Morgunblaðið - 04.04.2008, Qupperneq 60
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 95. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
5 milljónir snúa til baka
Um fimm milljónir flóttamanna
hafa snúið til baka til Afganistans
á undanförnum árum, en málefni
landsins eru til umræðu á leiðtoga-
fundi Nató sem Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra og Geir
H. Haarde forsætisráðherra
sitja. Leiðtogafundurinn samþykkti
yfirlýsingu um að Georgía og
Úkraína ættu rétt á aðild að
Nató. » Miðopna
TM biðst afsökunar
Anton Bjarnason sem lýsti lélegri
neyðarþjónustu TM og VISA eftir
skíðaslys á Ítalíu í Morgunblaðsgrein
í gær, fékk afsökunarbeiðni frá TM í
gær og jafnframt ætlar VISA að
kanna hvað hafi farið úrskeiðis. »12
Átelur Hannes
Höfundarréttarbrot Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar prófessors
gegn Halldóri Laxness er áfall fyrir
Háskóla Íslands að mati rektors. »6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Skilin á vinstri væng
Forystugreinar: Fellum niður
stimpilgjöld | Hækkanir og hungur
Ljósvakinn: Íslenskan og fjölmiðlar
UMRÆÐAN»
Kaupendamarkaður
Með ósýnilega hönd og blá augu
Ógleymanleg sumardvöl í Vindáshlíð
Færeysk menningarveisla
Mikill samdráttur í bílasölu í BNA
Hetja áttunda áratugarins
Viktor á uppleið í Formúlu-3
Verðlauna Volvo fyrir árekstravörn
BÍLAR»
#4#
4 #4
4
4 4 # '4##
5 !6 ( /
, !
7
$ & 2 ''
# 4 #4'
4 4
4#
# '4# 4'
'4 . 82 ( # 4 # 4##
4 #4
'4# 9:;;<=>
(?@=;>A7(BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA(8 8=EA<
A:=(8 8=EA<
(FA(8 8=EA<
(3>((A& G=<A8>
H<B<A(8? H@A
(9=
@3=<
7@A7>(3,(>?<;<
Heitast 0 °C | Kaldast -6 °C
Norðlæg átt, 5-10
m/s. Léttskýjað sunn-
an og vestan til á land-
inu en dálítil él norðan
og austan til. » 10
Píanóleikarinn Ro-
bert Levin vonar að
nemendur sínir við
Harvard muni verja
peningum í menn-
ingu og listir. » 54
TÓNLIST»
Opnar dyr
að undrum
TÓNLIST»
Ánægður með að vera
kominn aftur. »57
Múgison er aðals-
maður vikunnar. Í
partífíling er nafnið
borið fram mjúkíson
en mögisön hjá
ömmu hans. »59
TÓNLIST»
Gríðarlega
vel byggður
TÓNLIST»
Mínusliðar klæðast
túrskónum að nýju. »52
KVIKMYNDIR»
Diaz er sátt við hvar
kílóin setjast. »55
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Nöfn þeirra er létust
2. Mikill hiti í bílstjórum
3. Mamma Beckhams brjáluð
4. Úthald ekki lykillinn
Íslenska krónan veiktist um 0,03%
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
FRANSKI knattspyrnumaðurinn fyrrverandi,
Emmanuel Petit, festi í fyrradag kaup á tveimur
málverkum eftir Óla G. Jóhannsson listmálara á
Akureyri. Verkin kaupir Petit
gegnum umboðsaðila Óla,
Opera-galleríið, í Lundúnum.
Jean-David Malat, galleristi,
segir að Petit sé mikill áhuga-
maður um myndlist og hafi
safnað verkum kerfisbundið
undanfarinn áratug. „Okkur
Petit er vel til vina og hann hef-
ur keypt mikið af okkur. Ég hef
verið að ráðleggja honum að
kaupa verk eftir listamenn sem
eru nýir á sjónarsviðinu, m.a. Óla, enda sé það góð
fjárfesting. Hann þurfti raunar lítillar sannfær-
ingar við þar sem hann er þegar orðinn mikill aðdá-
andi Óla.“
Petit er ekki eini sparkandinn sem skiptir reglu-
lega við Opera-galleríið því William Gallas, fyrirliði
Arsenal, er fastagestur á sýningum á þess vegum.
Petit gerði garðinn frægan m.a. með ensku félög-
unum Arsenal og Chelsea en frægastur er hann lík-
lega fyrir að hafa skorað þriðja mark Frakka í
fræknum sigri á Brasilíumönnum í úrslitaleik HM
fyrir tíu árum. Hann leggur nú stund á viðskipti,
auk þess að annast sparklýsingar í sjónvarpi.
Óli segir alltaf ánægjulegt þegar mikilvægir
safnarar sýni verkum hans áhuga, ekki síst þegar
þeir eru jafn þekktir og Petit.
„Það spillir heldur ekki fyrir að hann lék með
Arsenal en ég hef lengi haft taugar til þess liðs.“
Opnar listhús á Akureyri
Óli hefur í ýmsu að snúast þessa dagana en 17.
þessa mánaðar verður opnuð sýning á verkum hans
í Singapúr. Sama dag opnar hann listhúsið Fest-
arklett í gömlu kartöflugeymslunni í Listagilinu á
Akureyri. Þá opnar hann einkasýningu hjá Opera-
galleríinu í New York 1. maí.
Þegar orðinn mikill aðdáandi
Knattspyrnumaðurinn Emmanuel Petit kaupir málverk eftir Óla G. Jóhannsson
Listamaðurinn opnar á næstu vikum sýningar í Singapúr og New York
Aðdáandi Emmanuel Petit og Malat galleristi
hjá Opera við annað verkið sem Petit keypti.
Óli G. Jóhannsson
Eftir Karl Blöndal
kbl@mbl.is
BANDARÍSKI lögmaðurinn og
refsiréttarsérfræðingurinn Alan
Dershowitz segir að nýtt form
stríðs kalli á nýjar reglur.
„Það þarf nýjar alþjóðlegar regl-
ur til að taka á óhliðstæðum átök-
um, til dæmis milli hryðjuverka-
manna og lýðræðisríkja,“ segir
hann. „Í gömlu reglunum var skýr
skilgreining þess efnis að menn
væru almennir borgarar nema þeir
væru klæddir einkennisbúningum
merktum stöðu þeirra. Það er fá-
ránlegt nú. Hryðjuverkamenn eru
ekki í einkennisbúningum, þeir
bera ekki vopn á almannafæri og
eru ekki merktir stöðu sinni.
Hryðjuverkamenn eru stríðsmenn.
Það er ekki lengur skýr lína á milli
almennra borgara og stríðs-
manna.“
Kona breytist t.d. í stríðsmann ef
hún gerist mannlegur skjöldur, en
taki hún barnið sitt með geti það
ekki talist stríðsmaður.
„Stríð eru ekki lengur háð af
fólki í einkennisbúningum,“ segir
Dershowitz. „Getur nokkur maður
neitað því að þeir, sem stóðu á bak
við hryðjuverkin 11. september
voru hermenn?“ | 26
Alan Dershowitz segir stríð hafa tekið á sig nýtt form
Vill nýjar
reglur
um átök
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verjandinn Alan Dershowitz fór í lögfræði til að taka málstað lítilmagnans
og þiggur ekki þóknun fyrir helming þeirra mála, sem hann tekur að sér.
„ÉG er svo mikil puttamanneskja og
vil helst alltaf vera að búa eitthvað
til,“ segir Ragnheiður Bjarnadóttir
sem á aðeins fjög-
ur ár í að verða
100 ára. Hún man
tímana tvenna en
hún var t.d.
fyrsta stúlkan
sem lærði á bíl í
Þingeyjarsýslu.
Ragnheiður er
aldrei verkefna-
laus og nýtir
hverja stund til
að prjóna agnar-
smáa vettlinga á langömmubörnin.
Eftir hana liggja ófáir fagrir hand-
gerðir munir sem hún hefur flesta
gefið en eitt af því sem er enn í fór-
um hennar er stór kaffidúkur sem
hún saumaði út í. Munstrið tók hún
upp eftir postulínskaffistelli
skreyttu páfuglum sem hún og mað-
ur hennar, Arthur Guðmundsson,
fengu í brúðargjöf árið 1942.
Saga dúksins er sérstök, efnið í
hann fékk hún t.a.m. í þakklætis-
skyni fyrir að hlaupa uppi þjóf og
árið 1980 vildi forstjóri Royal
Crown Derby-verksmiðjunnar sem
framleiddi postulínsstellið kaupa
dúkinn dýrum dómum en fékk af-
svar: Dúkurinn er ekki falur. | 24
Dýrmætur
páfugladúk-
ur ekki falur
Fékk dúkefnið fyrir
að hlaupa uppi þjóf
Ragnheiður
Bjarnadóttir