika.  Tökur á nýrri sex þátta spennuþáttaröð, Svörtum engl- um, hefjast í Reykjavík í lok apríl. Þættirnir eru byggðir á tveimur skáldsögum Ævars Arnar Jósepssonar, Skítadjobbi og Svört- um Englum, og verða þeir í leik- stjórn Óskars Jónassonar. Í helstu hlutverkum verða þau Sigurður Skúlason, Sólveig Arnarsdóttir, Steinn Ármann Magnússon og Dav- íð Guðbrandsson. Sigurjón Kjart- ansson hefur yfirumsjón með hand- ritaskrifum og verða þættirnir sýndir í Ríkissjónvarpinu áður en langt um líður. Svartir englar í tökur ■ Í kvöld kl. 21.00 Heyrðu mig nú! Öðruvísi upplifun af sinfóníutónleikum. Stuttir tónleikar þar sem listamennirnir kynna verkin og partí í anddyri Háskólabíós á eftir. Róbert Levin leikur píanókonsert eftir Beethoven og spinnur út frá lögum sem tónleikagestir leggja til. Heppnir tónleikagestir vinna iPod í boði FL Group. Hljómsveitarstjóri: Carlos Kalmar Einleikari: Robert Levin ■ Á morgun kl. 17.00 Kristallinn – kammertónleikaröð í Þjóðmenningarhúsinu Oktett eftir Ludwig Spohr, sem á sinni tíð var talinn standa jafnfætis Beethoven og Mozart. ■ Fim. 10. apríl – Örfá sæti laus Síðbúin meistaramessa Heimsóknir heiðursstjórnanda hljómsveitarinnar, Vladimir Ashkenazy, eru alltaf stórviðburður. Að þessu sinni stjórnar hann flutningi á Missa Solemnis eftir Beethoven.Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.