Morgunblaðið - 19.04.2008, Page 60
60 LAUGARDAGUR 19. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
RUINS kl. 6 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
FOOL´S GOLD kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:30 B.i.7 ára
STEP UP 2 kl. 2 - 4 LEYFÐ
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
SPARBÍÓ 550kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB
SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI
óbreytt miðaverð á midi.is
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
FORGETTING SARAH MARSHALL kl. 3:15 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
FORGETTING SARAH MARSHALL kl. 8 - 10:30 LÚXUS VIP
P2 kl. 6 - 8:15 - 10:30 B.i. 16 ára
SHINE A LIGHT kl. 8 - 10:30 LEYFÐ
SHINE A LIGHT kl. 3:15 - 5:30 LEYFÐ LÚXUS VIP
STÓRA PLANIÐ kl. 2D - 4D - 6D B.i. 10 ára DIGITAL
P2 kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 16 ára
STÓRA PLANIÐ kl. 2D - 4D - 6D - 8D - 10D B.i. 10 ára DIGITAL
JUNO kl. 6 B.i. 7 ára
THE BUCKET LIST kl. 8 B.i. 7 ára
10,000 BC kl. 10:10 B.i. 12 ára
HANNAH MONTANA kl. 23D - 43D LEYFÐ 3D-DIGITAL
UNDRAHUNDURINN ísl tal kl. 2 - 4 LEYFÐ
UNDRAHUNDURINN
ER BESTI VINUR
MANNSINS
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALISÝND Í ÁLFABAKKAOG KRINGLUNNI
SÝND Í KRINGLUNNI
eeeee
Rás 2
eeee
- 24 Stundir
eeee
- V.J.V. Topp5.is/FBL
eeee
- S.U.S. X-ið 97.7
SÝND Í KRINGLUNNI
SVO gæti farið að
Madonna fengi
með tvennum tón-
leikum í Dúbaí um
12,5 milljónir
punda ef samn-
ingar nást milli
tónleikahaldara
þar í landi annars
vegar og ónefnds
fjármálamanns
hins vegar sem vill
að hún syngi í
einkasamkvæmi
sem hann hyggst
halda. Að sögn
heimildarmanns í
starfsliði Madonnu eru samningar
á lokastigi um að Dúbaí verði
áfangastaður í heimstónleikaferð
söngkonunnar, fjársterkir styrkt-
araðilar þar í landi eru víst afar
áhugasamir um Madonnu og eru
til í að borga um 7,5 milljónir
punda fyrir tónleikana. Fari svo
að samningar náist milli Madonnu
og fjármálamannsins yrði það í
fyrsta skipti á ferli hennar sem
hún samþykkir að koma fram við
slíkar aðstæður gegn greiðslu.
Talið er að nýgerður samningur
Madonnu við alhliða-tónlistarris-
ann Live Nation hafi fært hana
upp um nokkra launaflokka. Sá
samningur hljóðaði upp á 60
milljónir punda og þegar sú upp-
hæð er lögð saman við tekjur
Madonnu af síðustu tónleikaferð
er ljóst að hún er langtekjuhæsta
tónlistarkona heims um þessar
mundir.
Engum sögum fer af við-
brögðum strangtrúaðra múslima í
Sádí-Arabíu við þessum fréttum
en skemmst er að minnast þess
þegar Madonna hneykslaði kaó-
likka um allan heim með lagi sínu
„Like a Prayer“.
Fær sand af seðlum fyrir
að troða upp í Dúbaí
Madonna Gull og grænir skógar
eru daglegt brauð á hennar heimili.
Reuters
FÖNKSVEITIN Jagúar er á leið í
tónleikaferðalag um Eystrasaltslönd
að þrábeiðni eistnesks aðdáanda
hljómsveitarinnar. „Það var aðili í
Tallinn sem setti sig í samband við
okkur í fyrra og hafði mikinn áhuga
á því að fá okkur á djasshátíð þang-
að. Hann hafði reynt það áður en það
gekk ekki eftir. Okkur langaði að
fara, við höfum aldrei komið þangað
og úr varð að hann setti sig í sam-
band við tvær hátíðir í Finnlandi og
Litháen til þess að það yrði þess
virði fyrir okkur að fara alla þessa
leið,“ segir Samúel Jón Samúelsson
básúnuleikari í Jagúar.
Hann er ekki viss hvernig þessi
Eisti fékk svona mikinn áhuga á
Jagúar. „Ég hef ekki hugmynd,
hann er greinilega bara með mjög
góðan smekk.“
Meðlimir Jagúars hafa verið á kafi
í öðrum verkefnum að undanförnu
en það þýðir ekki að þeir séu á leið-
inni að slíta samstarfinu.
„Við erum allir búnir að vera voða
uppteknir og spilandi með hinum og
þessum. Við tökum bara eitt skref í
einu og svo setjumst við niður og
spáum í framhaldið. Hljómsveitin á
tíu ára afmæli í ágúst og við erum
svona að reyna að finna út hvað við
gerum í tilefni af því. Það er ým-
islegt í gangi og við erum mjög langt
frá því að fara að leggja þetta niður.“
segir Samúel og býst við því að
næsta plata Jagúars líti dagsins ljós
á næsta ári.
Íslenskt fönk við Eystrasalt
Morgunblaðið/Golli
Fönksveit Jagúar stefnir að því að senda frá sér nýja plötu á næsta ári.
Fönksveitin Jagú-
ar fagnar tíu ára
afmæli í ágúst
» Við erum allir
búnir að vera voða
uppteknir og spilandi
með hinum og þessum.
Við tökum bara eitt
skref í einu...